Þjóðviljinn - 08.12.1987, Qupperneq 2
—SPURNINGIN—
Ætiarðu að gefa í söfn-
un Hjálparstofnunar
Þjóðkirkjunnar í ár?
Helgi Eiríksson hönnuður:
Við hjá Lumex erum nýbúin að
styrkja söfnunina með 50 þúsund
krónum og viljum hvetja fólk til að
leggja eitthvað af mörkum. Ég er
ósáttur við hvernig þetta fór um
árið.
Laufey Jensdóttir verslunar-
stjóri:
Nei, ég ætla ekkert að gefa; mað-
ur veit ekkert í hvað þessir pen-
ingar fara.
Kai Stormgaard sölustjóri:
Já, við erum vön að gera það á
mínu heimili. Það verður engin
breyting á því núna.
Bjarni Sverrisson sölumaður:
Ja, ég gaf í hittifyrra en ekkert í
fyrra. Ætli röðin sé þá ekki komin
að manni í þetta skiptið.
Sigurfljóð Jónsdóttir ellilífeyr-
isþegi:
Jú, eitthvað smávegis eins og
venjulega. Ég býst alveg við því.
__________________FRÉTTIR_________________
Grundarfjörbur
Allur kvóti búinn
Soffanías Cecilssonfiskverkandi og útgerðarmaður: Allt mittfólk á kauptryggingu
fráogmeð 10. desember. Styð byggðakvóta Alþýðubandalagsins
Frá og með 10. desember
næstkomandi fer allt mitt
starfsfólk á kauptryggingu og
bátarnir verða bundnir við
bryggju fram yfir áramót. Astæð-
an er sú að þeir eru búnir með
allan sinn kvóta, segir Soffanías
Cecilsson fiskverkandi og útgerð-
armaður í Grundarfirði í samtali
við Þjóðviljann í gær.
Að sögn Soffaníasar gerir hann
út fjóra báta frá Grundarfirði.
Þeir fengu í ár úthlutað kvóta upp
á 150-210 tonn af þorski og hlið-
stætt af öðrum tegundum. Að
auki um 200 tonn af hörpudiski,
en dugir þó ekki til að halda uppi
fullri vinnslu út allt árið.
Aðspurður sagðist Soffanías
styðja heilshugar nýju fisk-
veiðistefnu Alþýðubandalagsins
um byggðakvóta. Sagði hann að
við það myndu byggðarlög sem
allt sitt eigi undir fiskvinnslu og
útgerð styrkjast í sessi umfram
sem nú er.
„% kvótans í byggðarlögin og
Vi hans fylgi skipum og bátum. Ef
þetta nær fram að ganga geta nýir
aðilar gerst þátttakendur í út-
gerð, sem ekki veitir af og enn-
fremur sem er ekki síður um vert:
Að verð á bátum og skipum mun
verða í samræmi við tryggingar-
verð þeirra,“ sagði Soffanías
Cecilsson í Grundarfirði. gfh
Samstaba launafólks í kjarasamingunum frammundan er mjög brýn. Það þarf sýnilega baráttu til að knýja
fram kjarabætur nú uppúr áramótum, og menn verða að búa sig undir átök. Þetta sögðu þeir Ólafur Ragnar
Grímsson og Björn Grétar Sveinsson á vinnustaðafundi með starfsmönnum Granda í Reykjavík í gær, þarsem
þeir kynntu umræður og niðurstöður á miðstjórnarfundi Alþýðubandalagsins um kjaramál og fiskveiðistefnu. Atli
tók myndina af rólegum kaffisamræðum eftir fundinn í hádeginu hjá Granda.
Staðgreiðslan
Skattkortin
í póst
Skúli Eggert Þórðar-
son, forstöðumaður
staðgreiðsludeildar:
Höfum staðist áœtl-
anir
Hlýindi
Sárt bítursitkalús
að eru kjörnar aðstæður fyrir
sitkalýsnar að fjölga sér núna
í hlýindunum, stofninn er í fullri
fjölgun um þetta leyti, segir Þór-
arinn Benedikz, forstöðumaður
Tilraunastöðvar skógræktarinn-
ar á Mógiisá, en að undanförnu
hafa smálýs þessar herjað á gren-
itré og valdið spjöllum.
