Þjóðviljinn - 09.02.1988, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 09.02.1988, Blaðsíða 3
FRÉTTIR Tangenmálið Alvarlegt brotRUV Siðanefnd Blaðamannafélags- ins hefur birt úrskurð sinn í kæru útvarpsstjóra, Markúsar Arnar Antonssonar á hendur fréttastofu Ríkisútvarpsins, vegna frétta- flutnings útvarpsins af sam- skiptum Stefáns Jóhanns Stefáns- sonar fyrrverandi forsætisráð- herra við starfsmann leyniþjón- ustu Bandaríkjamanna á Islandi. Heimild fréttastofunnar var skjal sem norski sagnfræðingur- inn Dag Tangen sagðist hafa undir höndum. Tilvist skjalsins hefur ekki verið sönnuð og telur siðanefnd að Ríkisútvarpið hafi brugðist með því að halda áfram að leggja út af efni skjalsins eins og það væri fyrir hendi og nefna ekki strax og vitað var að skjalið fyndist ekki þrátt fyrir mikla leit. Úrskurður siðanefndar er sá að Ríkisútvarpið hafi í fréttatímum útvarps og þætti dægurmála- deildar á rás 2 brotið 3. grein siðareglna um vandaða upplýs- ingaöflun og tillitssemi í vanda- sömum málum og að brotið sé alvarlegt. Flugstöðin Rann- sóknar- nefnd Þingályktunartillaga Alþýðu- bandalagsins um að Alþingi skipi rannsóknarnefnd skipaða níu ai- þingismönnum til að gera sér- staka athugun á því hverjir skuli sæta sérstaklega ábyrgð á um- framkostnaði við byggingu flug- stöðvar á Keflavíkurflugvelii, kom til fyrstu umræðu í gær. Það var Steingrímur J. Sigfús- son sem mælti fyrir tillögunni og sagði hann að nauðsynlegt væri að fylgja þessu máli eftir. Hann sagði að því miður vildi það brenna við þegar slík mál væru upplýst að látið væri þar við sitja, en yrði það tilfellið í þessu máli, væri það stærra hneyksli en sjálf byggingin. Steingrímur sagði að ef sam- staða gæti orðið um aðra máls- meðferð en Alþýðubandalagið legði til, væri hann til viðræðu um það. - Sáf. Friðrik Ólafsson, Jóhann Hjartarson og Jónína Ingvadóttir í flugstöðinni í gærmorgun. Jóhanni var innilega fagnað við komuna til landsins. Mynd: Sig. Skak Sigurvegara fagnað ~Loks staðfest að Jóhann mætir Karpov í næstu lotu. Óvenjufáir Sovétmenn eftir, baráttunni um heimsmeistaratignina Jóhanrti Hjartarsyni stórmeist- ara var innilega fagnað er hann sneri heim frá St. John í Kanada í gærmorgun. Svo skemmtilega vill til að Jóhann á afmæli þennan dag, 8. febrúar, og er hann nú orðinn hálfþrítugur. Við móttökuathöfn í flugstöð- inni í gærmorgun flutti Birgir ís- leifur Gunnarsson menntamála- ráðherra ávarp fyrir hönd ríkis- stjórnarinnar. Fjöldi manns fagn- aði Jóhanni við komuna til lands- ins. Campomanes, forseti FIDE, segir að sömu reglur gildi áfram til að ákveða hverjir tefli saman í næstu lotu einvígjanna um heimsmeistaratitilinn; sá skák- maður sem flest ELO-stig hefur teflir við hinn stigalægsta og síðan koll af kolli. Því mun Jóhanns bíða hið spennandi og krefjandi hlutskipti að tefla við Anatolí Karpov fyrrverandi heimsmeist- ara. í einvígjunum að öðru leyti mun slagurinn standa milli Bret- anna Speelmans og Shorts; La- josar Portisch frá Ungverjalandi og Hollendingsins Timmans; og Sovétmannsins Jusupovsog Kan- adamannsins Spraggetts. Athygli vekur hve fáir Sovét- menn eru eftir í keppninni; að- eins þrír á móti sex „Vesturlanda- búum.