Þjóðviljinn - 10.03.1989, Síða 22
Hugmyndafræði öskunnar
eða: Hundur veit húsbóndans vilja
eða: Brot úr eftirmælum 20. aldar
Sólin rís síðla. Dagur er stutt-
ur, loft öskublandið, bæði önd-
unarloft og andrúmsloft, enda
eru nú öskudagar óvenjulega
margir eftir að ískaldir stormar
hafa þyrlað fram og aftur ryki
duftsins sona, sem látizt hafa í
tveim stórstyrjöldum, 150 smá-
stríðum, Hiroshima, Nagasaki,
Seveso, Salisburg, Bhopal,
Tschernobyl, alls um 90 milljón
sálir. En hátt uppi yfir þessu
moldviðri öskuryks svífur aska
Shelleys, jarðneskar leifar lík-
ama hans, sem Byron brenndi við
strönd Livorno, flutti til Rómar
og grafsetti í Cestius pýramída.
Um það hefir verið rætt, á
hvaða máli skólakennsla á æðra
stigi skuli fram fara. Sýnist sitt
hverjum. Vandi er aðinnleysa ar-
agrúa útlendra orða með gjald-
yrði móðurmáls eða veita þeim
óbreyttum þegnrétt. A til dæmis
að segja tegra eða integrera?
Hvorttveggja er jafnóskiljanlegt
almenningi: að koma í gott lag,
fullgera, fylla, endurnýja.
Menntamanni verður þá hugsað
til stúdentasöngsins eftir Horati-
us, Integer vitae, líka sunginn við
ljóð Jóns Thoroddsens, Barma-
hlíð, Hlíðin mín fríða, sem af
söngkennara hálfu hefir í vókalí-
sérandi æfingaskyni fyrir söng-
kverkar verið umbreytt í: Hlaðan
man fraða. Hér hefir þykkt
öskulag setzt að texta.
Alþýðan
Fyrrum var það keppikefli að
taka upp latneskar orðmyndir í
mannanöfnum. Brynjólfur,
sonur Þórðar biskups Þorláks-
sonar, en hann var maður músík-
alskur og listelskur, átti fátíð
hljóðfæri eins og symfón og reg-
al, stundaði litmálun og samdi
fyrstu söngfræði íslands; en son-
urinn vildi ekki vera Þórðarson,
heldur latíníséraði eftirnafn
föður síns og kallaði sig Thorlaci-
us. Ekki var það talin málmeng-
un, enda dafnar nafnið vel.
Post-módernisminn hneigist til
feimulausrar deilu, sem iðkuð er
sem íþrótt. Pólitík má ekki kafna
í fyrirskrifuðum leiðindum, held-
ur ekki menningarmálaumræða.
Rækta verður fyndni, háðhvörf,
snerpu og ádeilu. Þannig mætti
kalla forsvarsmenn músík-
poppismans eða tónskunnar
(ekki rugla saman við flónskunn-
ar!), í samræmi við Thorlacius,
Ingverus Kiaransky; og er þá til
tilbreytingar ofurlítið sveigt til
slavisma (vegna of langs,
þreytandi, andlegs sambýlis við
ensku sýkina og Amerígó áhrif,
enda þótt upprunalegt nafn,
norrænt-keltneskt, sé Ingvar
Kjaran. Er þá gott að hafa í huga
Ingvars sögu víðförla).
Það er tíð yfirsjón hjá náttúru-
vísindunum, að þau líta á ályktun
sem sönnun fyrir forsendum.
Eins fer fyrir IK (og er ekki
leiðum að líkjast!). Hann beinlín-
is ákveður (eða fyrirskipar?), að
popp sé eftirlætis-músík alþýðu,
alþýðu-tónlist, án þess að skil-
greina, hve stóran geira samfé-
lags hugtakið alþýða spanni.
Venjulega er hér átt við verka-
fólk, bændur, handverks- og iðn-
aðarmenn, þjónustustarfsmenn,
lægri embættismenn, sjómenn,
vitanlega burtséð frá allri aldurs-
skiptingu, frá unglingsaldri til
elliára. Væntanlega kæmu einnig
inn í myndina meirihluti kenn-
ara, smákaupmanna, stór hluti
borgarastéttar. Þeir sem lentu
utan þess ramma, ættu þá að að-
hyllast aðra músíktegund. Hins-
vegar bendir dagskrárskipun út-
varps til þess, að með slagara-
músík nútímans sé einkum höfð-
að til viss aldursstigs (Iög unga
fólksins).
