Þjóðviljinn - 10.03.1989, Blaðsíða 20
Umsjón:
KRISTÍN VALSDÓTTIR
ANDRÉS GUÐMUNDSSON
BARNAKOMPAN
Nasasjón og pallborð
Stundum er sagt eitthvað
skrítið sem allir skilja en fáir
vita hvað merkir nákvæm-
lega. Þið hafið ef tii vill heyrst
um að hafa nasasjón af ein-
hverju. Þá er átt við að menn
þekki lítið til og hafi aðeins litla
reynslu af fyrirbrigðinu.
Sennilegast er að orðið nasa-
sjón komi frá því er menn sjá
illa, eru nærsýnir, og þurfa að
bera það sem þeir skoða al-
veg að augunum og þá verður
ekki komist hjá því að það
sem á að sjá nálgist nefið.
Ekki eru allir sem eiga upp á
pallborðið hjá einhverjum.
Þá verða menn að láta sér
það lynda að vera ekki í náð-
inni eða vera ekki í miklu áliti
hjá náunganum. Þetta þall-
borð sem talað er um táknar
borð á palli, en höfðingjar
höfðu þann sið að sitja við
upphækkuð borð. Borð höfð-
ingjanna stóð á palli og þang-
að gátu ekki hverjir sem voru
leyft sér að koma.
Þotan er búin að kasta sprengjum á jörðina. - Gísli Freyr
Björgvinsson 6 ára.
Fólk deyr af völdum áfengis, ekki keyra ef þú drekkur
bjór. Jón Unnar Hilmarsson 9 ára
Krossgátuhúsið
Lárétt:
1 Palli býr niðri en Sigga.
2 Toggi hrekkjusv n reynir stundum að Palla í handlegginn.
3 Á sumrin.sólin inn um gluggann.
Lóðrétt:
1 Það besta sem Palli fær að borða er grilluð.
2 Óli í næsta húsi er svo grannur að hann er kallaður Óli.
3 Rétt hjá húsinu er viðvörunarflauta sem stundum heyrist í
4 Á neðstu hæð er motta til að hreinsa...af skónum.
Hvað skyldi leynast þar á bak við?
Litaðu fletina með þríhyrningunum bláa og fletina með ferhyrnjngunum appelsínugula.
Þá ætti myndin að skýrast.
Áttu góða sögu og mynd í fórum þínum? Ef svo er vildum við gjarnan fá
sííkt sent. Barnakompan er síðan ykkar krakkar og þess vegna er um
að gera að skrifa. Gátur, íeikir, ykkár álit á barnaefni og yfirleift allt sem
ykkur dettur í hug á erindi í Barnakompuna. Skrifið og merkið bréfið
Barnakompan Þjóðviljarium, Síðumúla 6, 108 Reykjavík.
--». ''' .C — -V'. i -----.. .iý*''
20 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 10. mars 1989