Þjóðviljinn - 05.08.1988, Page 10

Þjóðviljinn - 05.08.1988, Page 10
FOSTUDAGSFRETTIR Gjaldeyrisdeildirnar Utstreymið hafið? Þorsteinn Pálsson: Málefnafátcekt og ábyrgðarleysi Mér finnst þetta hafa aukist núna i dag, og þarf sjálfsagt ekki mikið í viðbót til að ailt fari af stað, sagði einn af yfirmönnum gjaldeyrisdeilda rfldsbankanna í samtali við Þjóðvifjann í gær. Skipan ráðgjafamefndar þar- sem sitja staðfastir gengisfelling- arsinnar þykir benda eindregið til gengisfellingar eftir nokkrar vik- ur, og sögðu viðmælendur Þjóð- viljans í bönkum í gær að þeir hefðu fundið fyrir meiri þunga eftir því sem á vikuna hafi liðið. í fréttum Stöðvar tvö var Þor- steinn Pálsson spurður um fréttir dagblaðanna um nefndarskipun- Forstjóranefndin „Gæti hagsmuna verkafólks“ Eyjólfur K. Sigurjónsson fulltrúi Alþýðuflokks „Þetta er svo nýtilkomið að ég er varla búinn að átta mig á þessu. En það er hinsvegar alveg ljóst að ég mun reyna að tryggja að ekki verði gengið á hagsmuni verkafólks í tillögu gerð nefndar- innar til ríkisstjórnarinnar,“ sagði Eyjólfur K. Sigurjónsson endurskoðandi sem skipaður var í gær af hálfu Aiþýðuflokksins í nýju forstjóranefndina um efna- hagsmál. Nefndin tekur til starfa strax í dag og er stefnt að því að skila tillögum eftir hálfan mánuð. -grh ina og sennilega gengisfellingu í kjölfar hennar, og sagði Þor- steinn fréttir Þjóðviljans um mál- ið bera vott um málefnafátækt, en sakaði DV um ábyrgðarleysi. gís/-m Flugslysið r ■ ■ Kanadískir ser- fræðingar komnir Rannsókn á flugslysinu við norðurenda Reykjavíkurflug- vallar, þegar kanadísk rannsóknavél fórst með þremur mönnum innanborðs, verður nú haldið áfram þar sem sérfræðing- ar frá loftferðaeftirlitinu í Kana- da og framleiðendur vélarinnar eru komnir til landsins. Af hálfu loftferðaeftirlitsins starfa þeir Grétar Óskarsson og Skúli Sigurðsson að rannsókn málsins. Flak vélarinnar var flutt af slysstað í gær en erlendu sér- fræðingarnir halda til á Loft- leiðum. Mennirnir þrír sem fórust voru Kanadamenn og voru þeir á leið til Frakklands í jarðvísindaleið- angur. Vélin var sérstaklega Æt- búin til slíkra rannsókna og fyri- tækið Geoterrex sem átti vélina hafði sent sína reyndustu menn í leiðangurinn. Hjá Flugmálastjóm hefur komið fram að aðflug vélarinnar virtist í alla staði eðlilegt allt þar til hún snérist og féll til jarðar. Myndbönd af ratsjám og upp- tökur af fjarskiptum vélarinnar við flugumferðarstjóm gefa ekki til kynna annað en allt hafi verið með felldu. -gís. Hírósimadagurinn Kertum fleytt á Tjöminni Ídag minnast friðarsinnar um allan heim þess að 43 ár eru nú liðin frá því er Bandaríkjamenn vörpuðu kjarnorkusprengjum á japönsku borgirnar Hírósima og Nagasaki. íslenskir friðarsinnar ætla að safnast saman við Tjörn- ina í Reykjavík í kvöld kl.22:30 og fleyta kertum út á hana á sama tíma og sprengjurnar ógurlegu féllu. Það er Samstarfshópur friðar- hreyfinga á íslandi sem stendur fyrir athöfninni við Tjörnina. Með henni vilja friðarsinnar minnast fórnarlamba árásanna um leið og þeir benda á leiðir til að hindra að slíkur harmleikur endurtaki sig. Friðarhreyfingam- ar leggja áherslu á að stofnuð verði kjarnorkuvopnalaus svæði og að allri kjamorkuvopnafram- leiðslu verði hætt og tilraunir með þau bannaðar. Einnig verð- ur að stöðva vígvæðinguna í höf- unum og eyða þeim kjarnorku- vopnum sem þar em. Stutt dagskrá verður við Tjörn- ina í kvöld áður en kertum verður fleytt og munu þau Viðar Egg- ertsson og María Sigurðardóttir, Ieikarar, lesa ljóð. _gfs. Fótbolti Kvennaþing Hissa á lykla- bömunum Lilja Pétursdóttir: Launamisréttið falið ífríð- indum. Konur verða að sœkja harðarfram. Revía BSRB kvenna vekur mikla hrifningu. Steingrímur kavaléri