Þjóðviljinn - 29.11.1988, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 29.11.1988, Blaðsíða 5
FRETTIR Geir Gunnlaugsson: Alþýðufl- okkurinn skuldar um 9 miljónir. Kristján Valdimarsson: Alþýðu- bandalagið skuldar 2-3 miljónir. Kjartan Gunnarsson: Fjárhags- staða Sjálfstæðisflokks er erfið. Stjórnmálaflokkar Ingibjörg Hafstað: Kvennalistinn Sigurður Geirdal: Framsóknar- er skuldlaus frá 1. okt. flokkurinn er líka blankur. Stjómmál á tímamótum * Fjárhagsstaðaflokkanna erfið nema hjá Kvennalista. Almenn samstaða virðist Fjárhagsstaða stjórnmála- flokkanna hefur verið nokkuð í sviðsljósinu, eftir að fráfarandi framkvæmdastjóri Alþýðuflok- ksins, Geir Gunnlaugsson, skýrði frá erfiðri stöðu Alþýðuflokksins á þingi flokksins. Alþýðuflokkur- inn er í lang erfiðustu stöðunni miðað við heimildir Þjóðviljans. Geir segir flokkinn skulda um 9 miljónir króna og er stærsti hluti þeirra skulda vegna síðustu al- þingiskosninga. Þessi staða Alþýðufíokksins vekur upp spurningar um hvernig kosningabaráttu skuli háttað í landinu. Eiga flokkarnir eftilvill að gera með sér samkomulag um það hversu miklum fjármunum skuli varið í auglýsingar eða á að tryggja þeim ákveðnar tekjur. Eins og er fá flokkarnir engin bein fjárframlög frá ríkinu, en hafa samið við stofnanir eins og Póst og síma um afslátt á símagj- öldum í kosningum. A Norður- löndunum eru stjórnmálaflokk- unum hins vegar tryggðar tekjur, þó reglur þar að lútandi séu mis- jafnar. Erf itt hjá nær öllum í viðræðum við framkvæmda- stjóra og gjaldkera flokkanna kom í ljós að fjárhagsstaðan er erfið hjá nær öllum, þó menn hafi borið sig misjafnlega mannalega. Kjartan Gunnarsson fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks- ins segir að fjárhagsstaða flokks- ins sé erfið enda hafi síðustu al- þingiskosningar verið flokknum dýrar. Hann vildi þó ekki gefa upp neinar tölur varðandi skuldir flokksins en sagði ástandið oft hafa verið verra í þeim efnum. Þessu væri mætt með því að draga úr allri starfsemi sem kostaði peninga. Happdrætti flokksins hefur reynst honum rýrnandi tekjulind en allir stjórnmála- flokkarnir hafa notað þessa fjárö- flunarleið. Framkvæmdastjóri Framsókn- arflokksins, Sigurður Geirdal, segir flokkinn blankan en hann skrimti eins og alltaf. Hann segir happdrætti flokksins hafa reynst honum trygg tekjulind og þakk- aði það góðu skipulagi, þar sem aðferðin „maður á mann“ hefði verið notuð. Það er þó að heyra á Sigurði að hann óttist það fyrst nú að draga kunni úr vilja flokks- manna til happdrættismiða- kaupa. AB skuldar nær 3 miljónir Alþýðubandalagið skuldar 2-3 flokksins og þegar menn fara að ræða þessi mál koma eflaust upp ólíkar hugmyndir um fram- kvæmdina, hverjir eigi að fá styrki og hve mikið. A flokkur sem nær engum manni inn á þing að fá styrk og eiga styrkir að fara Framkvæmdastjórar flokkanna segja þá hafa úr smáaurum að spila og þurfi mun meiri tekjur. Flestir vilja að flokkunum verði tryggðar ákveðnar tekjur á fjárlögum. vera um það að tryggja beri flokkunum tekjur miljónir króna. Flokkurinn hélt landsfund sinni í fyrra og ofan á kostnaðinn vegna hans bættist síðan kostnaðurinn við alþingisk- osningarnar. Kristján Valdi- marsson framkvæmdastjóri flokksins segir stöðuna verri en hún hefur verið og segist ekki reikna með að flokkurinn nái að greiða skuldirnar niður á þessu ári. Hann segir það alvarlegt mál ef stjórnmálaflokkarnir fari með háar skuldir frá fyrri tíð út í kosn- ingar, sérstaklega þegar skuldirn- ar