Þjóðviljinn - 10.03.1989, Page 27

Þjóðviljinn - 10.03.1989, Page 27
 KYNLIF JÓNA INGIBJÖRG JÓNSDÓniR Kynímynd kvenna Miðað við þá staðreynd að ég hef staðið fyrir fjölda námskeiða fyrir konur um kynreynslu þeirra er mesta furða að ég skuli ekki hafa skrifað meira um málefni kvenna. Allt í kringum okkur er verið að skírskota til lífs kynj- anna (kyn-lífa). f krepputalinu sem tröllríður þjóðfélagi okkar í dag er rykinu dustað af ímyndinni um mikilvægi húsmóðurhlut- verksins. Til að skapa fleirum at- vinnu skulum við stoppa inn- flutning á útlendingum og bjóða mæðrum það að hætta að vinna úti, fara að vinna heima allan sól- arhringinn og fá laun sem sam- svara kostnaði við dagheimilis- pláss. Goðsagnir eru stjórntæki Gildismat ýmissa hlutverka sem við mannfólkið gegnum er þannig í raun notað sem stjórn- unartæki, ímyndir eða goðsagnir um konur sem kynverur einnig notaðar á slíkan hátt. Beint eða óbeint fara svo þessar hugmýndir að ráða lífi okkar og gjörðum nema við séum meðvituð hvað sé í rauninni að gerast í þjóðfélaginu í heild sinni. ímyndum um konur sem kyn- verur má skipta í tvö sjónarmið. Þessi sjónarmið eru hvorki heppileg sem fyrirmynd né upp- byggileg fyrir sjálfsímynd kvenna. En ég held að hver ein- asta kona finni sig í einni eða fleiri ímyndum. Tilgangurinn með að skoða þessar hugmyndir er að verða meðvitaður, skoða hvaða áhrif þær hafa haft á sjálfa sig og gera það síðan upp við sig eftir hverju maður ætlar að fara. Fyrst má nefna nokkrar útgáfur af goðsögninni um að konur séu engar kynverur, hafi sjálfar ekki kynferðislegar þarfir heldur lifi fyrir ánægju annarra. Fyrst má nefna hina „hreinu mey“. Góðar stúlkur gera það ekki heldur bíða eftir hinum eina rétta. Á meðan eiga strákar að afla sér reynslu og kenna henni síðan. Sett er sama- semmerki á milli þess að tippi fari inn í leggöng stúlku/konu og það að vera kynferðislega virk. Kon- an er fyrst orðin kynvera þegar hún hefur karlmann við hlið sér. Þolinmæði þrautir vinnur allar Rómantíska (og óvirka) konan hefur aldrei frumkvæði og leggur þannig óþarflega mikla pressu á maka sinn. Heil bflhlöss af ástar- rómönum viðhalda þessari ímynd. Ég hef oft hitt konur sem hafa alla ævi verið að bíða eftir hinum fullkomna elskhuga líkt og í sögunum! Þjónustustúlkan sinn- ir þörfum karlmannsins af því það er skylda konunnar. Eldri konur kannast oft við þetta. Þeirra eigin þarfir fóru minnkandi eftir því sem skyldu- ræknin óx. Móðirin segir okkur að ást og öryggi sé meira virði en kynferðisleg ánægja. Þessi ímynd varnar því að konur leggi áherslu á eigin þarfir líkt og hjá ímynd þjónustustúlkunnar. Áðalhlut- verk móðurinnar er að leyfa hon- um að lúra við hlýjan móðurbarm og fá sína fulnægingu. Þá er hún ánægð. Síðan höfum við nokkrar út- gáfur af þeirri ímynd að konan sé jú kynvera og hafi vissulega kyn- ferðislegar þarfir. En þessar út- gáfur bæla