- Núna væri gott að fá snöggt
frost til að minnka stofninn, sagði
Þórarinn. Hann gat þess jafn-
framt að hlýindin ættu ekki að
hafa slæm áhrif á gróður eins og
er, að viðgangi sitkalúsanna
slepptum.
Þórarinn sagði að lúsin væri
nokkuð dreifð núna. Til dæmis
væri hún útbreidd austur á Hér-
aði, og teldist það til nýlundu.
Sitkalúsin getur verið nokkuð
ánægð með veðurhorfurnar;
alltént er búist við áframhaldandi
hlýindum um land allt næstu
daga.
HS
- Hluti skattkortanna er þegar
kominn í póst, og við stefnum að
því að þau verði það öll á hádegi í
dag, segir Skúli Eggert Þórðar-
son, forstöðumaður staðgreiðslu-
deildar ríkisskattstjóra.
206,700 skattkort hafa verið
gefin út vegna 184,867 einstak-
linga að sögn Skúla. Aukaskatt-
kortin sem elli- og örorkulífeyris-
þegar fá í hendur eru ríflega
21,800 talsins.
Skúli var spurður hvort emb-
ættinu bærist mikið af fyrirspurn-
um vegna hins nýja stað-
greiðslukerfis, og sagði hann að
ekki væri sérlega mikið um slíkt:
„Það er okkar mat að sá áróður
sem hefur verið í gangi hafi skilað
sér nokkuð vel. Þeir sem hringja
hingað eru flestir að spyrja um
ákveðin markatilvik," sagði
hann.
- Við höfum staðist áætlanir
hingað til, og það er ekki annað
að sjá en að kynningin hafi tekist
vel, bæði hvað varðar upplýsing-
abæklinginn sem dreift hefur ver-
ið og eins auglýsingar, sagði Skúli
Eggert. HS
Samræður um
heimspeki
Bókaforlagið Svart á hvítu hef-
ur nú sent frá sér bókina Sam-
rœður um heimspeki. Bókin er
fyrsta sinnar tegundar sem gefin
er út á íslensku.
Meginefni bókarinar er
heimspekihugsun Brynjólfs
Bjarnasonar síðustu áratugi og er
hún nokkurs konar grunnur að
spjalli þeirra, en til viðbótar
koma innlegg þeirra Páls Skúla-
sonar og Halldórs Guðjónssonar
sem á köflum eru síst efnisminni
en viðfangsefnið í bakgrunnin-
um. Ýmis umræðuefni ber á
góma í samræðum þeirra og má
þar til dæmis nefna trúarbrögð og
tilvist guðs, þekkingarfræði,
spurningar varðandi framhaldslíf
og eilíft líf, níhilisma, spíritisma,
samband vitundar og veruleika
auk umræðu um heimspeki
þeirra Camus, Sartre og Hegels.
Eyjólfur Kjalar Emilsson skrif-
ar innganga að bókinni og til við-
bótar við samræðurnar þá ritar
Brynjólfur Bjarnason eftirmála.
Bókin er 195 blaðsíður.
Brynjólfur Bjarnason
Olíumengun
í rannsókn
Hafnarstjórn Hafnarfjarðar
samþykkti í gær að hafnarstjóri,
óskaði eftir rannsókn lögreglu á
því hver hefði hellt niður svart-
olíuúrgangi á nýrri uppfyllingu í
suðurhöfninni.
í eftirlitsferð hafnarstjórnar-
manna um hafnarsvæðið um
helgina kom í ljós að stórri bifreið
hafði verið ekið inn á uppfylling-
una og hellt niður töluverðu
magni af svartolíuúrgangi. Hefur
eðjan runnið um hundrað metra
eftir uppfyllingunni niður að sjó
og er fet að dýpt, en ljóst er að
töluvert af olíunni hefur sigið nið-
ur í uppfyllinguna. -Ig.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 8. desember 1987