Þjóðviljinn - 14.07.1988, Qupperneq 17
ÖRFRÉTTTIR
ERLENDAR FRETTIR
Franska ríkisstjórnin
minnihlutastjórn sósíalistans
Michels Rocards, hyggst standa
viö kosningaloforð sín um að
leggja sérstakan auðlegðarskatt
á forríka Frakka. í tilkynningu
stjórnarinnar segir að brátt verði
frumvarp lagt fram á þingi sem
kveði á um að allir sem hafi meira
en fjórar miljónir franka í árstekjur
(29 miljónir fsl. króna) greiði
þennan aukaskatt. Tekjum þess-
um á að verja til þess að bæta
hag atvinnulausra manna. Talið
er að 110 þúsund manns verði
gert að greiða þennan skatt, alls
um fjóra miljarða franka á ári
hverju.
Skynsemi
Dukakisar demókrata eru lítil tak-
mörk sett segja leiðarahöfundar
bandarískra dagblaða. Þeir telja
hann hafa sýnt hyggjuvit með því
að velja Lloyd Bentsen, öldunga-
deildarþingmann frá Texas, í
varaforsetaframboð. En ekki
verði Bentsen til þess að auka
„sjarma framboðsins". Hann er
orðinn 67 ára gamall og þótt
hann hafi verið í broddi fylkingar
þingmanna um árabil er hann
fremur lítt þekktur í guðs eigin
landi. Rætnar sálir staðhæfa að
Dukakis sé kominn með Kenne-
dykomplex. Ætt og óðul beggja
eru í Massachusetts og á sínum
tíma sótti Kennedy varaforseta-
efni sitt til Texas einsog „hertog-
inn“; það var enginn annar en
Lyndon B. Johnson.
Þekktur vísindamaður
sovéskur fer þess á leit við
Kremlverja að þeir sæmi Andrei
Sakharov á ný nafnbótum sínum
og heiðursmerkjum en hann var
sviptur öllu slíku á áttunda ára-
tugnum. Roald Sagdejev er for-
stöðumaður geimrannsókna-
stofnunar Sovétríkjanna. Hann
segir í spjalli við blaðamann
„Moskvufrétta" að allur heimur-
inn hafi fagnað „sigri frjálsrar
hugsunar" þegar Sakharov fékk
að snúa heim til Moskvu í hitti-
fyrra. „Akademíunni var skilað
félaga sínum. En nafnbæturnar
hefur hann ekki fengið.“ Áður en
Sakharov hóf baráttu fyrir al-
mennum mannréttindum á
heimaslóðum var hann mjög
mikils metinn af ráðamönnum.
Það sést best á þvi að eigi sjaldn-
ar en þrisvar var hann útnefndur
„hetjasósíalískrar vinnu“ og oftar
en einu sinni var Lenínorðan fest
á jakka hans.
Ingmar Bergman
er sjötugur í dag. Málsvari Kon-
unglega leikhússins í Stokkhólmi
tjáði fréttamönnum að meistarinn
hygðist fagna þessum tíma-
mótum í faðmi fjölskyldu og ná-
inna vina á eynni Farö en þar á
hann sumarbústað. Þótt „Fanny
og Alexander" hafi verið svana-
söngur kvikmyndaleikstjórans
Ingmars Bergmans er sviðsleik-
stjórinn Ingmar Bergman í fullu
fjöri. (fyrra vakti uppfærsla hans
á „Hamlet" stormandi lukku við-
svegar í Evrópu og í Bandaríkjun-
um. I apríl var útgáfa Bergmans á
meistaraverki Eugenes O'Neills,
„Dagleiðinni löngu inní nótt,“
frumsýnd í Stokkhólmi og hafa
ganrýnendur lokið miklu lofsorði
á þá sýningu. Fyrir nokkru kom út
safnritið „Bergman sjötugur".
Meðal höfunda eru Woody Allen,
Federico Fellini og Akiro Kuros-
awa. Þeim ber öllum saman um
að afmælisbarnið standi sér feti
framar í kvikmyndalist.
Grikkland
Herinn burt 1990
Viðrœður valdhafa íAþenu og Washington um bandarískar herstöðvar í Grikklandi hafa
engan árangur borið. Núgildandi samningur rennur út íárslok
Grískir ráðamenn hafa tjáð
bandarískum kollegum sínum
að hersveitir þeirra verði að
hverfa frá Grikklandi með allt sitt
hafurtask um miðbik ársins 1990.
í bréfi frá ríkisstjórn Grikk-
lands, sem bandaríski sendiherr-
ann fékk í hendur í gær, er mælt
svo fyrir að fjórar megin her-
stöðvar og 20 smærri bækistöðvar
Bandaríkjamanna á Grikklandi
verði lagðar niður frá og með
júnímánuði árið 1990.