einnig fremur en að styrkja heilbrigða kynímynd hjá konum. Nei er ekki til Eva er falleg og tælandi en bráðdrepandi. Þú mátt vera fall- eg en verður að passa þig á því að bjóða ekki með því hættunni heim. Konur sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi, til dæmis nauðgun hvöttu til þess vegna út- litsins. Ef þær voru of lítið klædd- ar tældu þær árásarmanninn en ef þær voru of mikið klæddar vöktu þær forvitni hans! Vændiskonan gerir fúslega hvað sem er gegn greiða. Súpcrdrátturinn má að sjálfsögðu ekki segja nei því það er ekki til í orðasafni hennar. Les- bían er bara með konum af því hún nær ekki í karlmann. Margar fleiri goðsagnir eru til en sannleikurinn er sá að konur hafa rétt á að biðja um kynferðislega ánægju, afla sér þekkingar um kynlíf og ákveða hvort eða hvern- ig þær Iifa sínu kynlífi. En þetta verður síðasti pistillinn minn að sinni. Vonandi höfðuð þið eitthvert gagn og gaman af þess- um kynlífspistlum. Af baráttu Jóhanns og Karpovs Er einvíginu við Anatoly Karp- ov í Seattle lauk hafði Jóhann Hjartarson það á orði að skákor- ustur Karpovs við Kasparov hefðu gert það að verkum að Karpov hefði nú nýjar hugmynd- ir á lager. Skákirnar í einvíginu tala sínu máli um þetta. Jóhann komst ekkert áfram gegn spænska leiknum og með svörtu í enskum leik biðu hans alls kyns ónot. Þegar við bættist yfirburða- tækni heimsmeistarans fyrrver- andi var varla hægt að búast við öðrum úrslitum. A skákmótinu í Linares áttu nokkrar skákir Jó- hanns, og raunar margra annarra keppenda, beina skírskotun til einvígisins í Seattle. Þar eru áber- andi skákir hans við Karpov og Ivantsjúk (nafn hans misritaðist í síðasta þætti). Skákin við Karpov, sem fylgir hér, var tefld í sjöundu umferð og þeir tóku enn til meðferðar Zaitzev-afbrigðið og enn kom Karpov fram með nýstárlega hugmynd. Jóhanni fataðist snemma flugið. Fram að 15. leik svarts fylgjum við 3. einvígis- skákinni í Seattle en þar lék Karpov 15. ... a5. Nú var Jóhann tilbúinn að mæta þéim leik og Karpov, á dæmigerðan hátt, var fyrsturtilaðvíkjaútafmeð 15. ... g6. í áðurnefndri skák lágu mis- tök Jóhanns í áætlun sem byggð- ist á hugmyndinni - Rb3-a5. Riddarinn lagði í sömu för og enn orkar sú áætlun tvímælis. Karpov jafnar taflið auðveldlega með 19. ... c5 en eftir 23.... Rd7 er staðan e.t.v. í jafnvægi. Jóhann leggur þá út í misheppnaða sóknarað- gerð. í stað 24. Hedl leikur hann 24. Bd4 og brátt kemur í ljós að Syngjandi sveinninn Ivantsjúk sigraði glæsilega í Linares Judit (t.v.) og Zsofia Polgar. vopnin snúast í höndum hans. Það er hinn geysiöflugi leikur Karpovs, 26. ... Rc5! (sjá stöðu- mynd) sem gerbreytir myndinni. 27. Bxc5 Bxc5 28. Rxg6 Hd2! er allt annað en fögur staða. Bisk- upar Jóhanns eiga erfitt með að fóta sig og eitthvað verður að láta undan, fyrst peð og er annað peðstap blasir við í vonlausu endatafli gefst Jóhann upp: 7. umferð: Jóhann Hjartarson - Anatoly Karpov Spænskur leikur 1. e4-e5 SKÁK HELGI ÓLAFSSON 2. Rf3-Rc6 3. Bb5-a6 4. Ba4-Rf6 5. 