Þjóðviljinn - 17.01.1988, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 17.01.1988, Blaðsíða 18
KROSSGATA Nr. 600 BRIDGE 1 2 T~ 7— % 7- 3— 9 10 u n 8 22 (p )3 JY- V 16 10 U> >* 22 )í> W~ 12 8 22 Í0 )<* 2? 10 £ )2 S’ 9 7- £ V 21 )(o b ÍT e l? i2 6' y 6~ IS* S Uo y> 10 9 9 8 /2 7 2Í iS )4 9? 5* )Ý 2 (s> 8 í> n S 2 2Ý 26 )Ý 8 )U sr )Ý ii IÝ S2 & (o í>“ L> s" w y Jo 8 )(s> 17 22 H 2é> 8 9 )S e )(, 9 22 i£ b y >6 6~ 27 12 22 28 )(o IÝ )lo F~ 5 )b 22 s V 22 L? 23 )Ý s H V )2 2/ )S 5 II )1 )L> 21 )S 22 u 5~ vt S & é> 2? 29 i> )6> y z/ )Ý UK T~ I3 )ls> <o íf £ W zL> )t 92 )(o *ó 22 Zb 22 L> 2 )k> 21 i? 5 22 2/ )u> 52 3o Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mýnda þá nafn á götu í Reykjavík. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt „Krossgáta nr. 600". Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa. H- 23 )J 20 )0 8 21 5 )(o Stafirnir mynda ísienskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er lárétt eða lóðrétt. Hver stafur hefur sitt númer oc qaldurinn við lausn gátunnar er sá að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt. Sveinn Friðriksson, Reykjavík, hlaut verðlaun fyrir krossgátu númer 597. Lykilorðið var Geirshólmi. Hann fær senda bókina Úr sálarkirnunni eftir Málfríði Einarsdóttur. Verðlaunin fyrir krossgátuna að þessu sinni er heildarkvæðasafn Sjóns. Mál og menning gaf bókina út. Bikarúrslit á morgun Urslitaleikur Bikarkeppni Bridge- sambands Reykjavíkur 1988 fer fram á morgun á Hótel Loftleiðum (Audit- orium). Sveitir Pólaris og Samvinnuferða/Landsýnar eigast við. Leikurinn verður sýndur á sýn- ingatöflu og með upptökuvélum, þannig að áhorfendur sjá öll spilin og spilara jafnóðum og þeir spila þau. Jafnframt verða spilin útskýrð jafnóð- um svo fólk geti betur áttað sig á sögnum og spilamennsku. Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir og bridgeáhugafólk ein- dregið hvatt til að mæta. Spiluð verða 64 spil og hefst spilamennskan kl. 13. Nú er lokið 12 umferðum af 21 í undanrásum Reykjavíkurmótsins í sveitakeppni. Spilamennsku verður framhaldið næsta miðvikudag og lýk- ur um næstu helgi. Eftir 9 umferðir var staða efstu sveita þessi: Flugleiðir 170, Pólaris 168, Jón Steinar Gunn- laugsson 163 og Jón Þorvarðarson 163. Þórhallur Þorsteinsson er látinn. Þórhallur var um árabil félagi í TBK og spilaði að jafnaði í flestum mótum á vegum bridgehreyfingarinnar. Um- sjónarmaður vottar aðstandendum Þórhalls samúð sína. eina til leiksins hafa stórlega lækkað í verði. Er forráðamönnum félaga og áhugafólki bent á að halda að sér höndum uns Ijóst verður hvernig kaupmenn hyggjast fara með þessa framkvæmd. Bullinu um lagerinn sem á að seljast á háa verðinu vísum við til föðurhúsanna, eða hvar er ábyrgð kaupmanna? íslandsmót kvenna og yngri spilara í sveitakeppni verður spilað í Sigtúni 9, helgina 20.-21. febrúar (undanrás- ir) og úrslit næstu helgi á eftir. Bridgehátíð 1988 verður á Loft- leiðum dagana 12.-15. febrúar, eins og fram hefur komið áður. Hafin er skráning í tvímenningskeppni og Flugleiðamótið (opin sveitakeppni) hjá BSÍ. Spilað verður um gullstig í báðum mótunum. Um þessa helgi fer fram á Akureyri úrtökumót fyrir fslandsmótið í sveitakeppni. Fyrstu helgi í febrúar fer fram úrtökumót Vestfjarða á ísa- firði með þátttöku 8 sveita, en bæði þessi svæði eiga rétt á tveimur sveit- um. Bridgesambandið mun að öllum líkindum hrinda fram Opnu húsi á föstudagskvöldum í febrúar. Er þá meiningin að þar verði boðið upp á ýmislegt til fróðleiks og skemmtunar fyrir bridgeáhugafólk. Einnig eru uppi hugmyndir um nýtingu húsnæðisins að Sigtúni á laugardagsmorgnum, eins konar spjalltímar, með spilin í annarri hendi og kaffibollann í hinni. Þessi starfsemi verður auglýst nánar síðar. Suðurlandsmótið í tvímenningi verður spilað á Flúðum laugardaginn 30. janúar. Búist er við að 34-36 pör taki þátt í mótinu. Ýmis félög og fyrirtæki hafa í auknum mæli efnt til bridgekeppni meðal starfsfólks og félaga. Má þar nefna SÍS, ÍSAL, Rafmagnsveitur