Þjóðviljinn - 17.01.1988, Blaðsíða 3
Tilgangur Tímans
fundinn!
í Bílablaðinu sem út kom á
dögunum er að finna nokkur
einföld en góð „bílráð" (sbr.
húsráð) við ýmsum smá-
vandamálum sem fylgja því
að eiga bíl. Þannig er leyst
það vandamál sem fita á
framrúðu veldur í bleytu og út-
sýni skerðist; ef rúðan er
nudduð með dagblaði sér
prentsvertan til þess að fitan
hverfur.
Einsog góðum rannsóknar-
blaðamönnum sæmir gerðu
þeir Bílablaðsmenn ítarlega
rannsókn á mismunandi
gæðum dagblaðanna í þessu
tilliti. Fer skýrsla þeirra hér á
eftir:
„ Við tókum eftir því þegar
verið var að prófa þetta þjóð-
ráð með aðná fitu af framrúðu
með dagblaði að forsíða Tím-
ans með feitum fyrirsögnum
var virkust. Það fór ekkert á
milli mála að Tíminn er best
allra dagblaðanna til þessara
nota enda tókum við jafnframt
eftir því að hendur manns
verða svartari aflestri Tímans
en t.d. Morgunblaðsins sem
er ekki hálfdrættingur I þessu
efni. Eflaust er hér um ein-
hverja einfalda skýringu að
ræða, blaut prentsverta eða
prentsverta sem þornar hæg-
ar virðist vera ákjósanleg til
að ná fitunni af framrúðunni.
Okkar ráð er því einfaldlega:
Kaupum Tímann, - öryggis-
ins vegna."
Og þá er loksins kominn al-
mennilegur tilgangur fyrir út-
komu Tímans! Skyldi Hriflu-
Jónas hafa grunað þetta? ■
Stóra
barnabókin
endurútgefin
Frjálst framtak hf. hefur
endurútgefið Stóru barnabókina
en hún kom út fyrir nokkrum
árum, seldist þá upp á skömmum
tíma. Stóra barnabókin hefur að
geyma sígilt íslenskt úrvalsefni,
fyrir börn. Þar eru m.a. gamal-
kunnug ævintýri og sögur, ljóð og
vísur, gátur, þrautir og leikir. Þá
er einnig efni um föndur í bók-
inni. Jóhanna Torsteinsson fóstra
valdi efnið og bókin er mynd-
skreytt af Hauki Halldórssyni
myndlistarmanni.
Sókn og Framsókn
Félagsvist!
Sókn og Framsókn halda
spilakvöld nk. miðvikudag kl.
20.30 að Skipholti 50a, hið fyrsta
af fimm sem áformað er að verði
næstu miðvikudagskvöld.
Spiluð verður félagsvist og eru
góðir vinningar í boði; besti spil-
arinn úr samanlögðum umferð-
unum fær að launum ferð á
kvennaþing sem haldið verður í
Osló í sumar. Þá eru og veitt
verðlaun sigurvegara hvers spil-
akvölds.
„Á degi einsog þessum," kvað skáldið í heita pottinum og hélt ótrautt áfram: „eftir ferðalag um borgina ífylgd silunga með
hreistur úr mjólk..."
„Hvert sem hún fer“ - segir síðar í Ijóðinu - „hættir fólk að vinna/afklæðist...“ Hvad for noget? spurði einn fáklæddur sem
óforvarendis var orðinn Ijóðaneytandi. „Flisaleggur hús með geitungum," kvað skáldið uppúr og áheyrendur fögnuðu.
(Myndir: E.ÓI.)
..sveiflast ég með loftvoginni inn um dyr og glugga sólblómsins." Áheyrendur í heita pottinum hlýða andaktugir á, þar á
meðal fáeinir Skandínavar sem létu sér íslenskan súrrealisma vel líka.____________________________________
I fylgd silunga með
hreistur úr mjólk
Skáldið Sjón kemur úr kafinu og flytur kvœði í heita pottinum
Heitirpottarsundlauganna
þykja misandríkir staðir; ýmist
gróðrarstía slúðurs ellegar
viskubrunnur þar sem eilífð-
armálin eru brotin til mergjar.
