Þjóðviljinn - 08.12.1987, Side 15

Þjóðviljinn - 08.12.1987, Side 15
Þrlftjudagur 8. desember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19 Neskaupstaður Stórbruni hjá Mána hf, Kvikmyndasjóður hefur verið skipaður eftirfarandi til næstu þriggja ára: Knútur Hallsson ráðuneytisstjóri, form., Stefán Hilmarsson bankastjóri, Kristín Jóhannesdóttir kvikmynd- agerðarmaður, Friðbert Pálsson forstjóri, Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndagerðarmaður og Sig- urður Sverrir Pálsson kvikmynd- agerðarmaður. Varðandi málefni Kvikmyndasafns fslands, starfa að auki í stjórninni þeir Árni Björnsson þjóðháttafræðingur og Helgi Jónasson fræðslustjóri. ( úthlutunarnefnd sjóðsins eiga sæti rithöfundarnir Birgir Sig- urðsson og Þorvarður Helgason en formaður úthlutunarnefndar er Knútur Hallsson. Hitaveita Suðurnesja hefur fest kaup á hlut ríkisins í Sjóefnavinnslunni á Reykjanesi eða um 84% af heildarhlutafé. Hlutafé fyrirtækisins var fært nið- ur í 4 miljónir og jafnframt hefur ríkissjóður létt af Sjóefnavinnsl- unni öllum skuldum við endurlán- areikning ríkissjóðs og ríkisá- byrgðarsjóð og einnig skuld við Sparisjóð Keflavíkur uppá sam- tals 530 miljónir. Fiskverkunarhús Mána hf. í Neskaupstað eyðilagðist í eldi á föstudaginn. Það var um kl. 16.30 sem eldurinn kom upp. Starfsfólk var þá að vinna við pökkun á saitfiski og varð í fyrstu vart við að reyk lagði frá raf- magnstöflu, skömmu síðar varð sprenging í töflunni og eldur gaus upp. Eldurinn breiddist mjög hratt út og átti starfsfólkið fótum fjör að launa og komst það á síð- ustu stundu út um bakdyr húss- ins. Slökkvilið Neskaupstaðar réði niðurlögum eldsins á um einni klukkustund, en á þeim tíma má heita að allt hafi brunnið sem brunnið gat. Húsið er uppistand- andi en stálgrind þess er mikið skemmd og því ólíklegt að gert verði við það. Auk skemmda á húsi varð mikið tjón að öðru leyti, þar sem saltfiskur, freðfiskur og sfld sem voru í og við húsið eyðilagðist. hb. Hús Mána hf. eru uppistandandi en líklega ónýt. Rafmagnstaflan sem eldurinn kom upp í er skammt frá stóru dyrunum. Mynd: hb. Ljósmyndun Skóliá leiðinni Nefnd að störfum um fyrirkomulag - Ljósmyndun er ein þeirra greina sem þróunin hefur breytt, og við þurfum að laga okkur að því, segir Stefán Ólafur Jónsson, deildarstjóri í menntamálaráðu- neytinu, en hann hefur verið skip- aður formaður nefndar sem á að gera tillögur um námsfyrirkomu- lag í Ijósmyndun, og þá með tilliti til réttarstöðu þeirra sem við greinina fást. - Við munum meðal annars velta fyrir okkur grunnnámi fyrir fólk sem starfar við fjölmiðla, sagði Stefán Ólafur, og gat þess að ýmsir úr þessum hópi hefðu menntast erlendis, en nytu ekki allir réttinda hér heima. Nefndin mun taka á því hvort raunhæft sé að opna ljósmynd- araskóla á vegum hins opinbera. Hugmyndir eru uppi um þriggja ára skóla; tvö ár á skólabekk og starfsreynsluár í lokin. Búist er við að nefndin haldi sinn fyrsta fund í næstu viku. Hana skipa, auk Stefáns Ólafs, Haraldur Sumarliðason, Lands- sambandi iðnaðarmanna; Leifur Porsteinsson af hálfu Ljósmynd- arafélagsins; Óskar Guðmunds- son, Iðnfræðsluráði og Snorri Snorrason, fulltrúi „ófaglærðra" sem starfa við greinina. HS .. Stöðumœlaverðir Ollum sagt upp Nýttstarfslið þjálfað í Lögregluskólanum Um 30 stöðumælavörðum sem starfa á vegum Reykjavíkurborg- ar var sagt upp störfum 1. des. sl. Þeim hefur verðið boðið að sækja mánaðarnámskeið í Lögreglu- skólanum óski þeir eftir endur- ráðningu en annars önnur störf hjá borginni. Þetta koma fram á fundi At- vinnumálanefndar borgarinnar þegar Páll Valdimarsson óskaði eftir skýringum á þessum upp- sögnum. í svari borgaryfirvalda kom fram að með gildistöku nýrra umferðarlaga 1. mars n.k. verður veruleg breyting á starfi stöðumælavaröa og þeim m.a. heimilað að láta fjarlægja bifreið- ir sem er ólöglega lagt. FRETTIR