ríkisins, Verkfærðingafélagið, Tré- smiðafélag Reykjavíkur, Sláturfélag Suðurlands, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, Skrifstofa borg- arverkfræðings, KEA og IBM á Is- landi. Innan þessara fyrirtækja/stofnana hefur einnig verið vísir að bridge- kennslu og hefur Bridesambandið leitast við að aðstoða þá viðleitni, sem og að setja upp áðurnefndar keppnir innan fyrirtækjanna. Bridgesamband íslands verður 40 ára 26. apríl nk., eins og fram hefur komið áður. I tilefni afmælisins eru ÓLAFUR LÁRUSSON Með breytingu á tollalögum er ekki úr vegi að vekja athygli á því að spil, bakkar undir spil, sagnabox og hvað- uppi hugmyndir innan stjórnar BSÍ að efna til afmælismóts bestu íslensku paranna (14-16 pör) og fá nokkur af stærstu fyrirtækjum landsins til að styðja við bakið á slíkri framkvæmd. Verkefni landsliða okkar í ár eru um- talsverð. í sumar höldum við Norður- landamótið í opnum flokki og kvenna- flokki, tökum þátt í Evrópumóti yngri spilara í Búlgaríu og loks ólympíumót- inu á ftalíu í október í opnum flokki. í sambandi við Norðurlandamótið hér heima má geta þess að uppi eru hugmyndi um að Svíinn Hans Olov Hallén stjórni mótinu og um leið verði sett upp námskeið fyrir keppnis- stjóra. Nánar síðar. SKÝRT OG SKORINORT i undirritaður snati gæti gjarnan hugsað sér aö verða bankastjóri. kostirnireru ótvíræðir; mánaðar- hýran dugar fyrir tveimur hnatt- reisum, skrifstofan rúmar45 kalí- bera partí og loksins, - og það er sennilega mest um vert, - væri hægt að nýta neikvæðnina á já- kvæðan hátt; með því að úthýsa húsbyggjendum, einstæðingum og öðrum vafasömum gem- lingum myndi snati stuðla að farsælli uppbyggingu bankans og þar með þjóðfélagsins í heild. til þess að verða bankastjóri þarf réttan bakgrunn: það er jafnan álitið tilvalið að skipstjórarséu sjómenn, bændurþekki í sundur sauðina og hafrana og flugstjórar snati fjárhundur þurfa víst helst að kunna á flug- vélar. þessvegna ætlar snati út í pólitík til að læra að stýra banka. II það er ekki laust við að undirrit- aður bankastjórakandidat vor- kenni þeim sem hafa streðað við það árum saman að príla metorðastigann í þeim tilgangi að verða einn góðan veðurdag kapt- einn yfir öllu heila klabbinu. það ervitaskuld hin argasta firra. það er bara í ameríku sem sendlar verða forstjórar og blaðasalar forsetar. hérlýturtilveran alltöðrum lögmálum. þessvegna hvarflar ekki að snata að sækja um vinnu í landsbankanum og þaðanaf síður að mennta sig í t.d. hagfræði eða viðskiptafræði. snati er á hinn bóginn að innrita sig í bankastjóraflokkinn. III það er mikill misskilningur að það sé siðferðilega rangt að við stjórnmálasnatar komum okkur fyrir í þægilegum hægindum á borð við banka og peningastofn- anir. það er beinlínis nauðsyn- legt. hvernig geta einhverjir drengir sem aldrei hafa gert ann- að en reikna út prósentur, vexti og innlánsaukningu haft skilning á því hvert peningarnir eiga að fara? þjóðskipulaginu væri stefnt í hættu ef allt I einu ætti að reka bankanaeinsog hverönnurfyrir- tæki. viðstjórnmálasnatarnir vit- um hverjum ertreystandi fyrir peningum og hverjum ekki. og ef við vitum það ekki þá benda vinir okkar glaðlega á þá sem eru traustsins verðir. þannig erökó- nómían í praxís. IV það verður gaman að sitja í bankastjórastólnum: á fimmáraafmælinu fær snati feiknin öll af málverkum og persneskum teppum; koníaks- flöskum og laxveiðileyfum. litlu mennirnir munu sitja skjálf- hentirog raddlausirhinumegin við skrifborðið (sem eitt og sér verður að flatarmáli sambærilegt við einstaklingsíbúð); rekja harmsöguna f rá upphafi á með- an snati blaðar annarshugar í sígildum sögum (sem verða í möppu merkt: útlánsaukning fyrsta ársfjórðungs). síðan lítur undirritaður snati leti- lega upp og segir: því miður kunningi, hér er enga peninga að hafa. þú hlýtur að geta sparað; hert sultarólina lítið eitt, hehe, unnið dálítið meira og hætt að drekka... 18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 17. janúar 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.