Þjóðviljinn - 10.03.1989, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 10.03.1989, Blaðsíða 12
90 mínútna bið eftir veigunum T rúlega veröur glatt á hjalla vestur á ísafirði í dag þegar nýja sjúkrahúsið verður form- lega tekið í notkun. Þar verða mættir ráðherra heilbrigðis- mála, þingmenn kjördæmis- ins og aðrir áhrifamenn. Verð- ur ekkert til sparað til að gera opnunina sem veglegasta og verður boðið upp á vín sem hæfir aldri hins nýja sjúkra- húss. Þó er einn hængur á þar sem búist er við að ræður verði haldnar í það minnsta í 90 mínútur. En hvað er það þegar brjóstbirtan bíður við næsta horn og ef einhverjum verður misdægurt er viðkom- andi í góðum höndum starfs- fólks sjúkrahússins.B Hagsmunir hverra? Eins og flestum er kunnugt eru sumar kýr heilagri en aðr- ar. Þessi heilagleiki hefur hingað til verið bundinn við þær indversku en nú berast fréttir að þessi árátta hafi bor- ist vestur til Bolungarvíkur, til stjórnenda fyrirtækja Einars Guðfinnssonar hf. Þar stendur núna yfir undirskrift- Árétting f úttekt um atvinnuleysið í landinu sem birtist í Nýju Helgar- blaði 3. mars skal það tekið fram að millifyrirsögnin Burt með EG-ættina úr Víkinni er alfarið á ábyrgð greinarhöfundar en ekki viðkomandi heimilda- manns. Hafi einhverjir haldið annað er það hér með leiðrétt. - grh arherferð meðal starfsmanna fyrirtækja EG., sem er skipu- lögð af ættarveldinu, þar sem allir þeir sem voga sér að gagnrýna stjórnleysi ættar- veldisins eru úthrópaðir. Það er hins vegar umhugsunar- efni hverra hagsmuni verka- fólkið er að verja þegar það er haft í huga að fyrirtæki EG. skulda yfir 20 miljónir í Líf- eyrissjóð Bolungarvíkur og annað eins í bæjarsjóð. Þá hefur Atvinnutryggingarsjóð- ur ekki enn séð sér fært að koma fyrirtækjum ættarveld- isins til hjálpar vegna bágrar stöðu þeirra. Stjórnarmenn hans mega því eiga von á að vera settir á svarta listann fyrir vestan láti þeir ekki af villu- skoðunum sínum.B Rauði krossinn gegn reykingum Tóbak er ekki lengur til sölu í sjoppum á spítölunum í Reykjavík. Þessi nýbreytni tók gildi nú um mánaðamótin, og mun helsti hvatamaðurinn vera Guðjón Magnússon varalandlæknir, stjórnarfor- maður í Rauða krossinum. Þetta er auðvitað liður í forvörnum gegn reykingum og ef til vill ekki óeðlilegt á sjúkrahúsum þar sem afleið- ingarnar eru öllum Ijósar. Þó munu hafa kviknað ýmsar efasemdir bæði hjá starfsfólki og hjá kvennadeild Rauða krossins, sem rekursjoppurn- ar. Til dæmis má deila um hvort sjúklingum sem reykja sé gerður með þessu mikill greiði, og það má líka spyrja sig að því hvort yfirstjórn Rauða krossins verði ekki að fara að líta hollustuaugum á fleira í spítalasjoppunum. Er ekki rétt að forða starfsmönn- um og sjúklingum líka frá syk- urdrullunni í sælgætinu og öllu ropvatninu? Kannski endar þetta bara með appels- ínum og eplum...M SPIL VIKUNNAR ÓLAFUR LÁRUSSON Við höfum í þessum þáttum áður fjallað um öryggisþáttinn í bridge. Hvernig við getum bætt spilamennskuna og um leið glingrað við stærðfræðikunnátt- una. Lítum á dæmi: K10763 ÁD94 