Alþýðumúsík
Alþýðumúsík, hjá okkur söng-
ur alþýðunnar (hljóðfæri voru
ekki til) var löngum runnin frá og
iðkuð af breiðum grunnstéttum
þjóðfélagsins. Var hér að verki
..tónskáldið mikla, þjóðin sjálf“,
eins og Jón Leifs sagði. Þjóðlagið
var syngjandi sál fólksins. Þar
birtist alþýðulistin, næring og agi
fyrir andann. Hún átti erindi við
alla, háa sem lága. Þesskonar list
fólst líka í því að skera út ask,
flétta hrosshársreipi, smíða
skeifu, vefa voð, litprjóna ílepp,
hlaða torfvegg, leggja hrísbú,
kveða rímu. Af þessu máráða, að
list alþýðunnar var jafnan nytja-
list. Hún fyllti upp tómarúm til-
verunnar með listilegu handverki
og hálfsungnum hetjukvæðum.
Gjarnan minnist ég kennara
míns, Pauls Hindemith, er var
sem nýstefnumaður heimsfrægur
kompónisti. Hann lét svo um
mælt: „Sápustykki getur verið
mótað á listrænan hátt; en það er
ekki listaverk, af því að það er
tilbúið úr forgengilegu efni.“
Sápa eyðist, sandur þyrlast í sí-
felldum myndbreytingum, krítar-
myndir á gangstétt mást út. Ann-
að efni er varanlegra, frá okkar
skammdræga sjónarhóli óeyðan-
legt. Fyrir 17 þúsund árum skóp
frummaðurinn djúpt undir yfir-
borði jaröar litmálaðar myndir í
Altamira og Lascaux af hundruð-
um frumsögulegra dýra á veggi
og loft í risastórum hellum. Þetta
efni hefir reynzt varanlegt, og
enn geta menn dáðst að þessari
„alþýðulist“ þessari „menningar-
legu“ viðleitnisvitund.
Alþýðulist sem menningarlegt
handverk og siðvenjur hefir fyrir
löngu verið tekin sem kennslu-
grein upp í háskólakerfi (raunar
hefi ég kennt hana sem músík-
etnólógíu við Berlínar háskóla og
ritað um hana heila bók). Hér er
að finna uppsprettu og undir-
stöðu áframhaldandi listþroska,
sem að síðustu leiðir til æðri listar
sem hluta af hámenningu, klass-
fsks kúltúrs, sem hefir alheims-
gildi og menn virða og vegsama
gegn um árþúsundir. Óbrigðult
er efnið, sem varðveitt hefir verk
listarinnar. Hetjusagnir Hómers í
Ilíons- og Ódysseifs-kviðum lifa
enn í dag, af því að þær voru
skráðar forngrísku letri og síðan
þýddar fyrst á latínu og urðu þá
aðal-skólabók Rómverja, svo að
enginn annar en höfuðskáld
þeirra, Horatius, lofaði söngva
Hómers (um 800 f. Kr.) og kvað
þar verða skiljanlegt, hvað væri
fagurt, hvað andstyggilegt, hvað
gagnlegt og hvað óþarft. í röð
með þessum frumföður grískra
bókmennta gætum við með sjálf-
sögðu lítillæti skipað forkólfi
norrænnar sagnritunar og germ-
anskrar goðafræði, Snorra Sturl-
usyni og íslenzk-danska mynd-
meistaranum Albert Þorvalds-
syni.
Að grugga
tært bergvatn
í mannfyrirlitningarfullvissu
sinni og uppeldislegrí tónlistartrú
á menningarlegu listgildi popp-
ismans sem alþýðutónlistar vill
IK komast upp á hornskákina
með því að lítillækka hámenn-
ingu og upphefja alþýðumenn-
ingu. Hér er skákað í skjóli al-
þýðu vegna þess, að hún er fjöl-
mennasta stétt samfélags, en hún
er jafnframt sú fátækasta. Til að
róa hvefsið geð IK skal ég fara í
fornu gólfin og benda á algjöran
samruna gamalgróinnar alþýð-
umenningar og hámenningar,
sem síðar varð, meðal Grikkja,
sterkasta og vinsælasta uppeldis-
þátt í borgríki lýðveldisins
Aþenu. Þetta var sjónleikurinn
(tragedían). Hann var allt í senn:
guðsþjónusta, listaverk á hæsta
stigi, og hann var ríkisathöfn,
boðinn gjörvöllu lýðveldinu
ásamt þrælum eða helótum, já,
meira að segja fyrirskipaður. Hér
gnæfir höfunda hæst mesta sjón-
leikjaskáld allra tíma, séníið Eur-
ipides með sínum 88 leikritum,
byggjandi á aldagamalli arfleifð
snarleikinna eða impróvíséraðra
orðaskipta. Vísi að þesskonar
samruna má einnig finna í goða-
og hetju-kvæðum Sæmundar-
Eddu.
