Þjóðviljinn - 29.11.1988, Síða 16
Kristín G. Jónsdóttir,
afgreiöslustúlka:
Mér finnst fáránlegt að hann
verði áfram hæstaréttardómari
eftir svona augljósa misnotkun á
aðstöðu.
—SPURNINGIN—
Hvert finnst þér aö fram-
haldið eigi að vera í máli
Magnúsar Thoroddsen,
fyrrverandi forseta
Hæstaréttar?
Sólveig Harðardóttir,
sundlaugarvörður:
Mér finnst að þetta mál allt eigi að
skoða betur og láta fara fram
rannsókn á öllum sem hafa haft
tök á að versla á þennan hátt. Þá
fyrst er tímabært að taka frekar á
þessu „Hæstaréttarmáli".
Margeir Sigurðsson,
sölumaður:
Hann á að segja af sér sem dóm-
ari. Mér finnst ótækt að hann
verði áfram í þessari stöðu miöað
við það sem á undan er gengið.
Eiríkur Þoriáksson,
safnvörður:
Hann á að láta eigin sjálfsvirð-
ingu ráða því hvort hann heldur
áfram sem hæstaréttardómari,
en eins og þetta horfir við mér á
hann að hætta.
Sigrún Brynja Ingimundar-
dóttir, afgreiðslustörf:
Ég hef nú ekki mikið pælt í þessu,
en nóg til þess að mér finnst ekki
rétt að hann verði hæstaréttar-
dómari áfram.
SÍMI 681333
Á KVÖLDIN
CO<4^0
ÁLAUGARDÖGUM
681663
Viðurkenning Hagþenkis 1988
Skagfirskur fræðimaður
heiðraður
Kristmundur Bjarnason á Sjávarborg hlaut viðurkenningu Hagþenkis íár
Kristmundi Bjarnasyni á Sjáv-
arborg í Skagafirði var á
föstudag veitt viðurkenning Hag-
þenkis, félags höfunda fræðirita
og kennslugagna. Það var Hörð-
ur Bergmann, formaður Hag-
þcnkis, scm afhcnti Kristmundi
viðurkenninguna, 100 þúsund
krónur, í kaffisamsæti sem haldið
var í Safnahúsinu á Sauðárkróki.
Kristmundur fékk viðurkenn-
inguna fyrir fræðistörf og ritstörf
„sem einkennast af elju, ná-
kvæmni og listfengieinsog segir
í rökstuðningi stjórnar Hagþenk-
is.
Kristmundur hefur ritað marg-
ar bækur, sagnarit, ævisögur og
ritgerðir, auk þess að ritstýra ár-
bókum og safnaritum. Flest rit-
verkin tengjast héraðssögu á
Norðurlandi, einkum Skagafirði
og Eyjafirði. Ritin „varpa ein-
stöku og ómetanlegu Ijósi sínu á
mikilvæga þætti í sögu þjóðarinn-
ar, einkurn atvinnu- og menning-
arsögu. í ævisögunum sameinast
fræðileg nákvæmni og skáldlegt
innsæi. Verkin eru rituð á vönd-
uðu og auðugu máli," segir einnig
í rökstuðningnum.
Auk ritstarfa hefur Kristmund-
ur starfað mikiö fyrir Hér-
aðsskjalasafn Skagfirðinga. I það
hefur hann safnað opinberum
skjölum auk þess sem hann hefur
byggt upp safn einkaskjala og
ljósmynda, sem ekki mun eiga
sinn líka í neinu héraðsskjala-
safni. Ásamt Hjalta Pálssyni hef-
ur hann gefið út tímaritið Safn-
amál fyrir safnið.
Örvandi
andrúmsloft
í ræðu sem Hörður Bergmann
hélt við afhendingu viðurkenn-
ingarinnar sagði hann m.a.
„Ég get ekki sagt ykkur tíöindi
af skagfirskum fræðum, það verð
ég að viðurkenna. En mig langar
að segja ykkur það að ég hef það
á tilfinningunni að hér í Skaga-
firði ríki hefðir og viðhorf sem
styrkja menningarstarf af því tagi
sem hér verður heiðrað í dag.
Andrúmsloftið hlýtur að vera
örvandi fyrir þá sem haldnir eru
fýsn til fróðleiks og skrifta. Um
það vitnar fleira en verk Krist-
mundar og fleiri fræðimanna og
höfunda af eldri kynslóðinni hér í
Skagafirði og höfunda af skag-
firskum ættum. Hæfileikaríkir
ungir menn fylgja í fótsporin.“
Kristmundur er fæddur á
Reykjum í Lýtingsstaðahreppi í
Skagafjarðarsýslu árið 1919.
Hann er stúdeiit frá Menntaskól-
anum á Akureyri 1940. Árið 1949
hóf hann búskap á Sjávarborg en
Kristmundur Bjarnason með elsta handritið í Héraðsskjalasafni Skagfirðinga, pappírshandrit af Sverrissögu frá 17. öld.
Mynd H. Bergmann
hefur um langt skeið haft rann-
sóknir og ritstörf að aðalverkefni
og gegnt starfi skjalavarðar við
Héraðsskjalasafn Skagfirðinga.
Helstu rit Kristmundar eru:
Saga Sauðárkróks 1-3, Saga Dal-
víkur 1-4, Sýslunefndarsaga
Skagafjarðarsýslu, Jón Ósmann
ferjumaður, Þorsteinn á Skipa-
lóni 1-2. Þá hefur Kristmundur
þýlt tugi bóka og safnað efni og
séð um margskonar útgáfu.
Þetta er í annað skiptið sem
Hagþenkir veitir þessa viður-
kenningu, en í fyrra hlaut hana
Helgi Hallgrímsson, náttúru-
fræðingur.
-Sáf
Ólympíumótið
Lokaumferð tef Id í dag
Sovétmenn öruggir um sigur en hart barist um silfurverðlaun
Sovétmenn hafa þegar tryggt
sér gullverðlaun á ólympíu-
mótinu í skák. Hafa þcir hreppt
37 vinninga þegar ein umferð er
ótefld. Englendingar sitja í öðru
sæti með 33 en Bandaríkjamenn
og Hollendingar hafa 32.
Islenska skáksveitin hefur ekki
verið jafn sigursæl í Þessalóníku
og bjartsýnir skákáhugamenn
gerðu sér vonir um. 13 umferðir
eru að baki og prýða landar vorir
13. sæti.
íslendingar öttu kappi við
Tékka í fyrradag en fóru halloka.
Jóhann, Margeir og Helgi féllust
allir á skiptan hlut en Þröstur tap-
aði.
Hinsvegar vann íslenska
sveitin næsta léttan sigur á þeirri
ítölsku á laugardag. Jóhann,
Margeir og Þröstur sigruðu en
Jón L. beið ósigur.