Þjóðviljinn - 11.06.1988, Blaðsíða 9
Listahátíð 1988 Listahátíð 1988 Listahátíð 1988 Listahátíð 1988
Pólskir tónleikar
og flautuleikur
Pólverjarnir á Listahátíð gerðu
það ekki endasleppt. Fíl-
harmóníuhljómsveitin í Poznan
og Fílharmóníukór Varsjárborg-
ar héldu aðra tónleika sunnudag-
inn 5. júní í Háskólabíói. Stjórn-
andi var Wojciech Michniewski
en kórstjóri Henryk Wojnarow-
ski.
Fyrst lék hljómsveitin það
ágæta verk Choralis eftir Jón
Nordal. Og var flutningurinn
ágætur í alla staði. Fyrsti píanó-
konsert Chopeis var næst. ein-
leikari Pjotr Poleczny sem m.a.
hefur leikið öll píanóverk Chop-
ins inn á hljómplötur. En hér á
landi vissi enginn af þessum
óvenjulega snillingi. Það kom
sem sé á daginn að hann er frábær
virtúós en jafnframt stórskáld og
mikill arkitekt. Hann byggði upp
sterkt drama og leikur hans var
ákaflega fallegur og blæbrigða-
ríkur. Samt var allt svo yndislega
blátt áfram og þó alveg nýtt. Mér
fannst jafnvel sem Chopin sjálfur
væri að leika á hljóðfærið. Ég er
svo sérvitur í Chopin að mér
finnst hann nánast aldrei vel
leikin. Mér finnst tónlist hans
þannig að það sé sjaldan hægt að
höndla þá fegurð og fullkomnun
sem býr í nótunum. En það tókst
þó þessum pólska meistara.
Hann gerði áheyrendur satt að
segja agndofa með ótrúlegri
snilld. Hann spilaði sem aukalag
pólónesuna op. 53 af þvflíkum
krafti og demón að leikur allra
þeirra stórmeistara sem ég hef
heyrt í þessu verki varð að dúlli
og daðri. Á dauða mínum átti ég
von en ekki þessu.
Eftir hlé flutti kórinn og hljóm-
sveitin Stabat Mater eftir Szym-
anowski. Það er undurfallegt
verk. Einsöngvarar voru Barbara
Zagorzanka sópran, Jadwiga
Rappé messósópran og Andrzej
Hiolski baritón. Þeir voru frá-
bærir og kórinn stórkostlegur.
Að lokum lék hljómsveitin ein-
kennilega en bráðfyndna
tónsmíð eftir pólska tónskáldið
Wojciech Kilar og heitir það
Eldglæringadans. > Hljómsveitin
spilaði af miklum glæsibrag en
stykkið stendur þó í rauninni að
baki þeim verkum sem áður voru
flutt á tónleikunum.
Koma þessara pólsku lista-
manna var afar skemmtileg og
þeir fluttu list af mjög háum
gæðaflokki. Fyrir nú utan það
hve gaman er að kynnast listalífi
þjóða sem hér eru sjaldan í sviðs-
ljósinu.
Um kvöldið voru allt annars
konar tónleikar í Listasafni ís-
lands. Þar lék Kolbeinn Bjarna-
son nútímaverk fyrir einleiksf-
lautu. Hann spilaði uppi á lofti í
sal nútímamyndlistar og var ekki
hægt að hugsa sér meira við-
eigandi umgjörð. Kolbeinn hlíföi
ekki áheyrendum. Verkin sem
hann flutti heimta óhemju athygli
og þolinmæði af hlustendum
hvað þá flytjanda. En tónlistin
hélt athyglinni fyllilega og þá
ekki síður agaður og einbeittur
leikur flautuleikarans. Kolbeinn
blés tvö íslensk verk, Solitude
eftir Magnús Bl. Jóhannsson og
Lethe eftir Atla Heimi og er það
fyrir bassaflautu. Þá var Draum-
söngur Kassöndru eftir Brian
Ferneyhough, sem sumir telja
óaðgengilegasa tónskáld allra
tíma, en ekki bar þó verkið það
með sér. Aftur á móti voru skýr-
ingar tónskáldsins í orðum á mús-
ik sinni í efnisskrá óskiljanlegar
með öllu. Þá lék Kolbeinn alveg
yndislega vel framandi og fallegt
verk eftir japanska tónskáldið
Kazuo Fukushima. Loks skrýtið
tónverk eða antitónverk eftir
Klaus Huber. Svona tónleika
þyrfti að endurtaka fljótlega.
Þeir kröfðust svo mikils af hlust-
endum. En jafnframt voru þeir
mjög góðir og nýstárlegir, upp-
örvandi og spennandi.
Sigurður Þór Guðjónsson
Pólski hljómsvsveitarstjórinn Wojciech Michnievski
BIFREIÐAEIGEIMDUR ATHUGIÐ!
Aðeins það besta
ernógugott
fyrirþig!
FX-05V
HS-200
rz.xc*‘
Vegna breytinga á rekstri fyrirtækis okkar, verðum við að
rýma vörugeymslur. Næstu daga munum við því selja takmarkaðar birgðir af sumar-
hjólbörðum á verði sem slær öllu við.
155x12 kr.
165x13 kr.
187/70 x 13 kr.
2.145
2.490
2.790
175x14 kr.
165x15 kr.
185/70 x 14 kr.
3.000
3.275
3.417
OHTSU - FALKEN eru japanskir
hágæða hjólbarðar þar sem
öryggi, gott grip og frábær ending
haldast í hendur.
- Staðgreiðsluafsláttur
- VISA - EURO
illinex Sl. - Básendar sf.
Iðavöllum 10b, Keflavík, símar: 92-14344, 92-14345 og 92-11099.
Söluumboð á íslandi fyrir
OHTSU - FALKEN Sumitomo-hjólbarða.