Þjóðviljinn - 28.02.1988, Blaðsíða 18
KROSSGÁTA
Nr. 606
BRIDGE
1— F~ 3— 1 S ? 6 7— F~~ CL — 9 9 s
)0 I/ )2 y )*> )*/ S 12 S )S Jfc <2 1% 17
S' í? S 1 b V )3 )8 20 )2 <2 i/ 17 18
+ 13 8 n \2 1} V J¥ )to 2) \s ¥ )to
T. n te> s ¥ 18 12 r )b 5 )2 2
i 73 12 (p 0? ¥ $2 20 W s 2Ý r J? 1
21 ¥ V )# )to )í> 2£ 1*7 6 )2 ¥ j 2S )b
18 r r S' 8 ¥ /7 4 W~ )¥
77 (p )3 7 JF~ y )tf *? 2k s 52 S ¥
W H )S 5 IS' )(? 4 f 10 7S< O (0 0 V 18
te V s )2 20 w 8 2 52 af <2 )2 2S SL
1 )b 23 )2 8 )S j? s Zto 2°) )? 10
z 5- )Jt S )2 13 )7 2S F~ )b s 52 )<7 SD
AÁBDÐEÉFGHllJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá kvenmannsnafn.
Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6,
Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 606“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin
verða send til vinningshafa.
1 J0 8 )8 )é> 9 22 7 12 J5
Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er
lárétt eða lóðrótt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna
staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir
stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa
stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka
fram að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða
og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á eða öfugt.
Að þessu sinni var dregið úr lausnum
fyrir krossgátu sem var ranglega
merkt 203 í blaðinu. Rétta lausnin var
„Meyjarsæti" og verðlaunin, sem eru
bók Árna Bergmans, „Blaðið okkar-
þættir úr sögu Þjóðviljans" komu í
hlut Júlíusar Stefánssonar, Álfatúni
2, í Kópavogi.
Verðlaunin fyrir krossgátu 606 eru
bókin Aldaslóð, þættir um evrópska
myndlist eftir Björn Th. Björnsson.
Hverjir sigra?
Úrslit í íslandsmóti kvenna og
yngri flokka í sveitakeppni eru
spiluð í dag, í Sigtúni. Fjórar
sveitir eigast við úr hvorum
flokki. í kvennaflokki spila sveit-
ir Estherar Jakobsdóttur gegn
Dröfn Guðmundsdóttur og Hjör-
dísar Eyþórsdóttur gegn Þor-
gerði Þórarinsdóttur. í yngri
flokki spila sveitir Ara Konráðs-
sonar gegn Hard Rock Café
(Matthías Þorvaldsson) og Ragn-
ars Jónssonar gegn sveit M.H.
Spilaðir verða 32 spila leikir og
hefst spilamennska kl. 10 í dag.
Úrslitin eru svo á dagskrá strax á
eftir, og leika þá sigurvegararnir
innbyrðis.
Dregið hefur verið í riðla fyrir
íslandsmótið í sveitakeppni. 32
sveitir taka þátt í undankeppn-
inni, sem spiluð verður í Gerðu-
bergi í Breiðholti dagana 10.-13.
mars nk.:
A)
Sigfús Örn Árnason Rvk
Hörður Pálsson Akranesi
Pólaris Rvk
Guðjón Einarsson Self.
Ásgr. Sigurbjörnsson Siglufj.
Austfirðir 3.
Sævar Guðjónsson Þorláksh.
Jón Þorvarðarson Rvk.
B)
Delta Rvk
Atlantik Rvk
Kristján Guðjónss. Akureyri
Sigmundur Stefánss. Rvk
Pálmi Kristmannsson Egilsst.
Erla Sigurjónsd. Rnes
Jón Andrésson Rnes
Flugleiðir Rvk
C)
Dröfn Guðmundsd. Rnes
Austfirðir 2.
