Þjóðviljinn - 19.06.1988, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 19.06.1988, Blaðsíða 7
Mynd frá því snemma á öldinni. Bríet Bjarnhéðinsdóttir sitjandi 6. frá hægri. Kvenfélögin stóðu alltaf að fyrstu deildunum og það er rétt að líta á Landspítalann sem minnismerki um fenginn kosningarétt kvenna. Á þessum árum, uppúr 1924, fer pólitíkin að skerpast og meiri harka að færast í málflutning. Kreppan, kommúnistar fara að láta á sér kræla, félagið Sparta stofnað, klofningurinn útúr Al- þýðuflokknum og fleira. Allar andstæður mjög rækilega af- markaðar og skarpar en ósigur- inn 1926 held ég að hafi slegið allan botn úr annars kröftugri kvennahreyfingunni um tíma. En það varaði ekki lengi. Konur færðu baráttuna inn í innstu vé samfélagsins en þó ekki meir en svo að það er enn langt í frá að konur sitji við sama borð og karl- ar hér á landi. Tímabilið milli 1926 og 1982, árin milli kvennaframboðanna, er ekki mikið kannað enn en ég held að þetta sé í rauninni ákaf- lega merkilegt tímabil. Það er langt í frá að kvenréttindahreyf- ingin hafi lognast útaf á þessum tíma því til dæmis Kvenréttind- afélagið hélt uppi kröftugri bar- áttu. Konurnar innan þess náðu fram góðum hlutum varðandi mæðravefnd, ýmis réttindi óskil- getinna barna, stofna leikvelli og barnaheimili, safna fyrir sjúkra- húsum. Þessi málefni eru sérlega hugleikin konum og þær notuðu á þessum tíma aðra leið en hina hefðbundnu lagasetningaleið. í rauninni er þetta gerjunarskeið þar sem konur unnu að þjóðfél- agsbreytingum hægt og sígandi en ekki með hávaða og fyrir- gangi. Umbrot og barningur í kreppunni og éftir hana dró mikið úr barneignum, eða í kringum 1930-1940, en í stríðinu og eftir það varð þessi svokaliaða „Baby-boom“ eða barnasprengj- an. Þá kom allt í einu ógurleg barneignaalda, sem þýddi aðeins eitt fyrir íslenskar konur: meiri bindingu við heimilin. Þær sátu bara yfir börnum og búi og fjölg- uðu munnunum! Reyndar er að sjá á línuritum um barnsfæðingar að sprengingin sem varð 1960Í barneignum, þeg- ar stærsti árgangurinn í íslands- sögunni fæddist, stóð hvorki Iengi né hátt. Strax árið 1963 komu pillan og lykkjan til sög- unnar og þá fóru fæðingarnar bara, búmps! beint niður. Uppúr ‘63 verður geysilegur vöxtur í atvinnulífinu, frystingin komin vel á veg og vinnumarkað- urinnæpandi ávinnuafl. Konurn- ar út úr eldhúsinu og út í frysti- húsin og á síldarplönin. Aukin þátttaka kvenna í atvinnulífinu og lök kjör hjálpuðu svo til þess að sprengingin stóra ‘68-‘70 náði til kvenna og rauðsokkurnar spruttu fram á sjónarsviðið. Einn hluti af vitundarvakningu kvenna á þessum tíma voru skrif Svövu Jakobsdóttur því hún var í raun 5 árum á undan sinni tíð. Hún skrifaði um óþreyjuna og hryllinginn í konum vegna stöðu þjóðfélagsins eins og það var á þessum tíma. Reyndar er upphaf kvennaár- atugarins 1975 afleiðing af því sem gerðist almennt meðal kvenna á árunum ‘60 til ‘70. Upphleðslan byrjaði þá í raun- inni og hélt áfram þar til varð sprenging. Risastór sprenging! Viðreisnarárin voru þensluár og vinnumarkaðurinn öskraði gjörsamlega á vinnuafl. Þenslan var gífurleg og góðæri í landinu. í raun réttri svipað ástandinu sem hefur verið hér að undanförnu. Konurnar æddu út á vinnumark- aðinn og öfluðu sér meiri menntunar en sátu um leið uppi með allar gömlu skyldurnar. Sátu uppi með gömlu kvenímyndina að þær ættu fyrst og fremst að vera húsmæður og mæður. Allt þetta orsakaði árekstra, mikla á- rekstra, milli þess að vera í tveimur störfum og milli þess að finnast skyldan vera heima en verða að vinna úti. Þetta cr tvö- faldur árekstur. Konur í nútíð Þekkingin á þjóðfélaginu hefur aukist svo gífurlega nú að barátta kvenna er í raun mun víðfeðmari en hún var í upphafi. Það er ekki nóg að koma bara fram og setjast inn á þing eða í stöður til þess eins að vera einhver málsvari kvenna eða eitthvað þvíumlíkt. Það er í raun barátta fyrir bættu þjóðfé- lagi og ákveönum úrbótum sem konur í dag beita sér fyrir en ekki bara að vera með. Ekki að fá að sitja í öndvegi og ráða engu. Sjáum Vestmannaeyjakonurnar, þær voru búnar að öðlast sterka vitund. Kjarnakonur. Annars hefðu þær varla látið svo rækilega í sér heyra. Þær vildu bara vera metnar að verðleikum. Það vilj- um við öll í rauninni. Nú eru íslenskar konur að vakna. Hugarfarsbyltingin sem hefur verið konum mikilvægust til að ná fram sínum málum er að nokkru leyti að verða að veru- leika. Konur eru að komast til áhrifa í þjóðfélaginu, komast til valda, svo þær megi breyta því til betri vegar. Það eru orðnar svo miklar, en samt svo litlar, breytingar á þeim gildum sem þjóðfélagið byggir á. Oll viðmið að breytast og von- andi til betri vegar. Við erum svo lánsöm að samfélagið okkar er svo agnarsmátt. Öll tjáskipti og barátta við fordóma og fánýtar dylgjur eru svo auðveld hér. Hvort hinsvegar konur eru al- mennt fúsar til að halda upp á 19. júní sem einhvern allsherjar bar- áttudag er engan veginn hægt að segja. Við höfum annan baráttu- dag, 8. mars, og höldum rækilega í hann en 19. júní er meira táknrænn fyrir íslenska baráttu. Sögulegur dagur. Það var mun meira gert úr honum áður en 17. júní varð þjóðhátíðardagur en eftir það minnkaði vægi hans. En við munum hann auðvitað allar. -tt ||| REYKJKííKURBORG l*R ^ctuéar Sföcáci 'I' Skrifstofumaður óskast hjá Skráningardeild fasteigna og húsa- tryggingum. Starfiö erfólgið í almennri afgreiðslu og færslum á tölvu. Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 10190 og 18000. Húsavík Sérkennarar 1 sérkennar vantar að barnaskóla Húsavíkur næsta skólaár. Nánari upplýsingar um starfið og þá fyrirgreiðslu sem í boði er veitir skólastjóri í síma 96-41660 og 96-41974. Skólanefnd Húsavíkur Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurfyrirhönd bygging- adeildar óskar eftir tilboðum í lóðarlögun við gæsluvöll við Malarás í Reykjavík. Utboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 15000 skilatrygg- ingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðju- daginn 5. júlí kl. 14. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Simi 25800 Sunnudagur 19. júní 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.