Þjóðviljinn - 08.12.1987, Page 10

Þjóðviljinn - 08.12.1987, Page 10
SKAK 21. einvígisskákin Frá Helga Ólafssyni, frétt aritara Þjóðviljans Karpov skrikaði fótur íSevillu: Þrátefli í skák er margir töldu Kasparov hafa getað unnið Enn varð jafntefli í einvígi þeirra Garrís Kasparovs heimsmeistara og Antólís Karp- ovs áskoranda hér í Sevillu. Skákin í kvöld bar öll merki þeirrar gífurlegu taugaspennu sem ræður ríkjum í einvíginu, keppendum urðu á ýmis glappa- skot. Karpov gerði sig sekan um furðulega yfirsjón þegar í 19. leik, fékk greinilega lakara tafl, en „mistök“ Kasparovs lágu í því að tefla ekki hagstæðari stöðu áfram til vinnings. Karpov hafði orðið að láta skiptamun af hendi fyrir nokkrar bætur, þó tæplega nægar. Svo einkennilega vildi þó til að hann var síðan lengi að ák- veða sig hvort hann ætti að taka jafntefli með þráleik en sú var þó niðurstaðan að lokum. Eftir skákina fóru þeir yfir helstu leiðir og er með því að opnast nýr kafli í samskiptum þeirra. Kasparov tók fyrir slíkar rannsóknir með eftirminnilegum hætti þegar annað einvígi þeirra fór fram árið 1985 en hann gefur þá skýringu núna að stundum verði hann hreinlega að fá að vita hvað Karpov meini með hinum og þessum leik. Að öðru leyti er tíðindalaust hér í Sevillu. Þó bætist óðum við stóran hóp áhorfenda. Maja Chirburdanidze, heimsmeistari kvenna síðastliðin níu ár, er kom- in til Sevillu til að fylgjast með einvíginu. Einnig má nefna stór- meistarana Lubosh Kavalek frá Bandaríkjunum og Hollending- inn Hans Ree. Hinsvegar sakna menn Míkhaels Tals er setti mjög líflegan svip á blaðamannaher- bergið. Þar hefur verið kyrrð yfir síðustu daga og er það áreiðan- lega fyrir tilverknað Vassilys Smyslovs, fyrrum heimsmeist- ara, sem hefur býsna róandi áhrif á menn. Nú eru aðeins þrjár skákir eftir af einvíginu. Auðvitað færist Kasparov nær titilvörn sinni með hverju jafnteflinu en hann hefur enga tryggingu fengið ennþá. Karpov stýrir hvítu mönnunum í 23. skákinni og fær þá sitt loka- tækifæri þó auðvitað geti sitthvað óvænt gerst í hinum skákunum tveimur. Kasparov virtist dálítið tauga- óstyrkur í dag sem vonlegt er. Aðstaða hans er þegar allt kemur til alls fremur óþægileg, en Karp- ov getur hinsvegar teflt með hug- arfari manns sem hefur allt að vinna og engu að tapa. Niðurstaða dagsins viðheldur spennunni í einvíginu. Aðeins þrjár skákir eru eftir af þessu maraþoneinvígi Kasparovs og Karpovs er hófst haustið 1984. Þeir hafa teflt 121 skák síðan og munar aðeins einum vinningi Kasparov í hag. 22. skákin er á dagskrá á mið- vikudag og þá hefur Kasparov hvítt. Þó þyrfti ekki að koma á óvart að þeirri skák yrði frestað en þeir eiga inni einn frídag hvor. 21.einvígisskák Anatólí Karpov- Garrí Kasparov Grunfeldsvörn l.d4 („Karpov verður að leika kóngspeðinu fram í þeim skákum sem eftir eru,“ sagði Míkhael Tal við mig skömmu áður en hann var kallaður heim til Sovétríkj- anna að kröfu Karpovs, „en kannski gerir hann það ekkifýrr en í 21.skákinni,“ bætti hann við. Þegar Karpov mætti til leiks í dag eftir tveggja daga hlé lék hann samstundis d4, greinilega stað- ráðinn í því að glíma við Grun- feldsvörnina enn á ný.) I. ...Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. RÍ3 Bg7 5. Db3 dxc4 6. Dxc4 0-0 7. e4 Ra6 (Prins-afbrigðið sem var einnig uppá teningnum í fimmtándu skákinni.) 8. Be2 c5 9. d5 e6 10.0-0 exd5 II. exd5 Bf5 12. Hdl He8 13. d6 h6 14. BÍ4 (Endurbót Karpovs á fimmtándu skákinni. I henni lék hann 14.h3 og skákinni lyktaði með jafntefli eftir gífurlegar flækjur. Karpov eyddi aðeins fimm mínútum á fyrstu fjórtán leikina.) Skákbækur „Skákstnð víð Persaflóa11 Jón L. Arnason hefur skrifað bók um Ólympíuskákmótið íDubaiþar sem íslenska karlasveitin stóð sig með afbrigðum vel Út er kominn á vegum Skák- sambands íslands bókin „Skák- strið við Persaflóa“ eftir Jón L. Árnason stórmeistara. Það er kunnara en frá þurfi að segja að íslenska karlasveitin stóð sig með afbrigðum vel á Ol- ympíumótinu í Dubai í fyrra. Þegar upp var staðið sátu okkar menn traustir í fimmta sæti og höfðu meðal annars unnið það glæsilega afrek að halda jöfnu í viðureigninni við Sovétmenn sem þó tefldu Sevillafjöðrunum Karpov og Kasparov fram á fyrsta og öðru borði. Jón L. tefldi á þriðja borði í íslensku sveitinni en hana skipuðu auk hans Þjóðviljaskrí- bentinn Helgi Ólafsson, Margeir Pétursson, Jóhann Hjartarson, Guðmundur Sigurjónsson og Karl Þorsteins. Allt stórmeistar- ar að Karli undanskildum. Bókin skiptist í tvo hluta. í þeim fyrri lýsir Jón „...