eru eins miklar og hjá Alþýðu- flokki. Kvennalistinn hefur greitt upp allar sínar skuldir frá því í kosn- ingunum og var með sinn reikning ánúlli l.október. Flokk- urinn eyddi heldur ekki miklum fjármunum í auglýsingar en gekk þö vel í kosningunum. Þetta segir Geir Gunnlaugsson að sé um- hugsunarefni og veki spurningar um það hvort auglýsingar skili flokkunum yfirleitt auknu fylgi. Hann er frekar hallur undir það að auglýsingar verði takmarkað- ar fyrir kosningar en að flokkun- um verði tryggðar tekjur. Vilja tryggar tekjur Þau sem Þjóðviljinn ræddi við hjá Framsóknarflokki, Alþýðu- bandalagi, Kvennalista og Sjálf- stæðisflokki voru hins vegar hlynnt því að flokkunum yrðu tryggðar tekjur með einhverjum hætti. Kjartan Gunnarsson segir það vel koma til greina að sínum dómi en Ingibjörg Hafstað starf- skona Kvennalistans, Kristján Valdimarsson og Sigurður Geir- dal eru því fylgjandi að flokkun- um verði tryggðar tekjur. Menn eru ekki tilbúnir að segja til um með hvaða hætti eigi að tryggja flokkunum þessar tekjur. En viðmælendur Þjóðviljans bentu margir á að stjórnmálaflokkarnir þyrftu að keppa við ýmis hagsmunasamtök sem hefðu traustan fjárhagslegan bakgrunn. Það sjónarmið var einnig ríkjandi að lýðræðið og þingræðið kostaði peninga og það væri ekki í takt við tímann og þær kröfur sem gerðar væru til stjórnmálaflokka að þeim væru ekki tryggðar einhverjar tekjur. íhaldið á móti Málið er þó ekki svo einfalt að það megi eiga von á því að flokk- arnir komi sér saman um þetta fyrirhafnarlítið. Andstaða við ríkisstyrki til stjórnmálaflokka hefur verið innan Sjálfstæðis- eftir stærð flokkanna og svo framvegis. En það er líka ljóst að innan allra flokka gætir nokkurs ótta varðandi framkvæmd kosninga og kostnaðinn við þær. Viðmæl- endur blaðsins voru sammála því að aðstæður hefði breyst inikið eftir að fjölmiðlum fjölgaði og það mætti aldrei gerast að kosn- ingar breyttust í fjölmiðlastríð í ætt við það sem þekkist í Banda- ríkjunum. -hmp ✓ • / Tilboð vikuna 29. nóv - 5. des. Að þessu sinni er boðið upp á tvær ágætar bækur frá Forlaginu og eru báðar eftir konur. Gunnlaðarsaga eftir Svövu Jakobsdóttur vakti mikla athygli undireins og hún kom út. En í henni tekst listakonunni með frumlegum og um leið yfirveguðum hætti og drjúgri þekkingu að brúa bil milli samtímans og goðsögulegrar fortíðar: Ung stúlka er tekin höndum í Þjóðminjasafni Dana þar sem hún stendur við brot- inn sýningarglugga með forsögulegt gullker í höndunum. Og finnst mörg- um liggja beint við að stúlkan sé rugl- uð eða standi í vafasömu andófi - meðan stúlkan sjálf upplifir ást og svik, sekt og sakleysi á ýmsum tímum í senn og um leið mátt skáldskaparins til að snúa heimi af helbraut. Okkar verö 1.950 kr. Venjulegt verö 2.188 kr. WW JÆKOBSDOTTIR ÁRNADÓTTIR Móðir, kona, meyja er fyrsta skáldsaga Nínu Bjarkar Árnadóttur, sem fyrir löngu hefur tryggt sér sess meðal fremstu Ijóð- og leikritaskálda íslenskra. Hún segir frá ungri stúlku, náttúrubarni, sem ræðst í vist til auðugra hjóna í Reykjavík, og verður í krafti mikils kvenleika mikill örlaga- valdur í lifi allra sem hún kemst í snertingu við: verða a< þeim fundum heitar erótískar lýsingar. Stillt er sam- an í sögunni tveim heimum - heimi glæsileika, auðs og einsemdar og svo heimi örbirgðar og ráðleysis sem leitar einatt réttlætingar í tryllingi og ástríðu. Okkarverö 1.750 kr. Venjulegt verö 1.988 kr. Þriðjudagur 29. nóvember 1988 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.