Þjóðviljinn - 08.12.1987, Side 11
ERLENDAR FRETTIR
Leiðtogafundur
Gorbatsjov í Washington
í dag rennur upp sú sögulega stund er leiðtogar Bandaríkjanna og Sovétríkjanna, Ronald Reagan og Míkhaíl
Gorbatsjov, leggjanafnsitt við samning um eyðileggingu 2,800 kjarnflauga sinna
Flugvél Míkhaels Gorbatsjovs,
leiðtoga Sovétríkjanna, og
eiginkonu hans, Raísu, lenti heilu
og höldnu á Andrews herflugvell-
inum, steinsnar frá Washington,
á tíunda tímanum i gær, að ís-
lensku tímatali. Síðdegis í dag
munu þeir Ronald Reagan
Bandaríkjaforseti leggja nafn sitt
við fyrsta umtalsverða kjarnaf-
vopnunarsamning sögunnar og
síðan munu þeir hefja viðræður
um enn afdrifaríkara samkomu-
lag um smækkun kjarnvopna-
búra sinna.
Áætlað er að leiðtogafundur-
inn vari í tvo til þrjá daga. Gor-
batsjov er fyrsti sovéski leiðtog-
inn sem stígur fæti á bandaríska
grund um fjórtán ára skeið eða
frá því Leóníd Brézhnev sótti
Richard Nixon heim. Gífurlegar
öryggisráðstafanir hafa verið
gerðar í höfuðborginni einsog lög
gera ráð fyrir og hefur almenn-
ingur vestra sýnt þessum viðburði
mikinn áhuga þótt fram hafi
komið í gær í skoðanakönnun
sjónvarpsstöðvarinnar ABC og
stórblaðsins Washington Post að
meira en helmingur Bandaríkja-
manna hefur ekki hugmynd um
til hvers aðalritarinn hafi tekið
sér ferð á hendur vestur á bóginn!
Einsog fram hefur komið í
fréttum áði Gorbatsjov hjá kunn-
ingjakonu sinni, Margréti Thatc-
her, á Bretlandi í gær áður en
hann fló alla leið til Washington.
Þau ræddu saman í skamma
stund og efndu síðan til blaða-
mannafundar áður en aðalritar-
inn sté uppí flugvél sína að nýju.
Honum fórust svo orð:
„Við reiknum með að ferð
okkar...færi okkur fram á veg
endurreisnar alþjóðasamskipta í
með nánari samvinnu og gagn-
kvæmu trausti."
Thatcher sagði að samningur-
inn um eyðileggingu allra meðal-
Hjónin Raísa og Míkhael Gorbatsjov eru stödd í Bandaríkjunum um þessar mundir og hyggst bóndinn sinna afvopnun-’armálum meöan húsfreyja styttir sér
stundiráýmsalundmeðfrúNancy Reagan.Helmingurbandarískuþjóðarinnarveit ekki i hvaða augnamiði þessi huggulegu hjón hafa ferðast vestur á bóg.
drægra kjarnflauga risaveldanna
væri sögulegur en einnig „forboði
frekari framfara í afvopnunarvið-
ræðum.“
Bandarískir og sovéskir ráða-
menn með Reagan og Gorbat-
sjov í broddi fylkingar hafa ítrek-
að gert því skóna að á þessum
þriðja leiðtogafundi stórveld-
anna frá árinu 1985 verði lögð
drög að fjórða stefnumótinu sem
eigi sér stað á næsta ári í því
augnamiði að ganga frá samningi
um helmings fækkun langdrægra
kjarnflauga. Slíkur samningur
yrði enn merkara framlag til
heimsfriðarins en samningurinn
sem þeir undirrita í dag þar eð
landrægu skeytin eru háskaleg-
ustu vígtólin í vopnabúrum ríkj-
anna tveggja.
Blaðafulltrúar beggja leiðtog-
anna svöruðu spurningum frétta-
manna á sameiginlegum blaða-
mannafundi í gær og fór prýði-
lega á með þeim.
Gennady Gerasimov sagðist
gera sér vonir um að leiðtogarnir
mæltu sér mót á ný að ári. „Við
erum komnir á rekspöl í afvopn-
unarviðræðunum og við eigum að
halda áfram á sömu braut.“
Marlin Fitzwater tók í sama
streng og bætti því við að
leiðtogafundur í Moskvu á næsta
ári yrði öllum til góðs, jafnvel
þótt samningur um eyðileggingu
langdrægra flauga yrði ekki tilbú-
inn til undirritunar.
Það verður gaman að fylgjast
með þeim Gorbatsjov og Reagan
undirrita samninginn um eyði-
leggingu kjarnflauga sinna í dag.
Sovétleiðtoginn er 56 ára gamall
og yngsti og tápmesti bóndinn í
Kreml frá því Jósef Stalín sölsaði
undir sig þau húsakynni á þriðja
áratugnum. Reagan er hinsvegar
76 ára gamall og elsti forseti í
sögu Bandaríkjanna. Hann er
ennfremur einhver mesti aftur-
haldsseggur sem hreiðrað hefur
um sig í Hvíta húsinu þótt slæm
pólitísk staða hans á heímaslóð
og persónulegur metnaður hafi
mildað afstöðu hans til Sovétríkj-
anna er hann hér áður fyrr kallaði
iðulega „hið illa heimsveldi."