Stjórnvöld og atvinnurekendur á Islandi viðurkenna ekki rétt kvenna til starfa. Það skortir skilning á jafnrétti og traust á konum, til að gegna yfirmanns- stöðum sem hvaða vanmetakind er falið að gegna ef það er karl- maður, sagði Krístján Thorlací- us, formaður BSRB, eftir fremur dauflegan fund um jafnrétti á vinnumarkaðinum, sem fulltrúar verkalýðsforustunnar á Norður- löndum sóttu. Með Kristjáni í för var Ás- mundur Stefánsson forseti ASÍ og kom meðal annars fram hversu aftarlega við emm varð- andi dagvistun bama, en á meðan atvinnuþátttaka kvenna er um 70% komast aðeins um 11% bama á dagheimili. Danskur fundargestur stóð upp á fundinum og spurði undr- andi hvað við gerðum eiginlega við bömin og svaraði Ásmundur því til að þau fengju lykla um hálsinn ef þau væru orðin um 5 til 6 ára. íslensku konurnar létu ekki mjög á sér bera á fundinum, en meiri baráttuhugur var í hópi norskra kvenna sem gerði tilraun til að hleypa fundinum upp með kröfum um sex, - sex, - sex tíma vinnudag. Þær komu aðvífandi á meðan Kristján var í ræðustól en urðu við tilmælum íslensku kvennanna um að láta af mót- mælum sínum. Eftir fundinn spurði blaða- maður Lilju Pétursdóttur sem sæti á í jafnlaunaráði BSRB um skoðanir hennar á stöðu kvenna á vinnumarkaðinum. - Það hefur auðvitað ýmislegt áunnist, sem dæmi get ég tekið lengingu á fæðingarorlofi og frí vegna veikinda bama en hins vegar er launamisréttið enn mikið og oft á tíðum dulið með fríðindum sem eingöngu karl- menn fá svo sem bílastyrkjum og óunninni yfirvinnu, sagði Lilja. Lilja taldi að konur væru ekki nógu duglegar að sækja eitthvað sér til handa og sagðist vita þess dæmi að konur spyrðu ekki einu sinni um launin áður en þær réðu sig í vinnu en jafnframt batt hún vonir við að þetta ástand væri að breytast núna. Dagskrá íslensku kvennanna hefur vakið mikla athygli á þing- inu. BSRB konur hafa nú þrisvar sýnt revíuna um vinnutíma ís- lenskra kvenna í fjórar aldir. Þó sungið sé á íslensku kemur það ekki í veg fyrir það að konur frá öðrum Norðurlöndum skilji hvaða sögu er verið að segja. Sænskar konur voru svo hrifnar að þær hafa stungið upp á því að BSRB konurnar flytji revíuna í Svíþjóð á kvennaráðstefnu sem haldin verður næsta vor þar í landi. Mikil aðsókn var líka að sýn- ingu leikhópsins Perlunnar frá Bjarkarási og birtist grein um hana í dagblaði því sem gefið er út á kvennaþinginu. í gærkvöldi komu íslensku konurnar á þinginu saman í boði utanríkisráðherra, Steingríms Hermannssonar, sem flaug utan í gær til boðsins, og var glatt á hjalla í mesta kvennakokkteil ís- landssögunnar. ny/iþ Hörð barátta um annað sætið Valur íannað sœtið eftirsigur á Skaganum. Keflvíkingar losna ekki við falldrauginn. Enn tapa Völsungur og Leiftur Fjórir leikir voru í I. deildinni í gærkvöld en vegna landsleiks ís- lendinga og Búlgara á sunnudag var 12. umferðinni flýtt um nokkra daga. Eftir þessa Ieiki hef- ur deildin afmarkast enn frekar og má gjarnan skipta henni í þrennt. Framarar eru sem fyrr lang efstir og eiga leik til góða í þokkabót, en þeir sækja Víkinga heim annað kvöld. Þá koma fimm lið í hnapp, þ.e. Valur, KR, ÍA, Þór og KA og munu þessi lið berj- ast um Evrópusætið sem i boði er. í neðri hluta deildarinnar eru síð- an ÍBK, Vflringur, Leiftur og Völsungur og er ekkert nema fall- barátta framundan hjá þessum liðum. Valur-ÍA.............3-1 (1-0) Leikur þessara fomu fjenda var ekki upp á marga fiska enda aðstæður heldur slæmar á Hlíðar- endavelli. Grasvöllurinn var fljúgandi háll vegna bleytu og ekki hjálpaði stinningskaldi fyrri hálfleiks mönnum að hemja knöttinn. Það leit lengi vel út fyrir að Sævar Jónsson yrði eini marka- skorari leiksins, líkt og gegn Leiftri á dögunum, en