Þjóðviljinn - 10.03.1989, Qupperneq 9
• •
FQSTUDAGSFR
BHMR og kennarar
Arangurslitlir samningafundir
Páll Halldórsson: Samninganefnd ríkisins dregur
samningsrétt okkar íefa. Kennarar telja að samninganefnd
ríkisins tefji samningaviðrœður. Verkföllyfirvofandi?
Samninganefndir ríkisins og
BHMR annars vegar og kenn-
ara hins vegar áttu fundi í gær til
að ræða kjaramálin. Að sögn Páls
Halldórssonar, formanns BHMR
kom lítið út úr þeim fundi. Ríkið
hafi einfaldlega endurtekið tilboð
sitt um að kaupmáttur komandi
samninga yrði miðaður við kaup-
mátt eins og hann er á fyrsta árs-
fjórðungi þessa árs. „Samninga-
nefnd ríkisins dró í raun samn-
ingsrétt okkar sem sjálfstæðs fé-
lags í efa, þar sem þeir sögðu að
við kæmust ekki lengra fyrr en
séð væri hvernig öðrum aðilum
eins og ASÍ miðaði í sínum við-
ræðum. Við reynum þó að knýja
málin áfram en viljum ekki láta
ríkið draga ferðina alveg niður.
En ég verð því miður að segja að
ég er fremur svartsýnn á fram-
haldið,“ sagði Páll Halldórsson.
Allflest félög innan BHMR
hafa íhugað atkvæðagreiðslu
vegna verkfallsheimildar og hafa
sum hver framkvæmt þá at-
kvæðagreiðslu. Þannig var t.d.
samþykkt í Félagi íslenskra fræða
að veita félaginu verkfallsheim-
ild, 28 voru með en 7 á móti.
Næsti samningafundur BHMR
og ríkisins verður nk. miðviku-
dag og fram að þeim tíma mun
starfa viðræðunefnd aðila til und-
irbúnings fundinum.
Svipað hijóð var í kennurum
eftir fundinn í gær. Telja þeir að
ríkið reyni að koma sér hjá því að
ræða lykilatriði er varða kaup-
mátt, kaupmáttartryggingu,
kennsluskyldu og fleira. HÍK
hefur þegar gengið til atkvæða
um verkfallsboðun og samskonar
atkvæðagreiðsla stendur yfir hjá
Kennarasambandinu. Þrátt fyrir
tilmæli kennara um að halda fund
á næstu dögum, féllst samninga-
nefnd ríkisins ekki á fund fyrr en
14. mars. phh
Vestmannaeyjar
Rafmagnsmál
í ólestri
í gærkvöld var búist við að
tækist að ljúka viðgerð á vararaf-
strengnum til Vestmannaeyja en
undanfarna 2 sólarhringa hafa
eyjarskeggjar orðið að búa við
hvimleiðar rafmagnsskammtan-
ir. Aðalrafstrengurinn til Eyja
hefur verið í lamasessi frá því í
janúarbyrjun og ekki vitað hve-
nær hann kemst í gagnið á ný:
Á fundi bæjarstjórnar í gær-
kvöld var samþykkt ályktun þar
sem skorað er á iðnaðarráðu-.
neytið og Rafmagnsveitur ríkis-
ins að leita leiða til að auka ör-
yggið í raforkuflutningum frá.
landi til Eyja. -grh
Meistari Þórbergur
Stílverðlaun
Á sunnudag, 12. mars, er rétt
öld liðin frá því meistari Þórberg-
ur Þórðarson var í heiminn bor-
inn. Þessa er nú minnst með ýms-
um hætti og handhöfum
höfundar- og útgáfuréttar verka
Þórbergs, Háskóla íslands og
Máli og menningu, þykir við hæfi
að byrja af þessu tilefni að gera
vel við sporgöngumenn meistar-
ans. Stofnuð hafa sem sé verið
Stflverðlaun Þórbergs Þórðar-
sonar.
Verðlaunin verða veitt í fyrsta
skipti í hófi á sunnudaginn og hef-
ur úthlutunarnefnd, þrír valin-
kunnir sómamenn og íslensku-
fræðingar, kjörið mann til
sómans. 150 þúsund króna ávís-
unar. ks
Samtök kvenna
á vinnumarkaði
Aðalfundi frestað
Aðalfundi Samtaka kvenna á
vinnumarkaði sem halda átti
þann 11. mars kl. 13.30 að
Hallveigarstöðum hefur verið
frestað. Fundurinn verður þess í
stað haldinn mánudaginn 20.
mars og byrjar kl. 20.00. Fundað
verður á Hallveigarstöðum.
Gamla sjúkrahúsið á isafirði, sem reist var árið 1925 hefur nú lokið hlutverki sínu í heilbrigðismálum
Isfirðinga en nýtt hlutverk bíður þess nú sem miðstöðvar lista og menningar.
