Þjóðviljinn - 19.06.1988, Síða 11
Guðríður Ólafsdóttir fulltrúi á skrifstofu Sjálfsbjargar í Reykjavík sýnir hvað fláinn í gangstéttabrúina á
Bjarkargötu þyrfti að ná langt tií þess að geta talist viðunandi I baksýn blaðamaður reynir að komast upp á
gangstéttina. Til bjargar ef illa fer er Hrafn Sæmundsson
Guðríður, Hrafn Sæmundsson og Helgi Hróðmarsson, en þau leiddu blaðamann í allan sannleikann um
hversu erfitt það getur verið fyrirfatlaða að komast inn á útivistarsvæðin í borginni. Hér eru þau að virða fyrir
sér framkvæmdir í Tjarnargötunni, en fyrir handan er ákjósanlegur staður til að fylgjast með fuglalífinu á
Tjörninni. En því miður á hjólastólafólk erfitt með að komast í þá fuglaskoðun.
Það getur kostað gífurleg átök að komast inn í Grasagarðinn í Laugar-
dal. Utilokað er fyrir mann í hjólastól að komast inn í garðinn ef hliöið er
lokað. í raun vantar eitt skilti til viðbótar á hliðið þar sem stæði:
Hjólastólafólk, gerið þarfir ykkar áður en þiö mætið í garðinn.
erum úti að hjóla eða úti að ganga
með barnavagn, þá er mjög þægi-
legt að hafa svona fláa í gangstétt-
arbrúnum. Fyrir fólk í hjólastól
er þetta nauðsyn. Mjög margt af
því fólki getur ferðast um eitt síns
liðs í bílum sem það hefur látið
útbúa, og eru þannig allir vegir
færir. Þess vegna er mjög mikil-
vægt að svona smámunir eins og
fláar á gangstéttarbrúnum séu
sem víðast.
Einn er sá staður í Reykjavík
sem nú er verið að lagfæra, en
hann er fyrir neðan Ráðherra-
bústaðinn í Tjarnargötu, þar er
verið að leggja nýjar hellur og
Iagfæra gangstéttina. Þegar við
vorum þar að kíkja á aðstæður
bólaði ekkert á því að þarna yrði
gangstéttarbrúnin lækkuð til að
hjólastólafólk kæmist inn í þann
litla garð sem er fyrir neðan
Tjarnaborg og býður upp á ágætis
útsýni yfir tjörnina. Einnig þarf
að merkja sérbílastæði fyrir fatl-
að fólk á þessum staö. Væru þessi
tvö smáatriði í lagi, væri það ekk-
ert mál fyrir fatlaðan mann að
rúlla sér inn í þennan garð og
fylgjast með kríunni sem komið
hefur sér fyrir í hólmanum úti í
Tjörninni.
Á leiðinni úr þessum leiðangri
litum við á aðstæður í Nóatúni til
að skoða hvernig hægt er að hafa
umhverfið þannig að það sé
öllum til sóma. Fyrir framan
Hjálpartækjabanka RKÍ og
Sjálfsbjargar eru bæði merkt bíl-
astæði og mjög góður bratti upp á
gangstéttina. Það reyndist ekkert
mál fyrir óreyndan hjólastóla-
mann að renna sér upp á gang-
stéttina þar. Þaðan voru honum
voru svo allir vegir færir hvort
sem hann ætlaði að heilsa upp á
starfsfólk hjálpartækjabankansn
eða fá sér matarbita í nærliggj-
andi veitingahúsi. -sg
Fógetaskrifstofa
Siglufirði
Tilboð óskast í að byggja húsnæði fyrir fógeta-
skrifstofu og lögreglustöð á Siglufirði.
Húsið er tveggja hæða steypt hús, neðri hæð er
294 m2 en efri hæðin 234 m2.
Heildarrúmmál um 1.850 m3
Verkinu í heild skal lokið fyrir 1. október 1989.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borg-
artúni 7, Reykjavík, til og með 24. júní 1988 gegn
10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 5.
júlí 1988 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
Borgartúni 7, sími 26844
Sunnudagur 19. júní 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11