Þjóðviljinn - 15.05.1988, Qupperneq 16
Orri Jónsson og Rúnar Gestsson skrifa
Subbulegur Mark E. Smith.
THE FALL
THE FRENZ EXPERIMENT
Fráleittfallnirenn (humm.. erþessi ekki gamall?)
Ein af þessum athyglisveröu
hljómsveitum, semfærmann
til að líta heiminn bjartari
augum í hvert sinn er þær
gefa f rá sér nýtt efni, er án efa
framúrstefnu „lúnetikk"
sveitin The Fall. Sveitin, sem
er búin að vera starfandi í rúm
tíu ár og sent frá sér ógrynni
öll af skífum, sendi „nýverið"
frá sér nýja breiðskífu, er ber
heitið „The Frenz Experi-
rnent".
Fyrir þá sem ekki hafa kynnt
sér tónlist the Fall, má sossum
nefna það að sveitin spilar fram-
úrstefnulegt popp-rokk, sem ein-
kennist af afskaplega einföldum,
en jafnframt smekklegum laga-
smíðum og lekkerum textasmíð-
um, auk þess setur hinn gasalegi
breski yfirstéttarsöngur Mark E.
Smith dásamlega huggulegan blæ
á tónlistina. Það er vegna þess,
sem sveitinni hefur stöku sinnum
verið líkt við aðra ágæta sveit,
Mússólíni að nafni... (eða var
það kannski öfugt?).
Þessi nýi afrakstur The Fall,
eða „The Frenz Experiment" ber
ekki nein merki um byltingar-
kenndar breytingar á tónlist
sveitarinnar, enda engin þörf á.
Skífan inniheldur 10 smellin lög
sem sameinar alla kosti hljóm-
sveitarinnar eins og best verður á
kosið. Enga teljandi galla er að
finna á þessari skífu, enda án efa
besta plata sveitarinnar í
allnokkur ár. Fyrir sjóaða Fall
aðdáendur, leyfi ég mér að
nefna, að skífan er helst í ætt við
„This Nation’s Saving Grace“,
þ.e., hún er heldur hrárri en síð-
ustu hljómskífur drengjanna.
Lögin „Oswald Defence Lawy-
er“, „Bremen Nacht“, „Frenz“,
„Carry Bag Man“ og „The Steak
Place“ skara fram úr, úr hópi jafn
góðra laga. Reyndar var lagið
„Bremen Nacht“ gefið út í tak-
mörkuðu upplagi á dvergskífu,
sem fylgdi með fyrstu útgáfunni
af plötunni, og gaular þar Mark
E. Smith textann á germönsku,
við örlítið breyttan undirleik.
í heildina er „The Frenz Ex-
periment" afskaplega elskuleg
plastskífa, sterk og heilsteypt,
sem flestir nema Árni Matt ættu
að kynna sér. -RG
Hljómsveitin The Mad-
ness, sem reist var úr rústum
hinnar viðfrægu sprellisveitar
Madness, sendi ekki alls fyrir
löngu frá sér sína „fyrstu" skífu,
sem ber heiti sveitarinnar. Hljóm-
sveitin inniheldur fjóra sprelli-
kalla úr Madness sálugu, þá
Suggs, Cathal, Chris og Lee.
Meira umframliðna. TheClash
sálugu halda uppteknum hætti í
að auglýsa upp nýjustu safnplötu
sína með útgáfu lagsins „London
Calling" af samnefndri breiðskífu
sveitarinnar, frá árinu 1980.
HÓpur fólks að nafni Africa
Bambaata & Family er um þess-
ar mundir að gefa út í Bretlandi
smáskífu sem inniheldur lagið
„Sho’Nuff Funky".
Joni Mitchell sendi dvergskífu
á markað þriðjudaginn 2. maí,
sem inniheldur dúett söngkon-
unnarog kappans alræmda, Pet-
er Gabriel. Lagið, sem ber heitið
„My Secret Place", er einnig að
finna á LP plötu stúlkunnar
„Chalk Mark In A Rain Storm".
Nú er nýja Prince breiðskífan
komin á markað, og ber hún
heitið „Lovesexy". Sjálfsagt bíða
margir spenntir eftir því að vér hjá
Eylandspóstinum leggi á hana
hendur, og kveðum upp dómsúr-
skurð yfir þessari plötu meistar-
ans. En þangað til, getum vér
svalað þorsta yðar að nokkru
leyti, með því að greina frá því, að
prinsinn er allsber á meðal blóma
á umslagi skífunnar.
Bandaríkjamaðurinn t
Bone Burnett sendi frá sér nýja
breiðskífu 2. maí síðastliðinn,
sem nefnist „The Talking Ani-
mals". Það þykir eflaust fleirum
merkilegra að kappinn ætlar að
sjá um „próduserun" á nýjustu
breiðskífu Elvis Costello, en Mr.
Burnett hefur ansi oft áður séð
um þessa hlið mála á breið-
skífum herra Costello.
Sade er „loksins" búin að
fleygja á markað sinni þriðju
breiðskífu „Stronger Than Pri-
de“, en nú eru liðin nær 3 ár frá
því gellan sendi frá sér skífuna
„Promise".
FORSAGA ÚTGÁFA
REYKJAVÍKURVEGI 22,
220 HAFNARFIRÐI — S. 65 20 25
Lovesexy
The „Eður ei“
Á ÍSLENSKU
ER AÐ KOMA ÚT
ALVEG Á
NÆSTUNNI -
MEIRA EN
MÁNUÐIÁ EFTIR
ÁÆTLUN
VIÐ BIÐJUM
ÁSKRIFENDUR
OGAÐRA
AÐDÁENDUR
AFSÖKUNAR
ÓTRÚLEG ATBURÐARÁS
í PRENTSMIÐJU VELDUR
UPPLAGSSKORTI
Því miður er Ijóst að afföll á pappír valda því að við getum ekki afgreitt vcnju-
legt upplag á alla sölustaði. Ennfremur neyðumst við til að leiðrétta smásölu-
áiagninguna og verður hún nú sú sama og á öðrum tímaritum, ekki 10% hærri
eins og áður.
Dómarar, lögfræöingar og laganemar eru sérstaklega hvattir til aÖ láta þetta tölublað ekki undir neinum
kringumstæðum fara fram hjá sér, nema þá og því aðeins að um sé að ræða þrálátt þunglyndiskast.
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 15. maf 1988