Þjóðviljinn - 05.08.1988, Qupperneq 25
BARNAKOMPAN
Umsjón:
KRISTÍN VALSDÓTTIR
ANDRÉS GUÐMUNDSSON
O |0
♦ •
-T
Mynd: Dragðu strik á milli tölustafanna í réttri röð. Byrjaðu á 0 og endaðu á 10.
Þá áttu að fá mynd af...........ja, hvað skyldi það nú vera. Síðan getur þú litað
hana ef þú vilt.
Pappírs
föndur
Hér kemur einföld gerö af
höttum sem t.d. er alveg upp-
lagt að búa til fyrir afmæli. Þar og ef þú átt bara hvítan pappír nú, myndirnar ættu að band eða teygju í hann svo að
er hægt að útbúa þá í öllum þá er bara að Kta hann sjálf- skýrasigsjálfarogþegarhatt- hann haldist á höfðinu.
stærðum úr allskonar pappír (ur). urinn er tilbúinn er bara að fá Góða skemmtun.
Það er nú það
Vissuð þið að júlí og
ágúst heita eftir róm-
verskum keisurum, þeim
Júlíusi keisara og Ágúst-
usikeisara.
Á táknmáli eru mán-
uðirnir sýndir á svoiítið
annan hátt og hér ætlum
við að sýna ykkur hvern- Júlí: Á sennilega að tákna
ig sumarmánuðirnir eru hita Þy' iúlí er oftasí heitastl
% í'ítsnmón mánuður arsins her a norður-
a taKnmau. hvelj jarðar
Júní: Táknið á að sýna
reykinn sem leggur upp af
Jónsmessubálinu, en víða á
Norðurlöndum eru kveikt bál
á Jónsmessunni.
Ágúst: í ágúst tínum við berin
og þetta tákn á að minna okk-
ur á það.
w
I
SVEITINNI
í sveitinni er gaman
þar spila margir
saman.
Beljan mjólkar brátt
því fiðlan spilar hátt.
ÍKringlunniergaman
að hlaupa til og frá.
Þangað fara margir
saman
þótt maður klessi á.
Sigga 9 ára
NÝTT HELGARBLAÐ - ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 25
FLÖSKUSKEYTI
í stríði við síma-
klámið
Árleg velta símakláms í Banda-
ríkj unum er um 110 milj aröar
króna en eitt klámsamtal kostar
um 2.300 krónur. Bandaríska út-
varpsréttarnefndin (FCC) stend-
ur nú í stríði við símaklámkj aft-
ana og hefur bannað símaklám á
milliríkja. Klámkjaftarnirhafa
virt bannið að vettugi og nýlega
úrskurðuðu dómstólar í New
York og Los Angeles að ljósblátt
símaklám væri heimilt á milli
ríkja en gróft klám óheimilt
(hvemig sem þeir ætla nú að
fylgjast meðþví).
Búrhvalurinn
sveltur
Búrhvalurinn er stærstur tann-
hvala. Hann er hjarðdýr, sem lifir
ísuðurhöfum, en karldýrin halda
norður á bóginn eftir að fengi-
tíma lýkur. Aðal fæða búrhvals-
ins eru kolkrabbar. Maginn er
þrískiptur og hafa vísindamenn
fundið leifarnar af 18.000 kol-
kröbbum í meltingarfærum eins
hvals. Búrhvalirnirveiðaþví
meira af kolkröbbum en allur
fiskiskipafloti heimsins. Rann-
sóknir á 200 hvölum sem veiddust
við ísland, áðuren búrhvals-
veiðar voru bannaðar, leiddu í
ljós að margir hvalanna sultu. í
stað kolkrabba virtist steinbítur
vera aðalfæða hvalanna sem
veiddust hér. Sú niðurstaða kom
bresku vísindamönnunum mjög á
óvart. Fram til þessa hefur verið
álitið að karldýrin syntu til
norðurs í leit að ríkulegri fæðu,
en þeir virðast ekki hafa fundið
hana.
Goshætta
í Mexíkó
Það em ekki bara íslendingar
sem óttast gos þessa dagana, því í
Mexíkó bendir allt til þess að eld-
fjallið Colima, sem er í 480 kíló-
metra fjarlægð frá Mexíkóborg,
muni gjósa á næstu árum. Jarð-
fræðingar óttast að gosið verði
það stærsta í vesturheimi síðan að
Saint Helen sprakk í Washing-
tonríki 1980. Um 200 þúsund
manns búa í nágrenni fjallsins og
er óttast mjög um að kröftugt eld-
gos geti grafið byggðina undir
hrauni og ösku. Undanfarnar
aldir hafa skipst á virk og óvirk
tímabil í eldfjallinu Colima og
varir hvert tímabil í um hálfa öld.
Árið 1961 hófst virkt tímabil í
eldfjallinu en síðustu tvö skiptin
sem eldfjallið hefur verið virkt
hefur það endað með mikilli
sprengingu, árið 1818 og 1931.
Jarðfræðingar búast við að sagan
endurtaki sig á næstu 10 til 20
árum. %
Loklok oglæs
Þá er loksins búið að finna upp
lykil sem ekki er hægt að gera
stælingu á. Framleiðendurnir
fullyrða að enginn möguleiki sé
að gera eftirmynd hans. Auk
venjulegra lykilhaka er lykillinn
með tölvustýringu, sem hægt er
að mata á ótal vísu. Lykillinn
gengur bara að einni skrá en
einnig er hægt að mata hann
þannig að aðeins einn maður geti
notað hann. Týnist lykillinn er
hægt að breyta læsingunni á svip-
stundu.