Þjóðviljinn - 17.03.1988, Side 17
ÖRFRÉTTTIR
ERLENDAR FRETTIR
Bandaríkin/Nikaragva
Saksóknarinn
Lawrence Walsh var skipaður
sérstaklega til að, fara ofaní
saumana á írans/kontra-
hneykslinu og kanna hvort
bandarískir embættismenn
hefðu athafst eitthvað sem bryti í
bága við lög. í gær gaf hann út
formlega ákæru á hendur þeim
Oliver North og John Poindexter,
fyrrum yfirmönnum „Þjóðarör-
yggisráðs" Bandaríkjanna, og er
þeim gefið að sök að hafa farið á
bak við yfirmenn sína við sölu
vígtóla til írans með því að deila
ágóðanum út til kontraliða í Nik-
aragva.
Valdsherrann
í Panama, Manúel Antóníó Norí-
ega hershöfðingi, virðist hafa níu
líf einsog kötturinn og getur
Bandaríkjastjórn ekki með
nokkru móti komið honum frá
völdum. Noríega þessi er hið
versta fól, situr yfir hlut manna á
heimaslóðum og er auk þess í
vitorði með „eiturlyfjabarónum". í
rauðabýtið í gærmorgum reyndu
nokkrir undirmanna hans að
steypa honum en féllu á eigin
bragði. Skömmu síðar veifaði
Noríega blaöamönnum er biðu
átekta úti fyrir höfuðstöðvum
hans og sendi þeim fingurkossa.
ísraelsdátar
skutu aldraðan mann til bana (
„átökum" við mótmælendur í
gær. Taka varð auga úr þriggja
ára gömlu stúlkubarni eftir að
hermaður skaut gúmmíkúlu í
andlit hennar.
Forseti Ítalíu
Francesco Cossiga, fól í gær for-
manni Kristilega demókrata-
flokksins að klastra saman starf-
hæfri ríkisstjórn. Hinn sextugi
Chiriaco de Mita hefur aldrei ver-
ið forsætisráðherra en hefur
engu að síður gífurleg völd sem
leiðtogi öflugasta
stjórnmálaflokksins.
Móðursýki í Washington
Utanríkisráðherra Hondúras vildi
ekki staðfestafullyrðingar
starfsmanna Hvíta hússins um að
stjórnarher Nikaragva hefði ráðist
innfyrir landamœri landsins
Daníel Ortega, forseti Nikara-
gva, staðfesti í gær að stjórnarher
landsins hefði hafið stórsókn á
hendur kontraliðum sem hafa að-
setur við landamærin að Hondúr-
as. Kvað hann sveitir málaliða
hafa goldið mikið afhroð en þver-
tók fyrir að dátar sínir hefðu sótt
yfir landamærin.
Óskaplegt írafár greip um sig í
Hvíta húsinu í Washington í gær
og stóð blaðafulltrúi Reagans
forseta á því fastar en fótunum að
stjórnarher Nikaragva hefði ráð-
ist innfyrir landamæri Hondúras
og hefði forseti síðarnefnda ríkis-
ins, Jose Azcona, slegið á
þráðinn til Reagans og farið fram
á hernaðaraðstoð.
Mikil spenna ríkti í Hvíta hús-
inu og sagði blaðafulltrúinn að
forsetinn sæti á rökstólum með
öllum helstu ráðgjöfum sínum og
ræddu þeir um refsiaðgerðir gegn
ráðamönnum í Managva.
En eitthvað virðist þetta vera
málum blandið því utanríkisráð-
herra Hondúras, Carlos Lopez
Contreras, vildi ekki staðfesta á
fundi sínum með blaðamönnum í
Tegucigalpa að Bandaríkjamenn
færu með rétt mál þegar þeir full-
yrtu að 1,500 sandinistadátar
hefðu rofið friðhelgi ríkis síns.
Contreras greindi frá því að
nokkrir óvopnaðir Nikaragva-
menn hefðu farið yfir landamær-
in en diplómatar í Hondúras
sögðu það hafa verið bændur á
flótta undan hinum stríðandi
herjum. Áður en utanríkis-
ráðherrann efndi til blaðamann-
afundarins í höfuðborg Hondúr-
as í gær hafði fréttamaður Reut-
ers haft eftir ónefndum herfor-
ingja að hann hefði ekki haft
neinar spurnir af innrás stjórnar-
hers Nikaragva. Það virðist því
ekki vera flugufótur fyrir fullyrð-
ingum bandarískra ráðamanna.
Reuter/-ks.
Dátar ráðamanna í Nikaragva á
vappi steinsnarfrálandamærun-
umaðHondúras.
.'/A*
' Vtf ♦ / J/ «■ ■' ■**
111
Norður-írland
Blóóbað í kirkjugarði
Illvirki myrti þrjá syrgjendur fallinna IRA liða í gœr
Þrír menn létu líflð og 20 slös-
uðust í morðárás félaga
„Varnarsamtaka Ulsters“, hryðj-
uverkasamtaka mótmælenda, á
hóp syrgjenda IRA skæruliðanna
þriggja sem skotnir voru á Gí-
braltar fyrir skemmstu.
Morðinginn mun hafa komist
óséður í námunda við fólkið sem
fylgdist með því er kistur þre-
menninganna voru lagðar til hin-
stu hvílu, varpað fimm eða sex
handsprengjum og skotið
fimmtán skotum úr skammbyssu.
Þegar skotfæri þraut yfirbuguðu
ofsareiðir kaþólikkar ódæðis-
manninn og börðu hann til óbóta.
