Þjóðviljinn - 25.05.1988, Blaðsíða 10
1. deild
Heppnir Skagamenn
Völsungur var allan tímann ísókn en
tapaðisamt2-l
Það ætiar ekki að byrja vel
keppnistímabilið hjá Húsvíking-
unum þegar liðið fékk Akurnes-
inga í heimsókn um helgina. Gegn
Skagamönnum voru þeir mestall-
an tímann í sókn en gestirnir náðu
skyndsóknum og nýttu færin að-
eins betur.
Heimamenn áttu mun meira af
færum og Aðalsteinn Aðalsteins-
son átti skot í slá en það voru samt
gestirnir sem gerðu fyrsta mark-
ið. Haraldur Ingólfsson komst
uppí hornið og gaf fyrir þar sem
Aðalsteinn Víglundsson skoraði
örugglega 0-1 þegar hálf mínúta
var til leikhlés.
Akurnesingar héldu til í vörn-
inni í síðari hálfleik en tóku
skyndisóknir. Það bar góðan ár-
angur því á 50. mínútu fékk Aðal-
steinn Víglundsson sendingu inní
teig úr einni slíkri og skoraði af
öryggi 0-2. Völsungar sóttu án
afláts eftir seinni markið og undir
lok leiksins minnkaði Sveinn
Freysson muninn með þrumu-
skoti utan vítateigs í 1-2.
-ste
Völsungur-ÍA 1-2 (0-1)
44. Aðalsteinn Víglundsson........0-1
50. Aðalsteinn Víglundsson........0-2
85. Sveinn Freysson...............1-2
Lið Völsungs: Haraldur Hinriksson, Helgi
Helgason, Eiríkur Björgvinsson (Sveinn
Freysson 55.), Skarphéðinn (varsson,
Theodór Jóhannsson, Björn Olgeirsson,
Guðmundur Þ. Guðmundsson, Jónas
Hallgrímsson.Kristján Olgeirsson (Sigurð-
ur lllugason 77.), Stefán Viðarsson, Aðal-
steinn Aðalsteinsson.
Lið ÍA: Ólafur Gottskálksson, Heimir Guð-
mundsson, Hafliði Guðjónsson, Sigurður
B. Jónsson, Mark Duffield, Karl Þórðarson,
Ólafur Þórðarson, Guðbjörn Tryggvason
(Alexander Högnason 50.), Haraldur Hinr-
iksson, Haraldur Ingólfsson, Aðalsteinn
Víglundsson (Sigurður Már Harðarson
85.).
Spjöld: Skagamennirnir Mark Duffield og
Hafliði Guðjónsson gul spjöld.
Dómari: Bragi Bergman
Maður feiksins: Haraldur Ingólfsson (A
Staðan
Fram............ 2 2 0 0 2-0 6
KR.............. 2 1 10 5-3 4
lA.............. 2 110 2-14
KA.............. 1 10 0 1-03
(BK............. 2 10 14-43
Leiftur......... 2 0 2 0 0-0 2
Víkingur.........2 0 112-31
Valur........... 2 0 110-11
Þór............. 10 0 10-10
Völsungur.......2 0 0 2 2-5 0
Vinningstölurnar 21. maí 1988
Heildarvinningsupphæð: Kr. 4.874.574,-
1. vinningur var kr. 2.439.810,- og skiptist hann á milli 2ja vinnings-
hafa, kr. 1.219.905,- á mann.
2. vinningur var kr. 730.380.- og skiptist hann á 210 vinningshafa,
kr. 3.478,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.704.384,- og skiptist á 6.336 vinningshafa,
sem fá 269 krónur hver.
Sölustaðirnir eru opnir frá
mánudegi til laugardags
og loka ekki fyrr en 15 mínútum
fyrir útdrátt.
Boltinn líklega á leiö hátt upp í loftiö I leik Víkings og KA um helgina.
l.deild
Rislrtill fótbolti
í rokinu
KA vann Víking á gervigrasinu 1-0
Það var ekki mikill 1. deildar-
bragur yfir leiknum þegar Vík-
ingarnir tóku á móti KA á gervi-
asinu á laugardaginn. Veðrið var
ekki með betra móti en það er lítil
afsökun fyrir slökum gæðum
knattspyrnunnar sem leikin var.
Mikið um háspyrnur og rangar
sendingar þó að inni á milli kæmu
sæmilegir kaflar.
Atli Helgason Víkingur átti
fyrsta skotið á 7. mínútu en það
fór framhjá og það var ekki fyrr
en á 24. mínútu sem næsta góða
færi kom og úr því kom mark.
KA fékk hornspyrnu og boltinn
kom fyrir Víkingsmarkið, fór
framhjá Guðmundi Hreiðars-
syni, í Valgeir Barðason og inní
markið. Nálægir sögðu að Guðm-
undi hefði verið haldið. Valgeir
fékk annað tækifæri 5 mínútum
síðar þegar hann fékk háan bolta
fyrir markið og ætlaði að skalla
yfir Guðmund í Víkingsmarkinu
en sá náði að slá boltann frá. Enn
fengu Akureyringar tækifæri
nokkrum mínútum síðar er Gauti
Laxdal komst uppí hornið og gaf
fyrir en samherji hans skallaði
rétt yfir. Á 44. mínútu fékk Valg-
eir enn færi eftir mistök mar-
kvarðar Víkings en varnarmenn-
irnir náðu að bjarga. Víkingar
voru meira í sókn en Akureyring-
arnir en náðu ekki að skapa sér
góð markatækifæri.
Fyrsta færið í síðari hálfleik átti
Andri á 18. mínútu þegar hann
skaut utan vítateigs en Haukur í
KA-markinu átti ekki í miklum
vandræðum með laust skotið.
