Þjóðviljinn - 19.11.1988, Síða 3
Refsiverður
Misskiln-
ingur
George Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna segist
harma þann misskilning sem upp
hafi komið í hvalamálinu á milli
íslendinga og Bandaríkjamanna.
Sendiherra Bandaríkjanna af-
henti Jóni Baldvin Hannibalssyni
utanríkisráðherra bréf frá Shultz
og þar er lýst þeirri von að hægt sé
að komast að samkomulagi um
framtíðarlausn málsins. Fulltrúar
bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins og íslenska sendiráðsins í
Washington munu eiga fund í
þessum mánuði þar sem gerð
verður frekari grein fyrir afstöðu
Bandaríkjanna. -hmp
Menningarsjóður
Saga
hafrann-
sókna
Komið útfyrsta
bindi
Hafrannsókna við
Island eftirJón
Jónsson,
fiskifræðing.
Elsta heimild úr
Snorra-Eddu
r
Eg vildi heldur skrifa bók en
reikninga sem forstjóri
Hafrannsóknastofnunar og þeg-
ar ég lét af þeim störfum 65 ára
gamall hóf ég vinnu við þessa
bók. Ég hef alltaf haft mikinn
áhuga á sögu samhliða fiski-
fræðinni og vildi ógjarnan að
það tapaðist sem gert var hér á
árum áður, enda tel ég mig vera
ákveðinn hlekk á milli frum-
kvöðlanna, þeirra Bjarna
Sæmundssonar, Árna Friðriks-
sonar og nútímans,“ sagði Jón
Jónsson fiskifræðingur.
í gær kom út hjá Menningar-
FRÉTTIR
Hvalveiðar
Mótmæli í 50 borgum
Viðskiptaaðilar íÞýskalandi biðja um að nafn íslands verði tekið af umbúðum. Grænfriðungar
með hvalaútfarir íþýskum borgum ídag. Bresk verslanakeðja hætt að selja íslenskanfisk
Grænfriðungar verða með mót-
mæli gegn hvalveiðum Islend-
inga í 50 þýskum borgum í dag.
Upplýsingabásum verður komið
fyrir í miðborgum og borðar
strengdir þar sem skorað er á fólk
að sniðganga íslenskar vörur.
Viðskiptaaðilar íslands í Þýska-
landi fara fram á það í vaxandi
mæli að hætt verði að taka fram á
umbúðum að varan sé frá Islandi.
Hjá Grænfriðungum í Ham-
borg fengust þær upplýsingar að
markmiðið með aðgerðunum í
dag væri að fræða fólk um hval-
veiðar íslendiriga og hvetja það
til að hætta að kaupa íslenskar
vörur. Hvalavökur verða í 50
borgum landsins og í Hamborg á
að fleyta uppblásnum hval á Last-
ervatni. Iriana Godberg hjá
Grænfriðungum sagði í gær að
samtökin vonuðust til að þessar
aðgerðir fengju íslenska
stjórnmálamenn til að hætta
hvalveiðum.
Theodór Halldórsson fram-
kvæmdastjóri Sölustofnunar
Lagmetis segir það gífurleg von-
brigði að stjórnvöld skuli ekkert
hafa gert til að koma málstað ís-
lands á framfæri. Það væri líka
óskemmtilegt ef taka þyrfti „ís-
land“ af umbúðum íslensks lag-
metis vegna þess að það hefði svo
neikvæða merkingu. En kaup-
endur íslensks lagmetis í Þýska-
landi fara í vaxandi mæli fram á
þetta. Theodór sagði Þjóðviljan-
um að slík ósk hefði síðast borist
frá stórum kaupanda á
fimmtudag.
Martin Lewen hjá Grænfrið-
ungum í Englandi sagði að versl-
anakeðjan Tesco væri hætt að
versla með íslenskan fisk. Þrá-
kelkni íslendinga væri illskiljan-
leg, sérstaklega þegar haft væri í
huga að hvalveiðar væru búnar
að vera sem atvinnugrein, al-
menningur væri á móti hval-
veiðum og það væri því enginn
markaður fyrir hval í framtíðinni.
-hmp
Vinir og samstarfsmenn Jóns Jónssonar, fiskifræðings og fyrrum
forstjóra Hafrannsóknastgfnunar, samgleðjast honum við útkomu 1.
bindis Hafrannsókna við ísland. F.v. Ingvar Hallgrímsson, Sigfús A.
Schopka, Jón Jónsson, Jakob Jakobsson, Ölafur Ástþórsson,
Svend Aage Malmberg, Þórunn Þórðardóttir, Sigurður Gunnarsson
og Hrefna Einarsdóttir. Mynd: ÞÓM.
sjóði fyrsta bindi Hafrannsókna
við ísland eftir Jón Jónsson,
fiskifræðing og fyrrum forstjóra
Hafrannsóknastofnunar. í bók-
inni er saga hafrannsókna hér-
lendis ítarlega rakin frá önd-
verðu til 1937 í máli og myndum
sem margar hverjar birtast hér í
fyrsta sinn. Bókin var 3 ár í
smíðum og er höfundur langt
kominn með annað bindið.
í upphafi bókarinnar greinir
höfundur frá hinum ýmsu skrif-
um íslenskra og erlendra höf-
unda um fiska og aðra sjávarbúa
og lífríki hafsins kringum landið
í fornum ritum, og er þar mikill
fróðleikur saman dreginn. í
hafrannsóknaþætti útlendinga á
19. öld er hlutur Dana og Norð-
manna fyrirferðarmestur uns
Bjarni Sæmundsson kemur til
starfa að loknu námi. Smá sam-
an verða rannsóknir þessar um-
fangsmeiri og vísindalegri og
hlutúr íslendinga vex að mun,
einkum eftir að Fiskifélag ís-
lands ræður Árna Friðriksson í
þjónustu sína skömmu fyrir
síðari heimsstyrjöldina.
