Þjóðviljinn - 20.03.1988, Blaðsíða 17
Á listahátíð 1986 vöktu
nokkraathygli rokktónleikár
þeirerhaldnirvoru íLaugar-
dalshöllinni 16. og 17. júní og
voru þarsaman komnarfjórar
ofboðslega frægar hljóm-
sveitirsem komu hingað til
lands alla leið f rá útlandinu til
að leika fyrir okkur íslendinga.
Nú í sumar á að endurtaka
þennan atburð í samvinnu við
listahátíðarnefnd og alveg eins og
í hitteðfyrra á að fá hingað
útlenskar hljómsveitir til að spila.
Samkvæmt öruggum heimildum
Eylandspóstsins er alveg pottþétt
að hljómsveitirnar The Christi-
ans og Blow Monkeys mæti á
svæðið en einnig er verið að
reyna að fá þungarokk hljóm-
sveitina Whitesnake og fyrrum
Police meðlim Sting, til að leika
fyrir landann. Líklegt er að tón-
leikarnir verði haldnir á sama
stað og 1986, semsagt í Höllinni
(ekki reiðhöllinni) 16. og 17. júní
næstkomandi og eiga þessir
hljómleikar vonandi eftir að
ganga jafn vel fyrir sig og fyrir-
mynd þeirra.
Bítlarnir ætla ekki að koma á Listahátíð.
í sömu sporum
Game Theory - Lolita Nation
Um þessar mundir er mjög
áberandi tónlistarlegt afturhvarf
til hippatímabilsins og hafa
hljómsveitir eins og R.E.M., Pri-
mitives, Primal Scream, Echo
and the Bunnymen o.fl..o.fl. róið
á þau mið. Game Theory er einn-
ig ein af þeim sveitum sem leita
mikið aftur til 7. áratugarins, hún
er bandarísk að uppruna og
leikur melódískt og kröftugt
hipparokk þar sem gítarinn, sem
svo oft áður, leikur aðalhlutverk-
ið, enda eru hvorki meira né
minna en þrír gítarleikarar í
bandinu. Einn helsti galli sveitar-
innar er að þróun tónlistar þeirra
hefur verið með minnsta móti,
melódían og krafturinn skín í
gegn í öllum verkum Game The-
ory og er nýjasta plata þeirra þar
engin undantekning. Það er
kannski heldur seint í rassinn
gripið en ég ætla nú samt að reyna
að fara nokkrum velvöldum orð-
um um grip þennan er nefnist
„Lolita Nation“.
Platan byrjar á kröftugum gít-
arrokkara, „Not Because You
Can“, og má þar strax heyra hvað
koma skal síðar á skífunni. Söng-
ur Scott Miller er með afbrigðum
melódískur og heldur hann sig
mestmegnis á efstu tónum radd-
banda sinna, enda er þéttur gít-
arleikurinn vel til þess fallinn. Ef
ég á að nefna einhverja galla á
plötunni mundi það líklega vera
„sándið" en að mínu mati eru
plötur Game Theory einum of
„hippó" áheyrnar og verður að
viðurkennast að tónlist hljóm-
sveitarinnar er ekki með frum-
legra móti. Einnig fer það svolítið
í taugarnar á mér hvað sveitin er
ofboðslega amerísk áheyrnar en
sá galli hefur því miður hrjáð allt
of margar þesslenskar sveitir.
Jæja, þá eru líklega gallarnir
upptaldir og best að snúa sér að
kostunum sem eru sem betur fer í
meirihluta. Það sem í upphafi dró
mig að þessari hljómsveit var
krafturinn, og sterkar og grípandi
laglínur, sem því miður vill oft
vanta hjá bandarískum böndum.
(Á þessu stigi málsins gæti fólk
haldið að ég væri eitthvað á móti
amerískum tónlistarmönnum, en
,IlbuTA XATIOX
é'g get þá frætt ykkur á því að það
er hinn mesti misskilningur.)
Einnig finnst mér söngur
Millers athyglisverður þó að það
vilji stundum brenna við að hann
ofleiki hlutverk sitt. Ég held að
mér sé óhætt að ráðleggja þeim,
sem áhuga hafa á bandarískri
rokktónlist að kynna sér Game
Theory (ef þeir þekkja hana ekki
fyrir) og gildir þá einu hvort um
er að ræða fyrstu eða seinustu
plötu sveitarinnar, því eins og ég
sagði hefur þróunin verið í lág-
marki.
Maðurinn þinn
Leonard Cohen - l'm your man
Það vill því miður allt of oft
loða við tónlistarfólk sem hefur
verið lengi í bransanum og
jafnvel verið frumkvöðlar síns
tíma, að það þynnist út og
breytist í staðnaða iðnaðarmask-
ínu sem reynir að hafa eins mikið
og það getur upp úr fornri frægð.
