Þjóðviljinn - 10.03.1989, Blaðsíða 26
t~ 3— i— W~ b £— •b 7— v— 1 T~ w~ s T~
)0 // ð V )Z S )i> \Q )*)
b iV n 8 V 1 'J X) 32 lt> T )Z )t w
22 1/ rsr y ¥ xó T T JT <2 19 Z 32 3 2
1 )/ ú 5 —^ L . 8 )? l(? 5 21 )Ý 8 It,
T W 13 °l 5 ii 3? 1 ir >9 W~ II Zl 32 j?
3? Zl ~ * 7 5 T )# i <p 2’J 8 33
15 u )? 32 )+ 2<o T V V + H '20
T~ T 25 )i 32 n 5 21 T 32 28 8 fí
2°) y n 8 T~ Vb )b ¥ 32 15 5 8 21
ií z y w 23 YJL /Ý JT 7 ) Z‘J )2 32
)9 % V 5 5 lo ij il <2 )<p T 8
C? T ti )9 <2 X/ JV V 5 YX )9 7 S2 n 32
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Verðlaunakrossgóta
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá örnefni í
nágrenni Reykjavíkur. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til
Þjóðviljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 34“. Skila-
frestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa.
5 ? 26 J3 )7 8 25 20 )9
Lausnarorðið fyrir krossgátu nr. 31 var BJÖRGÚLFUR. Dregið var úr Verðlaun fyrir krossgátu nr. 34 er
réttum lausnum og upp kom nafn Sigurðar Jónssonar, Búlandi 38, skáldsaga Einars Kárasonar, Þar
Reykjavík. Hann fær senda skáldsöguna Markaðstorg guðanna eftir sem djöflaeyjan rís. Mál og
Ólaf Jóhann Ólafsson. menning gaf út.
TAROT
Hilmar Öm
Hilmarsson
Af kaiikyns og
kvenkyns kröftum
Eins og glöggir lesendur muna
vafalaust fór ég aðeins inn á hið
kosmíska kynjamisrétti í einni af
fyrri greinunum. Forfeðurnir sáu
karlkynið sem hart og gerandi og
kvenkynið sem mjúkt og þiggj-
andi. Þetta endurspeglast í því að
frumefnið Eldur telst vera
karlkyns, en frumefnið Vatn
kvenkyns.
Eldur ræður Vandarspilunum
þannig að þau endurspegla hefð-
bundnar karlkyns dyggðir og
nokkrir lestir eru látnir fljóta
með. Vatn ræður Bikurum og að
sjálfsögðu endurspegla þau spil
þá kvenmynd sem við öll elskum
og þekkjum með smá femme
fatale-formerkjum og drabbi
innan um og samanvið.
Jæja, Bikarana fyrst og hér
byrjar upptalningin:
AS: Ast, ánægja, fylling.
Breyting sem verður án þess að
fyrir henni sé haft. „Mamma
tekur til í herberginu,“ og til-
brigði af því.
2: Meiri ást með nautn í bland.
Vísar einnig til ástarsambanda.
3: Allsnægtir, sigur, hamingja.
Umhverfið verður eins og maður
óskar sér.
4: „Lúxus", blendin ánægja,
þreyta. Það sem að var stefnt var
ekki jafn mikill „draumur" og
fólk hafði ímyndað sér.
5: Vonbrigði, vinir bregðast,
tap. Of mikil tilfinningaleg fjár-
festing í öðru fólki.
6: Nautn, ánægja, fortíðin.
Fólk hefur fattað hvað því finnst
gott og gerir eitthvað í málunum.
7: Drabb, tálsýnir, ímyndaður
árangur. Útskúfun og leiðindi.
8: Leti, uppgjöf, fólk missir
áhuga á hlutunum. -Ekki endi-
lega í þeirri röð...
9: Hamingja, sigur, gróði.
Takmarki náð.
10: Mettun, varað við því að
ganga of langt. Nóg komið af svo
góðu.
SKJALDSVEINN/PRINS-
ESSA: Gjafmildi sjarmi og mýkt.
RIDDARI: Brugðist skjótt
við, elskulegheit, fyrirgreiðsla.
Bankastjóri sem er „mjúkur"
maður.
DROTTNING: Draumórar,
tálsýnir, manneskja sem er áreið-
anleg þegar það hentar henni
sjálfri.
KONUNGUR/PRINS:
Kænska, eigingjörn útsjónar-
semi, ofbeldi eða æsingur
kraumar undir niðri.
GERARD
MATU
Bouillabaisse
1 kg fiskur
tómatar
laukur
hvítlaukur
olífuolía
egg
safran
1 dós krabbasúpa frá ORA
kryddjurtir
franskbrauð
hvítvín
ostur (óðals)
Bouillabaisse er stolt Mars-
eilleborgar. Það er dásamlegur
veislumatur þótt hann sé svolítið
þungmeltur. En góður matur
þarf hvorki að vera ffnn né holl-
ur. Hann þarf að vera góður.
