Þjóðviljinn - 09.02.1988, Side 8
ERLENPAR FRÉTTIR
ísrael/herteknu svœðin
Israelsmenn skjóta og skjóta
ísraelskir hermenn börðufimmtán áragamlan pilttil bana ígœr. Meðalfórnarlamba þeirra
um helgina var tíu ára gamall snáði
Israeiskir hermenn börðu 15 ára
gamlan palestínskan skólapiit
til bana í flóttamannabúðum á
Gazasvæðinu i fyrradag og skutu
annan ungan Palestínumann tii
bana í þorpi á vesturbakka Jór-
danár. Háttsettur starfsmaður
Sameinuðu þjóðanna á Gaza
kvað ísraelska dáta hafa ruðst inn
á heimili Iyads Mohammads Aq-
els í Bureij flóttamannabúðunum
og haft hann á brott með sér. Um
miðnætti aðfaranótt mánudags
fannst lík hans í appelsínutrjá-
lundi, steinsnar frá heimilinu, og
var það hroðalega útleikið eftir
barsmíðar.
Yfirmenn Rafibiyeh sjúkra-
hússins í borginni Nablus á vest-
urbakkanum kváðu Abdel-
Basset Abdallah hafa verið látinn
þegar komið var með hann í gær.
Hann var 25 ára gamall og hafði
verið skotinn í höfuðið í þorpinu
Kafr Kadum. Herstjórnin vildi
ekki kannast við að hafa orðið
honum að bana og grunur leikur
á að hægrisinnaðir öfgamenn úr
röðum „landnema" hafi hér verið
að verki.
Tíu ára gamall, ég endurtek 10
ára gamall!, snáði lést á laugar-
daginn af völdum skotsára. Að
sögn vitna særðu ísraelskir her-
menn hann fjölda skotsára dag-
inn áður í mótmælum ungmenna í
þorpinu Burka á vesturbakkan-
um. Hann er yngsta fórnarlamb
barnamorðingja ísraelshers til
þessa.
ísraelsmenn skutu ennfremur
sautján ára gamla palestínska
stúlku til bana og særðu fjóra á
vesturbakkanum á laugardaginn.
Herstjómin kvað „landnema“
hafa framið morðin. Að minnsta
kosti fjórir Palestínumenn voru
myrtir á sunnudaginn. Þar af
vora þrír skotnir til bana í þorp-
inu Beit Ummar en sá fjórði lést
af völdum höfuðáverka í sjúkra-
húsi í Jerúsalem.
Bernard Mills, yfirmaður
hjálparstarfs Sameinuðu þjóð-
anna á Gazasvæðinu, greindi
fréttamanni Reuters frá því að
ungmennið sem ísraelsdátar
börðu til bana hefði verið jarðað-
ur í gærmorgun. Unglingarnir er
fylgdu honum til grafar hefðu
fengið útrás fyrir reiði sína og
sorg með því að kasta grjóti í átt
til dáta sem svöruðu með vél-
byssuskothríð og særðu tvo, el-
lefu ára gamla stúlku og fimmtán
ára pilt.
AIls hafa nú ísraelsmenn myrt
að minnsta kosti 50 palestínsk
ungmenni frá því í desember. ís-
raelska herstjórnin viðurkennir
að sínir menn hafi fellt 42 og lim-
lest 397 en samkvæmt frásögn
Mills og skýrslum sjúkrahúsa á
hernumdu svæðunum hafa að
minnsta kosti 800 Palestínumenn
verið særðir skotsárum ellegar
barðir til óbóta frá því uppreisnin
hófst. Mills segir að minnsta kosti
42 Palestínumenn hafa þurft að
leita sér lækninga um helgina
eftir barsmíðar ísraelsdáta. Þar á
meðal hefðu verið 4 ára barn sem
barið hefði verið í andlit með
kylfu og sjötugur maður sem
hafði verið handleggsbrotinn
með sama verkfæri.
ísraelskir landræningjar á vest-
urbakka Jóradanár virðast ekki
treysta dátum lengur til þess að
beita Palestínumenn nægilegri
hörku og láta því æ meira til sín
taka, einsog fréttir bera með sér.