Þessar peningavélar eru allt of
margar og þegar maður athugar
betur hvaða iðnjöfrar standa fyrir
þessum rekstri, bregður manni
heldur betur í brún því á þeim
lista má finna nöfn eins og Bob
Dylan, Paul McCartney, David
Bowie og um þessar mundir er
fyrrum nýbylgju-pönksveitin The
Óash að bætast í hópinn með
endurútgáfum, safnplötum og
öllu tilheyrandi. En... Leonard
Cohen er einn þeirra sem tekist
hefur nokkuð vel að halda sínu
striki þó að það virðist tilheyra að
þynna soldið út með poppi. Lfk-
lega hefur hann haldið að hann
væri að gera tónlist sína obbolítið
aðgengilegri og vera má að hon-
um hafi tekist ætlunarverk sitt.
Nú fyrir stuttu sendi Cohen frá
sér nýja skífu sem nefnist því
frumlega nafni „I’m Your Man“
og er hér um nokkuð áheyrilegan
grip að ræða þó að heyra megi
merki þess að árin hafa færst yfir
kappann, en ég býst við að fáir
yngist með árunum. Þrátt fyrir að
það sé léttara yfir þessari plötu en
fyrri verkum Cohens og hún
poppaðri í alla staði, eru laga-
smíðarnar margar hverjar mjög
sterkar og gamli Cohen skín alls-
staðar í gegn, enda röddin óg-
leymanlega dáleiðandi. Einn
helsti galli skífunnar er textagerð.
kappans, en því miður hefur hon-
um farið stórlega aftur í þeim efn-
um. Platan byrjar á soldið
„sjokkerandi“ poppuðu lagi,
„First We Take Manhattan", sem
við fyrstu hlustun gæti verið frá-
hrindandi fyrir gamla aðdáendur
og ef ég á að vera hreinskilinn , þá
fannst mér í fyrstu ekki sérlega
mikið í plötuna spunnið, þó að ég
geti með engu móti talist með
fyrrnefndum Cohen aðdáendum.
Én platan vinnur ótrúlega á með
tímanum og þó að hún komist
ekki í hálfkvisti við fyrri verk
meistarans er útkoman ljúf, mel-
ódísk og afar áheyrileg hljóm-
plata sem ég held að eigi eftir að
verða ofarlega í huga Cohen að-
dáenda þegar þeir líta yfir tónlist-
arárið 1988.
Sunnudagur 20.
Meistari Prince ætlar að senda frá
sér nýja breiðskífu I næsta mánuði og
er staðráðinn í að kalla hana „Love-
sexy“. Sögur fljúga um að plata
þessi sé að stofni til sú sama og
kappinn hafði í hyggju að gefa út í lok
síðasta árs undir nafninu „The Black
Album“ en hætti svo við vegna þess
að gripurinn ku hafa farið eitthvað
fyrir brjóstið á æðri máttarvöldum.
The Jesus And Mary Chain eru
um þessar mundir að leggja síðustu
hönd á breiðskífu sem er væntanleg
á markað innan skamms. Plata þessi
á að innihalda lög sem af einhverjum
orsökum hafa orðið útundan á fyrri
skífum sveitarinnar, en einnig má
finna lög sem hafa áður prýtt bakhlið-
ar á smáskifum sem T.J.A.M.C. hafa
sent frá sér á fimm ára starfsferli sín-
um. Á mánudaginn kemur svo út ný
smáskífa og ku hún nefnast „Side-
walking" en lag þetta er fyrsta nýja
efnið sem sveitin sendir frá sér síðan
breiðskífan „Darklands" var útgefin í
september á síðasta ári.
Prefab Sprout eru nýbúnir að
senda frá sér sína þriðju breiðskífu
„From Langley Park To Memphis" og
inniheldur hún nýjasta smáskífulag
þeirra, „Cars and Girls", ásamt níu
öðrum „smellum".
Hljómsveitin The Primitives ætlar
að senda frá sér fyrstu breiðskífu sína
þann 28. mars næstkomandi. Hljóm-
sveitin sendi nýlega frá sér sína
fjórðu smáskífu „Crash“ og situr
þetta lag nú í 11. sæti smáskífulista
breska músikblaðsins NME.
Þann 11. apríl næstkomandi ætla
Sykurmolarnir að senda frá sér
þriðju smáskifu sína og á hún að heita
„Deus“. Breiðskífa á svo að fylgja í
kjölfarið og á hún, öllu mað óvörum,
að nefnast „Life’s Too Good" og
koma út 25. sama mánaðar. Þessar
dagsetningar eru miðaðar við útgáfur
á Bretlandsmarkaði en vafalaust
munu íslendingar fá að berja gripina
eyrum og augum á svipuðum tíma.
Morrissey sendi á mánudaginn frá
sér fyrstu breiðskífu sína síðan slitn-
aði uppúr samstarfi hans við félaga
hans í The Smiths, og heitir hún víst
„Viva Hate“.
Timbuk 3 hyggst gefa út aðra
breiðskífu sína um mánaðamótin og
á hún að nefnast „Eden Alley“. Já já.
mars 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17