Þjóðviljinn - 13.12.1987, Blaðsíða 22
Nr. 597
BRIDGE
KROSSGÁTA
4 z 3 S' ls> ¥• ? y z 3 T} T~~ 3 9
H- 3 )0 II )Z T~ j3 )3 7- )S H-
16? )7- )é Zl )7 M 7 18 )$ 1 M )1 /9 J~ /3
)7 /8 T~ /9 V zo H Zl )? n /9 /9 17- )Z
)7 M zz )0 18 /3 isr )3 18 M 23 )7 17
M )Z )? )S V M u 18 u )7 18 M
ÍT (p 7 )& M IZ 25 /9 X? lo
ZÉ )7 IÉ 'X V V Z°i <7 H 1 21 18 ¥
M )SZ M 29 )8 / w 3 H ¥ Xl X? 17
Zl z? 3 ¥ M 3 )D 18 /9 J8 & z/ )Z T~ lg
)0 i-7 IZ H )7 H 10 2S Zs H /3
JZ H- 1 H 9 M /3 zz )8 'T /9 3/ zs zs )8
n )l >8 )3 M )S ;3 Zl M )SL X? )8
Stafírnir mynda íslenskt orö eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lárétt eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer 0£ qaldurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp þvi með þvi eru gefnir
stafir i allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt.
7 )Z 7 21 22 H 17 27 )¥
Setjið rétta stafi i reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá örnefni. Sendið þetta
nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt:
„Krossgáta nr. 597“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til
vinningshafa.
MáltriAur EinársdAttir
Úr
sálarkirnunni
Júlíus Stefánsson Álfatúni 2, Kópa-
vogi hlaut verðlaun fyrir krossgátu
númer 594. Lykilorðið var „Breiðam-
ýri". Hann fær senda bókina Tötra í
Glettingi eftir Málfríði Einarsdóttur.
Verðlaunin fyrir krossgátuna að
þessu sinni er hin stórskemmtilega
bók Málfríðar Einarsdóttur, Úr sálark-
irnunni. Ljóðhús gaf út.
Góð frammi-
staða ylra
Það stóð tæpt að íslenska liðið
tryggði sér sæti í úrslitakeppni
Evrópubikarsins, í undankeppni
við Svía, Norðmenn (tvær af allra
bestu bridgeþjóðum Evrópu) og
Finna.
í 1. umferð sigruðum við Svía með
16-14 og í 2. umferð unnum við Finna
með 17-13 og vorum þá í 2. sæti, á
eftir Norðmönnum. f hálfleik á móti
þeim áttum við svo 18 stig til góða
(sem gerir 18-12 sigur) og með
jöfnum seinni hálfleik hefðum við
haft það. En Norðmenn rassskelltu
okkar menn í seinni hálfleik og sigr-
uðu með 17-13. Á sama tíma unnu
Svíar Finna með 21,5 gegn 7,5 þannig
að þeir stóðu uppi sem sigurvegarar.
Ekki er hægt annað en að þakka
piltunum okkar fyrir góða frammi-
stöðu, þrátt fyrir óhagstæð úrslit í síð-
asta hálfleik. Liðið skipuðu þeir Jón
Baldursson fyrirliði, Sigurður Sverr-
isson, Ásgeir P. Ásbjörnsson, Aðal-
steinn Jörgensen, Ragnar Magnússon
og Valur Sigurðsson.
Fjórir þeir fyrstnefndu voru ein-
mitt í Evrópulandsliði okkar í Brig-
hton sl. sumar, sem stóð sig svo glæsi-
lega.
Húsvíkingar hafa ákveðið að halda
Opið stórmót með sveitakeppnisfyr-
irkomulagi, helgina 9.-10. apríl á
næsta ári. Verður þetta fyrsta stór-
mótið með sveitakeppnissniði (utan
Bridgehátíðar) síðan Ásarnir héldu
slíkt mót 1979, í tilefni 10 ára afmælis
þess félags. Gott framtak hjá Húsa-
víkurfélaginu.
Reykjavíkurmótið í tvímenning,
úrsiit, er spilað um þessa helgi í Sig-
túni 9. Um 46 pör spila til úrslita, í
barometer-fyrirkomulagi.
Nv. Reykjavíkurmeistarar eru
Anton R. Gunnarsson og Friðjón
Þórhallsson frá Bridgefélagi
Breiðholts.
Opið stórmót (árlegt jólamót)
Bridgefélags Hafnarfjarðar, verður
spilað í Flensborg, sunnudaginn 27.
desember. Skráning er hafin, m a.
hjá Einari Sigurðssyni og Huldu
Hj álmarsdóttur (52248). Öllum opið.
Bridgefélag Akureyrar gengst
einnig fyrir Opnu stórmóti í tvímenn-
ing sunnudaginn 27. desember í
blómaskálanum Vín v/Hrafnagil í
Eyjafirði.
