Þjóðviljinn - 23.04.1988, Blaðsíða 6
alþýðubandalagið
Alþýðubandalagið Reykjavík
Aðalfundur
Aðalfundur ABR verður haldinn 26.
apríl n.k. kl. 20.30 að Hverfisgötu
105.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar fyrir starfsárið
1987-1988.
Guðni Jóhannesson formaður.
2. Reikningar ársins og tillaga um fé-
lagsgjald 1988.
Loftur Jónsson gjaldkeri.
Umræða og afgreiðsla.
Guðni
3 ________
4. Tillaga kjörnefndar um næstu stjórn ABR og endurskoðendur.
Frummælandi Dagný Haraldsdóttir.
5. Kosning stjórnar og endurskoðanda.
6. Tillögur um lagabreytingar og afgreiðsla.
7. Efling félagsins og starfið framundan.
8. Önnur mál. ......
Frá 19. apríl liggja frammi á skrifstofu félagsins tillögur kjorstjórnar og
endurskoðaðir reikningar, lagabreytingar og aðrar tillögur.
Félagar munið að gera upp félagsgjöldin. Nánari upplýsingar á skrifstof-
unni s: 17500.
Fjölmennum á aðalfundinn. stjórn aöh
ABK
Síðasta spilakvöldið
Síðasta spilakvöldið að sinni verður haldið í Þinghóli, mánudaginn 25. apríl
og hefst spilamennskan kl. 20.30.
Veitt verða sérstök kvöldverðlaun og einnig heildarverðlaun fyrir þriggja
kvölda keppnina, sem eru helgarferð til Akureyrar, gisting í tvær nætur á
KEA og morgunverður.
Allir velkomnir.
Stjórn ABK
Alþýðubandalagið á Suðurlandi
Vorfagnaður
I tengslum við landbúnaðarráðstefnu AB á Selfossi efnir AB á Suðurlandi til
vorfagnaðar á Hótel Selfossi laugardaginn 23. apríl n.k. Húsið verður
opnað kl. 19.00. Borðhald hefst kl. 20.00. Undir borðum verður boðið upp á
ýmislegt spaug og spé. Veislustjóri hinn eini og sanni Sigurður Hilmar
Friðþjófsson.
Um kl. 22.00 njóta fagnaðargestir um 2ja stunda samfelldrar dagskrár þar
sem rifjuð er upp gamla, góða sveitaballastemmningin á Suðurlandi,
„Manstu vinur?" Að lokum dansleikur til kl. 03.00. Miðaverð kr. 2.300.
Þátttaka tilkynnist í síðasta lagi miðvikudaginn 21. apríl til Önnu Kristínar
(sími 2189), Guðvarðs (s. 1201) eða Rögnu (s. 2207).
- Kjördæmisráð AB Suðurlandi.
Alþýðubandalagið á Akranesi
Bæjarmálaráð
Alþýðubandalagið á Akranesi heldur fund í Rein, mánudaginn 25. apríl n.k.
kl. 20.30. Dagskrá: Bæjarstjórnin. Stjórnin
Magnús
Bergljót
Jóhann
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Stefnuráðsfundur
Bæjarmálaráð ABH boðar til stefnuráðsfundar í Gaflinum við Reykjanes-
braut, laugardaginn 23. apríl kl. 10.00. Allir nefndarmenn og varamenn
þeirra hafa fengið póstsent fundarboð. Aðalumræðuefni fundarins: Starfið
undanfarin ár og næstu verkefni, hvernig til hefur tekist.
Framsögur: Magnús Jón Árnason, Bergljót Kristjánsdóttir og Jóhann Guð-
jónsson. Umræður og starfshópar.
Að fundinum loknum verður farið í kynnisferð um bæinn og skoðaðar helstu
framkvæmdir á vegum bæjarfélagsins í sumar.
Áríðandi að allir bæjarmálaráðsfulltrúar mæti á fundinn. Aðrir flokksfélagar
og stuðningsmenn meira en velkomnir.
Léttur hádegisverður og kaffi á staðnum.
Hitfumst öll á laugardaginn.
Bæjarmálaráð ABH
ABK
Morgunkaffi ABK
Heimir Pálsson bæjarfulltrúi og Elsa Þorkelsdóttir fulltrúi í félagsmálaráði
verða með heitt á könnunni í Þinghóli, Hamraborg 11 laugardaginn 23. apríl
frá kl. 10-12. Allir vekomnir.