Þá kom lögreglan loks til skjal-
anna, handtók fólkið og flutti það
rakleiðis á sjúkrahús.
Jarðarför IRA félaganna
þriggja var mjög fjölmenn og
hafði verið friðsamleg og virðu-
leg fram að hinni fúlmannlegu
árás. Lögregluþjónum og her-
mönnum var haldið fjarri athöfn-
inni því yfirvöld óttuðust að í
odda myndi skerast með þeim og
IRA félögum í hópi syrgjenda.
Fyrir vikið gat árásarmaðurinn
óáreittur gefið sér góðan tíma til
þess að hlaða byssu sína í tvígang.
Sem fyrr segir urðu þrír morð-
ingjanum að bráð, karl, kona og
tíu ára gamall drengur sem fékk
kúlu í bakið. Nokkrir hinna
særðu liggja þungt haldnir á
gjörgæsludeildum sjúkrahúsa.
Reuter/-ks.
Bretland
Kynþátta-
misrétti
Prófkjör í Illinois
Öldungadeildarþingmaðurinn Paul Simon kominn á blað hjá demókrötum
Aðeins fulltingi guðanna virðist
nú geta komið í veg fyrir að
varamaður Ronalds Reagans,
George Bush, verði frambjóð-
andi Repúblikanaflokksins í fors-
etakosningunum í haust. Hann
vann yfirburðasigur í prófkjöri
flokks síns í Illinois fylki í fyrra-
dag, var langt á undan helsta
keppinaut sínum, hinum „skap-
stygga“ Robert Dole.
Hinsvegar er allt opið upp á
gátt hjá erkifjendunum, dem-
ókrötum, og segja forystumenn
þeirra að framboðsmál flokks
síns séu nú í meiri óvissu en
nokkru sinni áður. Svo geti farið
að mánuðir líði áður en ljóst
verður hverjum þeir tefla fram
gegn Bush.
Fram að þessu hafa þeir Jesse
Jackson, Albert Gore og Mike
Dukakis deilt fylkjum og kjör-
dæmum næsta bróðurlega með
sér þótt sá síðastnefndi sé
. óneitanlega fremstur meðal jafn-
ingja. Einnig þótti Richard Gep-
hardt efnilegur í upphafi kapp-
hlaupsins, en hann sprakk sem
kunnugt er á limminu „þriðju-
daginn mikla".
Enginn þessarra heiðurs-
Paul Simon kampakátur í lllinois með eldheitum aðdáanda.
manna sótti gull í greipar Illinois- sá og sigraði. Það kemur hálft í
búa í fyrradag. Paul Simon kom hvoru á óvart því þótt hann sé
öldungadeildarþingmaður fylkis-
ins hefur útkoma hans í fyrri for-
kosningum verið afleit. Svo afleit
að um skeið íhugaði hann í fullri
alvöru að semja við Dukakis um
að draga sig í hlé gegn því að fylk-
isstjórinn greiddi framboðs-
skuldir sínar.
Simon var ekki eini heimamað-
urinn af frambjóðendum dem-
ókrata í Illinois. Jesse Jackson
býr í Chicago og honum hafði
verið spáð sigri áður en fylkisbú-
ar gengu að kjörborðinu. Niður-
stöðurnar sanna enn einu sinni
hve varhugavert er að treysta
kosningaspám og skoðanakönn-
unum.
„Ég fæ ekki séð að nokkur
frambjóðenda geti gert sér vonir
um að hreppa hreinan meirihluta
atkvæða í fyrstu lotu á kjörmann-
afundinum í sumar,“ sagði Simon
nokkuð drýgindalega í fyrradag
þegar úrslit lágu fyrir á þriðju-
dagskvöldið. Það er alkunna ve-
stra að hann gerir sér vonir um að
demókratar sameinist um að etja
sér fram gegn Bush ef hver hönd-
in verður upp á móti annarri á
kjörmannafundinum.
Reuter/-ks.
Varaforsetinn er ósigrandi
a vinnu-
maritaði
Hagur blakkra og asískra
verkamanna á Bretlandi hef-
ur ekki vænkast undanfarin tutt-
ugu ár þótt löggjaflnn hafí sett
ýms lög á þessu tímaskeiði sem
ætlað var að stemma stigu við
kynþáttamisrétti á vinnumark-
aði.
Þetta eru niðurstöður könnu-
nar Runnymede stofnunarinnar.
Forráðamenn hennar skora á
ríkisstjórnina að beita sér fyrir
„öfugri mismunun“ við ráðningu
ófaglærðra manna, það er að
hörundsdökkir gangi fyrir í störf.
Atvinnulausir blökkumenn
voru helmingi fleiri á Bretlands-
eyjum en atvinnulausir bleik-
skinnar árið 1985. Það kom því
engum á óvart að kannanir sem
gerðar voru á því ári skyldu leiða í
ljós að um 37 af hundraði vinnu-
veitenda virða að vettugi starfs-
umsóknir blökkumanna og fólks
af asísku bergi brotið.
Á sjöttu og sjöundu áratugun-
um voru þeldökkir verkamenn úr
hinum ýmsu samveldislöndum
lokkaðir til starfa á Bretlandi
með allskyns gylliboðum. Eink-
um voru þeir eftirsótt vinnuafl í
iðnhéruðum og borgum sem nú
eru aðeins svipur hjá sjón, til að
mynda voru þeir aufúsugestir í
vefnaðarverksmiðjum Yorkshire
sem spruttu upp einsog gorkúlur
fyrir þrem tugum ára en mega nú
muna sinn fífil fegurri.
Reuter/-ks.
Fimmtudagur 17. mars 1988 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 17