Þjóðviljinn - 05.08.1988, Síða 5

Þjóðviljinn - 05.08.1988, Síða 5
Hrunadansinn hafinn. Markaðurinn mettur. Samkeppnin um hylli almenningsog auglýsenda harðari en nokkru sinni. Rekstrarhagræðingar ádagskrá Eftir fjölmiðlaveisluna sem staðið hefur óslitið frá gildistöku nýju útvarpslaganna 1986, virðist hrunadansinn vera um það bil að hefjast. Samfara samdrætti í efnahagslífinu má fastlega gera ráð fyrir að auglýsingamarkaður- inn skreppi saman. Samkeppni fjölmiðla sem byggja tekjuaf- komu sína að talsverðu eða öllu leyti á auglýsingum kemur því óhjákvæmilega til með að harðna frekar en orðið er um leið og það sem er til skiptanna minnkar. Smjörþefinn hafa menn þegar fengið - Helgarpósturinn lagði upp laupana fyrr í sumar og gagn- ger uppstokkun fer í hönd á Bylgjunni. Sprenging Á undanförnum árum hefur mikil gróska verið í fjölmiðlun hér á landi. Eftir afnám einka- réttar Ríkisútvarpsins til útvarps- og sjónvarpssendinga með gildis- töku nýrra útvarpslaga árið 1986, hafa sex útvarpsstöðvar verið settar á fót og ein sjónvarpsstöð. Mikil þensla hefur verið á tíma- ritamarkaðnum og hafin hefur verið útgáfa fjölda nýrra tímarita með almenna efnisskírskotun. Landsmálablöð og héraðsblöð með reglubundna útgáfu hafa þotið upp vítt og breitt um landið. Það er aðeins á dagblað- amarkaðnum sem þessarar út- þenslu hefur ekki orðið vart í sama mæli. Flestum þessum nýju fjölmiðl- um er sameiginlegt að gera að miklu leyti út á einn og sama markaðinn - auglýsingamarkað- inn, sem virðist hafa þannist óð- fluga út á síðustu árum samfara mikilli þenslu í efnahagslífinu. Þótt margir þessara nýju Iand- nema á fjölmiðlamarkaðnum, hafi næsta staðbundna útbreiðslu og séu misjafnlega mikið háðir auglýsingum, er ljóst að sam- keppni um hylli auglýsenda hefur aldrei verið harðari en einmitt nú. Markaðurinn mettur Flest bendir til þesss að fjöl- miðlamarkaðurinn sé þegar mettur hvað fjölda fjölmiðla áhrærir sem gera út á auglýsing- amarkaðinn. Á það jafnt við um ljósvakamiðla sem og dagblöð og tímarit með almenna efnistil- höfðun. Pessa verður ekki hvað síst vart með tvennu: annars vegar ríku- legum tilhneigingum til rekstrar- hagræðingar og hins vegar með því að fjölmiðlar leggja árar í bát. Helgarpósturinn, sem hóf göngu sína 1989 með vikulegri út- komu, fyrst í tengslum við Alþýð- ublaðið og síðan einn og óstudd- ur, er fyrstur til að leggja upp laupana fyrr í sumar. Þá hafði blaðið átt þverrandi gengi að fagna um nokkra hríð og dró á eftir sér skuldahala uppá 14 milj- ónir króna er yfir lauk. Viðlíka sögu má segja af út- gerð ljósvakamiðlanna. fslenska útvarpsfélagið hf. sem gerir út Bylgjuna, hefur orðið að rifa seglin. Fyrst með því að leggja af aðra af tveimur rásum - Ljósvak- ann og nú með því að segja starfs- mönnum á fréttastofu óg dag- skrárgerðarmönnum uþp til að fá svigrúm til skipulagsbreytinga, eins og það heitir á þeim bænum. Þar með rekur engin hinna nýju útvarpsstöðva eiginlega frétta- stofu og fréttaflutningur er látinn Ríksútvarpinu eftir. Hagræðinganna sér vfðar stað. Umræður um samstarf Bylgiunn- ar, Stjörnunnar og Stöðvar 2 hafa farið fram um sameiginlega dag- skrárgerð að hluta og má m.a. sjá ávöxt af því samstarfi í beinum útsendingum Stöðvar 2 og Stjörnunnar frá samkomuhaldi á Hótel fslandi á föstudagskvöld- um. Frjálst framtak - risinn á ís- lenska tímaritamarkaðnum, hef- ur keypt upp keppinauta s.s. Fjölni hf. er gaf út Mannlíf og nú síðast með því að slá saman nokkrum tímaritum í eitt. Svigrúmið á dagblaðamark- aðnum hefur lengi verið tak- markað og hefur sprengingin í Ijósvakamiðlun síst verið til þess að rétta stöðu þeirra blaða sem höllustum fæti stóðu fyrir. Heildarupplag dagblaðanna hef- ur minnkað nokkuð á seinustu árum, eða úr 129.000 eintökum 1979 í 124.000 eintök 1985, eftir stöðuga aukningu næstu 15 árin á undan. Þannig hefur dagblöð- unum ekki tekist að halda í horf- inu hvað útbreiðslu varðar miðað við fólksfjölgun. Árið 1978 voru eintök á hverja 1000 íbúa flest, eða 575 en 1985 voru þau 512. Á undanförnum árum hafa ýmsir orðið til þess, eða haft í hyggju, að spreyta sig við útgáfu dagblaða og vikublaða, en lítt orðið ágengt. Þannig hefur ekk- ert nýtt dagblað skotið rótum, að frátöldum Degi á Akureyri, síðan Dagblaðið sáluga leið undir lok 1983 með því að sameinast sínum svarnasta keppinaut Vísi undir heitinu Dagblaðið - Vísir. Reyndar er Dagur dálítið sér- stæður kvistur meðal dagblað- anna. Þó hann hafi komið út sem dagblað frá 1984 sver blaðið sig meira í ætt við landsmálablað en dagblað á landsvísu. Bæði er að útbreiðsla og efni blaðsins tak- markast f.o.f við Norðurland. Sjá næstu síðu ‘HÖMOPHfcttl*. NÝTT HELGARBLAÐ - ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.