Bandaríkjamenn hafa haft
hernaðarbækistöðvar á Grikk-
landi allar götur frá því á önd-
verðum sjötta áratugnum. Nú
eru 3.700 dátar Reagans á grískri
grund. Helstu stöðvar Banda-
ríkjamanna eru hreiður flughers-
ins steinsnar frá Aþenu og hafn-
armannvirki flotans á eynni Krít.
í Washington tóku menn frétt-
um þessum með jafnaðargeði.
Ónefndir embættismenn sögðu
yfirlýsingu Grikklandsstjórnar
ekki skjóta loku fyrir möguleika
á nýjum herstöðvasamningi; hús-
bændur sínir væru áfram unt að
viðræður hæfust hið fyrsta.
Nú er í gildi fimm ára samning-
ur ríkjanna sem rennur út þann
31.desember næstkomandi. Sam-
kvæmt ákvæðum hans verða
bandarísku hersveitirnar að taka
saman föggur sínar og hypja sig
næstu 17 mánuði eftir að hann
fellur úr gildi. Því má vera ljóst að
yfirlýsing grísku stjórnarinnar í
gær hefur trauðla komið banda-
rískum stjórnvöldum í opna
skjöldu.
Þegar sósíalistinn Andreas
Papandreou hófst til valda árið
1981 lýsti hann því yfir að banda-
rískur her yrði gerður brottrækur
frá Grikklandi. Ekki hafði hann
setið lengi í stól forsætisráðherra
Árið 1990 munu allir bandarískir hermenn hverta úr „vöggu vestrænn-
ar menningar."
Sovétríkin
14 Tsjemóbýlslys?
Byggingargallar íöllum sovéskum kjarnorkuverum. Sovéskur
kjarneðlisfrœðingur fyrirfór sér eftir að hafa greintfrá mikilli slysahœttu í
sovéskum kjarnorkuverum
Sovétmenn eiga 14 kjarnorku-
ver af svipaðri gerð og
Tsjernóbýlverið. Til byggingar
allra þeirra var kastað höndum
og í hverju og einu þeirra getur á
hverri stundu orðið „Tsjernó-
býlslys“. Þetta eru skilaboð sov-
éska kjarneðlisfræðingsins Val-
erys Legasovs til landa sinna.
Legasov fyrirfór sér í apríl síð-
astliðnum.
Vikuritið „Moskvufréttir“ birti
í gær viðtal blaðamanns við rit-
höfund nokkurn, Ales Adamo-
vitsj að nafni. Hann kveðst hafa
hitt Legasov að máli í fyrra en þá
lá vísindamaðurinn á sjúkrahúsi.
Þar var hann rannsakaður hátt og
lágt vegna geislunar sem hann
varð fyrir í Tsjernóbýl í hittið-
fyrra.
„Hann greindi mér frá því að
ný ógæfa vofði yfir okkur;
Tsjernóbýl hafi ekki verið nein
undantekning frá reglunni. Við
eigum 14 kjarnorkuver sem öll
eru einsog verið í Tsjernóbýl,"
sagði Adamovitsj.
Legasov var í hópi sérfræðinga
sem voru snimmhendis sendir til
Tsjernóbýl þegar fréttir bárust af
slysinu þar. Hann vann óeigin-
gjarnt starf við erfiðar aðstæður,
að sögn Adamovitsj, og varð fyrir
mikilli geislun. Hin opinbera
skýring á sjálfsmorði hans er sú
að hann hafi þjáðst af þunglyndi
og sektarkennd í kjölfar kjarn-
orkuslyssins; talið sjálfan sig bera
hluta ábyrgðar á ógæfunni.
„Höfuðorsök Tsjernóbýlslyss-
ins er enn fyrir hendi og verður
ætíð fyrir hendi; því fær enginn
mannlegur náttur breytt,“ hefur
Adamovitsj eftir Legasov. „Or-
sök ógæfunnar var sú að kjarn-
orkuverið er hrákasmíð. Við höf-
um aldrei getað og munum aldrei
geta hannað öryggisbúnað fyrir
orkuver af þessari gerð,“ á Leg-
asov ennfremur að hafa sagt.
í maí birti Pravda útdrætti úr
minnispunktum er Legasov
skráði hjá sér skömmu fyrir
dauða sinn. Þar vekur hann at-
hygli á margskonar hönnunar-
göllum í sovéskum kjarnorkuver-
um og telur upp ýmislegt sem bet-
ur megi fara í öryggisbúnaði
þeirra. Hann rekur ennfremur
deilur sínar við skriffinna sem
skelltu skollaeyrum við aðvörun-
um hans. Reuter/-ks.
Enní
Greint var frá því í sovéska
sjónvarpinu í gær að lögregla
hefði lagt hald á vopn í héraðinu
Fjalla-Karabakh. Yfirlýsingu
stjórnráðs héraðsins um að það
segði sig úr lögum við Azerbaid-
sjan var vísað á bug og hún sögð
brjóta í bága við ákvæði stjórn-
skipunarlaga.
