Þjóðviljinn - 08.12.1987, Side 9
Kjaramálin
Viðhorfin á
vinnustöðum
Um áramótin verða kjarasamningar
aðildarfélaga Alþýðusambandsins
lausir og Ijóst að eftir að samningavið-
ræður Verkamannasambandsins og
VSÍ fóru út um þúfur í síðasta mánuði
stefnir í hörð átök á vinnumarkaði upp
úr áramótum. Þjóðviljinn leit inn á
nokkra vinnustaði í höfuðborginni og
leitaði álits hjá starfsfólki á stöðunni í
kjaramálum og komandi samninga-
gerð
Jón Árnason, Sundlaug Vesturbœjar
Bið eraÍÍtáTsÍæm
- Það er lítið að gerast núna
held ég. Eg hef ekki orðið var við
annað. En útlitið sýnist ekkert of
gott, og þar tek ég mið af Alþýðu-
sambandinu; mér sýnist þeir ekki
ætla að hafa frumkvæði í samn-
ingamálunum núna eins og þeir
hafa haft undanfarin ár. En það
má nú sjálfsagt virða þeim til vor-
kunnar, þar sem þeir hafa farið
verst út úr því sjálfir, sagði Jón
Árnason, baðvörður í Sundlaug
Vesturbæjar, er hann var spurð-
ur hvernig honum litist á stöðuna
í samningamálunum.
- Ég held að það sé erfitt að
semja fyrr en það er kominn
stöðugleiki á gengið, sagði Jón;
en á hinn bóginn er bið alltaf
slæm. Við töpum á allri bið.
Jón er félagi í BSRB, og við
spurðum hann hvort hann sækti
fundi í sínu stéttarfélagi. Jón
sagði að lítið færi fyrir því. „Við
vinnum vaktavinnu hérna, og oft
ber þessa fundi upp á þann tíma
sem við erum að vinna. En við
fylgjumst með því sem er að ger-
ast,“ sagði hann.
HS
Jón Árnason: Erfitt að semja fyrr en kominn er stöðugleiki á gengið. Mynd: Sig.
Ragna Guðvarðardóttir hjá Sjóklæðagerðinni hf.
Nauðsynlegt
að tryggja
kaupmátt launa
„Mér líst ekki vel á stöðuna í
kjaramálunum í dag, sér í lagi
hvað varðar láglaunahópana,“
sagði Ragna Guðvarðardóttir, en
hún er trúnaðarmaður starfs-
fólks í Sjóklæðagerðinni hf.
„Starfsfóikið hér er í Iðju og
þar hefur verið mörkuð mjög á-
kveðin stefna í kjarabaráttunni,
sem er að tryggja kaupmátt laun,
það er númer eitt, tvö og þrjú,“
sagði Ragna. „Mér finnst að það
ætti að bíða með samninga að-
eins, eða þar ti! það er vitað hvort
ríkisstjórnin ætlar að fella
gengið. En það verður að fá
tryggingu fyrir kaupmætti launa
og afnema þessa prósentutölu,
hún ætti ekki að vera til.“
Aðspurð um stöðu mála í Iðju
sagði Ragna að það væri ekki .
mjög mikii umræða, en það væri
sem áður segir, sett á oddinn að
tryggja kaupmátt. „Ég er ekki
mjög bjartsýn og býst ekki við
mikilli hörku í kjarabaráttunni,
ég trúi á samningaleiðina. Ef hún
bregst kemst þó eflaust harka í
málið,“ sagði Ragna að lokum.
-ns.
Ragna: „Það hefur verið mörkuð mjög ákveðin stefna." Mynd: Atli.
Óskar: „Það verður að gefa fólki kost á að sinna börnunum." Mynd: Atli.
Óskar Einarsson hjá Fálkanum:
Afstæður darraðardans
„Það litla sem ég hef fylgst með
kjaramálunum finnst mér vera
skrípaleikur, afstæður darraðar-
dans,“ sagði Óskar Einarsson
verslunarstjóri í Fálkanum.
„Við erum í Verslunar-
mannafélaginu, en ég hef ekki
mikið fylgst með máium þar. Þó
finnst mér sjálfsagt að bíða með
samningagerð ef stjórnin ætlar að
fella gengið, það er gefið mál og
það verður að gera miklar
breytingar ef eitthvert jafnrétti á
að nást í kjaramálum. Það er al-
ger nauðsyn að hækka lægstu
launin, en það er bara svoleiðis
að það vinna fæstir eftir töxtum,
það er svo mikið um yfirborganir
í þjóðfélaginu. Og þá eru það
ekki þessir svokölluðu láglauna-
hópar sem fá þær,“ sagði Óskar.
