Þjóðviljinn - 11.06.1988, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 11.06.1988, Qupperneq 6
ÐAGVIST BARNA HRAUNBÆR Árborg — Hlaðbæ 17 Staða forstöðumanns leikskólans Árborgar er laus til umsóknar. Ncínari upplýsingar ucftr Arna Jónsclóuir umsjónarfóstra í sima 27277. Kennarar - takið eftir! Okkur vantar kennara í eftirtaldar stöður við grunnskólana á Akranesi. Við Grundaskola: Sérkennara. Tónmenntakennara. Almenna kennara. Upplýsingar veita: Skólastjóri Guðbjartur Hann- esson, vinnusími 93-12811/heimasími 93-12723 og yfirkennari Ólína Jónsdóttir, vinnusími 93- 12811/heimasími 93-11408. Við Brekkubæjarskóla: Kennara í 7-9 bekk, aðalgreinar líffræði og stærð- fræði. Upplýsingar veita: Skólastjóri Ingi Steinar Gunn- laugsson, vinnusími 93-11388/heimasími 93- 11193 og yfirkennari Ingvar Ingvarsson, vinnu- sími 93-12012/heimasími 93-13090. Umsóknarfrestur er til 30. júní n.k. Skólanefnd L LANDSVIRKJUN Rafgirðing Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í efni og upp- setningu á rafgirðingu á mörkum Auðkúluheiðar og Grímstunguheiðar. Girðingin er um 17 km að lengd og skal verkinu lokið fyrir 15. september n.k. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkj- unar að Eiðsstöðum, Austur-Húnavatnssýslu og á innkaupadeild Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík. Tilboðum skal skila á annan hvorn fyrrgreindra staða fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 28. júní 1988. Eiginmaður minn Ármann Bjarnfreðsson Birkihlíð 20 Vestmannaeyjum lést þann 9. júní sl. Fyrir mína hönd, barna, tengdabarna og barnabarna. Kristín Óskarsdóttir. Jón E. Guomundsson: Það á að bera virðingu fyrir leikbrúðunni. Mynd - Ari. Brúðuleikhús Mjallhvít, - Maður og kona Listahátíðarsýningar hjáJóni E. Guðmundssyni og hjá Leikbrúðulandi um helgina Brúðuleikhúsfólkið gerir það ekki endasleppt á Lista- um helgina verða sýningar bæði hjá Jóni E. Guðmunds- hátíð, í þessari viku var austur-þýski brúðuleikhúsmað- syni og hjá Leikbrúðulandi. urinn Peter Waschinsky með sýningar í Jón E. Guðmundsson, verður með sýningar á Manni og konu, eftir Jón Thoroddsen í Lindarbæ, í dag og á morgun kl. 14:00. I sýningunni eru átta strengbrúður sem Jón hefur gert, en hann segir að í raun og veru eigi leikendur í sýningunni að vera átján, og hann stefni að því að sýna Mann og konu með öllum brúðunum átján árið 1989. Yfirleitt er Jón með sýningar sínar í bflskúr sem hann hefur innréttað sem brúðuleikhús við Flyðrugranda 4. Sem stendur sýnir hann Hans og Grétu, og er hægt að hringja í hann og fá upp- lýsingar um sýningartíma. Jón er brautryðjandi á sviði brúðuleikhúss hér á landi. Hann stundaði myndlistarnám í Reykjavík á árunum 1933-38, var við nám í leirmótun og leikbrúðu- gerð í Kaupmannahöfn 1946-47, og við nám í Myndlista- og hand- íðaskólanum 1949. Hann hélt sína fyrstu málverkasýningu í Reykjavík árið 1939, og var myndlistarkennari á árunum 1950-1984, við Miðbæjar- skólann, Austurbæjarskólann og við Flensborg í Hafnarfirði. Lindarbæ, og nú Jón segist hafa kynnst brúðu- leikhúsinu nánast fyrir tilviljun í Kaupmannahöfn árið 1938, og strax orðið ákaflega hrifinn af myndformi þess, - og verið sannfærður um að þarna væri