Aðspurður um elstu heimildir
um hafrannsóknir hér við land
sagði Jón Jónsson að í Snorra-
Eddu væri getið um nöfn 56 fisk-
tegunda og af þeim notuðum við
enn nöfn 26 þeirra. -grh
LIU
Þorsteini klappað á kjammann
Efnahagsstjórnfyrri ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar og
ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar harðlega gagnrýnd. Stuðningur við
hvalveiðistefnuna og hvatt til meirifiskfriðunar en verið hefur
Icfnahagsályktun aðalfundar
Landssambands íslenskra út-
vegsmanna sem lauk í gær eru
fyrri ríkisstjórn Stcingríms Her-
mannssonar og ríkisstjórn Þor-
stcins Pálssonar harðlega
gagnrýndar fyrir að hafa klúðrað
góðærinu í sjávarútveginum í
hrikalegan taprekstur.
Orðrétt segir í efnahagsálykt-
un útvegsmanna: „í því góðæri,
sem ríkti síðastliðin ár, var haldið
þannig á málum að afraksturinn
var tekinn af sjávarútveginum
með því að halda föstu gengi
meðan hömlulausar innlendar
kostnaðarhækkanir viðgengust,
svo sem verð á þjónustu banka,
iðnaðarmanna og olíufélaga. Nú
þegar sjávarútvegurinn þarf að
mæta óhagstæðum ytri skilyrðum
um tíma er ekkert eftir í fyrir-
tækjunum til að brúa bilið.“
Aðalfundurinn krefst þess að
rekstrargrundvöllur atvinnu-
greinarinnar verði leiðréttur og
hafist verði handa um þá upp-
stokkun í þjóðfélaginu sem
nauðsynleg er til að hægt verði að
spyrna við ört vaxandi tilkostnaði
í landinu.
Auk þess lýsti aðalfundurinn
yfir stuðningi við stefnu
stjórnvalda í hvalveiðimálinu,
við ákvörðun sjávarútvegsráð-
herra um skerðingu aflamagns á
botnfisktegundum á næsta ári,
við óbreyttar reglur um úthlutun
veiðileyfa og að haldið verði fast
við núgildandi reglur varðandi
endurnýjun fiskiskipa.
Aðalfundurinn telur æski-
legast að engar hömlur séu á ís-
fiskútflutningi en í ríkjandi á-
standi sé nauðsynlegt að fylgjast
vel með markaðsaðstæðum á er-
lendum mörkuðum og að leyfi til
útflutnings verði veitt í samræmi
við þær næstu 3 mánuði. Útvegs-
menn telja að hin mikla ásókn í
ísfiskútflutning sé vegna lokana
margra fiskvinnslufyrirtækja sem
geri þeim erfitt fyrir að losna við
aflann hér heima, en viðurkenna
að hluti skýringarinnar sé jafn-
framt von um meiri gróða með
því að selja aflann erlendis.
Þá hafnaði aðalfundurinn
alfarið öllum framkomnum hug-
myndum um sölu veiðileyfa.
Fundurinn lýsti yfir miklum
áhyggjum af því hvernig þorsk-
stofninn hefði verið nýttur og
lagði til að friðuð yrðu stór svæði
til langframa, bæði á uppeldis- og
hrygningarstöðvum þorsksins.
Þá hvatti fundurinn til þess að
Hafrannsóknastofnunin yrði efld
frá því sem nú væri og tók undir
það að sett yrði hámark á grálúð-
uafla sóknarmarkstogara.
Kristján Ragnarsson var
endurkjörinn formaður LÍÚ en
aðrir stjórnarmenn eru þeir Finn-
ur Jónsson Stykkishólmi, Ingi-
mar Halldórsson Súðavík, Pétur
Stefánsson Reykjavík, Sverrir
Leósson Akureyri og Gunn-
laugur Karlsson úr Keflavík.
-grh
Skattur
Sömu kortin áfram
Nú er til athugunar hjá ríkis-
skattstjóra hvort nota eigi
skattkort ársins í ár aftur á næsta
ári.
Skúli Eggert Þórðarson, for-
stöðumaður staðgreiðsludeildar,
segir að samkvæmt lögum beri að
gefa út ný skattkort fyrir árið
1989. Lagabreyting þurfi því að
koma til ef nota eigi sömu kortin
aftur.
Einnig hefur verið rætt um það
hjá ríkisskattstjóra að gefa út
eilífðarskattkort. Skúli sagði
þetta einungis vera á umræðu-
stigi. -hmp
Orlof
Óánægja
meöal
Nýju orlofslögin hegna
þeim sem þurfa að vinna
með námi. Fá ekki
orlofið útborgað nema
við starfslok
Megn óánægja er meðal skóla-
fólks, og þá sérstaklega þeirra
fjölmörgu sem þurfa að vinna
með námi, með nýju orlofslögin
sem tóku gildi þann 1. maí í ár.
Samkvæmt þeim fær það ekki or-
lofið útborgað nema að atvinnu-
rekandi votti starfslok þess.
Að sögn Jóns Magnússonar,
forstöðumanns Póstgíróstofunn-
ar, var nægjanlegt fyrir gildistíma
nýju laganna að skóli vottaði með
stimpli sínum að viðkomandi
væri í skóla til að hann fengi orlof
sitt útborgað í desember. Þá
skipti engu máli þótt námsmað-
urinn ynni með náminu eða ekki.
Þetta kemur sé afar illa fyrir þá
fjölmörgu sem höfðu reiknað
með orlofsgreiðslum sínum fyrir
þessi jól eins og venjulega.
-grh
Laugardagur 19. nóvember 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3