Þjóðviljinn - 08.12.1987, Blaðsíða 6
FLÓAMARKAÐURINN
B/EKUR
Saab 900
til sölu. Blá-sans, 4ra dyra, bein-
skiptur. Skoðaöur ’87. Góður bíll.
Uppl. í síma 71858.
Saab-bílar og varahlutir
Til sölu Saab 99 árg. '75 sjálfskiptur
og Saab 99 árg. '77 beinskiptur.
Einnig varahlutir í Saab, m.a. vélar
og gírkassar. Hagstætt verð. Uppl. í
síma 44503 á kvöldin og um helgar.
Húsnæði óskast
Samvinnuferðir-Landsýn óska eftir
3 herbergja íbúð fyrir fjölskyldu
starfsmanns fyrirtækisins. Reglu-
semi og skilvísum greiðslum heitið.
Uppl. í síma 79319 eftir kl. 19.
Til sölu
Handunndar rússneskar tehettur
og matrúskur (babúskur) í miklu úr-
vali. Góðar gjafir á góðu verði.
Uppl. í síma 19293. Póstkröfuþjón-
usta.
Til sölu
Fallegt antiksófasett til sölu,
3+1+1+1. Nýlega yfirdekkt. Verð
kr. 40.000.- Sími 28257.
Til sölu
Ný Armstrad 8512 til sölu. Selst
ódýrt. Sími 682012.
Til sölu
hjónarúm og náttborð, verð
kr.2.500.-, Westinghouse þvottavél
á kr. 15.000.-. Hægindastóll á kr.
500.-. Ferðataskaá kr. 500.-. Uppl. í
síma 30673.
Til sölu
9 kg af Playmobil, vel með farið, til
sölu. Selt í einum pakka eða minni
einingum. Einnig til sölu Ludvig
trommusett og tvískiptur Moulinex
ofn 55x55. Uppl. í síma 12056 e. kl.
15.
Til sölu
Ford Fiesta, mikið endurnýjaður á
kr. 5.000.-, staðgreitt. Uppl. í síma
42101.
Til sölu
Betavideótæki. Uppl. ísíma42101.
Til sölu
göngustóll, hoppróla og burðar-
poki. Einnig til sölu nýlegt glerborð.
Uppl. í síma 46124.
Til sölu
hjólaskautar og Mitre fótboltaskór
nr. 40. Auk þess hlýlegur náttslopp-
ur. Allt vel með farið. Uppl. í síma
73684.
Karlmannsföt
Er vaxinn upp úr tvennum nýjum
jakkafötum nr. 49. Ef þú vilt líta á
þau skaltu hringja í Dúddu mág-
konu e. kl. 18 í síma 22976. Verð
eftir samkomulagi.
Jólasveinabuningar
Þú sem saumar jólasveinabúninga
vinsamlegast hringdu í síma
621643.
Vandaðir og vel útlítandi
hlutir - næstum gefins
Nýtt Ross Bigmouth 100 W bass-
amagnari með equalizer, bað-
skápur í Ijósum viðarlit með spegla-
hurðum og baðspegill með festing-
um. Uppl. í síma 45755 í kvöld og
annað kvöld.
Tii sölu
antiksófasett, sófi og 3 stólar, gott
áklæði. Sími 28257.
Óska eftir
skáp eða kommóðu, hámarks-
breidd 70 cm, má vera gamalt.
Einnig ryksugu og eldhússtólum 2
til 4 stykkjum. Sími 28257.
Ignis frystikista
til sölu. Selst ódýrt. Uppl. í síma
681967.
Trabant 84
skoðaöur 87 er til sölu, ekinn tæp-
lega 30 þús. km. Verð kr. 40.000,-.
Uppl. í síma 15280 og v.s. 84566.
Kristín U.
Ættfræðiáhugamenn
Til sölu eða til skipta: íbúaskrá
Reykjavíkur 1962,68, 73,78,83 og
84, Rangvellingabók l-ll, Jarða- og
búendatal í Skagafirði I, Byggðir
Eyjafjarðar l-ll, íslenskir samtíðar-
menn III, Niðjatal Sveins á Hesti,
Framættir og niðjatal Steinunnar
Kristjánsdóttur, Ættarþættir o.fl.