Einsog kunnugt er kom
stjórnráð Fjalla-Karabakhs sam-
Fjalla-Karabakh/Artsakh
Azerbaidsjan
an til neyðarfundar í fyrradag,
sagði sig úr lögum við valdsmenn
í Bakú, höfuðborg Azerbaidsjan,
og sór ráðamönnum í Armeníu
hollustu sína. Ennfremur var
nafni héraðsins breytt; Fjalla-
Karabakh hvarf og Artsakh leit
dagsins ljós.
En strax og neyðarfundi
stjórnar „Artsakhs" lauk kom
stjórn Azerbaidjans saman til
íran
neyðarfundar og lýsti ákvarðanir
hreppsnefndarinnar dauðar og
ómerkar. Ríkissaksóknari Fjalla-
Karabaks kom fram í fréttum
sjónvarps í gær og skýrði út fyrir
alþýðu manna hverskonar stjórn-
arskrárbrot stjórnráð Fjalla-
Karabakhs hefði framið. í frétt-
um var einnig greint frá því að
lögregla hefði lagt hald á fjölda
drápstóla í hinu umbitna héraði.
-------------------Reuter/-ks.
Hörfa að yfírlögðu ráði
Nýskipaður yfirmaður írans-
hers, sjálfur Ali Akbar Has-
hemi Rafsanjani, lét í gær svo um-
mælt að undanhald hersveita
sinna að undanförnu væri með
ráðum gert og ætti að færa sönn-
ur á að írakar væru árásarsegg-
irnir í maraþonstríði þjóðanna.
Rafsanjani skýrði frá þessu í
sjónvarpsávarpi, daginn eftir að
íranir hörfuðu frá tveimur víg-
stöðva sinna í írak, Halabja í
norðri og Zubeidat í suðri. íraks-
her hefur mjög vaxið ásmegin að
undanförnu og hefur nú frum-
kvæði á öllum vígstöðvum.
Rafsanjani hefur skýringar á
reiðum höndum á undanhaldi
manna sinna. „Eftir að hafa
grandskoðað stöðu mála var ljóst
að gera yrði ýmsar breytingar á
vígstöðunni. Ein þeirra var
brotthvarf frá Halabja. Aðrar
breytingar hafa verið gerðar og
frekari herflutningar eru fram-
undan.“
Rafsanjani hamraði á því að
fjendur íslömsku byltingarinnar
ólmuðust nú sem trylltir væru og
leggðu meira kapp en nokkru
sinni fyrr á að koma henni fyrir
kattarnef. Því hefði brýna nauð-
syn borið til þess að taka alla her-
stjórnarlist til rækilegrar endur-
skoðunar. „Markmið okkar hef-
ur aldrei verið að vinna land-
svæði.“!
Reuter/-ks.
þegar hann söðlaði um í her-
stöðvamálinu. Árið 1985 samdi
hann við Bandaríkjamenn um
herbækistöðvar og í nóvember í
fyrra hófust viðræður stjórnar
hans og valdhafa í Washington
um nýjan samning. Þær fóru út
um þúfur því Grikkir vildu að í
honum væru ákvæði sem jafngilti
því að Bandaríkjamenn tækju af-
stöðu með þeim í eilífðarrimm-
unni við Tyrki. Slíkt og þvílíkt
tóku Kanar ekki í mál enda hafa
þeir einnig herbækistöðvar í
Tyrklandi!
Reuter/-ks.
Frambjóðendur vestra
Hvonigur
vinsæll
Bandarískir kjósendur virðast
ekki mjög áhugasamir um
forsetakosningar þær sem fram
fara í landi þeirra 8. nóvember
næstkomandi. Ef marka má nýja
viðhorfskönnun.
Af þeim sem áhuga hafa styðja
47 af hundraði fylkisstjórann í
Massachusetts, demókratann
Michael Dukakis, en 39 af hundr-
aði hyggjast greiða George Bush
atkvæði. Hann er sem kunnugt er
repúblikani og staðgengill núver-
andi forseta, hins nafntogaða
Ronalds Reagans. Þetta eru sára-
litlar breytingar frá því snoðlík
könnun var gerð í maímánuði síð-
astliðnum. Þá voru 49 af hundr-
aði á bandi Dukakisar en 39 af
hundraði völdu Bush.
En það sem vekur mesta eftir-
tekt við þessa nýju könnun er að
færri en áður hafa trú á
stjórnvisku og hæfileikum keppi-
nautanna. Aðeins sárafáir telja
Bush og Dukakis réttum hæfi-
leikum búna til þess að sigla
bandarískri þjóðarskútu klakk-
laust um ólgusjó heimsmálanna.
Aðeins 26 af hundraði kjós-
enda bera virðingu fyrir Bush og
kváðu þetta vera minnstu vin-
sældir varaforsetans í manna
minnum. Dukakis virðist njóta
agnarögn meira álits vestra því 28
af hundraði landa hans telja
eitthvað í hann spunnið ef marka
má könnunina.
Reuter/-ks.
Fimmtudagur 14. júlí 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17