Þjóðviljinn - 26.02.1988, Side 2
Guðmundur Hjörleifsson
sjómaður:
Já. Ég finn talsvert við mitt hæfi
hér og sýnist mikið vera hægt að
grúska.
—SPURNINGIN™
(Spurt á bókamarkaðn-
um í Kringlunni)
/Etlar þú að versla mikið
á bókamarkaðnum?
Sólrún Skúladóttir
dagmamma:
Það fer eftir því hvað ég finn.
Kannski kaupi ég einhverjar góð-
ar barnabækur.
Jón Auðunn Jónsson
nemi:
Það er ekkert fyrirfram ákveðið.
Það má vera að maður finni
eitthvað áhugavert.
ína Ágústsdóttir
nemi:
Veit ekki. Helst vil ég finna
eitthvað sem nýtist mér við nám-
ið.
Arnar Guðmundsson
Jaaa.... ekkert mjög. Ég ætla að
reyna að finna Paddington.
Húsnœðislögin
Skilnaðarhvetjandi
Gunnar Kristjánsson: Fengi óskert lán efvið hjónin skildum.
Sr. Sigurður Haukur: Alvarlegþróun
Eg hef áunnið mér full lífeyris-
réttindi, en konan mín er í ó-
lánshæfu námi og hefur engin.
Fyrir bragðið skerðast mín rétt-
indi um helming, og við hjónin
værum því betur sett gagnvart
húsnæðislögunum ef við skildum,
sagði Gunnar Krístjánsson húsa-
smíðanemi.
Eiginkona Gunnars, Margrét
Erlingsdóttir, stundar nám við
fjölbrautaskóla, en slíkt nám er
ólánshæft. Samkvæmt húsnæðis-
lögunum á hún engan lánsrétt, en
í þokkabót skerðist lánsréttur
Gunnars um helming vegna þess
að hún er í námi. Ef hann á hinn
bóginn sækti um lán einn og sjálf-
ur fengi hann fullt lán í fyllingu
tímans, og liggur ljóst fyrir af
þessu dæmi að nýju lögin geta
beinlínis ýtt undir hjónaskilnaði.
- Frá mínum bæjardyrum séð
eru húsnæðislögin að ýmsu leyti
Þórhalla Sveinsdóttir heldur hér á bókastafla sem undir eðlilegum kringumstæðum kostar um 15 þúsund en kostar á
markaðnum 3 þúsund krónur.
Bókamarkaður
Góðar bækur á góðu verði
„Gamla krónan “ ífulli gildi. Á fimmta þúsund titlar áfyrsta degi og
titlumfer fjölgandi
Bókamarkaður Félags ís-
lenskra bókaútgefenda var
opnaður í gær í Kringlunni. Hann
verður opinn fram á sunnudag 6.
mars og er á honum boðið upp á
bækur sem legið hafa inni hjá
Samgönguráðherra undirbýr
nú frumvarp um sölu Ferða-
skrifstofu ríkisins. Kjartan Lár-
usson, forstjóri FR, segir að í
drögunum hafi starfsfólkið fork-
aupsrétt og þau séu að kanna
hvað sé í buddunum.
Kjartan sagði að í 50 ár væri
búið að ræða um sölu bæði í opin-
berum fjölmiðlum og á Alþingi
og væri mál að því linnti. Þetta
bókaforlögunum mislengi. Bæk-
urnar eru gamlar og nýjar, sú
elsta frá 1915 og sú yngsta frá því í
fyrra en umfram allt eru þær all-
ar ódýrar. Meðalverð bókanna á
markaðnum er 250 krónur.
væri þriðja atrennan til að leggja
fyrirtækið niður á 10 árum og
væri þessi óvissa slæm fyrir starfs-
fólkið, stöðu fyrirtækisins og
framtíð. Sagði hann að rætt hefði
verið við starfsfólkið um þetta
frumvarp, en taldi að eðlilegast
væri að hann hefði enga skoðun á
því sérstaklega. Hins vegar væri
ekkert þvf til fyrirstöðu að selja
Ferðaskrifstofu ríkisins. mj
Að jafnaði er markaðurinn op-
inn frá kl. 10-19 en þó frá 10-20 á
föstudögum, 10-18 á laugar-
dögum og 12-18 á sunnudögum.