Bragi Hauksson Rvk
Sigurður Steingr. Rvk
Fataland Rvk
Ævar Jónass. Tálknafj.
Gunnar Berg Akureyri
Sigfús Þórðar. Self.
D)
Samvinnuf. Landsýn Rvk
Alfreð Viktorsson Akr.
Jón St. Gunnl. Rvk
Verðbréfam. Iðnaðarb. Rvk
Sverrir Kristinss. Rvk
Valtýr Jónasson Siglufj.
Halldór Tryggvason Þingeyri
Sig. Ámundason Rvk
pör sem eru skráð láti vita til BSÍ
ef um einhver forföll verða.
Landsliðsnefnd BSÍ hefur val-
ið eftirtalin sex pör til undirbún-
ings og æfinga fyrir verkefni
landsliðs okkar í Opnum flokki á
þessu ári. Pörin eru: Jón Baldurs-
son-Valur Sigurðsson, Sigurður
Sverrisson-Þorlákur Jónsson,
Helgi Jóhannsson-Björn Ey-
steinsson, Aðalsteinn Jörg-
ensen-Ragnar Magnússon, Sæ-
var Þorbjörnsson-Karl Sigur-
hjartarson og Stefán Páls-
ÓLAFUR
LÁRUSSON
son-Rúnar Magnússon. Umsjón
með æfingum og endanlegu vali á
þremur pörum hefur Hjalti
Elíasson.
Fullbókað er í Opna Stórmótið
sem Bridgefélag Menntaskólans
á Laugarvatni gengst fyrir laugar-
daginn 5. mars. Spilamennska
hefst kl. 11 árdegis. 34 pör eru
skráð til leiks. Áríðandi er að þau
Meistarastigaskrá BSÍ hefur
verið dreift til allra félaga innan
BSÍ. Skráin var send formönnum
félaganna, ásamt meistarastiga-
nálum fyrir þá spilara sem náð
hafa nýjum áfanga í stigum.
Frestur til að sækja um rétt til
þátttöku í forvali fyrir landslið
okkar í yngri flokki rann út í síð-
ustu viku. Milli 7-8 pör sóttu um.
Jón Páll Sigurjónsson mun ann-
ast úrvinnslu og áframhald þess-
ara mála. Liðið mun fara til Búlg-
aríu í sumar, til þátttöku í Evr-
ópumóti yngri spilara.
Minnt er á skráninguna í Opna
Stórmótið á Akureyri helgina
19.-20. mars. 50 pör munu keppa
þar, barómeter m/2 spilum milli
para. Öllum frjáls þátttaka. M.a.
skráð hjá BSÍ. Einnig er minnt á
Opna Stórmótið sem Húsvíking-
ar munu standa fyrir helgina 9.-
10. apríl, með sveitakeppnisfyrir-
komulagi. Og í Kópavoginum
hyggjast menn á meiriháttar mót
í maf, einnig með sveitakeppnis-
fyrirkomulagi í anda heimsmeist-
arafyrirkomulagsins. Nýmæli þar
á ferð og ekki ólíklegt að Bridge-
sambandið fylgist vel með þeirri
framkvæmd, með það í huga að
breyta fyrirkomulagi á næsta
Flugleiðamóti til samræmis Kóp-
avogsmótinu, ef vel til tekst.
FJOLMIÐLAPISTILL
Skopmyndir og skíðastökk
Morgunblaðið sló flest met á
föstudaginn í síðustu viku þegar
það birti leiðréttingu á fyrirsögn.
Þessi leiðrétting hlýtur að komast
í Öldina okkar, svo makalaus var
hún og fyndin. Hún var eiginlega
jafn makalaus og frásögn í sama
blaði af „óhönduglegri“ meðferð
reykvískra lögreglumanna á
austfirskum pilti sem unnið hafði
það eitt til saka að verða fóta-
skortur í hálkunni. í þeirri frétt
var blaðið greinilega búið að
ákvarða sekt mannsins og í sam-
ræmi við það var fréttin byggð á
einhliða frásögn lögreglunnar.