ættfræðileg efni. Sími 27101.
Til sölu
ísskáþur, Ijótur en með nýlegum
mótor. Fæst fyrir 3.000 kr. Sími
76807.
Til sölu
Gamall, góður Zanussi ísskápur
fæst fyrir kr. 2.000.-, hæð 111 cm,
br. 55 cm, dýpt 55 cm. Uppl. í síma
10143.
Fuglar
2 páfagaukar í búri til sölu. Uppl. í
síma 21784.
Til sölu
Fallegur Mothercare barnavagn til
sölu. Ljósgrár að lit, notaður af einu
barni, er sem nýr. Selst ódýrt. Vil-
borg, sími 10660.
Ökukennsla
æfingatímar. Sími 28852 kl. 20-21.
Valur Haraldsson.
Til sölu
Sporöskjulagað eldhúsborð og 4
stólar frá Stálhúsgögnum til sölu v/
flutninga. Verð kr. 6.000.-. Sími
32539.
Óska eftir
að kaupa mótatimbur, 1x6 og 2x4.
Uppl. í síma 12014.
Rafha samstæða
til sölu, ofn og plata m/4 hellum. Er í
topplagi. Slmi 46218 e. kl. 4.
Til sölu
4ra sæta sófi fæst fyrir lítið, ný ensk
karlmannsföt fyrir háan og grannan
mann, Masters kastali og kallar.
Uppl. í síma 27101.
AG hreingerningar
annast allar almennar hreingern-
ingar og gólfteppahreinsun. Vönd-
uð vinna, viðunandi verð. Reynið
viðskiptin. Sími 75276.
Til sölu
stór amerísk 4ra hellu eldavél til
sölu mjög ódýrt. Til sýnis að Hverf-
isgötu 17, Hafnarfirði. Uppl. í síma
27698 e. kl. 20.
Dagheimilið Foldaborg
Okkur vantar 2 fóstrur eða þroskaþjálfa í 50%
stuðningsstarf eftir hádegi frá og með 1. janúar
1988. Einnig vantar okkur fóstru í 100% starf frá
og með 1. janúar.
Við á Foldaborg getum státað af góðu uppeldis-
starfi og góðum starfsanda. Lysthafendur vin-
samlegast hafið samband við forstöðumann í
síma 673138.
(Barnabílstóll
- bílpúði - belti!
No
;
Notar barnið þitt
öryggisbúnað í bílnum?
yUMFERÐAR
RÁÐ
Endurminningar
Höllu Linker
Iðunn hefur gefið út bókina
Uppgjör konu — endurminn-
ingar Höllu Linker. Halla Linker
giftist ung bandarískum kvik-
myndaframleiðanda og flutti til
Vesturheims. Þaðan ferðuðust
þau um heiminn, tóku kvikmyndir
af löndum og lífsháttum, og
gerðu þætti fyrir bandarísk sjón-
varpið.
Utgefandi kynnir efni bókar-
innar svo: „Þessi bók er uppgjör
Höllu Linker við þá ímynd sem
skapaðist af henni í gegnum fjöl-
miðla í fjölda mörg ár. Aldrei sást
annað en yfirborðið, frægð og
velgengni. En þannig var líf
hennar aldrei í raun og veru. Nú
lítur hún til baka yfir tuttugu og
átta ár í hjónabandi með manni
sem var fimmtán árum eldri en
hún og stjórnaði henni eins og
brúðu og tók allar ákvarðanir
fyrir hana. Þegar hann lést
skyndilega kom að því að hún
þurfti að standa ein og óstudd í
fyrsta sinn, bjarga sér, læra að
umgangast karlmenn, kynnast
því að verða ástafangin eins og
ung stúlka...