Einn þeirra heitir Shmuel Ben-
Ishai og er hann foringi klíku er
nefnir sig „Nefnd um umferðar-
öryggi í Samaríu og Júdeu.“
Hann viðurkenndi fúslega í út-
varpsviðtali í gær að hann og fé-
lagar sínir hefðu unnið skemmd-
arverk á bifreiðum Palestínu-
manna á herteknu svæðunum en
bætti síðan við þessum merku
upplýsingum:
„Arabarnir eru miklu, miklu
hræddari við landnemana en lög-
reglu og hersveitir því þeir vita að
stjórnmálamennirnir halda aftur
af hernum. Það gildir hinsvegar
ekki um landnemana... þeir geta
gert allt sem þeim sýnist.“
Reuter/-ks.
Sovéska herliðið í Afghanistan
Heimkvaðning hefjist 15.maí
Gorbatsjov kveðst reiðubúinn að kalla sovéskt herlið heim
frá Afghanistan á tíu mánuðumfrá og með 15. maísvo fremi
Afghanir og Pakistanir semji í snarhasti
Míkhael Gorbatsjov sovétleið-
togi lét það boð út ganga í
gær að ef samkomulag næðist á
Genfarfundinum um framtíð
Afghanistans fyrir þann 15. mars
næstkomandi væri ekkert þvi til
fyrirstöðu að brottflutningur
allra sovéskra hersveita gæti haf-
ist tveim mánuðum síðar eða
þann 15. maí.
í yfirlýsingu frá aðalritaranum
sem Tass fréttastofan kom á
framfæri í gær skýrði hann um-
heiminum frá því að heimflutn-
ingur alls sovésks herliðs frá Afg-
hanistan þyrfti ekki að taka nema
um 10 mánuði. Hann gat þess
jafnframt að hugsanlegt væri að
hefja heimkvaðninguna fyrr ef
ríkisstjórnir Pakistan og Afghan-
istan gerðu með sér friðarsátt-
mála áður en 15. dagur
marsmánaðar rynni upp. Fulltrú-
ar stjórnanna í Islamabad og Ka-
búl sitja nú friðarfund sem hald-
inn er í Genf að frumkvæði Sam-
einuðu þjóðanna.
„í því augnamiði að stuðla að
skjótri og árangursríkri niður-
stöðu Genfarviðræðna fulltrúa
Afghanistans og Pakistans hafa
ríkisstjómir Sovétríkjanna og
Afghanistan bundið fastmælum
að hefja brottflutning sovéskra
hersveita ákveðinn dag, þann
15.maí, og ljúka honum á tíu
mánuðum.
Dagurinn er ákveðinn í trausti
þess að málsaðilar í Genf nái
samkomulagi eigi síðar en þann
15. mars 1988. Verði pappírar
undirritaðir fyrir þann tíma mun
brottflutningurinn vitaskuld enn-
fremur hefjast fyrr.“
í yfirlýsingu Gorbatsjovs kem-
ur fram að „hlutfallslega fleiri
sovéskir hermenn verði kallaðir
heim á fyrri hluta tíu mánaða
tímabilsins en því síðara“ en
brottflutningurinn í heild yrði
órofa tengdur „tryggingum fyrir
því að aðrar þjóðir ábyrgðust
hlutleysi Afghanistans og skiptu
sér ekki af innanríkismálum
þess.“ Það væri svo annar hand-
leggur að heimkvaðningin væri
ekki nauðsynlega bundin því að
tekist hefði að setja á fót ein-
hverskonar samsteypustjórn í
Kabúl fyrir vinnuhjúaskildaga.
Reuter/-ks.
Austurríki
Waldheim
vissi
en brást
Nefnd sex sagnfræðinga sem að
undanförnu hefur farið ofaní
saumana á atferli Kurts Wald-
heims á stríðsárunum gaf kansl-
ara Austurríkis, Franz Vranit-
sky, skýrslu í gær og kvað engar
óyggjandi sannanir fyrir því að
forsetinn hefði framið stríðs-
glæpi. Hinsvegar hefði hann
brugðist „skyldum sínum sem
maður“ og ekki snúist gegn
hryðjuverkum.
