Þjóðviljinn - 08.12.1988, Blaðsíða 2
FRETTIR
Ein af 350 vatnslitamyndum
Snorra Sveins Friðrikssonar,
sem sýnd verður með tónlistinni.
Sinfónían
Hnotubrjóturínn
í kvöld kl. 20.30 verða síðustu
almennu tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands á þessu ári, -
fjölskyldutónleikar á aðventu.
Flutt verður jólaævintýrið Hnot-
ubrjóturinn, eftir sögu E. T. A.
Hofmanns við tónlist Tsjaíkov-
skís. Þá syngur Skólakór Kárs-
nesskóla undir stjórn Þórunnar
Björnsdóttur. Hljómsveitarstjóri
verður Petri Sakari.
Milli atriða segir Benedikt
Árnason söguna um Hnotubrjót-
inn sem Snorri Sveinn Friðriks-
son hefur myndskreytt með 350
vatnslitamyndum. Verður þeim
varpað á sýningartjaldið meðan á
flutningi stendur. Tæknimaður er
Einar Erlendur ljósmyndafræð-
ingur.
Snorri Sveinn hefur lengst af
starfað hjá Ríkissjónvarpinu síð-
an 1969 sem ljósmyndahönnuður
og sýnt þar bæði hugmyndaflug
og listfengi. - Einar Erlendur
lauk BS-prófi í tæknilegri ljós-
myndun í Lundúnum 1980. Hann
rekur fyrirtækið Myndverk, sem
starfar á ýmsum sérsviðum ljós-
myndunar.
Hnotubrjóturinn var frum-
sýndur í St. Pétursborg 1892, við
fremur dræmar undirtektir, svo
sem einnig höfðu hlotið fyrri ball-
ettar tónskáldsins, Svanavatnið
og Þyrnirós. En nú er öldin önnur
og ballettar Tsjaíkovskís hafa
hlotið verðskuldaða viðurkenn-
ingu vítt um heim.
Aðgöngumiðasala er í Gimli
við Lækjargötu milli kl. 9 og 17
og svo við inngang Háskólabíós
við upphaf tónleikanna. Miða-
verði er mjög stillt í hóf en það er
kr. 500 og 250. - mhg
Nautahakkið
Ótrúleg
ósvífni
Neytendasamtökin:
Framleiðendur verði
sviptirframleiðsluleyfi ef
þeirgerast ítrekað sekir
um vörusvik
„Við teljum fráleitt að verið sé
að selja aðrar kjöttegundir en
nautakjöt í nautahakki og ekkert
annað en ósvífni við neytendur.
Við teijum að ef framleiðendur
gerast ítrekað sekir um svona
vörusvik eigi að svipta þá fram-
leiðsluleyfi,“ sagði Jóhannes
Gunnarsson formaður Neytend-
asamtakanna.
Mikil gremja hefur ríkt meðal
neytenda eftir að könnun Verð-
lagsstofnunar var birt í fyrradag
um að nokkrir kjötframleiðendur
ástunduðu vörusvik með því að
bjóða neytendum nautakjöt sem
blandað er ýmist svína- eða kind-
akjöti.
Gunnar G. Þorsteinsson vara-
verðlagsstjóri sagði að stofnunin
mundi fylgja þessari könnun eftir
í framtíðinni. Hann sagði að upp-
haflega hefði könnun átt að leiða
í ljós hvort fylgni væri á milli
gæða og verðs en í efnagreiningu
hjá Rannsóknastofnun landbún-
aðarins hefði síðan komið í ljós
að verið væri að efnagreina allt
annað kjöt en nautakjöt og þá
hefðu vörusvikin komið í ljós,
öllum að óvörum. -grh
Axarfjörður
Fagnað í sveitinni
Björn Björnsson bóndi: Vonandi verður vísbendingin um olíu hértil
að jarðirnar okkar hœkki í verði
Okkur finnst ekkert nema já-
kvætt við þessa niðurstöðu
Orkustofnunar um að mælst hafi
lífrænt gas úr borholu þeirra og
að líkur séu á að olía geti verið hér
neðanjarðar. Vonandi verður
þetta til þess að jarðir okkar
hækki eitthvað I verði frá því sem
nú er, en þær eru nánast verð-
lausar í dag, sagði Björn Björns-
son bóndi að Sandfellshaga 2 í
Öxarfirði.
í gær var ekki um annað talað í
Öxarfirði en hugsanlegar líkur á
að olíu sé að finna í setlögunum
undir yfirborði fjarðarins og ríkti
almennur fögnuður meðal íbú-
anna. Þó verður einhver bið á að
byrjað verði að bora eftir olíu á
svæðinu þar sem eftir á að gera
umfangsmiklar rannsóknir á set-
lögunum og alls óvíst hvort þær
skili jákvæðum niðurstöðum sem
síðan muni leiða til markvissrar
olíuleitar.
Björn bóndi sagði að vissara
væri að fara hægt í sakirnar í
þessu máii en óneitanlega yki
þetta á bjartsýni íbúanna í
sveitinni um betri tíð. Þegar eru 3
fiskeldisfyrirtæki með starfsemi í
firðinum, ísnó, Árlax og Silfur-
stjarnan.
-grh
Héðinn Gilsson var Valsmönnum oft erfiður í gærkvöldi og skoraði
kappinn alls níu mörk, flest þeirra stórglæsileg. Hér reynir varnarjaxl-
inn mikli, Þorbjörn Jensson, að stöðva Héðin, en allt kemurfyrir ekki.
Geir Sveinsson fylgist með á örvæntingarfullan hátt.
Handbolti
Valur og KR enn
með fullt hús
Valsmenn sigruðu FH-inga með góðum enda-
spretti að Hlíðarenda og KR lenti í basli með
botnliðið
Valur-FH ..............30-25
Það má með sanni segja að
meistaraheppnin hafi fylgt Vals-
mönnum í lok þessa leiks gegn
FH að Hlíðarenda. Leikurinn var
mjög jafn allan tímann og stefndi
lengi vel i að Valur tapaði sínu
fyrsta stigi í íslandsmótinu í ár.
FH-ingar höfðu tveggja marka
forystu, 20-22 og 21-23, þegar fá-
einar mínútur voru til leiksloka
en þá var Guðjóni Árnasyni vikið
af leikvelli fyrir kjaftbrúk. Eins
og allir vita sem fylgjast með
handbolta má ekkert lið við því
að missa mann útaf á örlaga-
stundu þegar andstæðingurinn
heitir Valur. Þeir gengu á lagið,
jöfnuðu og komust yfir, Síðan var
jafnt 24-24 en Valsmenn skoruðu
tvö mörk í röð úr hraðaupp-
hlaupum eftir að markstengurnar
höfðu orðið fyrir þrumuskotum
Héðins Gilssonar. Eftirleikurinn
var síðan Valsmönnum auðveld-
ur og staðan skyndilega orðin 30-
24! Héðinn skoraði svo síðasta
mark leiksins af mjög löngu færi á
lokasekúndunum.
Leikurinn að Hlíðarenda var
spennandi og mjög skemmtilegur
fyrir áhorfendur. FH-ingar komu
nokkuð á óvart með sterkum
varnarleik og varð sóknarleikur
Vals nokkuð fálmkenndur fyrir
vikið. Þá var vörn Vals ekki eins
góð og hún á að sér, og skoruðu
FH-ingar mörg mörk úr nokkuð
vafasömum marktækifærum. í
fyrri hálfleik var jafnt á all flest-
um tölum og staðan í leikhléi 13-
13. Síðari hálfleikur var álíka
jafn, eða allt þar til FH spilaði
rassinn úr buxunum undir lok
leiks.