Samkvæmt stundaskrá munu
þeir Reagan og Gorbatsjov funda
fimm sinnum, fyrst nú í morguns-
árið að bandarískum staðartíma.
Það mun vera 90 mínútna prívat-
fundur að túlkum einum og
skrásetjurum viðstöddum.
Síðar í dag munu þeir, sem fyrr
segir, taka hetturnar af pennum
sínum og skrifa nafn sitt á plagg
sem hefur að geyma sameiginlegt
loforð beggja um að koma um
2,800 kjarnflaugum með 3,800
kjarnoddum fyrir kattarnef.
-ks.
Evrópubandalagið
Frestur er á illu bestur
Leiðtogum tólf aðildarríkja Evrópubandalagsins mistókst einu sinni
enn að ná samkomulagi umfjárlagahalla áfundi sínum í Kaupmanna-
höfn um helgina
Leiðtogar aðildarríkja Evrópu- „Satt best að segja tókst ekki
bandalagsins hafa reynt að að ganga frá greiðslu heimilis-
eiðtogar aðildarríkja Evrópu-
bandalagsins hafa reynt að
gera lítið úr þeirri staðreynd að
þeim mistókst að ná samkomulagi
um ráðstafanir til að vinna bug á
gífurlegum fjárhagshalla banda-
lagsins á fundi sínum í Kaup-
mannahöfn um helgina. Þess í
stað hafa þeir farið fjálgum orð-
um um það sem þeir nefna
„allnokkurn“ árangur í glímunni
við fjármálaóreiðuna og stað-
hæfa að allt verði orðið klappað
og klárt um það bil er sérstökum
neyðarfundi um fjármálin lýkur
en hann á að halda dagana 11.-
12.febrúar næstkomandi í Bruss-
el.
Opinberlega er rætt um að
fundinum hafi verið frestað þótt
fáum blandist hugur um að ráð-
stefnan um helgina hafi farið ger-
samlega út um þúfur og að febrú-
arfundurinn sé síðasta björgunar-
hálmstrá rikjanna 12 er mynda
bandalagið.
í raun var ákvörðunin um að
koma saman á nýjan leik í febrú-
ar eina áþreifanlega niðurstaða
helgarfundarins í Kaupmanna-
höfn ef frá eru taldar ályktanir
um samskipti austurs og vesturs,
Miðausturlönd og Afghanistan.
reikninganna en okkur tókst mun
betur upp þegar að því kom að
segja ríkjum heims fyrir verk-
um,“ sagði utanríkisráðherra
Danmerkur, Uffe Ellemann-
Jensen, á blaðamannafundi við
ráðstefnulok.
Paul Schluter, forsætisráð-
herra Danmerkur og forseti
fundarins, bætti við: „Þetta var
ekki algert hrun en það mátti
ekki miklu muna. Ef eitthvað fer
úrskeiðis á fundinum í febrúar
verður ástandið skelfilegt."
Sýnt þykir að fjárlagahalli Evr-
ópubandalagsins muni nema sex
miljörðum bandaríkjadala á
næsta ári. Fjárhirslan verður orð-
in galtóm síðla sumars nema leið-
togar ríkjanna tólf komi sér sam-
an um að draga úr framlögum til
landbúnaðar, auka greiðslur ríkj-
anna í hinn sameiginlega sjóð og
veita auknu fjármagni úr þeim
sjóði til fátækari aðildarlanda.
Strax að morgni síðari fundar-
dagsins í Kaupmannahöfn þótti
mönnum í óefni stefna er Frakkar
og Vestur-Þjóðverjar höfnuðu
málamiðlunartillögu Dana um
samdrátt í niðurgreiðslu land-
búnaðarafurða en sá útgjaldalið-
ur einn gleypir um tvo þriðju
hluta af öllu fjármagni EB.
Bresku fulltrúarnir, undir ör-
uggri handleiðslu Margrétar
Thatchers forsætisráðherra,
héldu fast við þá kröfu sína að
verð á landbúnaðarframleiðslu
yrði umsvifalaust lækkað ef
bændur framleiddu meira magn
en ráð er fyrir gert í áætlunum
bandalagsins. En Helmut Kohl,
kanslari í Bonn, er eindregið and-
vígur slíku, að sögn vegna þess
hve vesturþýskir búmenn eru öfl-
ugur þrýstihópur, og lenti honum
saman við Thatcher útaf þessu
þrætuepli.
Um áramót taka Vestur-
Þjóðverjar við forystu í Evrópu-
bandalaginu af Dönum og mun
Kohl því stýra febrúarfundinum.
Hann lýsti því yfir á sunnudaginn
að hann hygðist notfæra sér þá
stöðu sína til hins ýtrasta til að
knýja fram samkomulag í Bruss-
el. En hann sagði jafnframt að
mikið væri óunnið áður en
bandalagið kæmist á réttan kjöl
og „við höfum átta vikur til að ná
traustu málamiðlunarsamkomu-
lagi.“
-ks.
(uómnuiNN
Tíminn
r 68 13 33
r 68 18 66
r 68 63 00
Blaóburóur er é
BESTA TRIMMIÐ
i\\
og borgar sigí
BLAÐBERAR ÓSKAST Vailtar
blaðbera
(MÓBWILIINN
víðs
vegar
um
bæinn
Hafðu samband við okkur
þJÓDVILIINN
Síðumúla 6
0 68 13 33
Þriðjudagur 8. desember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15