það rættist þó úr marksækni leikmanna áður en yfir lauk. Sævar skoraði sumsé fyrsta mark leiksins, en markið gerði hann af stuttu færi á 32. mínútu. Það var svo ekki fyrr en á 79. mínútu að Sigurjón Kristjánsson skoraði annað markið og var það nokkuð skemmtilegt. Atli Eð- valdsson skaust þá inn fyrir vörn Skagamanna og brunaði upp hægri kant. í stað þess að reyna að skora sjálfur gaf hann góða sendingu fyrir markið á Jón Grét- ar Jónsson sem var í upplögðu færi. Ólafur Gottskálksson varði skot hans en boltinn skaust í Sig- urjón og í netið. Sigurjón bætti síðan öðru marki við fjómm mín- útum síðar þegar hann skaut á mark Skagamanna af löngu færi. Ólafur virtist ætla að verja en missti boltann inn fyrir marklín- una. Ólafur Þórðarson minnkaði muninn fyrir Akurnesinga aðeins mínútu síðar með skota af stuttu færi eftir að Guðmundur Bald- ursson hafði varið en misst knött- inn frá sér. Sigur Valsmanna verður að skoðast nokkuð sanngjarn og eru þeir því í öðm sæti deildarinnar. Þór-Leiftur...........2-1 (0-0) Þessi leikur var svo sannarlega leikur hinna glötuðu tækifæra. Þórsarar vom mun betri aðilinn og hefði sigurinn getað orðið enn stærri. Halldór Áskelsson átti sérlega góðan leik með Þórsurum °g byggði hann upp hverja sókn- arlotuna á fætur annarri. í fyrri hálfleik tókst hvomgu liðinu að skora þrátt fyrir aragrúa tæki- færa. Það höfðu ekki liðið nema sjö mínútur af síðari hálfleik þegar Valdimar Pálsson skoraði glæsi- legt mark. Hann fékk boltann á miðjum vellinum og lék í átt að marki Ólafsfirðinga. Eftir að hafa leikið á mann eða tvo lætur Valdimar vaða á markið og skot hans af 25 metra færi hafnar efst í fjærhorninu og algerlega óverj- andi fyrir Þorvald markvörð. Leiftursmenn gáfust ekki upp og á 57. mínútu jafnar Steinar Ingi- mundarson leikinn með marki af stuttu færi eftir að Halldór Guð- mundsson hafði komist inn í sendingu varnarmanns. Besti maður vallarins, Halldór Áskelsson, skoraði svo sigur- mark Ieiksins aðeins þremur mín- útum síðar en þá átti Baldvin markvörður langt útspark, Hlyn- ur Birgisson nikkaði knettinum aftur fyrir vöm Leifturs og eftir- leikurinn var Halldóri auðveldur. Þórsarar hefðu síðan getað bætt við fleiri mörkum en aljt kom fyrir ekki, enda sigur í höfn. ÍBK-KA.............1-1 (0-1) Keflvíkingar glíma enn við falldrauginn eftir þetta, jafntefli og munaði ekki miklu að þeir hefðu tapað leiknum. Anthony Karl Gregory skoraði fyrir KA í fyrri hálfleik og stefndi allt í sigur norðanmanna þar til aðeins tvær mínútur voru til leiksloka. Þá jafnaði Daníel Einarsson fyrir Keflavík með marki beint úr aukaspymu. Völsungur-KR.......1 -3 (0-1) Enn tapa Völsungar og er nú ekki bjart um að litast hjá Hús- víkingum. Björn Rafnsson skoraði fyrsta mark leiksins á 32. mínútu en fleiri urðu mörkin ekki fyrir leikhlé. Pétur Pétursson skoraði síðan mjög snemma í síðari hálfleik með skalla eftir sendingu frá Birni. Á 78. mínútu leiksins skoraði Rúnar Kristins- son þriðja markið með fyrstu snertingu sinni á vellinum, en hann var nýkominn inná sem varamaður. Skömmu síðar minnkaði Jónas Hallgrímsson muninn úr víta- spymu eftir að hann hafði verið felldur innan vítateigs. Sigur KR- inga var hins vegar öruggur og stefna þeir væntanlega ótrauðir á Evrópusætið. Staðan Fram......... 11 10 1 0 23-2 31 Valur........ 12 7 2 3 19-11 23 KR............12 7 1 4 19-13 22 lA........... 12 6 3 3 19-15 21 Fór...........12 4 5 3 15-14 17 KA............12 5 2 5 18-21 17 IBK...........12 2 5 5 14-21 11 Víkingur......11 2 3 6 9-17 9 Leiftur.......12 1 4 7 8-16 7 Völsungur .... 12 1 2 9 7-21 5 -þóm 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN - NÝTT HELGARBLAÐ

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.