Þjóðviljinn - 29.11.1988, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 29.11.1988, Blaðsíða 12
FLÓAMARKAÐURINN Pennavinir 18 ára, þýsk stúlka óskar eftir pennavini á íslandi, helst 18 ára strák. Hef áhuga á íslandi og vil gjarnan koma og hitta pennavininn og jafnvel feröast um landiö. Skrifið til: Ursula Kirsch, Kirschstrasse 19, D-6551 Hufelsheim Deutschland. Óska eftir ódýrum fataskáp, 4 eldhússtólum og ísskáp (má vera stór). Upplýs- ingar í síma 19239. Góð saumavél til sölu Vilborg, sími 35006. Jólagjöf eða tækifæriskaup? Sinclair Spectrum tölvan mín ásamt segulbandi og leikjum er til sölu fyrir lítið. Upplýsingar í síma 24362. 2 fataskápar óskast Upplýsingar í síma 40116. ísskápur óskast ódýrt eöa gefins. Helst ekki breiðari en 60 sm. Upplýsingar í síma 681333 frá kl. 9-16, Guðrún. Vantar þvottavél gefins Vinsamlegast hringið í síma 23886. Óskast Fuglabúr og lítið fiskabúr óskast. Upplýsingar í síma 11409. Til sölu Notuð eldhúsinnrétting til sölu, am- eriskur ofn, hellur og kæliskápur. Selst ódýrt. Upplýsingar í síma 37415 eftir kl. 17.00. Hókus Pókus stóll Á einhver ódýran eða gefins Hókus Pókus matarstól handa 10 mánaða gömlum strák? Þarf ekki að vera vel með farinn. Sími 40248 eftir kl. 14.30. 3 vandaðarkápur til sölu, nr. 44-46. Upplýsingar í síma 681884. Ný fótaaðgerðastofa Guðríður Jóelsdóttir fótaaðgeröa- sérfræðingur hefur opnað fótaað- gerðastofu að Borgartúni 31, 2. hæð til hægri. Tímapantanir alla virka daga kl. 9.30-10.30 í síma 623501. Píanó Óska eftir að kaupa notað pianó. Upplýsingar í síma 35203, Ragn- hildur. Okkur vantar ónýta eldavél og sófa gefins. Sími 10045, Jónína eða Ragnhildur. Myndlistarmaður óskareftirvinnustofu. ALLTkemur til greina. Upplýsingar í síma 24389. Stúdíóíbúð Til leigu er 25 ferm. íbúð nálægt miðbænum. Laus um áramót. Til- boð merkt „Stúdíóíbúð" sendist auglýsingadeild Þjóðviljans, Síðu- múla 6, fyrir 3. des. Til sölu Lada 1500 árg. 79. Upplýsingar í síma 41751. Óska eftir litlum ísskáp á vægu verði. Einnig óskast ódýrt litsjónvarpstæki eða svart/hvítt og sófasett og borð, helst gefins. Upplýsingar i síma 28940. Góðir dagar og hamingja Kynning fyrir allt landið, fyrir kven- fólk og karlmenn. Ef pið viljið nánari upplýsingar þá eru þær veittar í sima 91-20585. Gefið upplýsingar um aldur og áhugamál. Trúnaður. Láttu skrá þig. Óska eftir nagladekkjum undir Trabant, stærð 520x13 og gangi af 175x70x14. Upplýsingar I síma 16718 fyrir hádegi og eftir kl. 18.00. Til sölu vandaöar og vel með farnar barna- kojur úr furu, lengd 164 sm. Verð kr. 15.000. Upplýsingar í síma 23982. Tökum að okkur jólahreingern- ingar erum 2 duglegar stelpur sem viljum vinna okkur inn pening fyrir jólin. Upplýsingar í síma 36718, Sara og Kolla. Flóamarkaður Opið mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga frá kl. 14-18. Enda- laust úrval af góðum og umfram allt ódýrum vörum. Gjöfum veitt mót- taka á sama stað og tíma. Flóa- markaður SDÍ Hafnarstræti 17, kjallara. Rafmagnsþjónustan - dyrasímaþjónustan Allar nýlagnir, breytingar og viðhald á