Fastgengisstefnan Ognar rekstri vinnslunnar Soffanías Cecilsson, formaður sambands fiskvinnslustöðva: Kostnaðarhœkkanir innanlands um 401 áþessu ári. Á sama tíma lœkkaði dollarinn um 9%. Leiðréttingar erþörf Það er fyrir löngu kominn tími á ríkisstjórnina að leiðrétta gengið. Á þessu ári hafa kostnað- arhækkanir numið allt að 40% hér innanlands á sama tíma og bandaríkjadollar hefur lækkað um 9%. Mér er sama þó að ein- hverjir fari á hausinn við það; þeir hinir sömu hafa verið á þeirri leið um langan tíma og það er bara góðverk að greiða þeim náð- arhöggið með gengisleiðréttingu sem er brýn um þessar mundir, sagði Soffanías Cecilsson, tram- kvæmdastjóri í Grundarfirði og formaður sambands fiskvinnslu- stöðva í samtali við Þjóðviljann í gær. Á aðalfundi sambands fisk- vinnslustöðvanna sem haldinn var í lok síðustu viku, átaldi fund- urinn harðlega ríkisstjórnina fyrir það að skerða rekstraraf- komu sjávarútvegsins með því að hætta endurgreiðslu uppsafnaðs söluskatts og samtímis að skatt- leggja launagreiðslur, en því var hætt fyrir rúmu ári, svo fisk- vinnslan fengi staðist stöðugt gengi. í ályktun fundarins segir að þensluástand, stórfelldar kostnaðarhækkanir og versnandi viðskiptakjör samfara falli bandaríkjadollars ógni rekstri fiskvinnslunnar. Ef það er raunu- verulegur ásetningur stjórnvalda að halda gengisskráningu krón- unnar óbreyttri við núverandi að- stæður, þá verða stjórnvöld að grípa til róttækra aðgerða í peninga- og efnahagsmálum núna strax, í þeim tilgangi að lækka verðbólgu og bæta kjör vinnslunnar eftir öðrum leiðum. Að sögn Soffaníasar þá er frystingin rekin með um 9% halla um þessar mundir. Sömuleiðis rækju- og hörpudisksvinnsla en saltfiskurinn er réttu megin við núllið. grh. Frá stofnfundi Átaks gegn hávaða á Borginni um helgina: Áskell Másson, Flosi Ólafsson, Oddur Ólafsson, Örlygur Hálfdánarson, Atli Heimir, Lilja Margeirs- dóttir og Sverrir Ólafsson. Mynd: Atli. HávaðamengUn Spuming um kurteisi og tillitssemi Atak gegn hávaða“ varð til upp úr hópi sem hefur hist af og til að undanförnu í framhaldi af blaðaskrifum um hávaða í samfé- laginu, sagði Atli Heimir Sveins- son, einn stjórnarmanna í hinu nýja félagi sem stofnað var um heigina á Borginni. - Þetta er spurning um kurteisi og tillitssemi, sagði Atli, og vit- undinni má breyta eins og reykingadæmið sannar. Reyking- ar eru ekki bannaðar, en ákveðn- um mörkum verður fólk nú orðið að hlíta til að valda öðrum ekki óþægindum. Það sama á að gilda um hávaðamengun. Tón„listar“síbylja er ekki ein um að skafa hlustir félagsmanna. Undir sama flokk fellur síaukinn umferðardynur sem og hljóð- mengun frá Reykjavíkurflugvelli í miðri höfuðborginni. Að sögn Atla Heimis mun fé- lagsskapurinn hafa hægt um sig fram yfír hátíðar, en upp úr ára- mótum verður tekist á við hávað- avaldana. Stjórn Átaks gegn hávaða skipa, auk Atla Heimis, Svan- hildur Halldórsdóttir, Stefán Edeistein, Kristín Bjarnadóttir og Steingrímur Gautur Kristjáns- son. HS 'ÖRFRÉTTIR' Kirkjuráð Þjóðkirkjunnar hefur itrekað samþykkt Kirkju- þings frá því í haust, þar sem skorað er á þá sem annast inn- flutning og sölu barnaleikfanga að hafa ekki stríðsleikföng til sölu í verslunum sínum. Jafnréttisráð hefur verið skipað til næstu tveggja ára. f ráðinu eiga nú sæti: Ásdís J. Rafnar hrl. formaður, Árni Gunnarsson alþm., Þórunn Sveinbjörnsdóttir form. Sóknar, Sigurveig Sigurðardóttir hjúkrun- arfræðingur, Ingibjörg Magnús- dóttir húsmóðir, Arndís Steinþórsdóttir og Hrafnhildur Stefánsdóttir lögfræðingur. Bæjarstjórn Neskaupstaðar hefur skorað á stjórnvöld að sjá til þess að markaðir tekjustofnar Ríkisútvarpsins renni óskertir í Framkvæmdasjóð RUV, sem ætlað er að standa undir nýfram- kvæmdum og endurnýjun á dreifikerfinu út um landið eins og ráð er fyrir gert í útvarpslögum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.