Þjóðviljinn - 29.11.1988, Blaðsíða 6
þj ÓÐVILJIN N Maigagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
Ódýrt brennivín
ogembættismenn
Fá tíðindi hafa vakið eins almenna fordæmingu og um-
fangsmikil vínkaup fyrrverandi forseta Hæstaréttar. Þótt
magnið, 1440 flöskur af sterku áfengi sem Magnús Thor-
oddsen hefur fengið á þessu ári á svokölluðu diplómata-
verði, hafi verið með ólíkindum, voru það þó önnur atriði sem
einkum vöktu fólk til umhugsunar. Málið hefur varpað
dökkum skugga á alla æðstu embættismenn íslenska ríkis-
ins og þó alveg sérstaklega á starfsmenn Hæstaréttar, þá
menn sem eiga umfram alla aðra að vera hafnir yfir grun um
að persónulegir hagsmunir geti haft áhrif á embættisfærslu
þeirra.
Þær yfirlýsingar, sem Magnús Thoroddsen gaf í fjölmiðl-
um, að hér væri um hans einkamál að ræða, juku ekki á
virðingu almennings fyrir æðstu embættismönnum okkar.
Og ekki bætti úr skák að fyrrverandi forseti Sameinaðs
þings, Þorvaldur Garðar Kristjánsson, sem um árabil hefur
kappkostað að skapa sér ímynd sem virðulegur og staðfast-
ur íhaldsmaður af gamla skóianum, upplýsti að hann hefði
staðið í svipuðum áfengiskaupum og Magnús, þótt í minna
mæli væri.
Mönnum þóttu þessir atburðir vera í stíl við fréttir frá
ýmsum þróunarlöndum þar sem lýðræði og eðlilegur að-
gangur að upplýsingum eru óþekkt nema sem fagurgaii í
hátíðaræðum. Margir töluðu um bananalýðveldi.
Nú má vera að Magnús Thoroddsen hafi rétt fyrir sér
þegar hann segir að æðstu valdsmenn okkar hafi, alltfrá því
embætti forseta íslands varð til, keypt sér í stórum stíl áfengi
til einkanota með umtalsverðum afslætti. Sé svo, hljóta að
vakna dapurlegar efasemdir um það hvort lýðveldisstofnun-
in á Þingvöllum 17. júní 1944 hafi í rauninni verið tímabær.
íslendingar hafa löngum verið tunguhvassir og þeir munu
ekki í bráð gleyma brennivínsbjástri embættismannanna.
Sú umfjöllun mun ekki verða til að auka á virðingu fyrir
æðstu fulltrúum ríkisvaldsins. Það eflir t.d. ekki tiltrú á dóm-
stóla að á veitingahúsi nokkru í Reykjavík er mönnum nú
boðið upp á nýjan kokteil sem er að tveimur þriðjuhlutum
rússneskt vodka en að einum þriðja skoskt viskí. Og
blandan heitir að sjálfsögðu hæstiréttur.
Hvað sem líður einkaskoðunum Magnúsar Thoroddsen
og hvað sem líður þeirri staðreynd að hann er af mörgum
talinn hafa verið duglegur og farsæll í starfi sínu við Hæsta-
rétt, verður að gera þá kröfu að hann láti af störfum, ekki
bara sem forseti Hæstaréttar heldur einnig sem dómari.
Gera má því skóna að vínkaup embættismanna hefðu
ekki komist í hámæli ef forseti Hæstaréttar hefði kunnað sér
hóf og keypt minna magn. Því hlýtur að vakna sú spurning
hvort margir embættismenn fái uppbót á laun sín í formi
brennivínsafsláttar. Og enn hljóta menn að spyrja til hvers í
ósköpunum ÁTVR selji vín á tvenns konar verði.
Það mælir nákvæmlega ekkert með því að vín, sem
drukkið er í veislum á vegum þess opinbera, sé ekki fært í
bókhaldi viðkomandi ráðuneytis eða stofnunar á eðlilegu
útsöluverði. Það á einmitt að vera nauðsynlegt að geta
skoðað hver raunverulegur kostnaður af veisluhöldunum
hefur verið og þá upphæð á að vera unnt að bera saman við
kostnað af veisluhöldum annarra aðila í þjóðfélaginu.
Það mælir heldur ekkert með því að hver ráðuneytis-
starfsmaður skuli geta keypt tvær flöskur af sterku víni í
desember ár hvert fyrir miklu minna fé en nemur útsöluverði
í ÁTVR. Telji ráðherrar og ráðuneytisstjórar rétt að starfsfólk
þeirra fái jólagjafir, verða þeir að standa að þeim málum á
sama hátt og aðrir atvinnurekendur. Og auðvitað á að bók-
færa slíkar gjafir á fullu verði svo að unnt sé að sjá hve miklu
var í raun og veru kostað til.
Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra hefur ákveðið
að láta gera skýrslu um áfengissölu á diplómataverði. Sú
skýrsla verður að ná til allra embættismanna en ekki bara
þeirra sem verið hafa handahafar forsetavalds. En umfram
allt verður strax að afnema þau sérkjör sem ríkissjóður,
einstök embætti og embættismenn hafa notið við áfengis-
kaup. ÓP
KLIPPT
MORGUMBIADIÐ. LAUCARDACUR « NÓVEURER 1M* MORCirWBLADID. 1>»CAM).
IBorgunblu&iö ÚIQtfandl Arvakur, R*yVj»ylV F ramkvAfndMtjórl M«r»klur SvWnuon. RiUlrVar MallMaa JotwooMaan. AAatoAarrllsljúrl BjömBjamaaon FuUtrúar trtsljöra Porbtörn Ouömundaaon. Bjfim Jðhannsson. Aml JðrQsnasn. Magnús Flnnsson, SJgtryggur Sigtryggsson. Agúst Ingl Jönsson Augtýalngastjórl BakMnJönaaon. RnstfOrn og skrWstohr AAalstrasti 6. aM »81100 Auglýalngar AAalatrasli ». afcnl 22««0 AJgraiAala: kringlan 1. alml »3033. Stefnumörkun í fílabeinsturni eftírDaVÍð (uui Og þaA sr JU msrkilejtt. þnjtsr þsms .sr konuð En þegsr KrADlganjfm Jóns BaJdvins daa á tvaraa mánaAs fraali o* laaalna akki mátiA o» f*DÓ W Allum sá mo ofsrtegs 1 mrnni frsmRsngs »*..»t-fcUðil Mfdr M. UIU ÍIÍ þar smn t*rf. IwTfyrri hurnjmAum. AJW*i- JöasBaldrmaHi»«mkaoMr tyrtr *r rssAu ssm DaviA Oddaaon bad-Nlf lalondinim. flármál bairrs o« bsndalamA ImfAi litiA á InarsrániA, sAlsOl kosnmgar. Þá fAr hsnn Batti á f-odl SjáJf- stmAmfálacs MoaírUmr. 1 Maa- | |0 ár og fonnaAur Mjácn- hakkana og hm konar fcyatingu «P; •> B>*r Mtabar. þriAjudafinn 22. mt-nm- máJaflokka. skuli wgns Umsbund- á kjðrum fAlks nánast srm dsuAa- fsnnat tAhmrt U um þjA hvenu* mnar nn smnar 1 fllal«mstumi aynd. Hsflk |>sA upgi irgA( hánrrar hsnn hsgsAl slnam máJfhdnuigl o* ViA tslmdingmr gstum rkkí Jrynt ,kki OUKtUm hvaA hafl .rnA krtfur um. aA fr* slfku yrAi þrfpr hwrsu gsrplrga hann sótU frsm iÆSÉ MÆm m1 BŒr Dartá Oddsssa skiljs þaA. aA J6n Hai rfni til þrsa sA f.lla i gtryps viA görAUum drrkka Or hikamum engin strfnubrryting alaA. fcvrrt á mAU rn Ir, srm AgarfustjAmii þann aamnrfnara, ar J hagalrg Ags-fa hrfuj átt. 1 þrim rfnum vl ögsrfu allt aA vo,.il handafli rfkiaína J hagsllfiA I QAtra t*J afll rlkiam. aA dml.J t»kj",yrtj*
Mmra aA argja H afla a> mr|noá^^| rr r..al 1 kaJla^H
Hægri vandi
Þaö hafa verið erfiðir dagar hjá
Morgunblaðinu uppá síðkastið
eftir að Sjálfstæðisflokkurinn
lagðist í kör og Þorsteinn Pálsson
tilkynnti að flokkurinn ætlaði að
taka sér hvíld frá pólitíkinni til að
leita sér hressingar og endurhæf-
ingar.
Og á Morgunblaðinu eru menn
að hugsa sinn gang. Eftir allt sam-
an er tilgangurinn á bakvið tilvist
Mogga í tvennu lagi, - í fyrsta lagi
hagsmunavarsla fyrir eigend-
urna, stétt þeirra og stjórnmála-
flokk, hinsvegar á blaðið sér
auðvitað hreinan viðskiptalegan
tilgang, - velvild auglýsenda (og
kreddutrú á auglýsingastofun-
um) hefur skapað Mogga yfir-
burði á blaðamarkaðnum og und-
anfarin ár hefur blaðið skóflað
fyrirhafnarlítið inn miljónum í
hreinan gróða á hverju ári.
