Þjóðviljinn - 15.05.1988, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 15.05.1988, Blaðsíða 9
Ef öryggisreglum er fylgt eftir er lítil hætta á eyðnismiti í starfi á sjúkrahúsum. Talað er um líkurnar 1 á móti 6000 skráðum sjúkdómstilfellum. Viðbrögð heilbrigðisstétla við eyðni Vanþekking og hrœðsla við sjúkdóminn ekki síður meðal starfsfólks sjúkrahúsa en almennings. Lítil hœtta talin ó að smitast í starfi Fyrirskömmu efndu Samtök heilbrigðisstétta til fundar, þar sem meginumræðan snerist um þagnarskyldu heilbrigðis- stétta og viðbrögð starfsfólks sjúkrastofnana við eyðni. Flutt voru nokkur erindi og fólk í salnum kom með innlegg í umræðuna. Greinilegtvarað skoðanir voru skiptar um sum atriði, enda verið að fjalla um viðkvæm mál þar sem skörun geturorðið milli hagsmuna. Vernd sjúklinga og öryggi starfsfólks Á meðan engin lækning er til við sjúkdómnum eyðni vekur möguleikinn á smiti ótta og á það allt eins við um starfsfólk á sjúkrastofnunum, sem vænst get- ur að fá smitaða einstaklinga til meðferðar. Þeir sem eru svo ó- lánssamir að hafa smitast eru líka hræddir, hræddir um að vitneskj- an um sjúkdóm þeirra leiði til út- skúfunar frá samfélaginu. í tali manna mátti greina ákveðna tog- streitu milli þess sjónarmiðs að vernd sjúklings, réttur hans til leyndar, eigi að hafa allan for- gang og þess að til öryggis fyrir starfsfólk beri að vara sérstaklega við smithætttu. í erindi sínu talaði Hrund Thorsteinsson hjúkrunarfræð- ingur um að samkvæmt þeim reglum sem fólk gengist undir í starfi væri vernd sjúklinga ofar vernd við starfsfélaga. Hún taldi að þeir einir sem sæju um með- ferð sjúklings ættu að vita hvað að honum væri. - Við höfum mikla vitneskju um hvernig eigi að verjast veirunni og því er ekki hægt að tala um okkur sem sak- lausan þriðja aðila, sem vara þarf sérstaklega við smithættu. Hrund tiltók tvö atriði sem lag- færa þyrfti, bæði til að tryggja að óviðkomandi væri ekki gefin vís- bending um hvað amaði að sjúkl- ingi og til að starfsfólk temdi sér sömu öruggu vinnubrögðin gagnvart öllum. Annars vegar er um að ræða svokölluð einangrun- arspjöld sem hengd eru á her- bergishurð allra sjúklinga sem eru með smitandi sjúkdóm. Á spjöldunum er tiltekið hvernig sjúkdómurinn smitast og hvernig haga beri umgengni til að forðast smit. Margir eiga leið um ganga sjúkrahúsa og vildi Hrund að hætt yrði að koma þessum miðum fyrir þar sem allir gætu rekið augun í þá. Þó ekki sé sagt beint hvað er að viðkomandi, sé verið að gefa of mikið til kynna. Hitt atriðið er sérmerking sýnatöku- beiðna, þegar taka á sýni úr þeim sem smitaðir eru af eyðni og lifrarbólgu-B. Á þær beiðnir er settur áberandi miði sem varar við smithættu og geta allir sem meðhöndla beiðnina lesið þar nafn sjúklings. Þessar sérmerkingar áleit Hrund tefja fyrir þvf að starfsfólk vendi sig á örugg vinnubrögð, sem væru nauðsynleg gagnvart öllum sjúklingum og sýnum. Margir geta verið með eyðni- veiruna án þess að vitað sé af því, þannig að í raun veita merking- arnar falskt öryggi gagnvart öðr- um sýnum. I starfi sínu sagðist hún hafa kynnst því að eyðni- smitaðir upplifðu mjög sterkt hræðslu við að einhver kæmist að sjúkdómsgreiningu þeirra. Það hefði sýnt sig að eyðni væri ógnun við eðlilegt líf og það mætti að hluta rekja til þess að umræða um sjúkdóminn hefði einkennst af vanþekkingu og hræðslu, einnig hjá heilbrigðisstéttum. Þeir sem hefðu kynnt sér þennan sjúkdóm vel væru ekki hræddir við hann, en því miður hefði aðeins þröng- ur hópur innan heilbrigðiskerfis- ins sinnt þeirri skyldu að afla sér nauðsynlegrar þekkingar. Margir virtust þugsa sem svo að þetta kæmi þeim ekki við, smitsjúk- dómalæknar gætu sinnt þessu. - Á meðan svo er náum við ekki að vera sú góða fyrirmynd sem við ættum að vera í samskiptum við smitaða