Þjóðviljinn - 06.03.1988, Page 16
ÓLYMPÍU-
TENS
Fimmtándu Vetrarólympíu-
leikarnir fóru á dögunum fram í
skjóli kanadísku Klettafjallanna.
Par var margt um manninn.
Keppt var í hinum fjölmörgu
greinum vetraríþrótta og mörg
metin slegin og mörg medalían
vel þegin. Mest er þó um vert að
taka þátt. Að vera með. Og
margir voru með.
Eins og títt er á slíkum mótum
gerðist þarna margt frásagnar-
vert og væri langt mál að telja upp
alla þá atburði er gerðust og gerð-
ust ekki. Er víst að margur kepp-
andinn og áhorfandinn komi það-
an heim með marga söguna í far-
teski sínu og jafnvel heila veislu í
farangrinum, ef svo má segja. En
að þessu sinni látum við nægja að
birta þrjár þeirra sem valdar voru
af einskæru handahófi og segja út
af fyrir sig ekki nema brot af allri
Ólympíusögunni sjálfri.
Kálfar Pirmins
Þessir kálfar eru báðir númer
eitt. í heiminum í dag.
Þrautþjálfaðir andskotar. Sinar
og aftur sinar. Harðir eins og gifs.
Pað er ekki við þá komandi. En
þjálfari þeirra reynir að berja þá í
hita af karate-kunnáttu. Árang-
urslaust. Peir eru sem uppstopp-
aðir. Glerharðir innan í frostbún-
ingnum. Skórnir eru úr harð-
plasti. Eldrauðir eins og búnin-
gurinn. Hann heggur fastar í þá
og brátt fer að örla á hugsunum
innanum spennta vöðvana. En
þær eru þó lítið annað en kvistir í
þessum harðviði. Þó eru þeir nú á
örlitlu iði. Nú þegar nafn þeirra
er kallað. Pirmin Zurbriggen.
Petta er Pirmin Zurbriggen Sviss.
Og þetta eru skíðakálfar hans.
Og aftarlega í þeim er innbarin
hugsun hans. Nú þegar þeir
standa stjarfir af spennu ofarlega
í Mount Allen-fjalli. í kanadísku
Klettafjöllunum. Og já á Ól-
ympíuleikunum. í Calgary ’88.
Frammi fyrir eggbrattri brun-
brautinni. Jökulsorfinni. 5, 4, 3,
2, 1, nú. Þeir eru horfnir.
Fyrsta port. Já. Gott segja
þeir. Petta er gott, þetta lofar
góðu hjá okkur. Og þeir hvetja
hvor annan, á milli þeirra ganga
hrópin í takt við stunurnar. Ah.
Já. Svona. Uh. Og næsta. Já.
Taka þetta svo. Keyra þétt í
næsta port. Og þú tekur svo
beygjuna út úr því. Ah. Já það
var lagið. Hann er harður hérna.
Og svona halda þeir áfram niður
brautina nokkra stund. Þar til í
henni miðri að upp kemur argú-
ment. Sá vinstri sakar hinn um
hræðslu. Hafi teygt sig niður úr
síðasta stökki. Hraði: 110 km á
klst. Aumingi. Þorðir ekki.
Heyrðu. Þegi þú nú bara. Og þeir
eru komnir í hár saman. Bál-
vondir. Bálreiðir. Ég skal sýna
þer. Og hraðinn eykst. 110,014
km á klst. Ég skal fram úr þér
helvítið þitt. Ég skal verða á
undan þér í mark. Markið nálg-
ast. Hægri kálfinn sígur hægt
fram úr þeim vinstri. 110,0145.
Og kemur rétt á undan í markið.
Nóg til að taka fjórðung úr sek-
úndu af tímanum sem birtist á
töflunni. Ljósgeislinn frá klukk-
unni er rofinn á marklínunni. Af
öðrum kálfanum. Og um leið fer
um þá raflegur straumur. Þeir
hitna loksins. Þeir stöðvast heitir
í miðjum áhorfendaskaranum.
Og sjá það skýrum stöfum. Þeir
eru númer eitt. Báðir. Og titra af
sigurvímu. En samt ekkert miðað
við það þegar þeir hittu páfann.
Hreiður Debbíar
Undan iljum hennar vaxa járn.
Sem eru tálguð til og brýnd og
skerpt. í skauta. Og samt er hún
svört. Ljónvelgefin. í læknis-
námi. En fyrst skal skautað. Já,
Debby Thomas, USA. í Calgary.