Valdimar Grímsson var bestur
Valsmanna að þessu sinni og
skoraði hann 8 skemmtileg mörk,
þar af tvö úr vítaköstum. Júlíus
Jónasson var' einnig mjög skæður
og skoraði 7/1 mörk með miklum
þrumuskotum. Sigurður Sveins-
son var óvenju daufur í fyrri hálf-
leik en náði sér ágætlega á strik í
þeim síðari og skoraði alls 6
mörk. Þá skoraði Jón Kristjáns-
son 5 mörk, Jakob Sigurðsson 3
og Geir Sveinsson 1 mark.
í liði FH var Héðinn Gilsson
ávallt hættulegur og skoraði alls 9
mörk. Óskar Ármannsson
skoraði 8 mörk og var helmingur
þeirra gerður úr vítaköstum en
Guðjón Árnason gerði 4 mörk á
skemmtilegan hátt. ÓskarHelga-
son skoraði 3 og Þorgils Óttar
Mathiesen 1 mark.
Breiðablik-KR...........23-26
KR-ingar höfðu forystu allan
leikinn en lentu í miklu basli
undir lok Ieiksins er Blikum tókst
að minnka muninn í tvö mörk.
Vesturbæjarliðið hafði það þó af
að sigra og fylgja Valsmönnum
því enn sem skugginn.
Fram-Víkingur..........29-29
KA-ÍBV.................24-19
Stjarnan-Grótta........24-19
-þóm
Stokkseyri
Hörð innheimta
Allt rafmagn var tekið affrystihúsiþorpsinsþegar vinna stóð sem
hœst. Við það fékkst helmingur af 3ja miljóna króna skuld greiddur
Rafveitustjórinn á Stokkseyri
lokaði fyrir allt rafmagn til
Hraðfrystihúss Stokkseyrar rétt
fyrir hádegi í gær til að knýja á
um borgun 3 miljón króna raf-
magnsskuldar fyrirtækisins við
veituna. Það hreif og fékk veitan
helming skuldarinnar greiddan
og var þá straumi aftur hleypt á.
Stefán Runólfsson fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihússins
sagðist aldrei fyrr á 40 ára ferli
sínum í bransanum hafa kynnst
öðrum eins innheimtuaðgerðum.
Hann sagði að fyrst hefði raf-
magnið verið tekið af heimili sínu
um 10 Ieytið um morguninn og
síðan af frystihúsinu án nokkurr-
ar viðvörunar. Verið var að vinna
bolfisk í húsinu og að sjálfsögðu
varð sjálfhætt þegar rafmagnið
fór. Flytja varð fiskinn sem óunn-
inn var inn í kæligeymsluna sem
er fleytifull af afurðum ss. frystri
síld.
Hörður Gestsson veitustjóri
sagði að veitan hefði ítrekað að-
varað stjórnendur frystihússins
um að lokað yrði fyrir rafmagnið
ef reikningurinn yrði ekki
greiddur. Hörður sagði að það
væri þýðingarlaust að vera sífellt
með hótanir ef engin alvara væri
að baki. Hann sagði að þrátt fyrir
að Stokkseyrarhreppur ætti 80%
í frystihúsinu og rafmagnsveituna
með Eyrarbakka hefði að sínu
mati ekki annað verið hægt en að
gera alvöru úr hótununum um
rafmagnslokun.
-grh
Verkalýðssaga
Bókafundur
íkvöld
Félag áhugafólks um verka-
lýðssögu boðar til bókafundar
fimmtudaginn 8. desember kl.
20.30 í húsi Félags bókagerðar-
manna Hverfisgötu 21.
Einar Már Guðmundsson
kynnir nýtt smásagnasafn sitt
„Leitin að dýragarðinum“ og les-
ið verður úr bók Haraldar Ölafs-
sonar togarasjómanns, „Brim-
öldur“ sem Jón Guðnason
skráði.
Að lokum verða lauslega
kynntar nokkrar bækur sem eru
áhugaverðar fyrir félagasmenn.
Kaffiveitingar.
2 SfÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmudagur 8. desember 1988