Þjóðviljinn - 08.12.1987, Side 16
0)111» » %IW
HAiiNimimiM T«Y(ic;vAiw>n ih
IMÓHVAM(Umi J
10» MIIYK3AVIK
«WI%/ %V%$
.KVN IIIAHt AHNON
p*i*&0rt/'£ífeí íTfíifí íi*«N«i*S *v« *w lUftttmlnj*
/iWwJ trV-Vf it t, jrf tp&1i..wa>t* Mte'tMi'1 afeJML .»*+$&»* *4 t, (tfMÖé
KORTl
ERÁVlSUN
- á persónuafslátt þinn
Skattkort vegna staðgreiðslu opinberra
gjalda verða send iandsmönnum á næstu
dögum. Allir sem verða 16 ára og eldri 1988
fá skattkort.
HLUTVERK SKA TTKORTS
Skattkort gegnir mikilvægu hlutverki í
staðgreiðslu. Það er lykill að réttum afdrætti. Á
skattkortinu kemurfram:
• Skatthlutfall það sem draga skal af launum.
• Mánaðarlegurpersónuafsláttur.
• Persónulegar upplýsingar s.s. nafn, heimili,
kennitala.
• Nafn og kennitala maka.
Telji launamaður að þær upplýsingar sem fram
koma á skattkortinu séu ekki réttar, ber honum
að snúa sér með skattkortið til næsta skatt-
stjóra, sem metur hvort gefa beri út nýtt
skattkort.
NOTKUN SKATTKORTS
Launamaður skal afhenda launagreið-
anda sínum skattkortið fyrir upphaf stað-
greiðsluárs. Launagreiðandi reiknar síðan
staðgreiðslu launamanns á grundvelli þeirra
upplýsinga sem fram koma á skattkortinu. Hafi
launagreiðandi ekki skattkort launamanns í
vörslu sinni, reiknar hann staðgreiðslu launa-
mannsins samkvæmt skatthlutfalli (35.2%) og
launamaður fær engan persónuafslátt frá stað-
greiðslu. Persónuafsláttur í staðgreiðslu
fæst aðeins gegn framvísun skattkorts.
Tekjulaus aðili getur afhent maka sínum
skattkort sitt. Makinn getur þá nýtt 80% þess
persónuafsláttar sem fram kemur á kortinu til
viðbótarsínum.
Ef launamaðurfullnýtir ekki persónuafslátt
sinn á einum vinnustað, vinnur ef til vill á fleiri
stöðum eða vill afhenda maka sínum ónýttan
persónuafslátt, getur hann fengið aukaskatt-
kort þar sem mánaðarlegum persónuafslætti
erskipt.
MEÐFERÐ SKATTKORTS
Það er mikilvægt að lesa vel þær leiðbein-
ingar sem skattkortinu fylgja og gera viðeigandi
ráðstafanir.
Síðan ber að afhenda launagreiðanda
skattkortið til vörslu, annars verður ekki tekið til-
littil persónuafsláttar í staðgreiðslu.
Launagreiðandi ber ábyrgð á skattkorti
meðan það er í vörslu hans.
Þegar skipt er um vinnu afhendir launa-
maður nýjum launagreiðanda skattkort sitt.
Þeir sem ekki vinna utan heimilis varð-
veita kort sín sjálfir ef maki getur ekki nýtt sér
persónuafsláttinn.
Athugaðu vel.
Afhentu launagreiðanda þínum skattkortið
í tæka tíð fyrir fyrsta launaútreikning næsta
árs. Mundu að það er ávísun á persónu-
afslátt þinn. Lestu bæklinginn um stað-
greiðsluna - það borgar sig.
Án skattkorts
enginn persónuatsláttur
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI