Þjóðviljinn - 25.05.1988, Síða 11

Þjóðviljinn - 25.05.1988, Síða 11
ÍÞRÓTTIR 2. deild Hlynur skoraði á lokamínútunni Eyjamenn mörðu Þróttara í eigin rokrassgati. Jafnthjá Víði ogFylki. Siglfirðingar unnu Derby-leikinn ÍBV-Þróttur 3-2 Vestmanneyingar mörðu sigur á Þrótturum í hífandi roki með því að skora á síðustu mínútu leiksins. Það var Hlynur Elísson sem tryggði sínum mönnum sig- urinn í þann mund sem tíminn var að renna út. Þróttarar léku undan vindinum í fyrri hálfleik og uppskáru mark á 35. mínútu þegar Valgeiri Bald- urssyni tókst að skora. í síðari hálfleik komu gestirnir svo mjög á óvart með því að bæta öðru marki við á móti rokinu. Eyja- menn höfðu legið í sókn en Þrótt- arar náðu skyndisókn sem lauk lauk með marki Sigurðar Hallvarðssonar. Heimamenn voru nú ekki á því að gefast upp og sóttu mjög, með aðstoð vinds- ins, að marki Þróttara. Guð- mundur Erlingsson, markvörður Þróttara, sýndi oft góð tilþrif en honum tókst ekki að koma í veg fyrir að Tómas Ingi Tómasson og Hlynur Jóhannsson næðu að jafna leikinn. Hlynur Elísson skoraði svo sigurmark Eyja- manna eins og áður sagði. Víðir-Fylkir 1-1 Bæði liðin eru nýliðar í deildinni. Víðir féll úr 1. deild en Fylkir kom upp úr þeirri þriðju. Marteinn Geirsson kom Árbæ- ingunum upp í fyrra en hann kom Víði einmitt upp í 1. deild á sínum tíma. Fylkismenn komu mjög á- kveðnir til leiks en aðstæður buðu ekki upp á rismikla knatt- spyrnu. Rok og rigning var á meðan á leiknum stóð en þó var leikið á grasvelli. Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik en snemma í þeim síðari skoraði Hörður Valsson fyrir gestina. Markið var bara til að erta Víðismenn sem náðu að jafna á 70. mínútu með marki Guðjóns Guðmundssonar. Það sem eftir lifði var Fylkir nær því að skora en jafntefli var staðr- eynd. KS-Tindastóll Siglfirðingar voru heldur betur á skotskónum í byrjun þessa Derby-leiks. Þeir komust í 3-0 á fýrstu 20 mínútunum, með marki Pauls Friars og tveimur mörkum Hafþórs Kolbeinssonar. Tinda- stóll náði þó að minnka muninn fyrir leikhlé þegar Eyjólfur Sverrisson skoraði fallegt mark beint úr aukaspyrnu. Sauðkrækingar mættu mun á- kveðnari til síðari hálfleiks en til hins fyrri. Fljótlega náði Eysteinn Kristinsson að minnka muninn í eitt mark en Róbert Haraldsson bætti fjórða marki Siglfirðinga við og tryggði þannig heimasigurinn. -þóm 3. deild Steindór skorar enn ÍK-Afturelding 2-1 Markakóngurinn Steindór El- ísson var hetja Kópavogsbúa gegn Mosfellingum. Hann skoraði bæði mörk ÍK seint í seinni hálfleik eftir að liðið hafði verið einu marki undir. Sigurður Sveinsson gerði mark Aftureld- ingar um miðjan síðari hálfleik. 4. deild Ernir-Haukar 3-3 Mörk Hauka: Björn Svavarsson, Valdimar Sveinbjörnsson, Kristján Kristjánsson. Mörk Ernis: Jón Bjarnason, Lúðvík Tómasson, Haraldur Sigurðsson. Augnablik-Snæfell 5-1 Mörk Augnabliks: Alexander Þóris- son 2, Viðar Gunnarsson, Sigurður Halldórsson, Kristján Halldórsson. Mark Snæfells: Rafn Rafnsson. Skallagrímur-Hveragerði 0- 2 Mörk Hvergerðis: Ólafur Jósefsson 2. Fyrirtak-Víkingur Ól. 1-3 Mark Fyrirtaks: Hrafn Magnússon. Mörk Víkings: Hermann Her- mannson, Hjörtur Ragnarsson, Víg- lundur Pétursson. Grindavík-Leiknir 5-1 Grasvöllurinn f Grindavík er í góðu standi og bauð upp á ágæta knattspyrnu. Staðan í hálfleik var aðeins 1-0 en í þeim síðari fóru heimamenn að nýta færin sín. Símon Alfreðsson gerði fyrsta markið og Hjálmar Hallgrímsson og Ólafur Ingólfsson gerðu tvö hvor. Mark Leiknis kom á lok- amínútunni og var það sjálfsmark sem Júlíus Pétur Ingólfsson gerði. Grótta-UMFN 2-1 Nýliðar Gróttu byrja veru sína í deildinni vel. Þeir komust í 2-0 með mörkum Erlings Aðalsteins- sonar og Bernhards Petersens. Þegar skammt var til leiksloka fengu Njarðvíkingar óbeina aukaspyrnu innan vítateigs Gróttu úr hverri Haukur Jóhann- esson skoraði. Reynir-Stjarnan 0-1 Stjarnan úr Garðabæ ætlar sér stóra hluti í sumar. Þeir voru ná- lægt því að komast upp í fyrra og gefa væntanlega ekkert eftir nú. Þeir unnu Reyni í Sandgerði á Iaugardag og skoraði Ingólfur Ingólfsson eina mark leiksins í síðari hálfleik. -þóm 2 x í viku FLUGLEIDIR -fyrír þíg- Það á aldrei að segja þeim síjgn r sem engu - að minnsta kosti ekki veiðisögur - og nú ber vel í veiði - því stóri sannleikurinn er að maí er sextándi mánuðurinn í röð stöðugs verðlags í verslun okkar, því það var í febrúar í fyrra (1/2 1987) sem við breytt- um síðast verðlagsgrundvelli í Húsgagnahöllinni. Þegar gengið var fellt í mars um rúm 6% hækkuðum við ekki - og núna þegar gengið hefur verið feUt um tæp 11% HÆKKUM W ENGAR VÖRUR Þetta eru stórkostlegar fréttir fyrir hagsýnt fólk - því við tökum stórar vörusendingar í hús á hverjum degi sem eru seldar í einu verðbólgulausu verslun landsins. REYKJAVÍK

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.