Þjóðviljinn - 25.08.1988, Side 13
ERLENDAR FRÉTTIR
Burma
Verði þinn vilji, þjóð!
Maung Maung afléttir herlögum og boðar allsherjaratkvæðagreiðslu
umframtíðarstjórnskipan
Leiðtogar Burma féllust í gær á
kröfu þjóðarinnar um að efna
til allsherjaratkvæðagreiðslu um
framtíðarskipan mála í landinu,
hvort koma ætti fjölflokka iýð-
ræðiskerfi á laggirnar eða halda
áfram á braut þess „sósíalisma“
og eins flokks kerfis sem verið
hefur við lýði síðastiiðin 26 ár.
Sem kunnugt er tók nýr for-
maður við embætti í hinum ein-
ráða „Sósíalíska framkvæmda-
flokki“ á föstudag í fyrri viku.
Nafn hans er Maung Maung.
Hann kvaðst í gær hafa í hyggju
að kveðja félaga flokksins til
fundar þann 12. næsta mánaðar.
Aðeins eitt mál yrði á dagskrá
hans: Hvort efna ætti til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um stjórnskipan
landsins eður ei.
í útvarpsávarpi sagðist for-
maðurinn leggja embætti sitt að
veði, ef svo færi að þingfulltrúar
höfnuðu málaleitan sinni myndu
hann og félagar hans í flokksfor-
ystunni segja'af sér án tafar.
í fyrra mánuði lögðu þáverandi
forystumenn, Ne Win og sveinar
hans, fram snoðlíkar tillögur á
þingi valdaflokksins. Þeim var
snimmhendis hafnað enda fylgdi
hugur augljóslega ekki máli hjá
Win. í kjölfarið sigldu síðan
gífurlegar mótmælaaðgerðir vítt
og breitt um Burma. Herlögreglu
var skipað að brjóta uppreisnina
á bak aftur og allt að 3.000 manns
létu lífið.
Árla í gærmorgun tilkynntu
stjórnvöld að þau hefðu aflétt
herlögum í landinu. Skömmu síð-
ar flykktust menn tugþúsundum
saman út á stræti og torg og hróp-
uðu: „lýðræði, lýðræði!“
Mótmælendur í Burma hafa frá
öndverðu sett þá kröfu á oddinn
að bundinn verði endi á alræði
„Sósíalíska framkvæmdaflokks-
ins“. Er félögum hans fundið flest
til foráttu af alþýðu manna, þeir
hafi lagt efnahag landsins í rúst og
barið allt andóf niður af skefja-
lausri hörku.
í ávarpi sínu í gær tók Maung
Maung það skýrt fram að hann
væri mjög áfram um að af þjóðar-
atkvæðagreiðslunni yrði og að
niðurstaða hennar yrði sú að
stjórnmálaflokkar fengju að
starfa í lýðræðisskipulagi.
Hann sagði að engir núverandi
broddar í stjórnsýslu, ríkisstjórn
eða dómskerfi myndu gefa kost á
sér í almennum kosningum ef
hugmyndir sínar næðu fram að
ganga.
Reuter/-ks
..og sér hún er voldug og sterk." Þjóðin fékk sínu framgengt.
Pólland/Ungverjaland
„...því aðeins örfáum dögum áður höfðu Brésjnév og Dubcek faðmast
í Bratislava."
Verkamenn ganga til vinnu
ÞóttLech Walesa ogfélagarí Gdanskséu
hvergi afbaki dottnir eru verkföll írénun
Vinnuólguna lægði nokkuð í
Póllandi í gær þótt þúsundir
verkamanna séu enn í verkfalli og
Lech Walesa standi fastur á því
að það sé eina leiðin til þess að
knýja ráðamenn til umbóta. I gær
gerðist það ennfremur að ungver-
skir verkamenn lögðu niður
vinnu um tíma. Slíkt og þvíumlíkt
hefur ekki gerst í háa herrans tíð
þarlendis, eða frá því fyrir upp-
reisnina árið 1956.
Enn sitja um 2.000 hafnar-
verkamenn og starfsmenn skipa-
smiðja í Gdansk með hendur í
skauti enda hefur fyrirliði þeirra,
Lech Walesa, ekki í hyggju að
halda til vinnu í bráð og hvetur
hann vinnufélagana óspart til
þess að fylgja sínu fordæmi.
Walesa ávarpaði félagana í gær
og sagði þá meðal annars þetta:
„Við verðum að knésetja þöngul-
hausana sem leggja stein í götu
okkar og hafa gert þjóðina að
betlaralýð.“
En félagi hans úr Samstöðu,
Adama Misjnik, var fjarri því
jafn herskár. Þegar fréttir tóku
að berast af því að námann í fjór-
um kolanámum í Kadowice og
starfsmenn almenningsvagna í
Szczecin hefðu haldið til vinnu á
ný viðurkenndi hann að svo virt-
ist sem verkfallsbylgjan væri að
renna út í sandinn.
„Verkföllunum virðist vera að
ljúka.“
Verkföllin hófust fyrir níu
dögum og kröfðust verkamenn
þess að Samstaða fengi löghei-
mild til starfa á ný. Frétta-
mönnum og sendiráðsmönnum
að vestan ber saman um að þetta
hafi verið mesta ólga á pólskum
vinnumarkaði frá því herlög voru
sett og verkalýðsleiðtogar hand-
teknir um miðbik desember-
mánaðar árið 1981.
