Þjóðviljinn - 29.11.1988, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 29.11.1988, Blaðsíða 14
í /í dag/ Dýrbítur í stjórnarráði Aldrei fór það svo að við- skiptaráðherranum okkar tækist ekki að vekja á sér athygli. Það virðist hann hafa gert rækilega með orðum, sem hann lét falla á nýafstöðnu Alþýðuflokksþingi. Hann ræddi þar um gróður- eyðinguna og komst m.a. svo að orði: „Orsakir eyðileggingarinnar eru fleiri en ein, en ljóst er að hún verður ekki leyst án þess að lausaganga búfjár á viðkvæmu gróðurlandi verði alfarið bönnuð... Ef tii vill er eina ráðið að efna til herferðar meðal al- mennings um að hann hætti að kaupa kjöt af þeim dýrum, sem alin eru á beit afrétta í uppblást- urshættu. Þetta á bæði við um afurðir sauðfjár og hrossa.“ Svo mörg voru þau vísdómsorð - og fleiri þó. Ég hélt nú sannast að segja að sá hugsunarháttur, sem lýsir sér í þessum síðustu orðum ráðherr- ans, hefði gengið af sjálfum sér dauðum fyrir meira en háifri öld. Þá brugðust herskáar íhaldshús- mæður í Reykjavík við umbótum á mjólkursölumáiunum með þeim hætti, að hvetja stallsystur sínar til þess að hætta að kaupa mjólk en nota ýsusoð í staðinn. Þessir sjálfskipuðu ráðunautar um neysluvenjur almennings höfðu þó ekki erindi sem erfiði en hafa síðan verið lýsandi dæmi um það út í hvaða ógöngur ofstækis- fuil vanhyggja getur leitt fólk. Nú sýnist mér að næsta skref viðskiptaráðherrans hljóti að verða að upplýsa það, hvernig hann hyggst haga þessari herferð sinni gegn sumu kinda- og hross- akjöti en öðru ekki. Hvernig á fólk að vita, hvort kjöt, sem það er að kaupa í verslun, sé af skepnum, sem hafa gengið á landi, sem ráðherrann kallar uppblásturssvæði eða ekki? Ætl- ar ráðherrann að stimpla hvern einasta kjötbita? Eða hvernig hugsar hann sér framkvæmdina? Ég sé ekki betur en þetta yrði erfitt verkefni, flókið og dýrt og sjáifsagt væri svo bændum ætlað að bera kostnaðinn af þessum sérkennilegu heræfingum ráð- herrans. Auðvitað er þetta í reynd bara rugl manns, sem í þessum efnum sér ekki út fyrir hattbarðið sitt. Þarna verður eng- inn greinarmunur gerður á. Þess- vegna væri herferð ráðherrans bein árás á alla þá bændur í þessu landi, sem stunda sauðfjár- og hrossabúskap. Páli frænda mínum Her- steinssyni og hans mönnum hefur gengið vel í baráttunni við tófu og mink. Hinsvegar mun hvorki honum né öðrum hafa komið til hugar, að dýrbít ætti eftir að skjóta upp í stjórnarráðinu. -mhg í DAG er 29. nóvember, þriðjudagur í sjöttu viku vetrar, níundi dagur ýlis, 334. dagur ársins. Sól kemur upp í Reykjavík kl. 10.40 en sest kl. 15.52. T ungl minnkandi á þriöja kvartili. VIÐBURÐIR Kommúnistaflokkur íslands stofnaður 1930. Þjóðhátíðardag- ur Júgóslavíu. Þjóðhátíðardagur Albaníu. ÞJÓÐVILJINN FYRIR 50ÁRUM Verklýðssambandið franska lýsir herskyldutilskipunina ólög- mæta. Verklýðsflokkarnirvinnaá í kosningum. - Radikalir tapa allt að 40%. Beztu menn Radikala- flokksins skora á Herriot að „losa flokkinn og Frakkland við Daladi- er“. Venjuleg helgi Kirkjutónleikar Rás 1 kl. 22.30 Fyrir 12 árum