einstaklinga. Smithœtta lítil ef reglum er fylgt Helga Erlendsdóttir meina- tæknir skýrði frá nokkrum er- lendum athugunum sem sýndu að hættan á að smitast af eyðni í starfi væri hverfandi lítil, ef ör- yggisreglum væri fylgt. f Evrópu og Bandaríkjunum er vitað um 7 sem smitast hafa í starfi og er tal- að um að við 6000 skráð sjúk- dómstilfelli séu líkur á að 1 starfs- maður smitist. Vinnuslys geta alltaf komið fyrir, s.s. að fólk stingi sig á óhreinum nálum. En hættan á að smitast í slíkum slys- um er talin lítil, eða í 3-10 tilvik- um af 10.000. Helga sagði að víða erlendis vildi starfsfólk sjúkrahúsa að sú regla yrði tekin upp, að mótefna- mæla alla sem leggjast inn. í Sví- þjóð hefði verið reiknað út að það yrði óhemju dýrt fyrir heilbrigðiskerfið og spurning hvort leggja ætti í slíkt fyrst lík- urnar á að smitast í starfi væru svo litlar. Athuganir í Bandaríkjun- um hefðu líka sýnt að ekki væri hægt að sanna að vitneskja um eyðnismit fækkaði vinnuslysum. í sínu erindi kom Helga einnig inn á spurninguna um hvort sjúk- lingur ætti í öllum tilfellum að hafa úrslitavald um hvort mælt yrði fyrir mótefni í blóði hans. Reglan væri sú að ekki mætti taka eyðnipróf úr blóðsýni nema með leyfi viðkomandi einstaklings. Sú staða gæti komið upp að hann neitaði, þó að starfsmaður hefði stungið sig á sýni og vildi fullvissa sig um hvort það væri úr eyðni- smituðum. Þarna gætu því orðið árekstrar milli réttar sjúklings til leyndar og öryggis starfsmanns. Parf breytt viðhorf Auður Matthíasdóttir félags- ráðgjafi ræddi í sínu erindi um mikilvægi þess að eyðnismit- uðum yrði mætt með skilningi og samúð. Nú væri ástandið þannig að smitaðir væru í mikilli hættu á að einangrast. Atvinnuöryggi og búsetu væri ógnað og vinir hyrfu á braut. Hún sagði að afstaða í þjóðfé- laginu virtist vera sú að eyðni væri hommasjúkdómur og koma þyrfti því inn hjá fólki að þarna væri ekki samasemmerki á milli. Líkja mætti hræðslunni við eyðni við hræðsluna við berkla á sínum tíma, en nú bættist einnig við andúð á fólki sem er öðruvísi og gerði það málið erfiðara. -mj |#i Félagsmálastofnun 811 Reykjavíkurborgar Droplaugarstaðir heimili aldraðra, Snorrabraut 58. Starfsfólk óskast til sumarafleysinga: Hjúkrunarfræðinga á allar vaktir, allskonar vaktamunsturkomatil greina, á60% næturvaktir eru greidd deildarstjóralaun. Sjúkraliðar: Þetta er orðsending frá félögum ykkar á Drop- laugarstöðum. Okkur langar til að benda ykkur á að hingað vantar sjúkraliða til starfa. Hér er mjög góð vinnu- aðstaða, skemmtilegt umhverfi, góðurstarfsandi og staðurinn er miðsvæðis í borginni. Starfsfólk: Starfsfólk óskast á vistdeild, í eldhús og ræst- ingu. Hvernig væri að koma og skoða og kynna ykkur starfsemina? Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 25811 milli kl. 9-12 f.h. virka daga. III REYKJÞNÍKURBORG 1*1 Jtauútf/i Stádun Þjónustuíbúðir aldraðra Dalbraut 27 Okkur vantar sumarafleysingafólk í eftirtalin störf: Ræsting: Vinnutími kl. 13-17. 50% starf. Þrif á sameign. Heimilishjálp: Létt þrif á íbúðum aldraðra. Vakt: Aðhlynning og fleira. Eldhús: Vinnutími kl. 8-14 og aðra hvora helgi. Upplýsingar í síma 685377 frá kl. 10-14 alla virka daga. Hafnarstjórn Hafnarfjarðar auglýsir eftir tilboðum í verkið „Smábátahöfn“ Óskað er eftir heildartilboði, sem felur í sér dýpk- un 5.5.00 m3, fyllingu 2.200 m3, malbikun 1.670 m2 og hönnun og smíði viðlegu fyrir smábáta 50 Im. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjar- verkfræðings, Strandgötu 6, Hafnarfirði, gegn 5.000,- kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skila fyrir 6/6 ’88 kl. 11.00 á skrif- stofu bæjarverkfræðings. Hafnarstjórn Hafnarfjarðar. KYPUR 1 x í viku = FLUGLEIÐIR t -fyrir þig- Sunnudagur 15. maí 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.