á lifandi og kíminn hátt aðdraganda Ól- ympíumótsins í Dubai, undirbún- ingi íslenska Ólympíuliðsins, hinu langa ferðalagi til ævintýra- landsins, framandleika þess og lifnaðarháttum Araba eins og þeir komu gestinum fyrir sjónir.“ En í „seinni hluta bókarinnar er keppninni sjálfri lýst frá um- ferð til umferðar, undirbúningi og hernaðaráætlun hverrar viður- eignar gerð skil og allar skákir íslensku keppendanna birtar ásamt völdum skákum úr öðrum viðureignum.“ Þannig hljóðar kynningarorð útgefenda. -ks. 14. ...Rd7 (Kasparov byggði stöðu sína upp með 14...Rb4, -a6 og -b5 í áðurnefndri skák, en fjórtándi leikur Karpovs breytir stöðunni talsvert. Kannski hefur heims- meistarinn viljað koma áskor- andanum á óvart hér en hann var þó eldfljótur að leika.) 15. Hd2 Rb4 (tími: 1,10) 16. Db3 (0,12) Be6 17. Bc4 (17.Ddl er allt of hægfara, svartur nær þokkalegri stöðu með 17...a6 18.a3 Rf6 ásamt -Rd4 við tækifæri.) 17. ...Rb6 (1,30) (Eftir nær hálftíma umhugsun. Aðrir leikir sem komu til greina voru 17...Db6 og 17...DÍ6.) 18. Bxe6 (0,40) (Það kom nokkuð á óvart hve lengi Karpov var að taka ákvörð- un um að leika þessum leik því hann virðist þvingaður. Kannski var hann að hugsa um 18.d7 en svartur hefur frábær færi fyrir skiptamuninn eftir 18....Rxc4 19.dxe8 (D)-f Dxe8 og svo fram- vegis.) 19.a3?? (Það er aldrei hægt að vera viss en þó tel ég allar líkur vera á því að Karpov hafi sést yfir svarleik heimsmeistarans. Þetta er hrika- legur afleikur og furðulegur því hann gefur svörtum mun betri stöðu og rekur vel staðsetta menn hvíts til baka. Smyslov mælti með 19.Rb5.) 19. ...Rd3! (Karpov virtist ekki brugðið er hann kom aftur að borðinu en þó var hann ekki ýkja ánægður á svip.) 20. Bg3 c4 21. Dc2 (Það þarf ekki frekari vitna við, nær allir viðstaddir voru sannfærðir um að 19.a3 væri byggður á yfirsjón.) 21. ...Hc8 22. Hadl Dd7 (22...Rxb2 var freistandi en gengur ekki, 23.Dxb2 Ra4 24.Rxa4 Bxb2 25.Hxb2! og hvít- ur heldur velli. En þessi mögu- leiki hangir samt sem áður yfir stöðu hvíts.) 23. h4 (1,30) (Um þetta leyti gekk ég útí sal og hitti fyrir bandaríska stór- meistarann Lubosh Kavalek. Okkur kom saman um að Karpov hefði sést yfir 19...Rd3 en engu að síður taldi Kavalek stöðu Karpovs teflanlega. „Þetta er hreint taugastríð," sagði' hann. Sovésku stórmeistararnir með Smyslov í broddi fylkingar voru nú farnir að athuga stöðuna nán- ar eftir að hafa fleygt taflinu frá sér, svo kannski var ekki öll nótt úti fyrir Karpov. Ég er stundum spurður að því með hverjum ég standi í þessu einvígi. Það skiptir engu máli hvor vinnur, ég held nefnilega með einvíginu.) 23. ...f5 (1,45) 24. Hxd3 cxd3 25. Dxd3 (Skiptamunsfórnin er eina undankomuleið hvíts.) 25. ...Rc4 (Kasparov velur skarpasta leikinn í flestum stöðum. Þessi kom því ekki á óvart.) 26. Dd5 Rb6 27. Dd3 Rc4 28. Dd5 Rb6 Jafntefli I f „ iliifi M i Sl«í %\UM* £ WK * m • fm M H S ■„ E §» &&M 'M, m mhL m Kasparov áræðir ekki að tefla til vinnings þó hann standi í raun betur að vígi. 28.Kh8 kom sterk- lega til greina og hvítur á afar erfitt með að þróa stöðu sína. Með tilliti til stöðunnar í einvíg- inu er þetta kannski skynsamleg ákvörðun en ef öðru vísi hefði staðið á hefði heimsmeistarinn ekki hikað við að tefla áfram. Kannski kom hann auga á móður sína úti í sal sem var áhyggjufyllri en nokkru sinni fyrr. Karpov gat leikið 29.Db3 en hafnaði þeim leik vegna 29.. ..Df7. Annar möguleiki er 29.. .Kh7. Staðreyndin er sú að hann getur prísað sig sælan með jafntefli eftir afar ónákvæma byrjunartaflmennsku. Tími: Hvítur: 2,17- Svartur:2,04 Staðan: Kasparov 10 1/2- Karpov 10 1/2 14 SlÐA - ÞJÓÐVILJiNN Þriðjudagur 8. desember 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.