Nú er bryddað upp á þeirri nýj-
ung að bjóða sérstaka bókapakka
sem eru flokkaðir eftir efni og
aldurshópum og seldir á afar hag-
stæðu verði.
70-80 þúsund bækur seldust á
markaðnum í fyrra og búast for-
ráðamenn hans við viðlíka sölu
þetta árið. - Bókasöfnin sjá sér
mikinn hag í því að kaupa eldri
titla því þau eru of fjársvelt til að
geta keypt það magn nýrra bóka
sem þau þyrftu árlega, sagði Jens
Pétur Hjaltesteð, framkvæmda-
stjóri Pennans, en Penninn sér
einmitt um markaðinn að þessu
sinni.
Sérstaka athygli vekur að
bókamarkaðurinn er nú einnig
opinn á sunnudögum en það hef-
ur ekki fyrr verið heimilað innan
borgarmarkanna. - Það verður
sannkölluð helgarstemmning hér
í Kringlunni því veitingahúsin hér
verða opin og börnin fá að njóta
sín í sérstakri leikaðstöðu, sögðu
forráðamenn markaðarins.
-tt
Ferðaskrifstofa ríkisins
Fumvarp um sölu
væntanlegt
Kjartan Lárusson: Þriðja tilraun til sölu álO
árum. Mál aðþessum atrennum linni
skilnaðarhvetjandi. Það kemur
iðulega fram í viðtölum okkar
sóknarprestanna við fólk að það
verður að skilja til að geta nýtt sér
það sem kerfið hefur upp á að
bjóða, sagði sr. Sigurður Haukur
Guðjónsson í Langholtspresta-
kalli. Hann sagðist álíta að kir-
kjan hefði verið andvaralaus
gagnvart þessari alvarlegu þróun:
„Það er vegið að fjölskyldunni á
margan veg, og ekki síst þenn-
an,“ sagði hann.
- Það er í raun og sannleika
ömurlegt að standa frammi fyrir
fólki sem hefur lýst því yfir að
skilnaðurinn sé ekkert annað en
gabb. Mörgum er ákaflega sárt
að ganga í gegnum slíkt og því-
líkt, en segja jafnframt að allar
dyr séu lokaðar að öðrum kosti
og að þeim sé beinlínis ráðlagt að
skilja, sagði sr. Sigurður.
HS
Olíulekinn
Nýtt vatnsból
Magnús Guðjónsson,
heilbriðiseftirliti
Suðurnesja: Nýtt
vatnsból er eina lausnin
tilframbúðar. Líkindi til
að olían berist í átt að
vatnsbóli Keflvíkinga við
Þverholt
Nýtt vatnsból og ný vatnsveita
fyrir Keflavfk og Njarðvík er
eina varanlega lausnin. Jafnvel
þó að vatnsbólin hafi ekki meng-
ast þegar, getum við ekki verið
fyllilega vissir um að olía berist
ekki í þau, sagði Magnús Guð-
jónsson, forstöðumaður heili-
brigðiseftirlits Suðurnesja, í sam-
tali við Þjóðviljann í gær er hann
var inntur eftir ferðum olíunnar
sem lak úr olíubirgðasvæði hers-
ins í desember s.l.
Magnús sagði að svo virtist sem
olían leitaði í gagnstæða átt við
það sem menn höfðu spáð.
Reiknað var með að olían leitaði
beina leið til sjávar þegar hún
væri einu sinni komin niður á
grunnvatnsborðið. Líkindi eru
talin fyrir því að olían seytli í
norð-austlæga átt, í áttina að
vatnsbóli Keflavíkinga við Þver-
holt.
Magnús sagði að í undirbún-
ingi væri að bora nýja borholu um
það bil miðja vegu milli vatns-
bólsins í Þverholti og þess staðar
þar sem óhappið varð, svo
mönnum gæfist ráðrúm til að
grípa til viðeigandi aðgerða væri
útlit fyrir að olían stefndi í
drykkjarvatnið.
Magnús bjóst allt eins við að
hafist yrði handa seinni partinn í
gær við að bora nýj a holu, en þeg-
ar hafa verið boraðar 7 borholur
til þess að fylgjast með ferðum
olíunnar. -rk
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 26. febrúar 1988