raflögnum. Uppsetningar á dyra- símum og sjónvarpsímum svo og lagfæringar á eldri kerfum. Tilboð, kostnaðaráætlanir, ráðgjöf. Margra ára reynsla. Kristján Sveinbjörns- son rafvirkjameistari, simi 44430. Flóamarkaður Rússneskar vörur í miklu úrvali, m. a. tehettur, babúskur, vasaúrog ullarsjöl. Póstkröfuþjónusta. Upplýsingar í síma 19239. Sjóðsvél (búðarkassi) óskast Upplýsingar í síma 21784 á kvöldin. Ritsöfn til sölu Ritsafn Þórbergs Þórðarsonar (15 bindi) til sölu. Safnið er nýtt og að- eins ein bók hefur verið lesin. Selst á góðu verði gegn staðgreiðslu. Einnig ritsafn Gunnars Gunnars- sonar á mjög góðu verði og loks Guðmundur Kamban allt ritsafnið á mjög góðu verði. Upplýsingar í síma 681310 eða 681331 á daginn. Sófi óskast Mig vantar gamlan sófa ókeypis. Get sótt hann. Hringið í síma 12063. Húsnæði óskast Myndlistarkona sem er að koma heim frá námi óskar eftir 2-4ra her- bergja íbúð frá 15. des. eða ára- mótum. Upþlýsingar í síma 43180 á kvöldin. íbúð í New York Stór, tveggja herbergja íbúð, sem námsmenn leigja í New York, er til leigu með húsgögnum frá 22. des- ember og út janúar eða eftir samkomulagi. Upplýsingar í síma 16034. Frá Borgarskipulagi Reykjavíkur! Athygli er vakin á því aö sýningu á skipulags- tillögunum KIRKJUSANDUR - LAUGARN- ES - KLETTUR og MÝRARGATA OG NÁ- GRENNI lýkur þann 7. desember 1988. Uppdrættir og líkan eru til sýnis hjá Borgar- skipulagi Reykjavíkur, Borgartúni 3, 4. hæð alla virka daga frá kl. 8.30 til 16.00. Athugasemdum eöa ábendingum, ef ein- hverjar eru, skal skila skriflega til Borgar- skipulags Reykjavíkur, innan auglýsts kynn- ingartíma. Borgarskipulag Reykjavíkur Borgartúni 3, 105 Reykjavík. ERLENDAR FRÉTTIR Kosrúngabarátta i Venesúelu í skugga olíuverðfalls Gífurlegar skuldir annað helsta kosningamál Forsetakosningar fara fram í Venesúelu 4. des n.k. og geisar þar nú hörð og allskrautleg kosn- ingabarátta, scm snýst einkum um efnahagsvandræði landsins. Þau eru ekkert smáræði, sem best má sjá af því að olían, helsta út- flutningsvara Venesúelu, hefur fallið í verði um 48.5 af hundraði síðan 1984. Þar að auki er land þetta skuldugt upp fyrir haus, jafnvel á rómanskamerískan mælikvarða. Skuldir Venesúelu erlendis nema nú um 30.3 miljörðum doll- ara og eru aðeins þrjú ríki í Róm- önsku Ameríku enn skuldugri. Meira en helmingur útflutnings- tekna fer í afborganir og vexti af skuldabagganum. Frambjóðend- ur heita kjósendum því hver um annan þveran að sjá til þess, að afborganirnar verði lækkaðar að minnsta kosti um helming. Þeir lofa einnig að knýja fram stöðvun verðlækkunar á olíu í gegnum Samband olíuframleiðsluríkja (OPEC) og auka áhrif og virð- ingu Venesúelu í augum íbúa annarra rómanskamerískra landa. Tveir frambjóðendur eru taldir líklegastir til sigurs. Annar heitir Carlos Andres Perez og býður sig fram fyrir Lýðræðisaðgerða- flokkinn, sem telst vera tiltölu- lega vinstrisinnaður miðjuflokk- ur. Samkvæmt niðurstöðum síð- ustu skoðanakannana er hann 12 til 19 prósentustigum fyrir ofan helsta keppinaut sinn í fylgi. Lýðræðisaðgerðaflokkurinn hef- ur