“ En á það er að líta að í þessum „fámenna" hópi Sovét- manna eru tveir sterkustu skák- menn heims um árabil: Anatolí Karpov og heimsmeistarinn, Garrí Kasparov. HS Fiðurbœndur Stjómarliðar í eggjastríði GuðmundurG. Þórarinsson snýstgegn landbúnaðarráðherra. Karl Steinar Guðnason: Brot á samkomulagi við verkalýðshreyfinguna. Mikil andstaða við verðstýringu á eggjum og kjúklingum Mjög skiptar skoðanir eru innan ríkisstjórnarinnar um verðstýringu á sölu eggja og kjúklinga og virðist Jón Helgason eiga fáa formælendur innan ríkis- stjórnarflokkanna, því meira að segja Guðmundur G. Þórarins- son réðst harkalega á þá ráðstöf- un landbúnaðarráðherra að setja kvóta á eggja- og kjúklingafram- leiðslu. I gær fór fram utandagskrár- umræða í sameinuðu þingi að frumkvæði Karls Steinars Guðnasonar. Sagði hann að ákvörðun landbúnaðarráðherra væri brot á samkomulagi sem rík- isstjórn Steingríms Hermanns- sonar hefði gert við verkalýðsh- reyfinguna þegar jólaföstusamn- ingarnir voru undirritaðir. Skoraði hann á landbúnaðarráð- herra að afturkalla reglugerðina. Jón Helgason hljóp í vörn fyrir ákvörðun sína og sagði að samkomulagið við verkalýðs- Ríkisstjómin á næsta leik Vinnumálasamband samvinnufélaganna skrifar undir Vestfjarðasamninginn með semingi Við lítum svo á að ríkisstjórnin eigi næsta leik. Það er eðli- legast að það verði komið á hreint til hvaða cfnahagsaðgerða ríkis- stjórnin mun grípa áður en gengið verður frá samningum, sagði Þorsteinn Ólafsson, stjórn- arformaður Vinnumálasam- bands samvinnufélaganna. Að sögn Þorsteins er borin von að forsendur samninga standist nema gerðar verði ráðstafanir til að treysta rekstrargrundvöll út- flutningsatvinnuveganna og komið verði í veg fyrir stóraukin áform um fjárfestingar á þessu ári. Þorsteinn sagði að miðað við óbreytt ástand væri sama hversu menn legðu sig fram um að halda almennum kauphækkunum í skefjum og gerðu sér far um að rétta hlut þeirra lægstiaunuðu. - Reynslan frá gerð síðustu samninga sýnir okkur ljóslega að blekið er vart fyrr þornað á slík- um samningum en forsendur þeirra eru brostnar. Þetta mun endurtaka sig ef þenslan heldur áfram með sama hætti og hefur verið, sagði Þorsteinn. í fréttatilkynningu Vinnumála- sambands samvinnufélaganna í tilefni af þvf að sambandið skrif- aði undir Vestfjarðasamninginn, segir m.a. aðefnislegar forsendur séu ekki fyrir hendi hjá fiskvinnslufyrirtækjum á Vest- fjörðum til að taka á sig aukinn launakostnað. „Flest þeirra eiga í verulegum rekstrarerfiðleikum og eru í raun við að stöðvast, nema sérstakar ráðstafanir verði gerðar.“ Á hinn bóginn telur Vinnumálasambandið þýðingar- mikið að Vestfjarðasamningur- inn verði fyrirmynd annarra samninga. „Þeir, ásamt nauðsyn- legum aðgerðum í efna- hagsmálum til að rétta stöðu út- flutningsgreinanna, geta skapað nauðsynlegt jafnvægi í efna- hagsmálum.“ Vinnumálasambandið telur þó að slíkt verði unnið fyrir gíg nema komið verði í veg fyrir áform um auknar fjárfestingar, s.s. á höf- uðborgarsvæðinu. Ella muni verðbólga fara ört vaxandi á ár- inu, launahlutföll breytast og for- sendur fastgengisstefnunnar bresta. -rk . hreyfinguna gilti ekki lengur þar sem samningar hefðu runnið úr gildi um áramót. Geir H. Haarde taldi þetta hið hörmulegasta mál og afturför fyrir neytendur og Friðrik Sop- husson sagðist taka undir orð Geirs. Friðrik sagði einnig að reglugerðin hefði verið borin undir ríkisstjórnina og að það væru deildar meiningar innan hennar um hana. Þau Danfríður Skarphéðins- dóttir, Níels Árni Lund og Stefán Valgeirsson vöruðu við innflutn- ingi á eggjum og kjúklingum en mesta athygli vakti það að Guð- mundur G. Þórarinsson sagðist andvígur framleiðslustýringu á kjúklingum og eggjum. Sagði hann að með þessu kvótafyrir- komulagi væri verið að hneppa þjóðfélagið í viðjar. Þeir Albert Guðmundsson og Hreggviður Jónsson bentu á óeininguna innan ríkisstjórnar- innar og Steingrímur J. Sigfússon tók í sama streng. Hann sagði stjórnun af þessu tagi orka mjög tvímælis en sagðist einnig andvíg- ur innflutningi. Pálmi Jónsson benti mönnum á að breyta bú- vörulögunum ef þeir væru á móti þessu. -Sáf Þrlðjudagur 9. febrúar 1988 jÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.