Það er sjúkdómur okkar tíma
að bera í bætifláka fyrir það lítil-
mótlega, að sjá stórt í smá-
mennum, að lítillækka stórmenni
og gera sér það að meginreglu að
grugga upp með tortryggni tært
bergvatn sannra heimilda. Þetta
er líka grunntónnin, þegar fram á
málfærslugólf stígur kjaranskur
sveinn; og er sá vinur, sem til
varnar býðst, því að vörnin er þá
vænst, að vasklega sé höggvið.
Hitt er svo annað mál, hvort
höggin hitta eða geiga. Nefnist
það síðara klámhögg. En mikið
liggur við, að rétt sé miðað, þar
eð menningin er í húfi, já, og list-
in líka.
Aðstoðarmaður Gests Guð-
mundssonar er yfirfullur vand-
lætingar sökum þess, að popp-
músík skuli ekki falla inn í þann
ramma, sem kenndur hafi verið
við sístæða menningu, samsvari
ekki þeim kröfum, er gerðar séu
til listlögmála þeirra verka, sem
löngum hafi verið aðalsmerki
mannsins um 5000 ára skeið. -
Nú mætti að vísu segja, að dálæti,
já, átrúnaður IK á andlega upp-
eldisnæringu sína sé í samræmi
við menningarmálastjórn ís-
lenzks lýðveldis, honum til nokk-
urra málsbóta, en ekki lýðveld-
inu.
Ríkisviðurkenning til allra list-
greina við þessa árs úthlutun
nemur sjö milljónum króna
handa eitt hundrað lista-
mönnum. Veskú. Takk. Við
samanburð sést, hve mikils list-
menning er metin. Varið er níu
milljónum til að koma á flot mel-
ódontu höfuðsmanns íslenzkrar
„alþýðutónlistar", Herkúles /
Sókrates eftir Stormsker. Og
enginn veit, hvað lengi fleyta sú
helzt haffær. Leki er á næsta
leyti, og innanborðs eru aðeins
dægurflugur. Afþreyingariðnað-
ur og massaframleiðsla komast á
snagann, en væntanleg menning-
arverðmæti ganga í skurðinn.
I Nóbelsverðlaunaræðu sinni
1957 segir Albert Camus: „Listin
er í mínum augum ekkert ein-
setumanns gamanefni. Hún er
miðill, til þess að geta snert sem
allraflesta menn, með því að sýna
þeim ómisskiljanlega mynd af
sameiginlegri þjáningu og gleði.“
Jafnvel Bach sannar þetta, ann-
arsvegar í passtu- eða píslarsögu-
verkum sínum, hinsvegarídansa-
svítum; og list þekkti hann vel,
þótt latneska nafnið „ars“ fæli
Dr. Hallgrímur
Helgason
hana í sér sem samheiti fyrir list
og vísindi, enda var Bach með-
limur í vísindafélagi Leipzig-
borgar.
Skriplað
á skötunni
Og enn skriplar IK á skötunni,
er hann ranglega ályktar, að til-
vitnun sé tekin úr gulu pressunni,
skammbyssu-málgagninu BILD,
auvirðilegu æsifregnablaði,
sorpblaði, sem ástundar allsherj-
ar veruleikafirringu. Nei, til vitn-
is var stefnt vikublaðinu ZEIT,
Helmut- Schmidt-kanslara-blað-
inu, sem jafnan reynir að þræða
villugjarna vegi upplýsingarsann-
leikans í misvísandi slörkuflóa
fjölmiðlafárs. Að afgreiða slíka
heimild sem „óttalegt sullum-
bull“, án frekari röksemdafærslu,
er sullukolls háttur.
Upphafstilvitnun í fegurðar-
dýrkandann og húmanistann
Þorstein Valdimarsson, sem
einnig var frábær músíkunnandi,
er því líkast að drekka vígt vatn á
vegum fordæmingarinnar. Ferð
er hafin, án þess að standa við
fyrirheit. Hinsvegar væri hægt að
bæta úr því með skilgreinandi
ummælum skoðanabróður Þor-
steins, Adalberts Stifter, um eðli
og tilgang listar: „List í æðra
skilningi nefnist sá hæfileiki, að
leiða fram eitthvað það, sem með
afbærri fegurð grípur hjarta
mannsins, upplyftir því, göfgar
það og mildar, beinir því til hins
göða, til helgi og guðdómsdýrk-
unar.“
í fegurð felst sannleikur, og að-
eins í sánnleikanum er vizka fólg-
in; og hún verður til fyrir hugsun.