ísafjörður
14 ára bið á enda
Nýja sjúkrahúsið formlega tekið ínoktun ídag. Gamla húsinu verður
breytt í bóka- og listasafn
Idag verður nýja sjúkrahúsið á
ísafirði tekið formlega í noktun
og eru þá liðinn 14 ár frá því
fyrsta skóflustungan var tekin að
byggingu þess. Kostnaður við
bygginguna, framreiknaður
nemur um 500-600 miljónum
króna.
í gær voru allir sjúklingar flutt-
ir yfir í nýja sjúkrahúsið alls 30
talsins. Þessi áfangi sem núna er
tekin í noktun er sá 4. en í 5. og
síðasta áfanga verða pláss fyrir 26
sjúkrarúm til viðbótar. Með til-
komu nýja sjúkrahússins stækkar
sjúkrahúsplássið á ísafirði 7 falt
og aðstaða starfsfólks og sjúkl-
inga verður allt önnur og betri.
Þegar búið verður að flytja allt
dót og annað úr gamla húsinu,
sem var tekið í notkun 1925,
verður því breytt í bóka- og lista-
safn. Þegar hafa verið teknir í
notkun fyrstu 3 áfangar nýja
sjúkrahússins sem eru heilsu-
gæsluálma, röntgen- og rann-
sóknaálma og endurhæfingar-
deild þar sem eru ma. þreksalur
og sundlaug.
Að sögn Fylkis Ágústssonar
stjórnarformanns sjúkrahús-
stjórnar eru bæjarbúar ánægðir
með að nýja húsið skuli loksins
komast í gagnið eftir allt það sem
á undan hefur gengið. Varðandi
hættuna á mengun af völdum ger-
og steinullar í lofti hússins sagði
Fylkir að í ljósi þess lélega frá-
gangs sem þar kom fram verða
allt önnur vinnubrögð viðhöfð í
5. og síðasta áfanga hússins.
-grh
Lánskjaravísitalan
Breyting
fyrir
dómstóla
SAL: Harmar
ósveigjanleika
stjórnvalda
Sambandsstjórn almennra líf-
eyrissjóða telur nauðsynlegt að fá
úr því skorið fyrir dómstólum
hvort stjórnvöld geti hlutast til
um breytingar á verðtryggingar-
ákvæðum gildandi lánssamninga
með setningu reglugerðar.
Þegar liggur fyrir lögfræðileg
álitsgerð, sem unnin var af hæst-
aréttarlögmönnunum Jóni-
Steinari Gunnlaugssyni og Ragn-
ari Aðalsteinssyni samkvæmt
beiðni samtaka lífeyrissjóðanna.
Niðurstaða þeirra er að hvorki er
heimilt að taka upp beina viðmið-
un við launabreytingar á grund-
velli lánskjaravísitölu né er hægt
að breyta efni verðtryggingar í
gildandi lánssamningum.
Sambandsstjórnin harmar
ósveigjanleika stjórnvalda í mál-
inu sem hafa hafnað öllum
samkomulagsleiðum og ma. að
málinu verði vísað í sérstakan
gerðardóm.
-grh
Forsætisráðherra
Leita ber um-
sagnar Stefáns
Forsœtisráðherra
Engar skuklbindingar í Osló
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra mun ekki skrifa
undir skuldbindingar sem fela í
sér að Islendingar afsali sér rétti
eða einhverjum þætti fullveldis
síns á forsætisráðhcrrafundi
Eftaríkja sem hefst í Osló í næstu
viku.
Þetta kom fram í máli hans í
utandagskrárumræðu um Efta-
fundinn á alþingi í gær. Málshefj-
andi, Kristín Einarsdóttir, gagn-
rýndi hve lítið samráð forsætis-
ráðherra hefði haft við alþingi og
utanríkismálanefnd fyrir fund
þenna.
Kvaðst hún bera kvíðboga fyrir
því að stórpólitískar ákvarðanir
yrðu teknar í Osló, ákvarðanir
sem fælu í sér róttækar breytingar
fyrir íslendinga, og yrði alþingi
gert að leggja blessun sína yfir
þær teknar.
ks
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra harmar það ef
Stefán Valgeirsson og félagar
hans í Samtökum jafnréttis og fé-
lagshyggju hafa ekki fengið drög
að stjórnarfrumvörpum til
ígrundunar og umsagnar áður en
þau hafa verið lögð fram á al-
þingi.
Forsætisráðherra sagði við
Nýja Helgarblaðið í gær að eng-
um blöðum væri um það að fletta
að Stefánsfólki bæri, sem aðiljum
að ríkisstjórninni, að fá drögin í
hendur með góðum fyrirvara.
Það væri fagráðherranna að
koma frumvarpsdrögum í hendur
þingflokka stjórnarflokkanna og
væri misbrestur á því væri við þá
að sakast en ekki ríkisstjórnina í
heild. Engu að síður hygðist hann
hreyfa þessu máli á næsta rfkis-
stjórnarfundi.
Sjálfur hefði hann gætt þess að
hafa Samtök jafnréttis og félags-
hyggju með f ráðum en það kynni
að hafa valdið losi í skiptum ann-
arra ráðherra við þau hve lengi
Stefán sjálfur hefði verið frá
þingstörfum. ks
Föstudagur 10. mars 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SlÐA 9