0-0-Be7 6. Hel-b5 7. Bb3-d6 8. C3-0-0 9. h3-He8 10. d4-Bb7 11. Rbd2-Bf8 12. a3-h6 13. Bc2-Rb8 14. b4-Rbd7 15. Bb2-g6 16. Hbl-c6 17. Rb3-Hc8 18. dxe5-dxe5 19. c4-c5 20. Rxc5-Rxc5 21. Dxd8-Hexd8 22. bxc5-Hxc5 23. Bxe5-Rd7 24. Bd4-Hxc4 25. Bb3-Hc7 26. Rh4-Rc5 27. Be5-Hcc8 28. Bf6-Hd3 29. Bc2-Hd2 30. Hb2-Rd7 31. Bbl-Hd6 32. e5-Hb6 33. a4-Rxf6 34. exf6-b4 35. Hdl-Hxf6 36. RB-Hc3 37. Ba2-Bc6 - og hvítur gafst upp. Vaseli Ivantsjúk var maður þessa móts og hreppti einn efsta sætið er Karpov mistókst að sigra Timman í síðustu umferð. Skákir hans voru kraftmiklar og flóknar þvert á skákir Karpovs, sem tókst hvað eftir að nýta sér smá yfir- burði til sigurs. Hánn vann jafnteflisleg hróksendatöfl gegn Portisch og Ljubojevic eins og að drekka vatn. 1. Ivantsjúk IVi v. 2. Karpov 7 v. 3. Ljubojevic 6 v. 4.-5. Tim- man og Short SVi v. 6. Jusupov 5 v. 7. Beljavskí 4Vi v. 8. Portisch 4 v. 9.-10. Gulko og Sokolov 3Vi v. 11. Jóhann 3 v. Að sögn Jóhanns var mótið vel teflt. Keppendur fengu bréf í upphafi þess þar sem sagt var að hver sá sem legðist í stutt jafntefli gæti ekki vænst þess að verða boðið aftur. Þetta hafði sín áhrif. í næstsíðustu umferð er jafntefli kom Ivantsjúk mjög-vel, tefldi hann af miklum krafti til sigurs gegn Anatoly Karpov. Þeir þræddu lengi vel fimmtu einvígis- skák Jóhanns og Karpovs eða þar til Ivantsjúk kom með öfluga endurbót. Eftir miklar hrellingar náði Karpov jafntefli. Jóhann byrjaði þetta mót vel og vann Beljavskí og Sokolov sannfærandi en seinni hlutann sat gerbreyttur maður að tafli. Við mótslitin undu keppendur glaðir við sitt undir söng Lajos Portisch. Honum fer fram hægt og bítandi. Er söng Portisch lauk, beindist athyglin skyndilega að Ivantsjúk þar sem hann sat í hnipri út í horni og sneri uppá yfirskeggið. Getur þú sungið?, var spurt. Tja, hví ekki það. Hetjan unga spratt upp og þrum- aði yfir viðstöddum sovésk dæg- urlög í heilar 10 mínútur. Þessi uppákoma kom algerlega flatt upp á menn og hvort sem það var af blygðun eða öðrum tilfinning- um þá roðnuðu þeir Sokolov og Jusupov alveg niður í tær eins og ungmeyjar á vorkvöldi. Skák- heimurinn hefur greinilega eignast nýja og spennandi kar- aktera. Enn af Polgar-systrum Váleg tíðindi hafa borist af sterku opnu móti í Róm. Zsofia Polgar, miðsystirin í þríeykinu, hefur tekið upp á því að ná ótrú- legum árangri. Hún vann þetta mót með 8V2 vinningi af 9 mögu- legum og varð tveimur vinning- um fyrir ofan sovésku stórmeist- arana Dolmatov, og Tschernin. Meðal fórnarlamba hennar voru þrír sovéskir stórmeistarar, þeir Palatnik, Tschernin og Rasuwa- jev og árangur hennar mun vera uppá 2930 Elo-stig. Föstudagur 10. mars 1989 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 27

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.