undanfarið farið með völd og beinist því drjúgum að honum reiði almennings út af versnandi lífskjörum. En á móti vegur það að árin 1974-1979, þegar Perez var forseti, voru landinu mikil gullöld. í upphafi stjórnartíðar hans hækkaði olían fjórfalt í verði og lífskjör landsmanna bötnuðu á þessu árabili um 12 af hundraði að meðaltali, að sögn hagfræð- inga. Vegna þessa eru góðar endurminningar tengdar stjórn- artíð Perezar í hugum margra af kjósendum, sem eru alls rúmar níu miljónir talsins. En síðan hef- ur flest gengið á afturfótunum í efnahagsmálum Venesúelu og er lækkandi olíuverð helsta orsökin. Tekjur á mann hafa lækkað um fjórðung að meðaltali síðan 1979 og eru lífskjör landsmanna nú ekki betri en þau voru á fyrstu árum sjöunda áratugar. Annar sigurvænlegasti fram- bjóðandinn er Eduardo Fern- andez, sem er í framboði fyrir flokk kristilegra lýðræðissinna. Mun sá flokkur eitthvað svipaður flokkum sem svo kallast í Evr- ópu. Fernandez er aðsópsmikill og að sögn hinn vígalegasti, svo að hann hefur verið auknefndur „Tígrisdýrið.“ Sagt er að þetta kristilega og lýðræðislega rándýr hafi talsverða möguleika á að fara fram úr Perezi í fylgi fyrir kjördag. Alls eru frambjóðendur 25, og er sá þriðji vinsælasti að sögn skoðanakönnuða Teodoro Petkoff, sósíalisti og fyrrum skæruliðaforingi, sem á þeirri tíð var sagður hlynntur Castro Kúbuleiðtoga. Honum er þó ekki spáð nema um sjö af hundraði atkvæða og öðrum smáflokka- frambjóðendum þaðan af minna. Reuter/-dþ. _____________MINNING____________ Jónína Salvör Helgadóttir Fœdd 16.07. 1894 - Dáin 15.11. 1988 í gær var til moldar borin amma okkar, Jónína Salvör Helgadóttir. Jónína eða amma Jóna eins og hún var gjarnan kölluð innan fjölskyldunnar og meðal vina, var fædd að Kvía- völlum á Miðnesi, 16. júlí 1894. Foreldrar hennar voru þau Hall- dóra Sigurðardóttir frá Hrút í Oddahverfi og Sigurður Helgi Jónsson, sjómaður, fæddur að Melabergi á Miðnesi. Þau Hall- dóra og Sigurður Helgi bjuggu að Kvíavöllum til ársins 1901 er þau fluttu til Reykjavíkur ásamt börnum sínum. Foreldrar Hall- dóru voru þau Björg Guðmunds- dóttir, fædd að Mykjunesi í Holt- um 26.2 1828 og Sigurður Jóns- son, bóndi og sjómaður, fæddur að Vetleifsholti í Ásahreppi, 17.6 1824. Þau Björg og Sigurður bjuggu fyrstu árin að Hrút í Oddahverfi en fluttust árið 1853 suður á Miðnes. Foreldrar Bjarg- ar voru þau Halldóra Einarsdótt- ir fædd að Framnesi í Holtum 25. maí 1800. Hún var þrígift og lifði menn sína alla. Faðir Bjargar var annar maður Halldóru, Guð- mundur Pálsson, bóndi, fæddur í Vestmannaeyjum 1. janúar 1798. Mælt er að Guðmundur hafi ákveðið að hve magar dætur sem hann ætti skyldu þær allar heita Bjargir. Þau Halldóra eignuðust fjórar dætur og einn son. Börn Halldóru og Sigurðar Helga voru fjórar dætur. Auk ömmu Jónu voru það Sigríður fædd 1889, Eyrún fædd 1891 og Björg 1895. Allar létust þær í hárri elli og nú sfðast amma Jóna 94 ára gömul. Amma Jóna giftist í Reykjavík hinn 24. desember 1919 Ernst Fridolf Backman, sænskum verkamanni, sem hingað fluttist. Þeirra börn