Þjóðviljinn - 06.03.1988, Síða 3
ITALIA —
FLÓRENS í HREINSUN
Yfirvöld í Flórens hyggjast
leggja bann við umferð bif-
reiða inní miðborgina og
stuðla með því að bættri
heilsu íbúanna og varðveislu
menningarverðmæta frá
Vinatengsl
við ttalíu
Þjóðviljanum hefur boristeftir-
farandi bréf frá 19 ára ítalskri
stúlku sem er nemi í læknis-
fræði og vill eignast pennavin
og deila gistivináttu með ís-
lensku áhugafólki um Ítalíu:
„Ég er 19 ára gömul stúlka sem
stunda læknisfræðinám í Ge-
nova. Ég tala og skrifa vel
frönsku og svoiítið ensku og ég
hefði áhuga á bréfaskriftum við
íslenskan strák eða stelpu. Þá hef
ég líka áhuga á að deila gisti-
vináttu með íslenskri stúlku (ég
hef gert það sama áður með
stúlkum frá öðrum þjóðum).
Ég hef lesið heilmikið um land
ykkar og það hefur vakið áhuga
minn.
Það er auðvelt að komast í
kynni við nágrannaiönd Ítalíu, en
það að komast í samband við ís-
lenska stúlku er mér alvörumál.
Því væri mér akkur í því að fá
heimilisfang ungra stúlkna sem
væru tilbúnar að dvelja hjá mér
um tíma og veita mér húsaskjól á
íslandi í staðinn. Ég bý í Savona,
sem er borg á Ítalíu norðvestan-
verðri við Ligúríu-ströndina. Ég
hef áhuga á listum og náttúru-
skoðun og stunda bæði sund,
skíðaíþróttir og tennis. Ég ferð-
ast gjarnan um Ítalíu og skoða
fagrar listir og fagra náttúru sem
land mitt er auðugt af. Ég hef
bæði áhuga á bréfaskriftum og að
deila gistivináttu, og helst af öllu
kysi ég að komast í kynni við
læknisfræðinema. Nafn mitt er:
Francesca Zucchi
Via Moizo 6/7
17100 Savona
ítalia
Tel. 19/805600
endurreisnartímanum. Nái
áætlun þeirra fram að ganga
munu strætisvagnarog
einkabílar íbúa miðbæjarins
verða einu vélknúnu farar-
tækin sem rúnta um þetta
svæðiíframtíðinni.
Gerð hefur verið tilraun með
slíkt bann t skemmri tíma og gaf
hún mjög góða raun. Götur í
þessum hverfum eru mjög þröng-
ar en hinar öldnu byggingar mjög
háreistar. Því liggur það í augum
uppi að mengun frá bifreiðum
hefur verið óskapleg. Enda er
það staðreynd að óeðlilega marg-
ir íbúa hafa orðið lungnasjúk-
dómum að bráð. Ekki hefur það
orkað letjandi á borgaryfirvöld
að fjölmargar af glæsibyggingum
Flórens frá því á endurreisnar-
tímanum, 14. og 15. öld, liggja
undir skemmdum af völdum um-
ferðareiturs.
Reuter/-ks.
Glæsilegur
T O S H I B A
örbylgjuofn fyrir minni fjölskyldur og einstaklinga.
Fengum sendingu á þessu einstaklega hagstæða verði.
ER 5720 í hvítu:
• 920 wött, 1500 wött nýtanl. orka.
• 99 mín. og 99 sek. tímastilling.
• Einnar sekúndu nákvæmni.
• 17 lítrar að innanmáli.
• Snúningsdiskur.
• Sjálfvirk þíðing við breytilega orku.
• 24 klst. eldhúsklukka.
• íslenskar leiðbeiningar fylgja.
• jslenskar uppskriftir.
Þjónusta:
Þér gefst kostur á kvöldnámskeiði hjá
Dröfn H. Farestveit hússtjórnarkennara,
stórmenntaðri í matre'ðslu í örbylgju-
ofnum, eitt kvöld án e.. Jurgjalds. Þá
færðu íslenska handbók með handhæg-
umleiðbeiningum.
Uppskriftaklúbbur:
Þér stendur til boða að ganga í
Toshiba-uppskriftaklúbbinn.
Trygging fyrir
gæðum:
TOSHIBAerstærstiframleiðandi heims í
örbylgjuofnum og búnaði fyrir þá.
Nýjungarnar koma f rá T oshiba.
Samkvæmt þýskum neytendarannsókn-
um var ódýrasti T oshiba örbylgjuof ninn
einn af þremur bestu á markaðnum.
Fengum takmarkað magn ó þessu einstaka verði
Meira en 10 gerðir örby Igjuofna.
Verð frá kl. 16.990,- stgr.
Einar Farestveit&Co.hf.
BORGARTÚN 28, SÍMAR: (91) 16995 OG 622900 - NÆO BÍLASTÆÐI
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3