Fjórum mínútu síðar fékk Bjarni
Jónsson góða sendingu frá Valg-
eiri Barðasyni en tókst ekki að
skora. Næsta færi kom á 85. mín-
útu er Gauti náði boltanum af
Einari Einarssyni og gaf fyrir
markið. Guðmundur Hreiðars-
son markmaður hélt ekki boltan-
um og eftir darraðardans við
markið tókst Víkingum að
hreinsa frá.
Víkingar voru meira í sókn í
leiknum en gekk illa að komast í
gegnum KA- vörnina. Aftur á
móti náðu Akureyringarnir
hættulegum skyndisóknum og
góðum færum. Atli Einarsson var
frískastur Víkinga en þurfti að
eiga við Erling Kristjánsson sem
var sannkallaður klettur í vörn
KA. Valgeir Barðason var einnig
Víkingum hættulegur. Lárus
Guðmundsson spilaði ekki með
Víkingum því honum mun vera
illt í hnénu. -ste
Víkingur-KA 0-1 (0-1)
24.mín Valgeir Barðason...0-1
Lið Vikings: Guðmundur Hreiðarsson,
Jóhann Þorvarðarson, Atli Helgason,
Gunnar Örn Gunnarsson, Jón Oddsson,
Ólafur Ólafsson (35. Björn Bjartmarz),
Trausti Ómarsson, Atli Éinarsson, Andri
Marteinsson, Hlynur Stefánsson (75. Guð-
mundur Pálsson), Einar Einarsson.
Lið KA: Haukur Bragason, Stefán Ólafs-
son, Gauti Laxdal, Jón Kristjánsson (60.
Arnar Freyr Jónsson), Erlingur Kristjáns-
son, Þorvaldur Örlygsson, Bjarni Jónsson,
Valgeir Barðason (82. Ágúst Sigurðsson),
örn Arnarsson, Anton Karl Gregory, Arnar
Bjarnason.
Spjöld: KA-mennirnir Stefán Ólafsson og
Þorvaldur Örlygsson gult.
Dómari: Magnús Jónatansson.
Maður leiksins: Atli Einarsson Víkingi
y 1. deild
A elleftu stundu
Fram vann Þór sanngjarnt 1 -0 við lélegar aðstœður á
Akureyri og var markið skorað á 86. mínútu
Það var ekki félegt þegar Þór
fékk Fram í heimsókn um helg-
ina. Mikill sunnanvindur var á
malarvellinum og á tíðum gekk
moldrok yfir leikmenn sem áttu í
mesta basli við að hemja boltann.
Gestirnir léku undan vindi í
fyrri hálfleik og voru mun meira
með boltann en gekk illa að spila
honum. Birkir snerti boltann
fyrst á 12. mínútu sem segir sína
sögu. Fyrsta hættulega færið var
þó á vallarhelmingi Fram þegar
Jón Sveinsson ætlaði að senda
boltann en Halldór Áskelsson
komst inní sendinguna og þrum-
aði að markinu en Birkir varði.
Við þetta komu heimamenn mun
meira inn í leikinn en næsta færi
átti Pétur Ormslev. Það var á 24.
mínútu að hann tók aukaspyrnu
rétt utan vítateigs Þórs og skaut
yfir varnarvegginn en Baldvin
varði vel. Enn áttu Frammarar
færi þegar Ormarr gaf fyrir mark-
ið en Pétur Ormslev skallaði yfir
á markteig. Á 38. mínútu skaut
Jónas Róbertsson að marki Fram
og boltinn virtist ætla langt fram-
hjá en missti skyndilega flugið í
vindinum og fór rétt framhjá
markinu.
Á 56. mínútu gerðu Frammar-
ar enn varnarmistök þegar Þor-
steinn Þorsteinsson ætlaði að
gefa boltann á Birki markvörð og
Hlynur komst inná milli en missti
boltann ívindinum. Fjórum mín-
útum síðar gaf Kristinn boltann á
Pétur Ormslev sem skaut við-
stöðulaust inní markteignum en
Baldvin varði glæsilega. Arnljót-
ur komst í færi á 74. mínútu en
Birgir Skúlason náði að setja fót-
inn fyrir boltann á síðustu
stundu. Það var svo ekki fyrr en 4
mínútur voru til leiksloka að
Fram náði að skora. Birgir Skúla-
son ætlaði að gefa á Baldvin mar-
kvörð en Ormarr komst inní
sendinguna, náði að leggja bolt-
ann fyrir sig á meðan Baldvin
kom á móti honum, og skorði ör-
ugglega 0-1.
Þetta verður að teljast sann-
gjarn sigur því Framarar náðu
mun meira spili en Þórsarar og
áttu meira af færum.
-kh/ste
Þór-Fram 0-1 (0-0)
86.örmarrÖrlygsson Fram..........0-1
LI6 Þórs: Baldvin Guömundsson, Júlíus
Tryggvason, Birgir Skúlason, Nói Björns-
son, Einar Arason, Valdimar Pálsson, Jón-
as Róbertsson, Guömundur Valur Sig-
urðsson, Siguróli Kristjánsson, Hlynur
Birgisson, Halldór Áskelsson.
Llð Fram: Birkir Kristinsson, Þorsteinn
Þorsteinsson, Jón Sveinsson, Pétur
Ormslev, Viöar Þorkelsson, Kristinn Jóns-
son, Pétur Arnjjórsson, Guðmundur
Steinsson, Steinn Guðjónsson, Arnljótur
Davíösson, Ormarr örlygsson.
Spjald: Nói Björnsson Þór gult.
Dómari: Friögeir Hallgrímsson ágætur
Maður leiksins: Ormarr Örlygsson Fram.
-kh/ste
Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingasími: 685111 10 SÍÐA ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 25. maí 1988