Þjóðviljinn - 17.01.1988, Blaðsíða 15
AF PLASTI
texta hinnar ósýnilegu Diddu.
Sömu höfundar, þ.e.a.s., lag:
Arnar/Sogblettir, texti: Didda,
bera ábyrgð á fyrra lagi b-
hliðarinnar; Er nema von. Síð-
asta lagið, 5. gír, er hins vegar
skrifað á reikning Arnars eins.
Og þó það sé kannski ekki betra
vera talinn meðflytjandi að einu
lagi „pródúserar" hann fimm
stykki. Elvis Costello & The Att-
ractions er að vonum fyrirferðar-
mesta sveit plötunnar, er skráð
fyrir 7 lögum ein og sér. Hins veg-
ar eiga t.d. The Coward Brothers
og The Emotional Toothpaste
JBert íhfir ftíetio0
en hin, þá er ég einhvemveginn
eins og duggunarlítið meira
skotinn í því.
Þetta stafar kannski bara af
kynnum mínum af Snarlspólunni
hinni fyrri, þar sem þetta lag var
eitt af þeim betri. Þetta er gæðag-
ripur og eykur enn á bjartsýnina
um framtíð rokksins hérlendis.
í»að fer engum sögum af nafngift
Sogbletta, að minnsta kosti hef
ég þær ekki á takteinum, og því,
verður pistill þessi ekki lengri...
aðeins eitt lag hvort/hvor/hver
fyrir sig og sína. Það er reyndar
erfitt að gera sér grein fyrir því
hver á hvað, nema þekkja sögu
Costellos til hlítar eða (eins og
ég) að hafa það á blaði fyrir fram-
an sig, því hann er alltaf samur
við sig. Menn mega ekki halda að
ég sé með þessu að gefa í skyn að
öll lögin séu eins, því svo er ekki.
Hins vegar eru persónueinkenni
hans alltaf ákaflega sterk og vega
þungt í hverju lagi. Það er í raun-
inni auðveldara að geta sér til um
tímaröð laganna, þ.e.a.s. hvenær
þau urðu til og gefin út, heldur en
akkúrat með hverjum hann er að
syngja hverju sinni. Þessi plata
spannar tímabilið frá 1979 allt
fram til 1987, og ber þess nokkur
merki. Því ekki verður um hann
Declan Patrick Aloysius MacManus.
Costello & CO:
Outofourldiot
annarra aðdáenda hans. Helv...
góð plata.
Ó það sœla
sýrutripp
Það eru kannski fáir sem vita af
því, en við, þ.e.a.s. við íslending-
ar, eigum mann í heimsfrægri sýr-
uhljómsveit frá sjöunda áratugn-
um. Þetta er að sjálfsögðu Hilm-
ar Örn Hilmarsson, og hljóm-
sveitin er að sjálfsögðu hin sívin-
sæla sýrusveit The Aryan Aquar-
ians. Þetta var súpersveit á
blómatímabilinu. Eða hefði verið
það, ef hún hefði ekki komið
fram á sjónarsviðið tuttugu árum
of seint. En skítt með það. Hún
er bara súpergrúppa á matar-
skattstímabilinu í staðinn. Þessi
súpersveit lætur reyndar afskap-
lega lítið yfir sér, svona af súper-
sveit að vera, en hún er síst verri
fyrir það. Auk Hilmars Arnar,
sem spilar á hljómborð, trommur
og bassa, eru í þessari ágætu sveit
þau James „Foz” Foster, sem
einnig leikur á hljómborð og
bassa, auk þess sem hann leikur á
gítar af mikilli fingrafimi, David
Tibet og Niki Mono, sem syngja
aðalraddir og Peter 77, sem sér
um bakraddir að nokkru leyti. Er
skemmst frá því að segja að þessi
fríði flokkur blómálfa nær fram
býsna góðri stemmningu í þeim
sex lögum er plötuna prýða. Ég
minnist löngu liðinna daga, er ég
var enn á þeim aldri að ég stóð í
frímerkja- og hrossaflugusöfnun,
og horfði með (nú að mestu horf-
inni) lotningu á stóra bróður þar
sem hann sat með rauðvínsglas
og vindil og hlustaði á útlenskar
sveitir með undarleg nöfn. Eftir
því sem ég get um það dæmt, þá
er þetta semsagt hin ágætasta
nostalgía, jafnframt því að vera
stórskemmtileg plata alls óháð
tíma og/eða rúmi. Og hvernig fór
liðið að því að ná upp þessari
stemmningu? Ef marka má orð
málpípu þeirra, þá beittu þau til
þess hinni svokölluðu „Aðferð",
eða The Method, við vinnu sína.
Þessi aðferð er fyrst og fremst
Elvis Costello er eitt af merki-
legri fyrirbærum rokkheimsins.
