Þjóðviljinn - 15.05.1988, Page 19

Þjóðviljinn - 15.05.1988, Page 19
8Í3S3Í3SS5S388*- 0000000000. !®S3S3í3Í2 '®»©©t WK 00005? .30000 00000^00000 00000000000 0000000000" S300000000F 000000000. 00000000001 I000000000S30K !0000S '000005 !0000S '000S Í0000E 000Ö Í000&S 000$ 100005? 0005 100005' ;000f 0000S ..>«3000! Í00000000000 00000000005 0000000005* 00000000' ARNA- LAÐSÍÐAN í dag hefur gönga sína hér í Þjóðviljanum Barna-Blaðsíðan. Eins og nafnið gefur til kynna er þessi blaðsíða ætluð ykkur krakkar. Vonandi finna flestir eitthvað við sitt hæfi, t.d. smásögu, þraut eða leik og hver veit hvað á eftir að bætast við. Ef þið hafið einhverjar hugmyndir eða efni sem þið viljið koma á framfæri þá sendið það til okkar hingað á Þjóðviljann, Síðumúla 6,108 Reykjavík. Munið að merkja umslagið Barna-Blaðsíðan. Getur þú fundið hvað er athugavert við þessa mynd? Ljóð Blesi gekk á túninu í kvöldhúminu. Kom hann þá auga á Jörp gerðu þau þá eigi gott en eignaðíst hún þá folald flott. Viðar 8 ára Smásagan Ég líka Ég heiti Óli og ég bý einn með mömmu. Einu sinni ætlaði ég að setj- ast í kjöltuna á mömmu en þá var hún horfin. Mamma sagði að ég ætti að eignast systkini. Ég var mjög glaður og fór að hoppa og dansa. Þegar vika var liðin frá því að mamma hafði sagt mér þetta var hún þreytt og með stóra kúlu. Þegar komið var að því að hún ætti að fara fór hún með mig heim til afa og ömmu. Afi ætlaði að keyra mömmu en við amma fórum að sofa. Við vorum bæði svo þreytt. Þegar ég vaknaði var amma inni í eldhúsi. Hún sagði að ég hefði eignast lítinn BRÓÐUR! Margrét Jónsdóttir 8 ára. 1 i ~L —* Hvaða leið á hundurinn að fara til þess að finna beinið? Að rœkta blóm Núna þegar sumarið er að koma er tilvalið að rækta blóm. Það sem þú þarft er: 1) mold 2) blómapottur (jógúrtbox) 3) fræ Þú getur notað hvaða dós sem er, ef þú getur gert gat á botninn. Fræin sem þú notar eru steinar úr appelsínum eða sítrónum og svo er líka hægt að nota fræ úr papriku eða þá að kaupa fræ í blómabúðum. Þú byrjar á því að setja mold í pottinn. Síðan gerir þú holu með puttanum og setur nokkur fræ í moldina. Þá er aðeins að setja pott- inn á sólríkan stað, muna að vökva og fylgjast vel með. Ef uppskeran á að vera ör- ugg er gott að setja fræin fyrst í sand og geyma þau í kæli í 3-4 vikur. Sunnudagur 15. maí 1988 ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 19

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.