Bridgefélög eru víðast starfandi
hér á landi. All flestir byggðakjarnar
hafa með sér félagsskap og sums stað-
ar slá menn saman og mynda eitt fé-
lag, sem þá spilar á sitt hvorum staðn-
um reglulega. Eitt er það svæði sem
sker sig nokkuð úr, hvað varðar
vöntun. Er það svæðið sem tekur við
þegar komið er yfir Markarfljót að
Höfn í Hornafirði. Á öllu þessu víð-
feðma svæði er enginn reglulegur fé-
lagsskapur (félag) þó umsjónarmað-
ur viti af örfáum áhugasömum spilur-
um. Þó eru þarna svæði eins og Vík,
Klaustur, Skógar, Þykkvibær, Land-
sveitin og Eyjafjallasveit. Þéttbýlt
landsvæði. Gæti hugsast að einhverjir
séu á leiðinni með myndun félags á
þessu svæði?
Utanferðir bridgefélaga hér á landi
hafa ekki tíðkast að ráði, frá upphafi
keppnisspilamennsku. Umsjónar-
maður man eftir samskiptum TBK
við Huddersfield í Englandi á síðasta
áratugi, Kópvæginga við Færeyjar á
hverju ári og þar með er upptalið að
mestu um erlend samskipti (á mörk-
unum að heimsókn til frænda okkar í
Færeyjum teljist til slíkra hluta).
Nú hafa að minnsta kosti tvö félög
sett stefnuna á erlendar grundir á
næsta ári. Bridgefélag Reykjavíkur
býður upp á ferð til Svíþjóðar í end-
aðan júlí og Hafnfirðingar hyggja á
Danmerkurferð.
Er ekki nema gott eitt að segja um
þessa viðleitni keppnismanna okkar,
að sameina íþróttina með huggulegri
fjölskylduferð á erlendar grundir. Er
vonandi að bridgespilarar taki vel í
áðurnefndar hugmyndir. Við höfum
sýnt það að undanförnu, að full
ástæða sé til að við getum sýnt þeim
ýmislegt þarna ytra.
Reykjavfkurmótið í sveitakeppni
hefst trúlega miðvikudaginn 6. janú-
ar. Skráning er hafin í öllum félögum
innan BSÍ á Reykjavíkursvæðinu.
Mótið er jafnframt úrtökumót fyrir
íslandsmótið (15 efstu).
Litlar sögur fara af óstaðfestu ís-
landsmeti þeirra Laugarvatnspilta í
maraþonspilamennsku. Að sögn
voru þeir að spilamennsku helgina
20. nóvember og ættu eftir flestum
sólarmerkjum að vera hættir. Eru
einhverjir á lífi þarna eystra?
SKYRT OG SKORINORT
œvintýri fyrir
fullorðna
klukkan 2:30 e.m.
streitistgegndraumum umfor-
sögulegar vígtenntar skepnur;
slepp naumlega undan öskufall-
inu úr brennandi fjallinu;
draumurinn ummyndast í andlit
jólasveinsins sem steytir hnef-
ann framaní mig segir; loksins
náði ég þérsnataskömm! óþekkt
heils árs eróuppgerð! vakna í
svitakófi og hrópa inn í myrkrið:
nei nei nei ekki láta mig fara í
jólaköttinn! jólakötturinn er bæði
Ijóturog leiðinlegur...
kl.3:05 e.m.
þungurdraumlaussvefn. verk-
smiðjan hóstar eins og berklasj-
úklingur. nú eru þeirbyrjaðirað
sjóða. þreyttir menn, sem hræra í
ógnarstóru keri; jólapökkum,
jólatrjám, jólasveinum, suðan að
koma upp: grillir í gul augu kattar-
ins þar sem hann hniprar sig
' saman á loftbitanum: útataður í
ársryki, brýnirklærnarog kyngir
munnvatni.
stekkur.
það sýður uppúr pottinum. jóla-
sveinar f læða yfir gólfið einsog
gamlartuskur.
jólakötturinn lætursig hverfa.
kl.4.25 e.m.
vakna skjálfandi minnist drau-
manna. ófyrirleitnireinsog vitfirr-
ingur sem veit sig hólpinn í geg-
gjuðum heimi. heyri lágtsarg við
dyrnar. nú koma þeir að sækja
mig. ætli ég fái að hringja eitt
símtal?
myrkur.
kl.6.10e.m.
sléttan opnast mér einsog óskrif-
að blað í þægilegum kaffitíma-
draumi. jódynur og fákarnir koma
æðandi, sveittirog másandi: jóla-
sveinn dregur upp skammbyssu
úr pokanum og skýtur niður
skraut af ógnarstóru jólatré.
jólakötturinn skríður ofaní gjótu:
\ hláturinn heyrist langar leiðir.
í höllinni eru þeir byrjaðir að
, dansaafgömlumvanaeinsog
1 alltaf þegargauksklukkanlæturá
sérbæra...
morgunn
þrjár hvellar hringingar vekja til
lífsins og óræð birtan gerir sig
heimakomna. engin ummerki um
jólaköttinn nema dálítil óhreinindi
í gluggakarminum og langar risp-
urírúðunni.
verksmiðjan er lokuð í dag.
45-22-7
löngu seinna hreinsa þeir upp
eftirsvallið íverksmiðjunni. horfi
bakvið þykk giuggatjöldin: þeir
bera ókennilegt flykki út í ruslabíl
inn. engin kennimörk sjáanleg
svo bregð upp kíkinum: rauð húf-
an það eina sem eftir er....
o
22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 13. desember 1987