Ég held ég ljúgi engu, altént ekki
miklu, þegar égsegi að flestir sem
eitthvert vit hafa á rokktónlist
(eða telja sig hafa það...) séu
sammála um ágæti hans og áhrif á
aðra í „bransanum". Á þessari
nýjustu skífu úr smiðju meistar-
ans er að finna hvorki fleiri né
færri en sautján, 17 lög, flutt af
hinum ýmsu listamönnum, sem
allir eiga það sameiginlegt að
heita Declan Patrick Aloysius
MacManus, svona innst inni við
beinið. Þessi ágæti ungi maðurer
semsagt Elvis Costello. Hann er
líka, svona að töluverðu leyti, El-
vis Costello and the Attractions,
Elvis Costello & The Confeder-
ates, Elvis Costello & The Att-
ractrions with the TKO Horns,
The Costello Show, The Emotio-
nal Toothpaste og Napoleon
Dynamite & The Royal Guard.
The Coward Brothers er enn eitt
fyrirbærið, þar sem Declan þessi
kemur við sögu, en hann sveiflar
þar raddböndum sínum í áttina
að hljóðnemanum, við undirleik
Coward-bræðra og tveggja til.
Sjö nöfn eru semsagt gefin upp
sem flytjendur á umslagi plöt-
unnar, en ef betur er að gáð má
sjá að enn fleiri koma við sögu,
s.s. Nick Lowe og Jimmy Cliff.
Lowe er reyndar nokkuð áber-
andi á skífunni, því auk þess að
sagt drenginn, að hann hafi stað-
ið í stað.
Það er fátt um smelli á þessari
skífu, það er einna helst Blue
Chair, sem út kom í fyrra og var
firnavinsælt á tónleikum víða um
heim, sem hægt er að segja að
náð hafi einhverjum verulegum
vinsældum. Og víst er um það, að
ekkert þessara 17 laga hefur
hlotið náð fyrir eyrum íslenskra
vinsældalistaveljara. Costello
hefur reyndar aldrei verið ýkja
vinsæll hérlendis af einhverjum
ástæðum, og er það miður. Þessi
plata verður varla til þess að auka
honum vinsældir hér, en hún er
hins vegar velkomin viðbót í
gloppótt safn mitt og betri söfn
notuð í leikhúsi og kvikmyndum,
og felst í því að ganga svo alger-
lega og einlæglega inní hlutverk
þeirrar persónu, sem túlkuð skal,
að leikarinn nánast gleymi eigin
sjálfi og trúi því að hann hrein-
lega sé viðkomandi karakter. Eru
nokkrir vel þekktir leikarar
nefndir sem boðberar þessarar
aðferðar. Semsagt, Hilmar Örn
og félagar ganga sýrurokkinu og
The Aryan Aquarians á hönd af
svo mikili innlifun, að þau fara að
trúa því sjálf að þau séu gömul
sýrusúpersveit að rifja upp fyrri
tíð á þessari plötu; The Aryan
Aquarians Meet Their Waterloo.
Og svei mér þá ef ég er ekki far-
inn að trúa því líka...
FRÖNSKUNÁMSKEIÐ
ALUANCE
FRANCAISE
13 vikna vornámskeið hefst mánudaginn 25. jan-
úar. Kennt verður á öllum stigum ásamt bók-
menntaklúbbi, samtalshópi og í einkatímum.
Innritun fer fram á bókasafni Alliance Francaise,
VESTURGÖTU 2 (gengið inn bakdyramegin),
alla virka daga frá kl. 14 til 19 og hefst
fimmtudaginn 14. janúar. Allar nánari upplýsing-
ar fást í síma 23870 á sama tíma.
Veittur er 10% staðgreiðsluafsláttur og 15%
staðgreiðsluafsláttur fyrir námsmenn. Greiðslu-
kortaþjónusta.
Útboð - gatnagerð
Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í gerð gatna pg
lagna í Setbergi, samtals um 500 m í götu. Út-
boðsgögn verða afhent frá og með mánudegin-
um 18. janúar á skrifstofu bæjarverkfræðings,
Strandgötu 6, gegn 10 þús. kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn
27. janúar kl. 11.
Bæjarverkfræðingur
A
== Útboð-
sundlaug í Suðurbæ
Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í 3ja áfanga sund-
laugar í Suðurbæ en í honum felst uppsteypa
sundlaugarkerja og húss yfir innilaug.
Helstu magntölur eru:
Steypumót 4000 m2
Steypa 675 m3
Bendistál 43 tn.
Fyllingar 3000 m3
Verkinu skal lokið 1. okt. 1988.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjar-
verkfræðings gegn 25 þús. kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 2.
febr. n.k. kl. 11.00
Bæjarverkfræðingur
Skóla- og menning-
arfulltrúi
Hér með er auglýst laus staða skóla- og menn-
ingarfulltrúa í Kópavogi. Umsóknarfrestur er til
27. janúar n.k. Laun samkvæmt kjarasamningi
Starfsmannafélags Kópavogs. Umsóknum skal
skilað til undirritaðs, sem jafnframt veitir nánari
upplýsingar um starfið. Umsóknareyðublöð
liggja frammi á bæjarskrifstofunum, Fannborg 2,
4. hæð.
Bæjarstjórinn í Kópavogi
Dagheimilið Steinahlíð
Okkur vantar fóstrur og fólk með aðra uppeldis-
menntun til starfa strax. Upplýsingar hjá for-
stöðumönnum í síma 33280.
Sunnudagur 17. janúar 1988 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15