Þjóðviljinn - 19.06.1988, Blaðsíða 15
RNA-
LAÐSÍÐAN
Tilraun
Ef þið fáið blöðru 17. júní getið þið
gert dálitla tilraun. Það sem þarf er
blaðra og smápeningur (t.d. 10
eyringur). Peningurinn er settur inn í
blöðruna, hún blásin upp og bundið
fyrir. Síðan takið þið blöðruna í hönd-
ina og snúið hratt eins og sýnt er á
myndinni. Þá á peningurinn að
„hjóla“ meðfram hliðum blöðrunnar.
Hœttið svo að snúa, og hvað gerist
þá?
Smásagan
Jónsi Jóns í
geimnum með
viðkomu í Afríku
Einu sinni var Jónsi Jóns að ganga um bœ-
inn. Þá sá hann auglýsingu um geimfara og
hann tók starfið. Nœsta dag var hann tilbúinn
í geimfarinu; 10-9-8-7-6-5-4-3-2-1-0 og af
stað. Hann þaut af stað en svo mcetti hann
loftsteinahríð. „Hjálp, mamma mía, ég er að
drepast úr hrœðslu." Pang, „úff, hjálp" bang,
paff, kling, klang. Ha, haa, hann slapp. Hann
lenti í sjónum og það komu svertingjar og
björguðu honum.
„Er ekkert sjónvarp hjá ykkur?"
„Nei, þú ert í Afríku."
„Djöfull er ég í slœmri klípu og klemmu,
getið þið ekki gert við geimflaugina mína?"
„Jú jú, við œttum að geta gert það."
„Jibbí, loksins kemst ég heim."
Björn Þorfinnsson 8 ára
Stafaþraut
Skoðaðu þessar
myndirvel og
reynduaðfinna
út hvaðhlutirnir
eða dýrin heita.
Þegarþú hefur
fundiðþaðtek-
urðu fyrsta staf í
hverju orði og
raðarþejm
saman. Útkom-
anersjöstafa
orð, nafnálandi.
Hér á íslandi eru tveir merkisdagar í júní. Annar
er 17. júní sem var afmcelisdagur Jóns Sigurðs-
sonar. Þá höldum við upp á lýðveldi íslands. Það
var árið 1911 á 100 ára afmœli Jóns sem þessi
dagur var gerður að degi þjóðarinnar, en hann
varð ekki þjóðhátíðardagur fyrr en 1944, við stofn-
un lýðveldisins.
Hinn dagurinn er Jónsmessan eða Jónsmessu-
nótt sem er aðfaranótt 24. júní. Jónsmessa er
kennd við Jóhannes skírara sem á að hafa fœðst
6 mánuðum á undan Jesú. Jónsmessunótt er
stysta nótt ársins þ.e. sólin er lengst á lofti. Sumir
segja að það sé mikinn kraft að finna í náttúrunni á
Jónsmessunótt. Til dœmis það að döggin sem
kemur á grasið sé svo heilnœm að hún lœkni
menn af ýmsum kvillum ef þeir baði sig upp úr
henni. Getur þú fundið hvað er athugavert við þessa mynd? Það eru a.m.k. 9 atriði.
Pað er nú bað
Sunnudagur 19. júní 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15