Og það sem meira er: misþyrm-
ingamar á piltinum vom enn af-
leiðing „óhönduglegrar“ með-
ferðar í frétt sama blaðs á laugar-
dag.
Það væri til að æra óstöðugan
að velta mér upp úr vafasömum
klausum í Mogganum. Þetta
stönduga blað sem vill vera
heimsborgarinn meðal íslenskra
blaða verður nefnilega enn heim-
óttarlegra en hin blöðin þegar því
finnst einhverjum heilögum
véum vera ógnað, í umræddum
tilvikum afstöðu blaðsins til for-
setaembættisins annars vegar og
hins vegar háborg hinna borgara-
legu dyggða: óskeikulleiki lög-
reglunnar.
Ég ætlaði reyndar að hrósa
Mogganum í þetta sinn. Hann
heldur nefnilega einn blaða uppi
heilli starfsstétt sem tilheyrir
blaðamennsku: skopmynda-
teiknurum. Þeir eru meira að
segja tveir sem teikna fyrir blað-
ið, Sigmund frá Vestmannaeyj-
um og Gísli J. Ástþórsson sem
einnig er ættaður frá Eyjum.
Sá fyrrnefndi finnst mér heldur
mistækur enda hlýtur að vera erf-
itt að teikna mynd sex daga vik-
unnar allan ársins hring og vera
alltaf jafn fyndinn. Slíkt geta ekki
nema frægustu atvinnumenn í út-
löndum sem auk þess eru flestir
með her manns í vinnu. Sigmund
mætti þó hafa einhvem við hönd-
ina sem læsi yfir stafsetninguna
hjá honum, hún er æði skrautleg
stundum.
Það getur hins vegar varla
heitið að Gísla verði misdægurt
(jú, Sigga Vigga gat orðið dálítið
þunn meðan hún var daglegur
gestur á síðum blaðsins). Hann
teiknar líka bara þegar hann er í
stuði og hefur eitthvað að segja.
Og þá standa fáir honum á sporði
í meinhæðninni.
Ástæðan fyrir því að ég fór að
fjalla um skopteiknarana var ein
af myndum Gísla í vikunni. Hann
teiknaði sofandi fjölskyldu yfir
gaddfreðnu sjónvarpi og bál-
vondan heimilisföður í símanum
spyrjandi hvenær þessum
Calgary-hremmingum færi að
linna.
Satt að segja skildi ég Gísla og
heimilisföðurinn mætavel. Nú
má vel vera að áhugamenn um
skíðaíþróttir séu mýmargir hér á
landi og að aðdáandi boltaíþrótta
í sjónvarpi eins og undirritaður
ætti bara að þegja. En ég held þó
að þegar heimsmeistaramót hafa
verið haldin í knattspyrnu eða
handbolta með tilheyrandi
beinum útsendingum hafi verið
eitthvert annað efni í sjónvarp-
inu. Nú er bókstaflega ekkert
annað, nema hvað Hallur Halls-
son fær öðru hverju að skjóta að
okkur skákfréttum.
Og það sem verra er: sjónvarp-
ið heftir í þessu Calgary-efni al-
gerlega selt norska sjónvarpinu
sjálfdæmi. Bjarni Felixson og fé-
lagar virðast engu ráða um það
frá hvaða keppnisgreinum er sýnt
né heldur vita hvað er næst á dag-
skrá. Á miðvikudaginn horfði ég
á skíðastökk og stórsvig kvenna.
Svo kom listdans á skautum, að
því er virtist Bjarna í opna
skjöldu. Og varla hafði parið stig-
ið nema örfá spor þegar þeim var
skipt út af fyrir ísknattleik. Og
allan tímann átti Bjarni von á að
fá meira að sjá til kvennanna í
stórsviginu, eða stökkvaranna á
pallinum, eða...
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 28. febrúar 1988