Þær óvæntu fréttir bárust í gær
frá Ungverjalandi að námamenn
lögðu niður vinnu í mótmæla-
skyni við nýja tekjuskatta. Þótti
þeim ríkið rýra kaup sitt meira en
góðu hófi gegndi með þessum
nýju álögum. Ráðamenn í Bú-
dapest virðast til muna sáttfúsari
en kollegar þeirra í Varsjá því
þeir brugðu skjótt við og gengu
að kröfum verkfallsmanna.
Reuter/-ks.
6 sovéskir blaðamenn
Draga lærdóm
af Tékkó ‘68
Voru allir fréttaritarar sovéskrafjölmiðla í
Pragfyrir réttum tuttugu árum
Sovéska vikuritið „Moskvu-
fréttir“ birti í gær umræður
nokkurra sovéskra blaðamanna
um innrásina í Tékkóslóvakíu
fyrir 20 árum. Voru þeir á einu
máli um að slíkur atburður mætti
alls ekki gerast á ný og að virða
bæri í hvívetna sjálfsákvörðun-
arrétt þjóða.
Sex blaðamenn tóku þátt í
„hringborðsumræðunum“ en
þeir eiga það allir sameiginlegt að
hafa verið fréttaritarar sovéskra
fjölmiðla í Prag vor, sumar og
haust árið 1968.
Sexmenningarnir sögðust allir
hafa dregið merkar ályktanir af
atburðunum í Tékkóslóvakíu.
„Við megum ekki láta það óátal-
ið að menn vaði í villu og svíma
um ágæti þess að gera út her til
þess að leysa pólitísk vandamál
annarra," sagði Míkhaíl Poljak-
ov, blaðamaður tímaritsins
„Vandi friðar og sósíalisma."
„Sagan mun ekki draga fjöður
yfir afglöp okkar.“
Vinnufélagi Poljakovs, Vla-
dimir Lukin, tók í sama streng,
og staðhæfði að ekkert gæti rétt-
lætt það gerræði að valdamenn í
einu sósíalísku ríki áskildu sér
rétt til þess að grípa fram fyrir
hendurnar á kollegum sínum í
öðru sósíalísku ríki.
„Ef við höfum þetta grundvall-
aratriði að leiðarljósi þá er næsta
víst að atburðirnir frá árinu 1968
munu ekki endurtaka sig enda
hafa allir sem hlut áttu að máli
lært sína lexíu,“ sagði Lukin.
Alexander Didusenko, blaða-
maður dagblaðs verkalýðsfélag-
anna, Trud, lýsti ringulreiðinni
og örvæntingu Tékka þegar
skriðdrekar Varsjárbandalagsins
skröltu hver á fætur öðrum inní
Prag aðfaranótt 21. ágúst.
„Fáklætt fólk streymdi út úr
húsum, enginn virtist botna upp
né niður í því sem var að gerast
því aðeins örfáum dögum áður
höfðu Brésjnév og Dubcek faðm-
ast í Bratislava.“
Didusenko skýrði frá því að
hann og sovéskir kollegar hans í
Prag hefðu fylgst grannt með þró-
un mála um vorið og sumarið
1968, séð hvernig „mótsagnirnar
uxu jafnt og þétt en við máttum
ekki greina frá neinu.“
Blaðamennirnir sex voru á
einu máli um að mistök fyrri vald-
hafa hefðu gefið umbótahrey-
fingu Dubceks byr undir báða
vængi, mistök sem væru af sama
toga og þau sem gerð voru í So-
vétríkjunum á „stöðnunar-
skeiðinu“, valdatíma Brésjnévs.
Reuter-ks.
Amnesty
Ofsóknir
í Chile
Pinochet við sama
heygarðshornið
Félagar mannréttindasamtak-
anna Amnesty International
herma að ýms leynifélög á vegum
stjórnvalda í Chile ofsæki stjórn-
arandstæðinga í stórum stíl.
Mörg hundruð menn hafi fengið
morðhótanir, öðrum sé rænt og
þeir látnir sæta pyntingum.
í nýrri skýrslu A.I. um rétt og
réttleysi manna í ríki Pinochets
segir að ofsóknir á hendur hvers-
kyns meintum stjórnarandstæð-
ingum hafi aukist mjög undan-
farna 18 mánuði. Kveði svo
rammt að ofbeldisaðgerðum
ráðamanna að helst minni á á-
standið um miðbik áttunda ára-
tugarins þegar herstjórnin fór
hamförum og lét handtaka og
myrða a.m.k. 700 manns. Nú séu
það ekki lengur opinberir starfs-
menn (leynilögreglan) og her-
menn sem ofsæki fólk heldur fé-
lagar í ýmsum heimullegum klík-
um. Grunur leiki þó á að pöru-
piltarnir séu hermenn eða lög-
reglumenn á frívakt.
I skýrslunni stendur: „Öll um-
svif þessara hópa, starfsaðferðir
þeirra og sú staðreynd að yfirvöld
lyfta ekki litla fingri til þess að
reyna að hafa hendur í hári
þeirra, allt þetta bendir ótvírætt
til þess að þeir vinni sín verk með
fullu samþykki ríkisvaldsins."
Reuter/-ks.
J
Fimmtudagur 25. ágúst 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13