Af öllu atférli mannsins er hugs-
anarásin minnst rannsökuð.
Mögulegt er að spyrja: Hvar
lætur þú sauma? Aftur á móti er
óhægara að spyrja: Hvar lætur þú
hugsa? - ekki þá nema spyrjandi
sé annaðhvort sníkjudýr eða lýð-
skrumari. Hestur ratar í þoku.
Það getur maðurinn eftir atvikum
líka. En í mótsetningu við ferfætl-
inginn þarfnast maðurinn fyrir-
rennara, sem eru fyrirmyndir.
Allir þurfa á þeim að halda. Mað-
urinn hænist að þeim eða víkur
frá þeim, ef hann er svo heltek-
inn, að hann þarmeð verði ó -
frjáls. Margir verða þessum vá-
anda aðdáunar að bráð, af því að
þeir hafa vanizt honum allt frá
barnsaldri. Uppeldisáhrifin
verða að innrætingu, síðar að
heilaþvotti og loks að trúar-
brögðum, án þess að til greina
komi nokkur siðfræði.
Hvað er
sannleikur?
Eigin óeirni sína ærir IK með
því að spyrja: Hvað er sann-
leikur? Þessi fræga Pílatusar-
spurning er enn óráðin. (Ég finn
enga sök hjá þe'ssum manni). Öll
hugsun Evrópu snýst um spurn-
inguna: Hvað er veruleiki? Hvað
er líf? Hvað er dauði? Hvað er
rúm og tími? En mennirnir eru
reikandi ráðgátur, óleysanlegar í
dul sinni. Þvf hafa efasemdar-
mennirnir réttast fyrir sér, Ham-
let, Don Quichote, Faust og Pí-
latus. Upp af efasemdanna akri
sprettur jafnan hávöxtur menn-
ingar, lista og tækni. Og íslenzkir
andans akuryrkjumenn verða að
sá til nýrra greina lista og menn-
ingar (músík, myndlist, arkítekt-
úr, tækni, heimspeki, vísindi),
því að menningarleg eða listarleg
arftekt var engin; og hvorki Nor-
dælska né poppismi geta skapað
þær.
Valdskipting var einþætt, allt
til þess er Montesqieu sagði fyrir
um þrískiptingu þess: löggjafar-
vald, dómsvald, framkvæmda-
vald. Fursti eða konungur (t.d.
Lúðvfk 14.) samdi lögin, dæmdi
eftir þeim og refsaði. Hann var
fulltrúi absólútismans eða ein-
veldisins, sem við vorum látnir
eiðfesta með Kópavogssamþykkt
1662. Þá gat enginn sagt einveld-
isherra að varast sjö dauðasynd-
ir, svo sem hroka eða dramb, sem
talin var verst allra vitia capitalia,
en hana feitletrar svaramaður
GG og er mikið niðri fyrir, senni-
lega bræði, er brýzt út í orðaá-
leitni: Að hugsa sér, að nokkur
skuli dirfast að andmæla „goð-
sögn“ ungafólksins, öskuþöktum
mythos síðara hluta 20. aldar.
Þvílík afstaða getur líka talizt til
dreissugheita. En nú er oflæti al-
mennur orðinn eiginleiki, svo að
á hvorugan veginn er um að sak-
ast, því að fulltrúar löggjafar-
valds og dómsvalds ganga á
undan með góðu eftirdæmi og
gerast full-djarftækir til birgða
Dionysosar, vínguðsins. Er þá
óvandaður eftirleikurinn með
Pan og satýra dansandi kring um
erfidrykkju aldarinnar.
Dag er tekið að lengja. Rás
aldar styttist. Nýir straumar eru
forboðar breyttra tíma. Hol-
skefla sálarkremjandi og eyrna-
blæðandi, hljóðbylgjulegrar
virkni líður hjá sem Acid Rock
eða psýkedelískt rokk með 80%
dópneytenda í poppara hópi.
Jafnvel anakrónisminn birtist
sem neó-klassísismi og afturhvarf
til einfaldleikans. Menn fara að
hugsa með eyranu eftir nægilegar
blóðsúthellingar í hlustar-
göngum. Eftir miklar eyðilegg-
ingar og útbrunnar rústir aldar-
innar er öskumagn orðið svo
mikið, að vænta má þess, að fugl-
inn Fönix endurfæðist á hverri
stundu, rísi upp úr öskunni sem
tákn endurnýjunar og ódauð-
leika. - Sólin rís árla.
Millifyrirsagnir eru Nýs Helgarblaðs.
22 SÍPA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 10. mars 1989