Og aðalkeppinautur hennar er
engin önnur en sú austur-þýska
Katarína Witt. Fegurðardís.
Þetta er öfugt við það sem á að
vera. Komminn er sætur en kan-
inn ekkert svo. En hún er svört.
Og það munar um það. Á ísnum.
Hviss. Kross. Upp og hviss.
Æfingar og aftur æfingar. Það
særir. Að verajárnuð. Alltsitt líf.
Tamin af endalausum þjálfurum.
Hörðum köllum. Hana! Ekki
langur friður fyrir hreiðurgerð og
þess háttar. Líf á hótelum.
Keppnir, sýningar. Beinar lýsing-
ar. Karlþulir. Just look at that
back, her neck, how gracefully
she goes through those extremely
demanding movements. Úúú. En
ekki haggast hreiðrið.
Og svo eru það Ölympíu-
leikarnir. Nú er að standa sig.
Dómarar frá tíu þjóðlöndum.
Even Denmark, Go Debby Go.
Hún er hinsvegar svoldið
Ólympíu-tens. ísinn blasir
óhreyfður við eins og nýbónað
gólf á göngum heimavistar. Og
búið að brýna. Járnið sker eins og
nögl á húddi nýbónaðrar bifreið-
ar. Hviss. Og nú skal sýna. Við
fáum ljósin upp og músíkk.
Hendur á loft eins og tveir áþekk-
ir svanahálsar í nefjanúningi.
Eða snúningi, hviss, stökk og
meiri stökk. Hendur áhorfenda
hamast hinsvegar líkt og kinn-
hestar í þögulli kvikmynd. Úúú.
Just look at that. Og Katarína
horfir á með svip. Mjallhvít frá
negralausu landi. Fleiri hringir,
stökk og snúngur, meiri snúning-
ur, Debbí hverfur í sínum loka-
snúningi og verður að keilu.
Verður eins og ker í höndum ker-
amíkers sem mótar það að full-
kominni vild. Blautur leir í hönd-
um óðra áhorfenda sem heimta
hæstu einkunn. Sex. Þegar snún-
ingur skautakonunnar endar í
snöggu hvissi um leið og tónlistin.
Hún stendur brosandi grafkyrr.
Allir vöðvar stöðvast. Nema
hreiðrið. Sem eitt heldur áfram,
að snúast. En samt ekkert miðað
við það þegar hún hitti Eddie
Murphy.
*• i (£)
Kjálkar Eddís
Þeir koma niður frá eyrunum
og alla leið fram á höku. Þ.e.a.s.
höku Eddy’s Edwards. Þeir eru
því sveiglaga eins og skíðastökk-
pallur. En þeir lafa lausir og eru
því að því leyti ólíkir öðrum
kjálkum. Losnuðu í gömlu stökki
í Garmisch Partenkirchen. Og
það er einmitt málið. Á þeim hef-
ur hann fleytt sér á sjálfa Ólym-
píuleikana. Án lágmarks. Þegar
fram af 90 metra pallinum kemur
skellir hann þeim aðeins fram og
útávið með einkennilegri góm-
hreyfingu og nær þannig undir þá
loftmótstöðu sem heldur honum
ögn lengur á lofti en ella. Þeir eru
vængir hans. Og á þeim svífur
hann rétt fram fyrir pallsbrún og
lendir heilu og höldnu efst í
brekkunni áður en dómararnir
sjá hann og brunar síðan í mark
við geysifögnuð áhorfenda. Nýtt
breskt met. En þegar hann lítur
upp á stigatöfluna því til staðfest-
ingar eru kjálkarnir signir á sinn
stað, vængirnir lafa, nú líkari
tálknum. Þegar hinsvegar sjón-
varpsvélarnar þyrpast á hann
með spurningum sínum fara þeir
aftur á stjá. Kjálkarnir skrolla
létt í svörunum. En þó ekkert
miðað við það þegar þeir hitta
Díönu prinsessu nokkrum
dögum síðar.
New York, 26. feb. ’88
Hallgrímur
MEIRAPROFSNAMSKEIP
Námskeið til undirbúnings
meiraprófi verða haldin í
Reykjavík og annars staðar á
landinu þar sem næg þátttaka
fæst.
Umsóknir berist bifreiðaéftir-
litinu fyrir 10. mars nk.
Bifreiðaeftirlit ríkisins,
bifreiðastjóranámskeiðin,
Dugguvogi 2-104 Reykjavík - Sími 685866.