Þjóðviljinn - 08.11.1988, Síða 13
ERLENDAR FRÉTTIR
Bush, Dukakis og dæmigert bandarískt flokksþing - það getur orðið mjótt á mununum.
Bandarísku forsetakosningarnar
Dukakis i sokn
Innanríkismál vega þyngra en utanríkismál
Idag, þriðjudaginn 8. nóv.,
ganga Bandaríkjamenn að
kjörborðinu og kjósa sér forseta
og varaforseta til næstu fjögurra
ára. Jafnframt er kosið í öll 435
þingsæti fulltrúadeildar Banda-
ríkjaþings og í þriðjung 100 sæta
öldungadeildar þingsins. Enn-
fremur er kosin tylft ríkisstjóra,
en þeir eru alls 50.
En það eru auðvitað kosning-
arnar til forsetaembættisins, sem
mesta athygli vekja. Niðurstöð-
um síðustu skoðanakannana fyrir
kosningarnar ber ekki saman, en
helst er þó á þeim að sjá að Mic-
hael Dukakis, ríkisstjóri í Mass-
achusetts og frambjóðandi dem-
ókrata, sé í nokkurri sókn. Sam-
kvæmt niðurstöðum einnar
könnunar er George Bush, vara-
forseti og frambjóðandi repú-
blíkana, nú aðeins fimm pró-
sentustigum fyrir ofan keppinaut
sinn í fylgi.
Hvorugur frambjóðendanna
dró af sér í lokahrinu kosninga-
baráttunnar, sem hefur verið
venju fremur illvíg og frekar snú-
ist um persónur frambjóðenda en
málefni. Dukakis var allhress síð-
ustu dagana vegna þess að kosn-
ingaspár tóku þá að snúast hon-
um í vil og beindi óspart spjótum
sínum að andstæðingnum þar
sem hann var hvað veikastur
fyrir, það er að segja að varafor-
setaefni repúblíkana, Dan Qua-
yle. Hann hefur ekki gengið í
augun á kjósendum og upp á síð-
kastið hafa repúblíkanar reynt að
láta eins lítið á honum bera og
mögulegt hefur verið. Dukakis
hamraði mjög á því í gær að
Bandaríkin hefðu „ekki efni á
þeirri áhættu“ að fá kannski Qua-
yle yfir sig sem forseta.
í Bandaríkjunum eru það yfir-
leitt innanlandsmálin, sem skipta
mestu í kosningum, og svo er það
í þetta sinn. Bush heldur því stíft
fram að skattalækkunarstefna
Reagans hafi innleitt tímabil vel-
sældar og auðlegðar, heitir því að
leggja ekki á neina nýja skatta og
leggur til að ríkisútgjöld séu
fremur lækkuð en hækkuð. Með
því móti verði hægt að minnka
hallann á fjárlögum. Dukakis
segir efnahagsmálastefnu Reag-
ans helst hafa komið þeim ríku til
góða, lofar að hindra brask og
heitir harðari stefnu í utanríkis-
verslun. í varnarmálum vill Bush
halda áfram stefnu Reagans í
flestum atriðum, þar á meðal
framþróun varnarkerfis þess úti í
geimnum, sem kallað hefur verið
„stjörnustríðskerfið“. Dukakis
vill draga mjög úr útgjöldum til
þess kerfis og hætta alveg við
smíði nýrra kjarnaeldflauga af
gerðunum MX og Midgetman.
Hann kveður bæði Bandaríkin og
Sovétríkin hafa nóg af kjarnorku-
vopnum, sem er víst hverju orði
sannara, og segist í staðinn vilja
efla þann hluta hers Bandaríkj-
anna, sem væddur er svokölluð-
um venjulegum vopnum.
Bush segist ætla að hitta Gor-
batsjov Sovétleiðtoga að máli
sem fyrst, verði hann kosinn, en
vill meina að kalda stríðinu sé
ekki lokið og fullyrðir, að stefna
Gorbatsjovs um fækkun kjarna-
vopna sé að þakka kjarnavopna-
vígbúnaðarstefnu Reagans. Duk-
akis telur hinsvegar að efnahags-
legar ástæður heima fyrir hafa
valdið mestu um stefnu Gorbat-
sjovs á þessum vettvangi. Dukak-
is er öllu harðari gagnvart Suður-
Afríkustjórn en Bush, sem er
þeim mun harðari gagnvart Ník-
aragva og ekki frá því að halda
áfram fjárstuðningi við contrana.
Dukakis vill hinsvegar ekki
styðja þá og aðhyllist svokallaða
Arias-áætlun (kennda við forseta
Kostaríku með því nafni) um frið
í Mið-Ameríku. Frambjóðend-
urnir eru á hinn bóginn sammála
um að halda áfram fullum stuðn-
ingi við ísrael. dþ
Bretland
Hvítflibbar skrópa
Opinberir starfsmenn lögðu niður vinnu ígœr vegna ofríkis
járnfrúarinnar
úsundir hvítflibba í þjónustu
hennar hátignar sátu heima í
gær með hendur í skauti. Þúsund-
ir kollega þeirra héldu sig sömu-
leiðis fjarri vinnustöðum en
þrömmuðu hinsvegar um götur
borga og bæja og fjölmenntu á
baráttufundi í stað þess að húka
heima. Allir voru þeir að mót-
mæla valdníðslu ráðamanna,
brottrekstri fjögurra „leyniþjón-
ustumanna“ fyrir þær „sakir“
einar að vera í stéttarfélagi.