Nú í vikunni voru tekin af öll
tvímæli um menningarlegt
gildi þeirra þegar skáldið Sjón
las Ijóð í potti Vesturbæjar-
laugarinnarfyrirframan suð-
andi kvikmyndatökuvéiar
Ríkissjónvarpsins.
Tökurnar voru fyrir Besta vin
ljóðsins; þátt sem bráðlega verð-
ur á dagskrá. í fyrravetur voru
gerðir tveir slíkir þættir og lásu
skáldin ljóð sín við hinar aðskilj-
anlegustu kringumstæður: í kap-
ellu, niðrí fjöru, í undirgöngum
og uppá svölum, svo dæmi séu
tekin.
Skáldið Sjón brá sér einnig í
djúpu laugina og þegar hann kom
úr kafinu hafði hann hendingar á
hraðbergi. Samkvæmt upplýsing-
um Jóns Egils Bergþórssonar
upptökustjóra munu áhorfendur
kynnast Sjón víðar en í heita pott-
inum; til að mynda verða færðar
sönnur á gildi ljóðalesturs við
uppþvott...
-hj
Sunnudagur 17. janúar 1988 PJÓÐVILJINN - SÍÐA
Akureyri
Jón Axel
og Sverrir
í Gluggan-
um
fgær, laugardaginnvaropnuð
í Glugganum Glerárgötu 34, sýn-
ingu á málverkum og höggmynd-
um þeirra Jóns Axels Björns-
sonar og Sverris Ólafssonar. Jón
Axel Björnsson erfæddur 1956
og útskrifaðist úr Myndlista- og
handíðaskólanum 1979. Fyrstu
einkasýningu sína hélt hann í
Ásmundarsal 1982. Hann hefur
tekið þátt í mörgum samsýning-
um og haldið sex einkasýningar,
síðast á Kjarvalsstöðum 1987.
Sverrir Ólafsson sýnir högg-
myndir úr málmi og tré. Hann er
fæddur 1948, lauk námi við
Myndlista- og handíðaskólann
1969. Eftir það nam hann í Bret-
landi um þriggja ára skeið og hef-
ur síðan farið reglulegar náms-
ferðir til Bandaríkjanna og Evr-
ópu. Sverrir hefur sýnt margsinn-
is hér heima og erlendis og eru
verk eftir hann í eigu margra op-
inberra safna sem og einkasafna.
Sýningin stendur til sunnu-
dagsins 24. janúar. Glugginn er
opinn daglega frá kl. 14-18 en
lokað er á mánudögum.
AB hljóðsnældur:
Afasögur
Afburðaþjónusta
Slakaðu á
Almenna bókafélagið hefur
hafið hljóðsnælduútgáfu. Meðal
útgáfuverka er að finna barna-
efni, viðskiptaefni, sjálfshjálp og
sígilt bókmenntaefni.
Sögumenn hljóðsnældunnar
Afasögur eru allir afar sem segja
barnabörnum sínum sögu. Þeir
eru Eiríkur Hreinn Finnbogason,
Gunnlaugur Þórðarson, Ölafur
Skúlason, Róbert Arnfinnsson,
Valur Arnþórsson og Þórarinn
Guðnason.
Á snældunni Slakaðu á fer dr.
Eiríkur Örn Arnarson sálfræð-
ingur með slökunaræfingar sem
hann hefur kennt um árabil. Með
fylgja leiðbeiningar og fjögurra
vikna slökunardagbók.
Afburðaþjónusta er nafn á
hljóðsnældu um viðskipti. Á
henni fjallar Bjami Sigtryggsson
viðskiptafræðingur um afburða-
þjónustu. Efnið á erindi til þeirra
sem áhuga hafa á viðskiptum og
ekki síst til þeirra sem stunda
stjórnunarstörf í þjónustufyrir-
tækjum.
Á næstunni er Njála væntanleg
á tíu hljóðsnældum í upplestri
Einars Ol. Sveinssonar.
Upptökur á Afasögum, Af-
burðaþjónustu og Slakaðu á fóm
fram í hljóðveri Blindrafélags ís-
lands. Upptökumaður var Gísli
Helgason.