voru þau Elsa Viola sem dó 4 ára gömul; Ernst Frid- olf, sundkennari, giftur Ragn- heiði Jónsdóttur frá Vestmanna- eyjum; Halldór Sigurður, húsa- smíðameistari, sem látinn er fyrir 4 árum, giftur Jóhönnu Arn-- mundsdóttur frá Akranesi; Elsa Viola, sjúkraliði, gift Birni Emil Björnssyni, skipasmíðameistara; Henning Karl, verkamaður en sambýliskona hans er Dagmar Gunnlaugsdóttir; Ingibjörg Helga, húsmóðir, gift Sverri Jónssyni, bifreiðastjóra og Val- geir, verkamaður, giftur Helgu Ágústsdóttur. Áður átti amma Jóna soninn Ingimar Karlsson, málarameistara, sem giftur er Guðmundu Guðnadóttur. Dóttir Ingimars og uppeldisdóttir ömmu Jónu er Sonja gift Birgi ísleifi Gunnarssyni, alþingis- manni. Amma Jóna og afi Backman, sem dó í apríl 1959, eru okkur barnabörnunum ákaflega minn- isstæð. Þegar við komum til sögu bjuggu þau hjón í háreistu og fal- legu timburhúsi, efst á Háaleitinu nr. 23 við gamla Háaleitisveg. Umhverfis húsið voru mikil og falleg tún þar sem nú standa blokkir í röðum. Á landar- eigninni var eins og víða í þá daga ýmislegt gert til að drýgja tekjur og afla matvæla. Þar lögðu þau hjón stund á ræktun af ýmsu tagi og höfðu jafnan einhver húsdýr. Framan við gamla húsið var af- girtur meðalstór skrúðgarður með blómum og trjám, rifs- berjum og sólberjum. í minning- unni var á garðinum sænskur blær. Þó kann það að vera rangt vegna þess að í þá daga voru þannig garðar framandi öllu venjulegu verkafólki, sem hlaut fátæktina í vöggugjöf og rétt- leysið í arf. Yfir Háaleitinu ríkti þá friður sveitalífsins. Skarkali stórborgarinnar náði varla lengra en inn að Lönguhlíð. Á þessum ljúfa reit bjó stórfjölskyldan Backman í blíðu og stríðu, for- eldrar, börn, tengdabörn þegar þau bættust við og loks fyrstu barnabörnin. Yfir hressulegu, til- finningaríku heimilishaldinu ríkti amma eins og verkstjóri á stórum vinnustað, glæsileg, stórbrotin, sterkgreind og skapheit. Þvílík stemmning þar. Börn þeirra hjóna hlutu þá náðargjöf úr báð- um áttum að geta geislað af því- líkum léttleika og glaðværð að leitun var að öðru eins. Svo er enn í dag. Músíkin og hláturinn hljóma enn frá Háaleitinu. Sveiflan var stórbrotin en alvaran var einnig mikil. Lífsbaráttan var lengst af hörð og óvægin. Þar blönduðust saman í réttum hlut- föllúm byltingarkennd afstaða til þjóðfélagsmála og trú á skapara himins og jarðar. í báðum til- fellum var krafan sú sama. Rétt- læti. Árið 1964 varð ríki ömmu Jónu á Háaleitinu að víkja fyrir æðandi stórborginni. Hún fluttist þá í íbúð í blokk við Skaftahlíð. Þar bjó hún að mestu til æviloka en af sömu reisn og fyrr. Hún var ein- staklega tíguleg kona. Hún bar höfuðið hátt og horfði beint fram. Með þessum fátæklegu orðum viljum við barnabörnin þakka henni fyrir samfylgdina og kraft- inn. Við þökkum henni fyrir gömlu góðu dagana þegar hún stóð í miðjunni. Við þökkum henni fyrir einstaklega ljúfar minningar hin síðari ár þegar hún stóð til hliðar. Barnabörnin 12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 29. nóvember 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.