Hafnir, fangelsi, dómstólar og
pósthús voru í lamasessi eða sem
næst því vegna fjarveru opinberu
starfsmannanna. 80 prósent fé-
lagsmálaskrifstofa stóðu auðar.
Allt sök tvennra öflugustu BSRB
á Bretlandseyjum sem efnt höfðu
til sólarhrings vinnustöðvunar.
Verkfallið er nýjasta nýtt í
fjögurra ára rimmu samtaka op-
inberra starfsmanna og ríkis-
stjórnar Margrétar Thatchers.
Þannig er mál með vexti að járn-
frúin lét það boð út ganga árið
1984 að það væri óhæfa að „leyni-
þjónustumenn“ (samkvæmt skil-
greiningu forsætisráðherrans)
væru félagar í stéttarfélögum. Því
skyldu þeir tafarlaust segja skilið
við vafasaman félagsskap en
hljóta bágt fyrir ella.
Ofannefndir fjórmenningar
starfa í Fjarskiptastöð ríkis-
stjórnarinnar (GCHQ). Þeir létu
hótanir Thatchers sem vind um
eyrun þjóta og voru reknir frá
störfum.
Verkamannaflokkurinn styður
verkfallsmenn. Neil Kinnock
ávarpaði í gær samkomu í Lund-
únum þar sem saman voru komn-
ir 2.500 opinberir starfsmenn.
Hann spurði í forundran hví for-
sætisráðherrann hefði tungur
tvær og talaði sitt með hvorri,
annarri í Póllandi en hinni á
heimaslóðum. Thatcher væri
haukur í horni pólskra verka-
manna en óskaplega fjandsamleg
breskum verkalýð.
„Við teljum það ofur eðlilegt
að boðberar samstöðu og kær-
leika hefjist handa á heimaslóð-
um þar sem mikið verk er að
vinna áður en þeir leggja land
undir fót og fara í trúboðs-
leiðangur til Póllands. Það er gott
og blessað að krefjast frelsis til
handa íbúum Gdansk en vita-
skuld óska starfsmenn GCHQ
slíks hins sama.“
Reuter/-ks.
Til framtíðar
Menntamálaráðuneytið og Samband ísl.
sveitarfélaga gangast fyrir ráðstefnu um
æskulýðs- og félagsstörf 11. nóvember
1988 í Borgartúni 6 kl. 13.15.
Ráðstefnan er opin öllum þeim sem
áhuga hafa á þátttöku í félagsstarfi æsku-
fólks.
Dagskrá
Kl. 12.30. Skráning þátttakenda og afhending
pappíra í Borgartúni 6.
Kl. 13.15 Setning, ávarp: Svavar Gestsson,
menntamálaráðherra.
Uppeldishlutverk heimilanna: Sigríður Ing-
varsdóttir héraðsdómari, formaður Barnavernd-
arráðs íslands.
Grunnskóli: Pétur Þorsteinsson, skólastjóri,
Kópaskeri.
Æska og atvinnulif, við hvað vinnum við í
framtíðinni?: Páll Kr. Pálsson, forstjóri Iðn-
tæknistofnunar.
Tölvur/gagnabankar: Halldór Kristjánsson
verkfræðingur.
Æska og fjölmiðlar: Dr. Jón Óttar Ragnarsson
sjónvarpsstjóri.
Hreyfing og næring: Kristín Sigfúsdóttir, fram-
haldsskólakennari, Akureyri.
Æska og íþróttir: Jóhann Ingi Gunnarsson, sál-
fræðingur og íþróttaþjálfari.
Æskulýðs- og félagsstörf, framtíðarsýn:
Brynja Guðjónsdóttir skátaforingi, Gunnar Jóns-
son, formaður æskulýðsráðs Akureyrar, Jó-
hanna Leópoldsdóttir skrifstofustjóri.
Ráðstefnuslit: Sigurgeir Sigurðsson bæjar-
stjóri, form. Sambands ísl. sveitarfélaga.
Ráðstefnustjórar: Elís Þór Sigurðsson, íþrótta-
og æskulýðsfulltrúi, Akranesi, Guðjón Arngríms-
son fréttamaður.
Að loknum erindum verður kaffihlé. Þá verður
þátttakendum skipt í umræðuhópa, er ræða er-
indin og koma með hugmyndir og ábendingar.
Að því loknu verður farið í heimsóknir til UMFÍ, ÍSÍ
og í Skátahúsið. Þar verður aðstaða skoðuð og
sagt frá starfseminni. Þaðan verður farið aftur í
Borgartún 6, þar sem kvöldinu lýkur með sam-
eiginlegu borðhaldi.
( tengslum við ráðstefnuna verður haldið nám-
skeið fyrir félagsforystufólk í Borgartúni 6 laugar-
dag 12. og sunnudag 13. nóvember.
Skráning þátttakenda á ráðstefnuna og nám-
skeiðið er á skrifstofu Sambands ísl. sveitarfé-
laga í síma 91-83711.
Allar nánari upplýsingar fást hjá Sambandi ísl.
sveitarfélaga og menntamálaráðuneytinu,
íþrótta- og æskulýðsmáladeild, sími 91-25000.
LANDVERND
Aðalfundur Landverndar verður haldinn á Hótel
Sögu í Reykjavík 26. og 27. nóvember.
Auk aðalfundarstarfa verða mengunarmál tekin
til umfjöllunar.
Aðildarfélög fá dagskrá fundarins senda í pósti
innan skamms.
Stjórnin.
fcETTA
EB. BKKIHÆGT
ll
UMFERÐAR
RÁÐ
Þriðjudagur 8. nóvember 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13