... Saga Höllu Linker er engin
harmsaga, heldur óvenjuleg ævi-
saga óvenjulegrar konu, sem séð
hefur og reynt fleira en flestir ís-
lendingar.“
Endurminningar
Emils
Björnssonar
Litríkt fólk nefnist 2. bindiævim-
inninga Emils Björnssonar, sem
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hef-
ur gefið út. Segir Emil frá sam-
ferðamönnum og atburðum á 4.
og 5. tugi aldarinnar. Fyrra bindi
æviminninga „Á misjöfnu þrífast
börnin best“, kom út fyrir síðustu
jól og hlaut hinar bestu viðtökur.
Séra Emil segir svo í formáls-
orðum:
„Þessi bók geymir minningar
frá fjóða og fimmta tugi tuttug-
ustu aldar á íslandi. Á þeim tíma
urðu mestu þáttaskil í sögu lands
og þjóðar. Þá var kreppa, her-
nám, heimsstyrjöld og lýðveldis-
stofnun í brennidepli. Þá varð
lífskjara- og lífsháttarbyltingin.
Nýfrjálsri þjóð opnaðist ný ver-
öld í viðsjálum heimi. Og kalt
stríð tók við af heitu".
í Litríku fólki er straumur af
fólki á þjóðlífsbrautum sem höf-
undur kynntist og starfaði með,
frömuðum í skólamálum,
skólafélögum, kolakörlum, há-
skólakennurum, hugsjónamönn-
um, alþingismönnum, guðs-
mönnum og útvarpsmönnum.
Aiþýdufiokk-
urinn
og erlent
fjármagn
„Kæri Hans,
Ég veit að þú þekkir nokkuð til
flokksmála hér á landi og þess
klofnings sem gerði vart við sig á
síðastaflokksþingi. Ég hef áður
skrifað þér um þessi leiðindamál,
og ég held því miður að tíminn
hafi staðfest skoðanir mínar og
ótta. Ég reikna með að þú vitir
hvernig í málunum liggur".
Þannig hefst bréf Stefáns Jó-
hanns Stefánssonar til Hans Hed-
toft 2. apríl 1953, en bréfið er birt
í bókinni Gullna flugan í kafla
sem nefnist „Hannibal leitar
norræns stuðnings og Stefán Jó-
hann hefst handa“. Bókin er eftir
ungan sagnfræðing, Þorleif Frið-
riksson, og á kápu segir að í bók-
inni sé rakin saga átaka í Alþýð-
uflokknum og erlendrar íhlutun-
ar um íslensk stjórnmál í krafti
fjármagns.
Aftan á bókarkápu segir m.a.:
„Gullna flugan segir frá átökum
Alþýðuflokksforystunnar við
pólitíska andstæðinga innan og
utan verkalýðshreyfingarinnar.
Hvaða aðferðum var beitt og að
hvaða leyti hafði erlend aðstoð
áhrif á gerðir flokksforystunnar
gagnvart t.d. Ólafi Friðrikssyni,
Héðni Valdimarssyni og Hanni-
bal Valdimarssyni, kommúnist-
um, sósíalistum og hannibalist-
um? Var um aðra aðstoð að ræða
en í formi peninga? Hverjir veittu
aðstoð erlendis frá? Settu er-
lendir láns- og styrkveitendur
einhver skilyrði fyrir aðstoðinni?
Mótaði erlend aðstoð á einhvern
hátt skoðanir Alþýðuflokksfor-
ystunnar til stórpólitískra mála
eins og sambandsmálsins 1918 og
lýðveldismálsins 1944? Hafði er-
lend aðstoð áhrif á vöxt og við-
gang Alþýðuflokksins?
Gullna Flugan er sagnfræðilegt
tímamótaverk þar sem fjallað er
um stjórmálaviðburði aldarinnar
og byggð á gögnum sem ekki er
hægt að vefengja.“
Höfundurinn er ungur sagn-
fræðingur sem stundaði nám við
Háskóla íslands og Lundarhá-
skóla í Svíþjóð. Að námi loknu
bjó hann í Kaupmannahöfn í
fjögur ár - þar sem hann stundaði
rannsóknir á sögu evrópskrar
verkalýðshreyfingar. Hann er
ráðinn hjá Verkamannafélaginu
Dagsbrún til þess að skrifa sögu
félagsins og kennir jafnframt við
heimspekideild Háskóla fslands.