Stangast
hagsmunir á
Moggamenn standa nú
frammifyrir tvennu. Annarsveg-
ar er ljóst að það kreppir að í
samfélaginu, og það kemur með-
al annars niðrá auglýsingatekjum
fjölmiðla. Þetta gæti komið illa
við Moggann sem þegar er farinn
að finna fyrir samdrættinum og
býður nú auglýsendum allskonar
afslátt og fyrirgreiðslu sem áður
var ekki við komandi.
Hinsvegar hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn veikst verulega. Fylgi
flokksins hefur dvínað um hér-
umbil fjórðung, úr um 40 í um 30
prósent. Flokkurinn hefur orðið
fyrir þeirri niðurlægingu í sumar
að hafa misst um tíma forystusæti
í skoðanakönnunum, og honum
hefur ekki aukist fylgi þótt Borg-
arar hafi misst frá sér flesta stuðn-
ingsmennina. Flokkurinn klúðr-
aði ríkisstjórn sem hann bar á
mesta ábyrgð og fékk nýlega þá
einkunn frá einum af helstu for-
ystumönnum sínum í atvinnulíf-
inu að atvinnurekendur væru
hættir að vænta sér nokkurs af
flokknum.
í þessari stöðu er úr vöndu að
ráða fyrir Mogga. Sjálfstæðis-
flokkurinn bindur vonir sínar við
það að núverandi ríkisstjórn mis-
heppnist sín ætlunarverk, enn
einu sinni sé hægt að veifa glund-
roðakenningunni og vinstri-
stjórnargrýlunni og hræða til
fylgis við flokkinn þá millihópa
sem að undanförnu hafa leitað á
flest önnur mið en til gamla
þreytta íhaldsins.
Til að þessi ætlun gangi upp
þarf flokkurinn á öllu sínu að
halda, og má illa við öðru en
Morgunblaðið beiti sér af öllu afli
gegn ríkisstjórninni og fyrir
flokknum með sömu ófyrir-
leitninni, sömu lituðu frétta-
mennskunni og flokksgloríunni
og menn muna til dæmis frá vin-
striárunum í borgarstjórn eða
tíma síðustu ríkisstjórna án
íhaldsþátttöku.
Moggi hefur síðustu árin verið
að mjaka sér frá þeirri fortíð og
ímyndar sér sjálfan sig sem hæg-
fara og ábyggilegt borgaralegt
stórblað. Þar á bæ eru sumir þess-
vegna tregir í pólitísk ævintýri
fyrir flokk sem nýtur æ minni
stuðnings meðal lesenda blaðs-
ins, og telja að hörð stjórnar-
andstaða í gömlum stfl geti
skemmt fyrir blaðinu bæði í áliti
og af hreinum og beinum fjár-
hagslegum ástæðum, - sem er
óneitanlega skringileg staða mála
í ljósi sögunnar.
Davíð talar
Það hefur líka verið augljóst að
á Morgunblaðinu hafa ráðamenn
verið sáróánægðir með forystu
Þorsteins Pálssonar þótt þeir hafi
sjálfir ekki átt sístan hlut að því
að leggja það Moggaegg í hreiður
fálkans.
Þessvegna var merkilegt að sjá
í Morgunblaðinu á laugardag að
Davíð Oddsson var kominn í
heiðurssess á miðopnu. Og
Moggi gefur um það bendingar
að hér séu á ferð sérlegar pólitísk-
ar áherslur, - textinn er nefnilega
ekki aðsend grein eftir borg-
arstjórann, heldur ræða sem Da-
víð flutti fyrir viku á fundi íhalds-
manna í Mosfellsbæ.
Og uppistaðan í þessari ræðu
er tvennskonar. Annarsvegar er
venjulegur söngur íhaldsins um
núverandi stjórnarflokka, eink-
um svikabrigsl í garð Steingríms
og krata. Hinsvegar segist Davíð
hafa séð fyrir ófarirnar í ríkis-
stjórninni og varað við á sínum
tíma, - og hafi haft rétt fyrir sér
allan tímann meðan aðrir for-
ystumenn gerðu hverja vit-
leysuna annarri fráleitari.
Ákæruskjal Davíðs í garð •
flokksforystunnar er í þremur
hlutum.
f fyrsta lagi: „að Sjálfstæðis-
flokkurinn hafði farið verr útúr
kosningum, sem voru undanfari
stjórnarinnar, en nokkru sinni
áður.“
í öðru lagi: „Ég lagði á það
áherslu, eftir að kosningaúrslit
lágu fyrir, að Sjálfstæðisflokkur-
inn yrði utan stjórnar.“
í þriðja lagi: „Sjálfstæðisflokk-
urinn stóð veikari inni í þessari
ríkisstjórn en í nokkurri annarri
stjórn, sem hann hefur átt aðild
að. Við þær aðstæður má segja,
að það hafi verið honum fjötur
um fót að þurfa að hafa á hendi
forystuna í stjórninni.“
Það er að segja: Fyrst klúðrar
Þorsteinn Pálsson kosningunum.