„Annars eru launin í landinu
óraunhæf miðað við verðlagið.
Ríkisstjórnin stillir upp vissri
mynd, segir að
undirstöðuatvinnuvegirnir verði
að bera sig og þá verði að borga
lág laun, þetta er bara ekki raun-
hæft. Síðan er þessi gífurlega
aukavinna fólks til að ná endum
saman algerlega út í hött. Fólk á
ekki að þurfa að vinna svona
mikið, það verður líka að sinna
börnunum. Það verður að gefa
fólki kost á því,“ sagði Óskar að
lokum. -ns.
Vilborg Jónsdóttir, Útideild unglinga
Gengur ekki lengur
- Það er ekki spurning að það
gerist eitthvað. Fólk sættir sig
ekki við þessi laun lengur. Til
dæmis er ég með um 40 þúsund á
mánuði og það er ekki hægt að
lifa af því, sagði Vilborg Jónsdótt-
ir, starfsmaður Útideildar, þar
sem hún sat og ræddi málin við
stóran hóp unglinga í húsnæði
deildarinnar í Tryggvagötunni.
- Sjáðu þetta starf hér; ef
starfsfólkið er ánægt með launin
sín skilar það sér í betri árangri,
sagði Vilborg; okkur hefur vant-
að fólk til starfa lengi.
Vilborg er félagi í BSRB, en
segist aldrei hafa sótt fundi í fé-
laginu þótt stundum hafi það
staðið til. Þó sagðist hún fylgjast
með því sem þar væri að gerast að
einhverju leyti.
- Ég er ekki sammála þessu
gengisfellingartali sem allir eru
fullir af núna. Ríkisstjórnin á að
láta enda ná saman í sínum fjár-
málum eins og okkur er ætlað að
gera sem höldum úti heimilum,
og þá verður hún að kunna sér
hóf. Til dæmis er flottræfilshátt-
urinn í öllum þessum nýju bygg-
ingum fyrir neðan allar hellur.
HS
Vilborg Jónsdóttir: Ekki spurning að það gerist eitthvað. Mynd: Sig.
Þóra Kristín Jónsdóttir kennari
Gæti sorfið til stáls
Björgvin Björgvinsson á Bláfellinu
Endar í meiri-
háttar fátækt
- Málið er að það hefur ekkert
náðst út úr samningum að undan-
förnu. Um leið og kaupið hækkar
þá hækkar allt annað. Þetta getur
ekki endað í öðru en meiriháttar
fátækt, sagði Björgvin Björgvins-
son, háseti og altmuligmand á
Bláfellinu, en Olíufélagið hf. rek-
ur skipið.
Björgvin er félagi í Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur, en
sagðist lítið fylgjast með því sem
gerðist þar á bæ.
- Hásetastarfið er mjög van-
metið, og launin sem greidd eru
þarf að endurskoða alveg frá
grunni, sagði hann. Við erum að
vísu á sérstökum samningum hér
um borð og eins þeir sem eru á
Héðni 'Valdimarssyni. Ætli ég
hafi ekki um 59 þúsund á mánuði
með dagpeningum, en þeir á
fiskibátunum eru með alveg fár-
ánleg laun miðað við alla fjarver-
una.
- Þessi launamál þarf að stokka
upp alveg frá grunni, og fara að
borga fólki kaup. Við verðum að
hætta að semja upp á að fá ekki
neitt, sagði Björgvin. HS
Björgvin Björgvinsson: Hættum að semja upp á að fá ekki
neitt. Mynd: Sig.
„Það er mikill hugur hjá HÍK
núna og það er búið að sam-
þykkja að segja upp samningum
um áramótin,“ sagði Þóra Kristín
Jónsdóttir kennari í Hagaskóla og
trúnaðarmaður fyrir kennara
þar sem eru í HÍK.
„Það er stefna okkar að
kaupmáttur launa verði varð-
veittur og einnig að laun kennara
verði leiðrétt, það er mjög mikil-
vægt því launin hafa dregist mjög
afturúr undanfarið. Annars erum
við í samningaviðræðum árið um
kring og oft hefur ekki gengið
betur en það að launamálin hafa
farið fyrir dómstóla.
Við munum sýna fullan vilja og
vonum að það verði metið og
okkur sé sýndur skilningur á
móti, því það hefur komið í ljós
að ef við förum í hart og skólarnir
loka þá hefur það mikil áhrif. Við
munum því fara sáttaleiðina, en
um allt þrýtur verða eflaust átök.
Þá mun sverfa til stáls,“ sagði
Þóra Kristín.
-ns.
Þóra Kristín: „Mikilvægt að launin verði leiðrétt." Mynd: Atli.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 8. desember 1987
Þriðjudagur 8. desember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13