Stjórn ABK
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Aðalfundur 1. deildar
ABR verður haldinn á mánudaginn 25. apríl kl. 20.30 á Túngötu 43. Dag-
skrá: Kosning í stjórn og fulltrúaráð. Almennar stjórnmálaumræður. Mætið
vel og stundvíslega.
Stjórn 1. deildar
Alþýðubandalagið Akureyri
Bæjarmálaráðsfundur
Fundur í bæjarmálaráði mánudaginn 25. apríl kl. 20.30 í Lárusarhúsi,
Eiðsvallagötu 18.
Dagskrá: 1) Fundargerðir bæjarstjórnarfundar 26.apríl. 2) Málefni fyrir-
tækja sem bærinn á hluta í. Framsögumenn fulltrúar í stjórnum ÚA og
Slippstöðvarinnar. 3) Önnur mál.
Allir velkomnir.
Stjórn bæjarmálaráðs
VIÐHORF
Gleðileg sinnaskipti
Raunhœfur möguleiki á að hækka laun láglaunafólksins hjá
borginni
Kristín Á. Ólafsdóttir skrifar
Verkfall verslunarmanna er
skollið á. Enginn fer að gamni
sínu í verkfall og örugglega er
mörg láglaunamanneskjan
áhyggjufull yfir hverri krónu sem
tapast úr léttri pyngju. En mælir-
inn er fullur hjá því fólki, sem fær
30-40 þúsund krónur í sinn hlut
fyrir mánaðarvinnu. Krafan um
42 þúsund króna lágmarkslaun er
svo hógvær, að furðu sætir að at-
vinnurekendur skuli kalla yfir
þjóðina verkfall fremur en að
semja um svo rakið réttlætismál.
Verslunarmenn eiga samstöðu
þjóðarinnar vísa, sem og virðingu
fyrir að rísa gegn þeirri mann-
fjandsamlegu láglaunastefnu sem
viðgengist hefur í landinu allt of
lengi. Þeim eru sendar góðar ósk-
ir um stutt og árangursríkt verk-
fall.
Djörfung
verslunarmanna
Það kann svo að fara, að starfs-
menn Reykjavíkurborgar njóti
góðs af djörfung verslunar-
manna. Þau gleðilegu umskipti
hafa orðið í röðum Sjálfstæðis-
manna, að þar hefur a.m.k. einn
borgarfulltrúi tekið undir með
minnihlutanum um að lægstu
laun borgarinnar séu ekki
mönnum bjóðandi. Magnús L.
Sveinsson, forseti borgarstjórnar
og formaður Verslunarmannafé-
lags Reykjavíkur, hefur lýst því
yfir, að ekki sé sæmandi að greiða
fyrir fulla dagvinnu laun undir
skattleysismörkum. Það á auðvit-
að við jafnt um verslunarmenn,
borgarstarfsmenn sem og annað
launafólk.
Þegar þessi afstaða forseta
borgarstjórnar varð ljós, lögðu
borgarráðsmenn minnihlutans
fram tillögu um að launaflokkar
borgarinnar, með byrjunarlaun
undir skattleysismörkum yrðu
felldir úr gildi frá og með 1. maí
n.k. Þannig yrði 236. launaflokk-
ur borgarstarfsmanna með
42.414 kr. í byrjunarlaun, sá
lægsti sem borgin greiddi eftir, og
sambærilegir taxtar annarra við-
semjenda borgarinnar.
í dag er 233. flokkur lægstur á
launatöflu borgarstarfsmanna.
Þar eru byrjunarlaun 30.374
krónur, en í hæsta þrepi, eftir 18
ára starfsaldur eru krónurnar
orðnar 37.608 kr. Þau eru ótrú-
lega mörg, starfsheitin, sem
flokkast undir 236. launaflokk.
Þannig færðist upp við samþykkt
tillögunnar allt almennt skrif-
stofufólk, sem ekki ber stjóratit-
il, allir sjúkraliðar, brunaverðir,
bókaverðir, strætisvagnastjórar,
og fóstrur án sérnáms og deildar-
forstöðu svo örfá dæmi séu tekin.
Sóknarstarfsmenn tilheyra að
sjálfsögðu þessum láglaunahóp-
um sem færðust upp í rúm 42 þús-
und króna byrjunarlaun.