Alkunna er að Waldheim hef-
ur hvorki þóst hafa framið óhæfu-
verk þegar hann var háttsettur í
setuliði nasista á Balkanskaga á
stríðsárunum né hafa haft hug-
mynd um að þýski herinn aðhefð-
ist neitt er orkaði tvímælis. Sagn-
fræðingarnir sögðu hinsvegar í
gær að það væri engum vafa
undirorpið að Waldheim vissi um
fjöldamorð og flutning fólks í út-
rýmingarbúðir.
Þeir sögðu hann ekki hafa ver-
ið þann meinleysis kontórista
sem hann vildi vera láta. Wald-»
heim hefði gert allt sem í hans
valdi stóð til þess að „hjúpa fortíð
sína gleymsku“ og þegar það
hefði ekki tekist þá hefði hann
reynt að telja fólki trú um að
hann hefði bara verið blók.
Simon Wiesenthal sagði í gær
að ekkert í skýrslu sexmenning-
anna kæmi sér né öörum á óvart.
Það þyrfti ekki 200 síðna doðrant
til að segja sér að Waldheim hefði
vitað um hryðjuverk nasista og
króatískra leppa þeirra í Júgósla-
yíu- Reuter/-ks.
Panama
Vildu ráðast inní Nicaragua
Manuel Noriega hershöfðingi og raunverulegur hæstráðandi í Panama kveður
Bandaríkjamenn hafa reynt aðfá her sinn með í innrás í Nicaragua
gy| anuel Noriega hershöfðingi,
stjórnandi Panama í raun,
var á dögunum borinn þungum
sökum af bandarískum dómstóli í
Flórídafylki og sagður hafa gert
land sitt að flutningamiðstöð kó-
lombískra eiturlvfjabaróna.
Hann ræddi við fréttamenn CBS
sjónvarpsstöðvarinnar banda-
rísku í gær og kvað ásakanir dóm-
stólsins vera bornar fram í hefn-
darskyni sökum þess að hann
hefði þverneitað að taka þátt í
innrás í Nicaragua. Vitaskuld
hefði hann aldrei átt neitt saman
við fíkniefnasala að sælda.
Noriega sagði í sjónvarpsvið-
talinu að hann hefði árið 1985 átt
fund með John Poindexter, þá-
verandi öryggismálaráðgjafa Re-
agans Bandaríkjaforseta, sem
hefði óskað eftir þátttöku Pan-
amahers í bandarískri innrás í
Nicaragua.
„Já, þeir voru staðráðnir í því
að ráðast inní Nicaragua," sagði
Noriega, „þeir hugðust ráðast
inní Nicaragua og það eina sem
hélt aftur af þeim var andstaða
Panamabúa.“
Hann kvað Poindexter hafa
tjáð sér að hann færi í erinda-
gjörðum Reagans forseta. Hann
hefði hótað Panamamönnum
efnahagslegum og pólitískum
refsiaðgerðum ef þeir létu ekki
segjast, hættu að beita sér fyrir
friðsamlegri lausn borgarastríðs-
ins í Nicaragua og tækju að styðja
Kontraliða með ráðum og dáð.
Foringi í Panamaher, Moises
nokkur Cortizo kapteinn, kom
einnig fram í sjónvarpsþættinum.
Sagðist hann hafa verið viðstadd-
ur fund Noriegas og Poindexters.
Honum mæltist á þessa leið:
„Þeir vildu að Panamaher gerði
innrás með sínum dátum, en við
áttum að gera fyrstu árásina. Síð-
an myndu bandarískir hermenn
fylgja í fótsporið."
Að sögn fréttamanna CBS
kveðst Noriega hafa hafnað allri
málaleitan Poindexters og það
hefði Reagan aldrei getað fyrir-
gefið sér og því væru nú lognar
upp á hann sakir. Reuter/-ks.
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN