Þjóðviljinn - 08.12.1988, Blaðsíða 3
________FRETTIR______________________
Kjaramál
VSI með hótanir
Vinnuveitendur: Annað hvort almenn kauplœkkun eða víðtœkt
atvinnuleysi. Krafa um gengisfellingu
Útsvarið
Stærstu
með 6,7%
Garðabœr, Seltjarnarnes
og Mosfellssveit með 7%
útsvar næsta ár
Sveitarfélögin eru þessa dag-
ana að samþykkja álagningu
sveitarsjóðsgjalda fyrir næsta ár,
en félagsmálaráðuneytið gefur
heimild til útsvarsálagningar á
bilinu 6,7 - 7,5%
Stærstu sveitarfélögin hafa
þegar ákveðið útsvarsálagning-
una. Reykjavík, Kópavogur og
Hafnarfjörður verða með lægstu
álagningu útsvars, 6,7%. Önnur
sveitarfélög á höfuðborgarsvæð-
inu, Seltjamarnes, Garðabær og
Mosfellssveit hafa samþykkt 7%
útsvar, og á Akureyri verður út-
svarsálagningin 7,2%.
->g-
Eins og mál hafa þróast verður
ekki hjá því komist að draga
úr þjóðarútgjöldum. Sú aðlögun
getur átt sér stað með tvennum
hætti, þ.e. að allir taki á sig minni
kaupmátt eða að kaupmáttar-
minnkunin komi einungis fram
hjá þeim sem missa atvinnuna.
Þetta eru skilaboð forystu
Vinnuveitendasambandsins til
launafólks, sem birt eru í nýrri
úttekt sambandsins á horfum í
efnahagsmálum. Vinnuveitendur
segja að ekki sé rauiihæfur
grundvöllur fyrir efnahagsstefnu
sem byggir á óbreyttu gengi á
næsta ári. Draga verði úr þjóðar-
útgjöldum og valið standi um ál-
menna kauplækkun eða víðtækt
atvinnuleysi.
í úttekt VSÍ á stöðu efnahags-
mála segir m.a. að mikill og vax-
andi viðskiptahalli og slæm af-
koma útflutnings- og samkeppn-
isgreina beri því órækt vitni, að
þörf sé á verulegri lækkun á raun-
gengi krónunnar.
Varðandi þróun efnahagsmála
á næsta ári, spá vinnuveitendur
því að miðað við gildandi samn-
inga sem margir hverjir eru ekki
lausir fyrr en næsta haust og stytt-
ingu vinnutíma, muni atvinnu-
tekjur launafólks hækka um 9% á
milli áranna 1988 og 1989. Miðað
við þróun verðlagsmála, óbreytt
gengi á næsta ári og dollar haldist
stöðugur verði almenn verðlags-
hækkun á milli þessara ára um
11%. Þaö þýði minnkun
kaupmáttar atvinnutekna um 1-
2%.
Þá segja vinnuveitendur að
könnun sem gerð var meðai 145
stærstu aðildarfyrirtækja sam-
bandins, leiði í ljós að þau ætli að
fækka starfsmönnum sínum á
næstu mánuðum um 500 eða um
7% af starfsmannafjölda. Sé
þessi niðurstaða dæmigerð fyrir
önnur fyrirtæki innan VSÍ þýði
þetta uppsögn um 1.400 manna
sem er um 1% aukning á atvinnu-
leysi frá því sem nú er. Ef halda
eigi við óbreytta stefnu í gengis-
málum og haida uppi óbreyttum
kaupmætti kalli slíkt á stórfellt
atvinnuleysi.
-lg-
Vítamínskammtar
Allt í lagi
með lýsið
Teskeið afþorskalýsi veitir ráðlagðan dag-
skammtafA og D vítamínum, en ný rann-
sókn leiðir í Ijós að matskeið erskaðlaus
skammtur
Fólk þarf ekki að hafa neinar
áhyggjur af að það sé að eitra
fyrir sig og sína þótt það taki mat-
skeið af þorskalýsi á dag, segir dr.
Laufey Steingrímsdóttir, matvæla-
fræðingur, en nú liggja fyrir nið-
urstöður nýrrar rannsóknar
hennar á lýsisneyslu með tilliti til
stærðar vítamínskammta og
hugsanlegrar citrunar sé lýsisn-
eyslan of mikil.
Ein teskeið af þorskalýsi veitir
um það bil ráðlagðan dagskammt
af bæði A og D vítamíni, en mat-
skeið þrefaldan dagskammt.
Nokkur hætta er talin á D víta-
míneitrun fari neyslan yfir
fimmfaldan dagskammt að stað-
aldri, og beindist rannsókn
Laufeyjar því að henni fremur en
A vítamíninu, þar sem minni
hætta er á eitrun af völdum þess.
í rannsóknarhópnum var full-
orðið fólk, 37 að tölu, sem hafði
tekið a.m.k. matskeið af lýsi á
dag í fimm ár eða lengur, en sam-
anburðarhópurinn samanstóð af
jafnmörgu fólki sem fúlsað hafði
við lýsinu að staðaldri undanfarin
ár, sem og fjölvítamínum. Að
Sigríður Kristín Jónsdóttir og Ásta Bjarnadóttir i pökkunarsal Lýsis hf. í gær. Samkvæmt rannsókn
Laufeyjar Steingrímsdóttur, matvælafræðings, er matskeið af þorskalýsi á dag skaðlaus skammtur fyrir
fullorðna manneskju. Mynd: Jim Smart.
sögn Laufeyjar sýndi enginn í
fyrrtalda hópnum nein merki
forstigseitrunar, en hjá sumum
hinna var óæskilega lítið af D vít-
amíni.