Alfinnur
álfakóngur
Bókavarðan- verslun í Reykja-
vík með gamlar og nýjar bækur
hef ur sent frá sér 46. bóksölu-
skrána. Þareraðfinnarúmlega
1000 titla bóka f rá síðustu 200-
300 árum og eru þær af mjög
margvíslegutagi.
Þarna eru skáldsögur erlendra
og íslenskra höfunda, mikið af ís-
lendingasögum í úgáfum helstu
íslenskra og erlendra fræði-
manna, héraðasögur í úrvali og
þjóðlegt efni - auk ljóða og
leikrita. M.a. er þarna að finna
„Horfna góðhesta" 1.-2. bindið
eftir Ásgeir Jónsson, Skaðaveður
1.-3. bindið, fjöldann allan af
bókum Árna Óla rithöfundar,
flestar bækur Fornritafélagsins,
fágætar útgáfur á verkum Hall-
dórs Laxness, Þórbergs Þórðar-
sonar og annarra stórlaxa á bók-
menntaakrinum - auk fjölda
minni spámanna.
En það sem kannski er
skemmtilegast við þessa bóksölu-
skrá eru hinar fjölmörgu gömlu
barnabækur, allt frá síðustu öld
til ca. 1930: Robinson Krúsoe
1886, Gosi, frumútgáfan á ís-
lensku, Bernskan, Geislar og
fleiri bækur Sigurbjörns Sveins-
sonar, Dísa ljósálfur og Arnfinn-
ur álfakóngur, Lísa og Pétur eftir
Óskar Kjartansson, Æfisaga asn-
ans, sögur af Nasreddin og
Munchhausen baróni og tugir
annarra gamalla barnabóka.
Bóksöluskráin er send ókeypis til
allra utan Stór-Reykjavíkur-
svæðisins sem þess óska, en aðrir
geta vitjað hennar í búð Bóka-
vörðunnar á Vatnsstíg 4.
Áður en
sögur hófust
í fyrra gaf Vaka-Helgafell út
skáldsögu eftir Jean M. Auel.
Þjóð bjarnarins mikla og fjallar
um líf stúlku af ætt nútímamanns-
ins fyrir 35.000 árum sem elst
upp hjá fornri kynkvísl Neander-
dalsmanna sem ekki getur náð
lengra á þróunarbrautinni.
Dalur hestanna er önnur bók
Auel sem kemur út á íslensku.
Söguhetjan Ayla hefur yfirgefið
fyrri heimkynni sín og mætir nýrri
og grimmri veröld utan heílis-
veggjanna. Hún reikar um
óbyggðirnar og þrá hennar eftir
mannlegu samneyti og umhyggju
heltekur hana. Hún hefur næst-
um látið bugast þegar örlögin
leiða hana inn í Dal hestanna þar
sem hún hittir Jondalar. Á mörk-
um vonar og ótta verður Ayla
fyrir nýrri reynslu og hún skynjar
áður óþekktar tilfinningar sem
eiga eftir að hafa afdrifaríkar af-
leiðingar fyrir hana, fyrir Jondal-
ar og mannkyn allt.
Dalur hestanna er sjálfstætt
framhald bókarinnar Þjóð bjarn-
arins mikla.
Jean M. Auel kom hingað til
lands síðastliðiðaust og flutti
fyrirlestur um verk sín. Kom þar
fram hversu ómælda undirbún-
ings- og rannsóknarvinnu hún
hefur lagt á sig við skáldsagna-
gerðina. Hún hafði fljótt áttað sig
á því að til þess að geta unnið með
þetta sérkennilega og heillandi
sögusvið, þá yrði hún að rann-
saka allt sem hún kæmist yfir um
lifnaðarhætti forfeðra okkar.
Ásgeir Ingólfsson og Bjarni
Gunnarsson þýddu.
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 8. desember 1987