Boillabaisse er fiskisúpa, borin
fram með sérstakri sósu „la rou-
ille“, ristuðum brauðteningum
og rifnum osti.
Súpan: Setjið fiskinn í pott
(gott er að nota 1-3 flök af mis-
munandi fisktegundum) ásamt
tómötum, )auk, kryddjurtum og
krabbasúpinni frá ORA. Látið
sjóða almennilega. Bætið þurru
hvítvíni við á síðustu stundu, því
vínið er of dýrt á íslandi til að
leyfa sér að láta áfengið gufa upp.
Sjálfur tíni ég jurtir mínar í
Suður-Frakklandi rétt fyrir sólar-
upprás í suð-suðvestlægum hlíð-
um, fimm dögum áður en jurtirn-
ar blómgast. Ef þið hins vegar
eigið ekki leið þar um á næstunni
dugir Italian seasoning frá
KRON ágætlega.
Þegar ég býð snobbliði í mat
passa ég mig alltaf að opna ORA-
dósina áður en gestirnir koma.
Fiskisoðið betrumbæti ég með
því að sjóða haus og bein sem
fisksali minn er alltaf fús að veiða
upp úr slorhaugum sínum. Þann-
ig búa einnig bestu veitingahús í
heimi til fisksoðið sitt. Óþarft er
að segja gestunum það, í það
minnsta fyrr en eftir borðhald.
Sósan: Blandið eggjarauðu og
sinnepi í skál. Hellið ólífuolíu
smám saman útí á meðan þið
þeytið með gaffli (ekki rafmagns-
þeytara). Athugið, öll efnin
þurfa að vera á herbergishita.
Bætið við pressuðum hvítlauk,
pipar og safran. Þótt sósan líkist
mayonnais verðið þið að sætta
ykkur við það að'Gunnar getur
ekkert fyrir ykkur gert.
Ristið brauðsneiðar. Strjúkið
yfir þær með hvítlauk og skerið í
teninga. Steikið síðan á pönnu í
ólívuolíu þar sem það má aðeins
brenna. Rífið ost nægilega
snemma til að hann hafi eitthvert
bragð.
Þessi réttur hefur tvo kosti: á
meðan gestirnir eru uppteknir
við að segja: „Viltu rétta mér
brauðið", eða „Ertu búinn með
ostinn?" þarf gestgjafinn ekki
stöðugt að hafa áhyggjur af að
endurlífga samræðurnar. Annar
kostur er að það má alveg drekka
rauðvín með þessum rétti og
losna við þessa heimsku hefð að
drekka alltaf hvítvín með fiski.
Thoth, hinn sérhannaði turot-
guð.
5: Strit sem gengur upp að lok-
um, samkeppni, barátta. Hefð-
bundinn íslenskur veruleiki.
6: Sigur, gróði, óskir upp-
fylltar.
7: Sæmd, hugrekki, sigrast á
erfiðleikum.
8: Aksjón, hreyfing á hlutun-
um. Ekki stöðvast fyrr en settu
marki er náð.
9: Styrkur og innri kraftur.
Óvinir og óþægilegir hlutir í um-
hverfinu teknir föstum tökum.
10: Kúgun, utanaðkomandi
truflun. Einhver sýnir grimmd.
Nauðsynlegt að gera eitthvað í
málunum. Annað dulspekilegt
dæmi um íslenskan veruleika.
SKJALDSVEINN/PRINS-
Þá förum við út í vendina:
ÁS: Orka, upphaf, sköpun.
„Sýna keppnisanda og þá gengur
allt upp“. Ýmis tilbrigði af því,
misjafnlega gáfuleg.
2: Drottnun, vilji, möguleikar.
J.R. og co.
3: Styrkur, viðskipti, nýjar
leiðir farnar til að koma málum í
gegn.
4: Vinnu lokið, fullkomnun,
eining. Slakað á, aldrei þessu
vant.
ESSA: Dugur, þor, snilligáfa.
RIDDARI: Greiðasemi, ör-
læti, framkvæmdasemi. Banka-
stjórinn í ættinni.
DROTTNING: Hæfileiki til
að laga sig að aðstæðum,vinátta,
tryggð.
KONUNGUR/PRINS: Kraft-
ur, viðbragðsflýtir sem á það til
að umbreytast í fljótfærni.
Þá er kominn góður skammtur
af lykilorðum til að leggja á
minnið og í næstu viku verður svo
farið í Sverðin og Diskana. Kann-
ið kosmosinn á meðan.
26 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 10. mars 1989