Laufey sagði að eftir sem áður
Bœkur
„Eitt æskilegt siguróp“
Nýja testamenti Odds Gottskálkssonar með nútíma stafsetningu
Því að evangelium er eitt girskt
orð og þýðist á norrænu gleði-
legur boðskapur, góður gróði, ný
Ijúfleg tíðindi, eitt æskilegt sigur-
óp, um hvert að vér ættum að
syngja, segja og fagna... segir
Oddur Gottskálksson um fagnað-
arerindið í formála að verki sem
hann lét prenta í Hróarskeldu í
rflri hins lúterska Kristjáns þriðja
árið 1540.
Það verk er nú komið aftur á
Alverið
Kært fyrir launamun
Konursem starfa íÁlverinu krefjastsömu launa og
ófaglœrðir karlmenn sem starfa þar
Konur sem starfa hjá Álverinu í
Straumsvík hafa kært fyrir-
tækið til Jafnréttisráðs. Konurn-
ar una því ekki að vera einum
launaflokki lægri í launum en ó-
faglærðir verkamenn sem vinna
hjá fyrirtækinu.
Að sögn Elsu S. Þorkelsdóttur
framkvæmdastjóra Jafnréttisráðs
er verið að skoða þetta mál og að
ekki muni líða langur tími það til
niðurstöður liggi fyrir. Hún sagði
að þetta væri spurning um að
meta verðmæt og sambærileg
störf.
Konurnar sem vinna í mötu-
neyti, við ræstingar og í þvotta-
húsi álversins krefjast þess að
þeim séu greidd sambærileg laun
og ófaglærðir verkamenn fá, sem
vinna hjá fyrirtækinu við flutn-
inga, byggingarframkvæmdir og
þess háttar. Konurnar þiggja í
dag laun sem eru einum launa-
flokki lægri en karlmennirnir fá.
Þá mun einnig vera einhver mun-
ur á því hvað konurnar og karl-
amir fá út úr þeim kaupauka sem
álverið borgar starfsmönnum sín-
um. - sg
bók: þýðingin fyrsta á nýja test-
amentinu, sú sem unnin var í fjós-
inu í Skálholti í fullkominni
óþökk Ögmundar biskups, sú
sem á Hróarskeldubókinni er
elsta varðveitt prentverk á ís-
lensku og hefur haft slík áhrif á
tungu og bókmenntir að nútíma-
menn geta prísað sig sæla. Þeir
siðskiptamenn hefðu nefnilega
allteins getað valið sér dönsku
sem guðsorðatungumál. Odds-
þýðingin fór nokkurnveginn í
heilu lagi inní Guðbrandsbiblíu
1588 og er þannig undirstaða
síðari biblíuútgáfu, og einsog
menn geta ímyndað sér er Nýja
testamenti Odds grundvallarhei-
mild um íslenska tungu á sið-
skiptaöld.
Það er Lögberg Sverris Krist-
inssonar sem stendur að þessari
fallegu útgáfu þarsem texti Odds
er prentaður nútímaletri og staf-
setningu, en orðmyndum flestum
haldið til haga og reynt að koma
til skila sérkennum frumútgáf-
unnar. í bókinni eru formáli eftir
herra Sigurbjörn Einarsson og
annar eftir málfræðingana Guð-
rúnu Kvaran, Gunnlaug Ingólfs-
mætti til sanns vegar færa að mat-
skeið af lýsi væri óþarflega stór
skammtur á dag, sérstaklega ef
fólk æti fjölvítamínpillur að auki;
eftir stendur hitt að fólki er full
þörf á að taka D vítamín í ein-
hverju formi, sagði hún.
HS
Titilsíðan úr Nýja testamenti
Odds frá 1840.
son og Jón Aðalstcin Jónsson,
fræðimenn á Orðabók Há-
skólans, en þau samræmdu staf-
setningu og gengu frá textanum
til prentunar.
Bókin var kynnt á blaða-
mannafundi í andyri Hallgríms-
kirkju í gær að viðstöddum bisk-
upum órum og ýmsu stórmenni
öðru. Luku menn þar lofsorði á
Odd, þýðingu hans, útgáfuna
nýju, og hver á annan, og er
óhætt að taka undir það hrós allt.
Bókin á að kosta 4.500 krónur
en verður til janúarloka seld á
kynningarverði sérstöku, 3750
kr. _m
Fimmudagur 8. desember 1988 Þjö0V|Lj|NN _ s(ðA 3
Ríkisútvarpið
Sparar
jólasálmana
Sálmar verði ekki spilað-
ir fyrr en á aðfangadag
- Við höfum beint þeim til-
mælum til dagskrárgerðarfólks
hjá okkur að spila ekki íslenska
jólasálma fyrir en eftir klukkan
sex á aðfangadag. Sérstaklega á
þetta við um Heims um ból, sem
samkvæmt gamli venju fyrst
heyrist í Útvarpinu á hverjum jól-
um þegar hann er sunginn við
messu í Dómkirkjunni á aðfanga-
dag, sagði Jón Orn Marinósson
tónlistarstjóri Ríkisútvarpsins.
- Við förum þess jafnframt á
leit við okkar fólk að það hlífi
hlutendum við jólalögum, eins
mikið og hægt er, þar til um miðj-
an desember, sagði Jón. Hann
sagðist ekki búast við að þeir hjá
tónlistardeildinni þurfi að læsa
niður plötur með jólalögum, því
hann eigi von á að starfsmenn
hlíti þessum tilmælum.
-sg