10 G74 Á 106 KDG7652 Á103 Sagnir enduðu í þremur gröndum í Suður og útspilið er laufafimma. Fljótt á litið vild- um við frekar spila tígulsamn- ing, en hjartaútspilið frá Vestri (mögulega) leiðréttir okkur í þeim hugsanagangi. Nú, í þremur gröndum verð- um við að velja spilaleið. Er þetta eitthvert mál, kann ein- hver að spyrja? Lítið lauf, drottning frá Austri, við drep- um á ás og gluðrum út tígulk- óngi. Vonum að tígullinn liggi 3-2 og við fáum okkar 10-11 slagi. En ef tígullinn er4-l? Nú, þá töpum við alltaf spilinu, ekki satt? (Við gefum okkur í svona þrautum að hjartakóngur liggi bakvið ás/dömu). Sá einhver möguleikann að auka vinningsiíkurnar um 2,8%, með því að spila hjarta upp á ás í öðrum slag, út með tígultíu og yfirtaka með kóngi, ef það kemur lágt frá Austri? Jamm, ásinn stakur í Austri er einn möguleikinn. Milli- leikur sem þessi (sem því miður alltof fáir koma auga á í sjálfum leiknum) getur haft undraverð áhrif í persónulega bókhaldinu. (Tekið úr Advanced Play eftir Kelsey) Byggung Kópavogi Byggung Kópavogi auglýsir nýjan byggingaflokk við Trönuhjalla 1 og 3 í Kópavogi. Um er að ræða 7 tveggja herbergja íbúðir, 6 þriggja herbergja íbúðir án bílskúrs, 1 þriggja herbergja íbúð með bílskúr, 2 fjögurra herbergja íbúðir með bílskúr og 1 fimm herbergja íbúð með bílskúr. Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins, Hamra- borg 1, 3. hæð, sími 44906. Styómfn Landsliðskempurnar Þorgils Óttar Mathiesen og Geir Sveinsson verða tyrirliðar FH og Vals í Evrópuleikjunum á sunnudag. Við vonum að þeir og þeirra menn sýni sama sigurviljann og landsliðið gerði í B-keppninni. Risar úr austri Tvö af bestu félagsliðum heims leika gegn Val og FH Tvö íslensk handknattleikslið leika í fjórðungsúrslitum Evróp- ukeppnanna um helgina. Is- landsmeistarar Vals leika gegn a- þýsku meisturunum frá Magde- burg og FH leikur gegn sovéska liðinu SKIF Krasnodar í IHF- keppninni. Bæði lið ættu að eiga ágæta möguleika á sigri enda þótt mótherjarnir séu ekki af verri endanum. Sjö landsliðsmenn Leikur Vals og Magdeburg fer fram í Laugardalshöll kl. 20.30 á sunnudag. Leikir íslenska lands- liðsins gegn því a-þýska hafa ver- ið jafnir og skemmtilegir undan- farin misseri og því mætti ætla að svo verði einnig þegar bestu lið þjóðanna eigast við. Lið Magde- burg hefur á að skipa sjö lands- liðsmönnum þannig að hér er um að ræða eitt besta félagslið heims. Kunnustu leikmenn liðsins eru væntanlega markvörðurinn Wie- land Schmidt sem leikið hefur 279 landsleiki og línumaðurinn snjalli Ingolf Wiegert með 225 landsleiki. Schmidt er reyndar einnig þjálfari en hann tók við liðinu eftir að forveri hans lést í vetur. Hann mun þó verja mark þeirra ef þörf krefur en núver- andi landsliðsmarkvörður A- Þjóðverja, Gunar Schimrock leikur einnig með Magdeburg. Það er því ljóst að Valsmenn munu eiga við ramman reip að draga á sunnudagskvöld. Valur er okkar lang besta fél- agslið í dag og hafa menn bundið miklar vonir við liðið í Evrópuk- eppninni. Liðið hefur, líkt og Magdeburg, landsliðsmenn nán- ast