Afnám Iægstu launaflokkanna
snýst ekki eingöngu um að
minnka þá vanvirðu sem lægst
launaða fólkinu er sýnd. At-
vinnurekandanum Reykjavíkur-
borg hefur reynst erfitt að fá fólk
til starfa, með þeim afleiðingum
að margvíslegri þjónustu er illa
eða ekki sinnt. Þetta ástand fer
stöðugt versnandi, en var þó orð-
ið nógu slæmt sumarið 1986, þeg-
ar allir borgarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins felldu tillögu Alþýðu-
bandalags, Kvennalista og Al-
þýðuflokks um að hækka lág-
markslaun uppí 30 þúsund krón-
ur. Aðrar tilraunir stjórnarand-
stöðunnar til þess að hækka laun
borgarstarfsmanna hafa verið of-
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
„í þessu tilfelli þarf formaður VR
ekki að standa í ströggli við skiln-
ingssljóa atvinnurekendur til
þess að aflétta verstu skömminni
gagnvart láglaunafólki. Nú er
valdið hans.
urliði bornar af sameinuðum
meirihluta.
Fylgst með
meirihluta
En nú hafa ánægjuleg sinna-
skipti orðið. Magnús L. Sveins-
son hefur lýst yfir heilshugar
stuðningi sínum við tillöguna um
að lyfta byrjunarlaunum borgar-
innar yfir skattleysismörkin. Og í
þessu tilfelli þarf formaður V. R.
ekki að standa í ströggli við skiln-
ingssljóa atvinnurekendur til
þess að aflétta verstu skömminni
gagnvart láglaunafólki. Nú er
valdið hans. Honum nægir að
sitja stuttan borgarráðsfund
næstkomandi þriðjudag og beita
atkvæði sínu með fulltrúum
stjórnarandstöðunnar. Þannig er
fenginn meirihluti borgarráðs
fyrir langþráðu skrefi í átt til
mannsæmandi launastefnu.
Því verður ekki trúað, að borg-
arstjórn ógildi samþykkt borgar-
ráðs á fundi sínum 5. maí nk.,
þótt hún hafi vald til þess. Svo
gróflega geta fulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins ekki gengið í berhögg
við þann samherja, sem þeir
völdu til forsætis í æðstu stofnun
borgarinnar. Og þeir mega vita,
að reykvískt launafólk mun fylgj-
ast vel með atkvæði Hilmars
Guðlaugssonar, framkvæmda-
stjóra verkalýðsmálaráðs Sjálf-
stæðisflokksins. Augu reykvískra
kvenna munu hvíla á borgarfull-
trúunum Katrínu Fjeldsted og
Jónu Gróu þegar þær nota at-
kvæði sín 5. maí. Það þarf ekki að
upplýsa þær frekar en aðra um þá
staðreynd, að í hópi láglauna-
fólks eru konur fjölmennar.
Líkurnar á því, að ábyrgir
stjórnendur fáist til þess að lyfta
launakjallara borgarinnar upp úr
djúpunum, hafa aldrei verið jafn
miklar og nú. Reykvískt launa-
fólk! Sýnum verslunarmönnum
samstöðu og höfum vakandi auga
með borgarráði á þriðjudaginn
og borgarstjórn 5. maí. Gleðilegt
sumar!
Kristín er einn borgarfulltrúa
Alþýðubandalagsins íReykja-
vík.
Áskorun til eigenda og
ábyrgðarmanna fasteigna
um greiðslu fasteignagj-
alds í Reykjavík
Fasteignagjöld í Reykjavík 1988 eru nú öll gjald-
fallin. Gjaldendur sem ekki hafa gert skil innan 30
daga frá birtingu áskorunar þessarar, mega bú-
ast viö aö óskaö veröi nauðungaruppboðs á
eignum þeirra í samræmi viö I. nr. 49/1951 um
sölu lögveða án undangengins lögtaks.
Reykjavík 20. apríl 1988
Gjaldheimtustjórinn í Reykjavík
SVÆÐISSTJÓRN
MÁLEFNA FATLAÐRA
REYKJAVÍK
Áætluð fjármagnsþörf
framkvæmdasjóðs fatlaðra árið 1989
Vegna fjárlagagerðar
fyrir árið 1989
Svæðisstjórn Reykjavíkur óskar eftir upplýsing-
um um áætlaöa sundurliöaða fjárþörf til
stofnkostnaðar framkvæmda í þágu fatlaðra í
Reykjavík árið 1989.
Aðilar sem standa fyrir framkvæmdum í Reykja-
vík eru beðnir um að senda umsóknir um fé úr
framkvæmdasjóði fatlaðra árið 1989 til Svæð-
isstjórnar fyrir 13. maí nk.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra
Hátúni 10, 105 Reykjavík.