var frumflutt í Útvarpinu leikrit Þorsteins Mar- elssonar, „Venjuleg helgi“. Það verður nú endurflutt í kvöld. Leikritið segir frá venjulegri helgi í lífi hjónanna Halldórs og Dóru. Á föstudögum er það hátt- ur Halldórs að koma við í Ríkinu á heimleiðinni og er þá ekki beint smátækur. Hann nær sér í nokkr- ar flöskur og er innihaldið ætlað til hátfðarbrigða yfir helgina. Drengjunum sínum tveimur koma þau í gæslu hjá ömmu þeirra og síðan er farið „út í lífið“. - Að því rekur þó, að Dóru ‘ finnst nóg komið af svo góðu og vill að þau hjónin taki upp aðra lifnaðarhætti. - En það er ekki laust, sem skrattinn heldur, eins og þar stendur. - Leikstjóri er Þorsteinn Gunnarsson en leikendur: Margrét Helga Jó- hannsdóttir, Sigmundur Örn Arngrímsson, Ásdís Skúladóttir, Sigurður Karlsson, Árni Tryggvason og Halla Guðmunds- dóttir. - mhg UM UTVARP & SJONVARP 7 Kirkjutónlist á dag- skrá Rásar tvö í kvöld. Þar verða flutt þrjú verk. Fyrst er það „Herra, Drottinn vor“, mótetta fyrir átta raddir og bassafylgirödd úr „Pars Concertum Sacrorum", eftir Samuel Scheidt, Christa- Sylvia Gröschke og Esther Himmler sópranar, Kurt Huber tenór og Wilhelm Pommerien bassi syngja með Spandauer Kantor sönghópnum. Karl Hoc- hreiter, Christoph Kapler og Hans Nowak leika á sembal, sello og kontrabassa. Helmut Rilling stjórnar. - Þá kemur „Sinfónía da Requiem", op. 20 eftir Benjamin Britten. Sinfóníuhljómsveitin í Birmingham leikur, Simon Ratt- le stjórnar. - Og loks er það „Ich ruf zu dir, Herr Jesu Christ", Þorsteinn Marelsson kantata eftir Nicholaus Strungk. Maria Zedelius syngur ásamt fé- lögum úr Musica-Antiqua í Köln. Halldóra Friðjónsdóttir Þorkell Ólafsson Friðrik Rafnsson Kviksjá Rás 1 kl. 19:33 Svo sem hlustendum er von- andi kunnugt þá er Kviksjá blandaður menningarþáttur og blandar sér sannast að segja í flest sem er að gerast á sviði lista og menningar. Hann er á dagskrá Rásar eitt þriðjudaga til föstu- daga kl 19:33. - í kvöld verður lesið úr nokkrum jólabókum, en þær eru nú sem óðast að koma á markaðinn. - Fyrst er það þá „Á forsetavaktinni", dagur í lífi Vig- dísar Finnbogadóttur, en skráetj- arierSteinunn Sigurðardóttir. Þá kemur umfjöllun og upplestur úr bókinni „Húsið með blindu gler- svölunum“, eftir norsku skáld- konuna Herbjörgu Wassmo. Síð- an koma rússnesk ljóð í þýðingu Geirs Kristjánssonar. Fjallað verður um bókina „Undir hælum dansara“. Ljóðin eru valin af þýðandanum. Meðal þeirra eru nokkur ljóð Nóbelsverðlauna- hafans Brodski. Loks verður sagt frá bókinni „Mamma, hvað á ég að gera?“ Þetta er handbók í gamansömum tón fyrir ungt fólk, eftir Jón Karl Helgason. - Um- sjónarmenn Kviksjár eru Friðrik Rafnsson og Halldóra Friðjóns- dóttir. - mhg GARPURINN KALLI OG KOBBI Súrt regn, eiturúrgangur, götótt ósonlag, sjórinn að fyllast af drasli... Ljósi punkturinn að það hlýtur að koma að því að stríð leggist af þegar enginn ásælist lengur draslið hjá hinum. FOLDA 14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 29. nóvember 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.