í hverri stöðu en það veikir liðið þó mjög að Einar Þorvarð- arson er meiddur og getur ekki leikið með. Einar hefur verið ein- hver mikilvægasti leikmaður Vals í sigurgöngu liðsins að undan- förnu og getur munað miklu gegn svo sterku liði sem Magdeburg er. Úrslit leiksins velta því mikið á frammistöðu Páls Guðnasonar og Ólafs Benediktssonar, sem far- inn er að æfa með meistaraflokki að nýju. Óli Ben. vai okkar besti markvörður um árabil og hefur mikla reynslu sem getur komið sér vel í leik sem þessum. Að öðru leyti ætti Valsliðið að vera í góðu formi. Hornamenn- irnir Jakob Sigurðsson og Vald- imar Grímsson hafa sjaldan leikið betur og sömu sögu má raunar segja um aðra landsliðs- menn liðsins, þá Geir Sveinsson, Sigurð Sveinsson og Júlíus Jónas- son. Á miðjunni leikur síðan Jón Kristjánsson sem leikið hefur vel í vetur. Valsvörnin, með þá Geir og Þorbjörn Jensson í broddi fylkingar, er ein sterkasta hlið liðsins og nái liðið að sýna góðan varnarleik á sunnudaginn er möguleikinn á sigri vel fyrir hendi. Sovéskir risar Mótherjar FH-inga frá Krasn- odar er síst lakara lið en það a- þýska. Leikur liðanna verður að sjálfsögðu í ljónagryfu Hafnfirðinga við Strandgötu og hefst kl. 17.00 á sunnudag. Þar hafa FH-ingar slegið tvö lið úr keppninni á eftirminnilegan hátt. Fyrst unnu þeir norska liðið Fre- densborg Ski með minnsta hugs- anlega mun þar sem Guðjón Árnason skoraði úrslitamarkið á síðustu sekúndunni og síðan var rúmenska liðið Baia Mare lagt að velli með 13 marka mun eftir að fyrri leikurinn í Rúmeníu hafði tapast með átta mörkum. í sovéska liðinu eru tveir lands- liðsmenn, markverðirnir Andrei Lavarov og ígor Tsjúmak. Fjórir leikmanna liðsins eru yfir tveir metrar á hæð þannig að jafnvel Héðinn Gilsson gæti fengið minnimáttarkennd! Sterkasta vopn FH-inga er vafalaust hraður sóknarleikur þeirra en það gæti þó reynst erfitt að koma knettinum framhjá landsliðsmarkvörðum Svovét- manna. Þá verður vörn FH að smella saman í þessum leik eigi ekki að fara illa en vörn og mark- varsla FH-inga hefur verið mjög misjöfn í vetur. Bæði Valur og FH hafa unnið sína sigra í Evrópukeppninni í vetur eftir að hafa tapað fyrri leiknum erlendis. Nú leika bæði lið fyrri leikinn á heimavelli og þurfa því nokkurra markaforystu til að eiga raunhæfa möguleika á að komast í undanúrslitin. FH hefur aðeins einu sinni komist í undanúrslit en það var árið 1985 í keppni meistaraliða. Valur hefur hins vegar eitt íslenskra liða kom- ist alla leið í úrslitaleikinn. Það gerðu þeir sællar minningar árið 1980 og léku þá til úrslita gegn v-þýska liðinu Grosswaldstadt í keppni meistaraliða. Hvort liðin ná þessum markmiðum í ár er fyrst og fremst undir leikjum sunnudagsins komið. Ættu hinir fjölmörgu handboltaáhuga- menn, sem spruttu upp að nýju á meðan landsliðið gerði það gott í Frakklandi, að láta sjá sig á amk. öðrum leikjanna, ef ekki bara þeim báðum. Fyllum handbolta- hallirnar á sunnudag. ÍÞRÓTTIR ÞORFINNUR ÓMARSSON 12 9áDA - MÝTT HELOAIWLAD 10. 1!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.