eitthvað sem hann vildi fást við. Hann stofnaði íslenska brúðul- eikhúsið árið 1954, og var þá með sýningar í Alþýðuhúskjallaran- um við Hverfisgötu. Hann hefur sýnt Eldfærin, Rauðhettu og Gosa, svo einhverjar sýningar séu nefndar, og þar að auki verið með helgileiki. Á árunum 1963-73 ferðaðist Jón um landið með leikbrúðusýn- ingar, og árið 1976 stofnaði hann Brúðubflinn, sem hann var með í þrjú sumur. - Að setja upp í brúðuleikhúsi er nákvæmlega eins og að setja upp á leiksviði, - segir hann. - Ég skapa brúðuna til að leika ákveðið hlutverk, vera þessi per- sóna í leikritinu sem mér finnst hún vera, og ef hún hlýðir mér ekki verð ég að breyta henni. Stundum reyni ég brúðu í ákveðnu hlutverki en verð svo að taka úr henni alla strengi því hreyfingar hennar eru ekki réttar fyrir persónuna. - Stjórntæki allra brúðanna eru mismunandi, því engar tvær brúður eru eins. Þær hafa allar sinn sérstaka persónuleika, og hreyfingar sem miðast við hann. Leikbrúðan á að vera skapandi hugðarefni, og það á að bera virðingu fyrir henni. Jón gerir allar sínar brúður sjálfur í vinnustofu sinni. Hann hefur fengist við handbrúður og skaftbrúður, en er nú eingöngu með strengbrúður (marionnett- ur). Auk brúðanna bæði málar hann og sker út í tré, - ég þarf aldrei að láta mér leiðast, - segir hann, - ef ég verð þreyttur á einu listforminu sný ég mér bara að því næsta. Sýningin Maður og kona er í leikgerð Kolbrúnar E. Péturs- dóttur. Raddir brúðanna eru þau Kolbrún, Þórarinn Eyfjörð, Barði Guðmundsson og Alda Árnadóttir. Stjórnendur leik- brúðanna eru Jón E. Guðmunds- son, Gunnar Gunnarsson, Rúnar Gunnarsson og Jón El. Helga- son. Leikbrúðuland: Erna, Matasek, Bryndís, Hallveig og Helga, ásamt Mjallhvít, vondu drottningunni, og dvergunum sjö. Mjallhvít landi I Leikbrúðulandi, í kjallaran- um að Fríkirkjuvegi 11 verða tvær forsýningar á Mjallhvít í dag og á morgun kl. 16:00, en ætlunin er að taka upp sýninguna næsta vetur. Sýningin hefur orðið til í sam- vinnu þeirra Bryndísar Gunnars- dóttur, Helgu Steffensen, Hallveigar Thorlacius, Emu Gunnarsdóttur, Helgu Arnalds sem stýrir lýsingunni, og tékkn- eska leikstjórans Petr Matásek, sem einnig hannaði leiktjöld, en Matásek starfar sem hönnuður og leikstjóri við leikhús í Tékk- óslóvakíu. - Við hittumst fyrst á leikbrúð- uhátíð í Danmörku fyrir fjórum árum, - segja þær Leikbrúðu- landskonur, - og höfum síðan hist á ýmsum leikhúshátíðum. Okkur hefur lengi langað til að hafa samvinnu um sýningu, og ákváðum að taka fyrir alþjóðlega sögu sem við skildum öll á sama hátt. - Undirbúningur á Mjallhvít hófst loksins í byrjun mars, þegar Petr sendi okkur teikningar af brúðum og leiktjöldum, og síðan hann kom til landsins fyrir fimm vikum höfum við æft sleitulaust. Sýningin á Mjallhvít er fyrir margra hluta sakir óvenjuleg fyrir íslenskt brúðuleikhús, Mjallhvít er skaftbrúða, vonda drottningin gína og dvergarnir sjö handbrúður og litlir ljósdepl- ar á víxl. Þar að auki taka þær Hallveig, Erna, Helga og Bryndís virkan þátt í sýningunni. Tónlistin er gerð sérstaklega fyrir sýninguna, samin og flutt af Jónasi Þóri. LG 6 SÍÐA - ÞJÓÐViLJINN Laugardagur 11. júní 1988

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.