Svo þvælir hann flokknum inní
vonlausa ríkisstjórn. Og til að
kóróna vitleysuna tekur Þor-
steinn að sér forystu í stjórninni
og þarmeð mesta ábyrgð á mis-
tökum hennar. Á slíkur maður
von um framhaldslíf?
Skilyrtur
stuðningur?
Þetta eru skýr skilaboð frá Da-
víð Oddssyni. Héðan í frá vakir
það eitt fyrir borgarstjóra að
velja heppilegasta tímann til að
taka við aðalhlutverkinu í Sjálf-
stæðisflokknum.
Og þjóðhöfðingjameðferð
Morgunblaðsins á ræðunni frá
fundi Sjálfstæðisfélags Mosfell-
inga er líka hægt að túlka sem
skilaboð til Flokksins: stuðningur
blaðsins við endurreisnarstarfið í
Sjálfstæðisflokknum er háður því
að flokkurinn skipti um forystu-
sveit. Maður mistakanna í for-
mannsstóli flokksins verði að
víkja.
Saman í Evrópu
Það var undarlega ánægjulegt
að horfa á kvikmyndaverðlaun
Evrópu afhent í sjónvarpinu á
laugardagskvöldið.
Maður settist við kassann í
hálfgerðu kæruleysi og bjóst við
innantómri skrautsýningu í stíl
Óskarsins eða fegurðardrottn-
inga eða Evróvisjónlaga, - en
það kom snemma í ljós að hér
voru þrátt fyrir Hollywood-
umgjörðina á ferðinni nokkur
tíðindi. Evrópumenn voru með
nokkrum hætti að uppgötva
OG SKORIÐ
sjálfa sig og sinn sameiginlega
kraft á nýju sviði, takast í hendur
yfir gjárnar sem tungumál og
menningarbakgrunnur og pólitík
hafa búið til í álfunni.
Kannski var þarna blásið í
sóknarlúðra gegn ofurveldi am-
erísks kvikmyndaiðnaðar, - það
er að minnsta kosti víst að verð-
launahátíðin eykur verulega
möguleika þeirra kvikmynda sem
þar fengu mesta viðurkenningu.
Meira að segja á íslandi þarsem
yfir 90 prósent af sýndum mynd-
um eru frá Bandaríkjunum.
Fyrir fslendinga var það stolts-
mál að eiga fulltrúa í þessari evr-
ópsku fjölskyldu, - þau Helga
Skúlason og Tinnu Gunnlaugs-
dóttur, sem sómdu sér hið besta
innanum annað evrópskt kvik-
myndafólk og listamenn.
Við eigum nefnilega heima
hérna, erum saman í Evrópu og
getum vel talað hvort við annað
þótt framburðurinn verði stund-
um soldið slitróttur. Það sannað-
ist á hátíðinni í Berlín, hvortheld-
ur þar var dansaður spænskur
flamenco eða hylltur Ingimar
Bergman.
-m
Þjóðviljinn
Síðumúla 6 ■ 108 Reykjavík
Sími 681333
Kvöldsími 681348
Útgefandi: Útgáfufólag Þjóöviljans.
Rttstjórar: Árni Bergmann, Möröur Árnason, Ottar Proppé.
Fréttaatjóri: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson,
Heimir Már Pétursson, Hjörleifur Sveinbjörnsson, Kristófer
Svavarsson, Magnús H. Gíslason, Ulia Gunnarsdóttir, ólafur
Gíslason, Páll Hannesson, SigurðurÁ. Friðþjófsson (Umsjónarm. Nýs
Helgarb.), Sævar Guðbjörnsson, Þorfinnur Omarsson (íþr.).
Handrlta-og prófarkalestur: Elías Mar, HildurFinnsdóttir.
Ljósmyndarar: Jim Smart, ÞorfinnurÓmarsson.
Útlitsteiknarar: Kristján Kristjánsson, Kristberguró.Pétursson
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Skrifatofuatjóri: Jóhanna Leópoldsdóttir.
Skrifatofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir.
Auglýaingastjóri: Olga Clausen.
Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Unnur
Ágústsdóttir, Sigurrós Kristinsdóttir.
Símavarala: Sigriður Kristjánsdóttir, Þorgerður Sigurðardóttir.
Biiatjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Húsmóðir: Anna Benediktsdóttir
Útbroiðalu-og afgreiðaluatjóri: Ðjörn Ingi Rafnsson.
Afgreiðsla: Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir.
Innheimtumaður: Katrín Bárðardóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, símar: 681333 & 681663.
Auglýaingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrotogsetning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 70 kr.
Nýtt helgarblað: 100kr.
Áakriftarverð á mánuði: 800 kr.
6 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 29. nóvember 1988